Vísir - 11.06.1981, Síða 9

Vísir - 11.06.1981, Síða 9
Fimmtudagur 11. júnl 1981 VlSIR 9 Slávarútvegurinn Björn Dagbjartsson skrifar um fiskveiðar landsmanna og segir: Það er raunar alveg furðulegt að hagsmuna- samtök eins og Liú þurfa að berjast fyrir þvi við stjórnvöld að eigin félagsmönnum sé neitað um fyrirgreiðslu til skipakaupa! I þessu felst þó örlítill vonarneisti um að einhverjir sjái að svona getur þetta ekki gengið endalaust". Á árinu 1980 dróst fiskafli landsmanna saman i fyrsta skipti i mörg ár. Minnkun varö vegna takmarkanna á loönu- veiðum en verðmæti loönu til bræöslu er aðeins um 1/10 af verðmæti hvers kilós annars afla aö meðaltali. Stórfelld aukning þorskafla geröi aö verðmætum til miklu meira en aö bæta upp minnkaðan loðnu- afla svo að verömæti heildarafl- ans jókst enn á árinu 1980. Fyrir þjóöfelagið I heild má likja þessu ástandi við viöureign ein- staklingsins viö verðbólguna. Það er allt I lagi aö borga vixl- ana og skattana á næsta ári þvi að þá verða tekjurnar meiri en þær eru í ár. En hve lengi getur jietta gengiö? íslenska efnahags- undrið Sagt er að erlendir efnahags- sérfræöingar séu alveg gáttaðir á þvíhvernig islendingarfari að þvi að lifa af 50% verðbólgu ár eftir ár. Það má sjálfsagt deila um það hversu vel okkur vegnar miðað við aðra. Það er vel þekkt að flestar vörur eru miklu dyr- ari hér en erlendis miðað við opinbera gengisskráningu, ýmsar stéttir geta sýnt fram á að þær hafi miklu lægri laun heldur en gerist meðal ná- grannaþjóða, vinnudagur er lengri hér en viða annars staöar og fleira þessu likt er tint til. En samtsem áður höfum við það nú bara gott efnahagslega! Það sannar fjöldi bila, sjónvarps- tækja, einkai'biíða ofl. á ibúa. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af skuldum sem við stofnum til i þessu sambandi. Verðbólgan sér um þær. Svipað blasir við þegar litið er á þjóöfélagið i heild og þá sem þar ráöa ferðinni. Það er keypt og eytt, fjárfest og slegin lán — og borgað með stöðugt vaxandi verðmætum sjávarafla. Svo mikið er vist að lánstraust höf- um við enn. (Nema að einhver úti i heimi vilji ekki aö við för- um á hausinn?) Arðbær rekstur — Aukaatriði Það er langt siðan það hætti að vefjast fyrir mönnum þó að ekki væri hægt að sýna fram á hagkvæmni i rekstri t.d. útgerð nýrra fiskiskipa. Forstjórar og verðandi forstjórar útgerðar- fyrirtækja tala um það i fjöl- miðlum I léttum tón, að það sé auðvitað ekki hægt að sýna reikningslega fram á gróöa af útgerð nýrra skuttogara og hafi kannski aldrei veriö hægt. Stöðugt vaxandi afli og hækk- andi afurðaverð er orðið að lög- máli hjá þessum mönnum. Árin 1968 og 1969 eru gleymd. Bara ef hægt er að ná i lánsfé er málið leyst. Það er raunar alveg furðulegt að hagsmunasamtök eins og Llú skuli þurfa að berjast fyrir þvi við stjórnv'öld að eigin félagsmönnum sé neitað um fyrirgreiðslu til skipakaupa! 