Vísir


Vísir - 11.06.1981, Qupperneq 12

Vísir - 11.06.1981, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 11. júni 1981 vísm Hér er allt sem við þurfum i fjóra hamborgara ásamt meðlæti. 600 g hakkaö magurt nautakjöt, 2 tsk salt, 1/2 tsk svartur pipar, 8 hveitbrauösneiöar, 4 ostsneiöar, 3—4 tómatar, 1 laukur og maisoliatil aöpensla kjötiö. Þá er rétt að byrja á þvi aö kveikja i kolunum, en þaö geta liðið einar tuttugu minutur þangaö til aö komin er jöfn glóö i kolin og þau farin aö grána. Þið notiö tima á meöan og blandiö kryddinu saman viö nautahakkið. Kjötinu er skipt i fjóra hluta. Hver buffsneiö á aö vera ca. 2 cm. þykk. Pensliö sneiöarnar meö oliu (báöar hlið- ar á hverri sneiö). Skeriö laukinn i sneiöar og einig tóm- atana. GIRNILEGIR HAMBORGARAR - GLOÐAÐIR A UTIGRILLI i fti Fleiri og fleiri komast upp á lag með (og á bragðið) að nota útigrill, sem i raun er ákaflega einfalt og góð skemmtan um leið. Margir eru lika sannn- færðir um að allur matur bragðist betur, sé hann grill- aður úti, en það er smekksat- riði. í dag færum við eldhúsið úti garð og grillum hamborg- ara, erum meö nýhakkað magurt nautakjöt og eina kryddið sem við notum er salt og pipar. Kolunum er raðað vel i grill- pottinn og kveikilög hellt yfir kolin. Biðið smástund áður en þið berið eld að kolunum, til að láta kolin drekka i sig kveikilöginn. En þá skulum við byrja á byrjuninni. Hamborgararnir settir á ristina og grillaöir i ca. 3 minútur á hvorri hlið, og þá gerum viö ráö fyrir miklum hita. Þá leggjum viö hamborgarana til hliðar á ristinni og setjum brauösneiöarnar á. Ristum hverja sneiö beggja megin. Síöan setjum við ostsneiö á hverja brauösneiö, þar næst hamborgara, tómatsneiöar og lauksneiöar og kórónum verkiö meö seinni brauösneiðinni. Svona líta þessir girnilegu ostborgarar út og ekkert annaö eftir en aö snæða þá meö góöri lyst — helst úti í sólinni. Agúrkur, steiktur laukur, salatbiöð, chilisósa eða tómatsósa, allt þetta og meira til er svo hægt aö borða með. HÚSRÁÐ Algengustu blettir og ráð við að ná þeim: Hreinsun húsgagna- áklæða. Fyrir utan ryksugun og burstun, er gott að þurrka af öðru hverju með klúti, undnum upp úr volgu vatni með sápu i. Froðuhreinsiefni fyr- ir húsgagnaáklæði eru til á markaðnum. Hægt er að útbúa slik hreinsiefni sjálfur úr venjulegum uppþvotta- efnum. Það er gert með þvi að þétta froðu, sem síðan er strokin yfir áklæðið með svampi og ekki tekin af fyrr en hún hefur þornað að fullu. Hreinsun bletta i húsgagnaáklæði Bletti veröur aö fjarlægja eins fljtítt og unnt er. Reyniö fyrst aö þerra blettinn meö þerripappir eöa rökum klilti, vættum i þeim efnum sem leysa hann upp. Þau geta veriö mismunandi. Foröist aö nudda blettinn, en reyniö aö leysa hann upp og þerra. Ef viö erum ekki viss um úr hverju bletturinn er, á aö byrja hreins- unina meö köldu vatni, siöan volgu. Ef þaö gengur ekki, verö- um viö aö þreifa okkur áfram meö mismunandi efnum, til dæm- is blettavatni, bensini, spritti o.þ.h. Þaö er góö regla aö reyna fyrir sér d þeim staö, sem er minnst áberandi. Reyniö aö forö- ast að gegnvæta áklæöiö, þvi þaö gæti skaöaö btílstrunarefniö: Blek: Kalt vatn, sápa, hægt er aö nota sótrónu til aö lýsa upp gamla bletti. Blóð: Kalt vatn, siðan volgt vatn meö biótexi, þaö getur veriö gott aö nota „Brintoverilte” ef áklæðiö þolir þaö. Þaö fæst i flestum apó- tekum. Oliumálning og lökk: Terpentfna, eða þynnir ef efniö þolir þaö. Egg: Volgt vatn. Feiti: Terpentina, uppþvottalögur. Rjómi: Volgt vatn. Ávextir og gos: Volgt vatn, sitróna, sápa, terpenti'na. Líkjör, vin, kaffi, te og Cola: Volgt vatn, ammoniakblanda, gamlir blettir leysast upp með „glycerol”. Kúlupennablek: Brennsluspíitt. Majones, sinnep: Terpenti'na, volgt vatn meö „Biotex”-blöndu. Mjólk: Volgt vatn. Æla: Volgt vatn. óþægileg lykt fjar- lægist með 10% ammoniaks- blöndu. Ryð: 1% Oxalsyra, fæst i apótekum. Skoliö eöa þurrkiö vandlega með volgu vatni. Sósur: URjþvottaefni, volgt vatn. Tómatsósa: Burstun, volgt vatn, ammoni- aksblnda. Súkkulaði: Volgt vatn. Tyggigúmi: Terpentina. Skókrem: Terpentina. Tólg: Burstun, terpentina og brennsluspritt Sulta: Volgt vatn og sápa. Rauðvin: Volgt vatn, ammoniaksblanda, „Brintoverilte”, ef áklæöið þolir það.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.