1 þessu felst þó örlitill vonarneisti um að einhverjir sjái að svona getur þetta ekki gengið enda- laust. Einhvern timan hættir afliað aukast, hugsanlega fellur verð á fiskmörkuðum, eöa sala tregðast. Erum við þegar komn- ir á enda? NU eru liðin ein 6-7 ár sfðan hin svokallaða „svarta skýrsla” fiskifræðinga varð til. Sfðan hafa komið á hverju ári skýrsl- ur frá Hafrannsóknastofnun um ástand fiskstofna og aflahorfur á tslandsmiðum. Varðandi þorskinn þá hefur það varla far- ið fram hjá neinum, enda verið skýrt, að aflinn hefur orðið miklu meiri en talið var að stofninn myndi þola. Hins vegar haia hugmyndir fiskifræöinga um langtíma afrakstur þorsk- stofnsins og reyndar annarra stofna sáralitið breyst. Þaö voru tekin ein 440 þús. tonn af þorski á íslandsmiðum i fyrra og þaö er svona um þaö bil þaö, sem liægt er aö búast viö til j afnaðar og til langframa (450-500 þús. t.) Það verður sjálfsagt veitt meira af þorski en þetta i ár enda afl- inn þegar 1/6 orðinn 260 þús. tonn.Enhvað skeður þá á næstu árum ? Aðra stofna er ekki upp á aö hlaupa þeir eru ýmist full- nýttir eöa greinilega ofveiddir. Dæmiö um grálúðuna (Haf- rannsóknir 22. hefti) er alveg sérstaklega lýsandi. Eftir hvern ofveiöitopp koma nokkur „mög- ur ár”. Kannski tekst okkur að skrapa upp enn meiri grálúðu i ár en i fyrra, en þá koma lika mögru árin. En það er lika „skrift á veggnum” varðandi þorskinn, sögulega séð, án tillits til fiskifræðinga. A siðustu 30 árum hefur þorskafli á tslands- miðum tvisvar orðið meiri en nú er þ.e. á árunum 1953-1958 og á árunum 1970 og 1971. Báöum þessum toppum fylgdu mun magrari ár. Tilkostnaður — verð- mæti Ég held aö það sé sama hvaða óskhyggjurökum menn beita. Við getum ekki búist viö aukn- ingu sjávarafla sem neinu máli skiptir, hvorki i dýrum né verö- litlum tegundum. Miklu meiri likur eru til þess að við megum búast viö samdrætti þegar á næsta ári. Auðvitað væri hægt aö bregðast við þeim aðstæöum með tvennu móti, þ.e. draga úr tilkostnaði viö veiöarnar og auka verömæti þess, sem veitt er. Því miður er ekkert sem bendir til þess að slikar aðgerðir séuá næstu grösum. Sífellt bæt- ast ný og dýr skip i flotann. tlt- gerðarkostnaður vex jafnt og þétt. Skreiðarvinnsla eykst en frysting dregst saman. Auð- vitað getur það borgað sig fyrir fiskverkanda að kaupa lélegt hráefni og henda þvi upp á hjalla þó að miklu meira fáist fyrir jafn stóran þorsk sem fer i flakapakkningum til Bandarikj- anna heldur en Nigeriu. A sama hátt gæti það borgað sig fyrir útgerðarmann að slá sér lán fyrir nýju skipi i stað þess, að borga skatta, þegar gamla skipið er farið að skila arði, en i heild tapa útgerðarmenn (og þjóðfélagið) á hverju nýju skipi, sem við bætist. Þegar þaö rennur upp fyrir hagsm unaaöilunum, sjómönn- um ogdtvegsmönnum, aö afli er hættur aö aukast, jafnvel farinn aö dragastsaman, þá munu þeir biðja um einhvers konar kvóta- skiptingu og takmarkaöan aö- gang aö miöunum eins og gerö- ist i loönuveiöunum. Þá loksins er von til þess að gætt verði fyllstu hagkvæmni i útgeröar- rekstri og keppt að hámarks- verömætum aflans. Hvort þjóö- félagið veröur þá reiðubúið til að hætta að eyða um efni fram og treyst á vaxandi afla, það er önnur saga, Ep Daö hlutverk ríkis- utvarpsins að vernda okkur fyrir frelsinu? Umræður um frjálst útvarp hafa verið mjög liflegar undan- farið, Stofnað hefur verið félag áhugamanna um frjálsan út- varpsrekstur. Fréttamaður rikisútvarpsins átti viðtal við forsvarsmann hins nýja félags. En svo undar- lega brá við að fréttamaöurinn, ræddi mjög fjárhagsmál rikis- útvarpsins i þessu sambandi. Hvað koma þau þessu máli viö? Þá var kvaddur fram Vilhjálm- ur Hjálmarsson, sá annars á- gæti maður, formaður útvarps- ráðs. Hann fer i krafti sins em- bættis að láta uppi sitt álit á þessu máli. Hér er um grund- vallarmisskilning að ræða. Það á ekki að vera hlutverk rikisút- varpsins sjálfs sem stofnunar aö gina yfir skoðunum almenn- ings á frjálsu útvarpi. Fólkið á sjálft að ákveða framtið þess. Þvert á móti á rikisútvarpið að greiða fyrir skoðanaskiptum manna um þessi mál án þess aö reyna að hafa nokkur áhrif á þær umræður, aðrar en þær aö gefa hlutlausar upplýsingar. Vægi ummæla formanns út- varpsráðs i málinu er of mikiö til þess aö opnar og óþvingaðar umræður eigi sér stað. Meö núverandi framkomu út- varpsmanna er eins og að menn eigi að spyrja rikisútvarpið um leyfi til þess að mega hafa skoö- un á frjálsu útvarpi. Rlkisút- varpið á ekki að vera neinn varðhundur rikiseinokunar sinnar. Þættir Friedmans Afstaða rikisútvarpsins til frelsisins kemur vel fram i sýn- ingu þátta Miltons Friedmann. Fjórum þáttum er klesst saman á tvö kvöld. Umræðum eftir hvern þátt, nema þann fimmta er sleppt. Þættirnir sem sagt ritskoðaöir. Af tiu þáttum eru aðeins 5 sýndir. Á sama tima á að demba yfir okkur einum 19 „Dallas” þáttum annari eins dómadags þvælu. Skv. sumum lesendabréfum dagblaðanna eru kostir Dallas þáttanna þó slikir að þeir ófrægja banda- riskt þjóðlif og atvinnurekendur og vara viö boðskap þátta Friedmanns. Annars skil ég ekki þennan ótta við þætti Friedmanns. Hvaöa skoðun sem menn hafa á efnahagsmálum geta þættir sem þessir aðeins vikkað sjón- deildarhring okkar og dýpkað umræöur um þjóðfélagsmál. Friedmann veltir við mörgum steininum sem lengi hefur feng- ið kyrr að liggja og sýnir okkur hina hliðina. Slikir þættir eru alveg upp- lagðir fyrir rikisútvarp. Ég skora á rikisútvarpið að sýna alla Friedmanns þættina óstytt- a. Tjáningarfrelsi almenn- ings Þaö sem stendur hér að ofan er ritað áður en sjónvarpsþátt- urinn 9.6. sl. um fjölmiölun var sýndur. Sá þáttur var mjög góö- ur, þó að fyrir minn smekk kæmu allt of margir stjórn- málamenn fram i þættinum, en það er sameiginlegt með flest- um þáttum rikissjónvarpsins, þar sem skoðanir eru viöraðar, og munu stjórnmálamenn brátt fá einkarétt á að hafa skoðanir i þessu landi ef rikisfjölmiölarnir eflast meir en orðið er. Umræðan um „frjálst út- varp” hitti ekki i mark að minu mati. Þaö er ekki útvarpið sem á aö vera frjálst, heldur á al- menningur I þessu landi að fá frelsi til að útvarpa. 1 húfi er tjáningarfrelsi al- mennings. Tjáningarfrelsi fólks er þau aldýrmætustu mannrétt- indi sem það á, jafnvel lifsnauð- synleg. Oll mestu hryöjuverk þessarar aldar hafa verið fram- in að tjáningarfrelsinu fjarver- andi. Frjáls útvarpsrekstur er grundvallarmannréttindi, tján- ingarfrelsi, sem á að berjast Jóhann J. ólafsson skrifar i tilefni þeirrar umræðu sem sprottið hef- ur um frjálst útvarp. Honum finnst viðbrögð ráðamanna Rikisút- varpsins undarleg og tel- ur það bera vott um þann hugsunarhátt að Ríkisút- varpið eigi að gína yfir skoðunum almennings. fyrir sem sliku. Rikisútvarpiö er of frjálst að sitja yfir rétti annarra til þess að útvarpa. Það á að vera okkar fyrsta verk þeg- ar við tileinkum okkur nýja tækni á sviði fjölmiðlunar, að spyrja: Hvernig er hægt aö tryggja frelsi almennings til tjáningar með þessari nýju tækni? Jóhann J. ólafsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.