Vísir - 11.06.1981, Qupperneq 15
VÍSIR
Fimmtudagur 11. júnl 1981
Fimmtudagur 11. júni 1981
VÍSIR
Glæsir Jóns Inga Baldurssonar sigraöi I A-flokki gæöinga. Knapi Gunn-
ar Arnarson.
Frlöur hópur áhorfenda á laugardeginum fylgist meö gæöingakeppninni.
Unglingar rööuöu sér ibreiöfylkingu og tóku á móti verölaunum.
RööuII stóö efstur i B-flokki. Knapi Trausti Þór Guömundsson eigandi
Hörður G. Albertsson.
HvítasunnukaDDreiðar Fáks:
Erling Sigurösson og Frami á mikilli ferö. Frami varö I ööru sæti i A-
flokki gæöinga.
Gjálp sigrar i úrslitum i 350 metra stökki en öll strollan fylgir fast á
hæla henni. Knapi á Gjálp var Kristrún Sigurfinnsdóttir.
FjórtaktaD skeiö 09 tölt
með hliðarhreyfingu
Jón Guðmundsson er einn
þeirra dómara, sem er hvaö
kröfuharðastur um skeið.
Fréttamaður hitti hann og baö
hann segja frá ágreiningnum.
„Undanfariö virðast gangteg-
undimar tölt og skeiö hafa mjög
runniö saman fyrir mönnum,
svo þeirgeri alls ekki nægilegan
greinarmun á þeim. Það er sér-
stakíega áberandi hjá knöpum,
sem keppa jafnum höndum i
iþróttakeppni og gæðinga-
keppni. beir halda þvi fram að
til sé skeiö með hreinum fjór-
takti, en ég vil segja að þá sé
vandséö hvernig á að greina á
milli, og það veröur litiö um
svör, þegar þeir eru spurðir um
það.
Þaö virðist vera að sumir
knapar vilji geta riöiö hestum á
einhverjum gangblendingi, sem
er kallaður skeiðtölt, og kalla
hann tölteða skeið, eftirþvi sem
hentar hverju sinni. Þá kalla
þeir skeiðið f jórtaktað, en töltið
er þá sagt vera með hliðar-
hreyfingu. Iþróttahreyfingin
tekur þettagiltog þess vegna er
Jón Guömundsson
skiljanlegt aö þessir menn reyni
að koma þvi inn i gæðinga-
keppnina.
Gæðingakeppnin er til að
finna besta gæðinginn. Besti
gæðingurinn er sá, sem hefur
vald á hreinum gangtegundum,
mýkt og fegurð i hreyfingum og
glaðan vilja, enda er skilgrein-
ing keppnisreglnanna i þeim
anda.”
Stundum er þvi haldið fram að
þeir guðir, sem stýra veörum á
Islandi séu duttlungafyllri en aðr-
ir. Þvi' hefur lika verið haldiö
fram að þessum sömu guðum sé
einkar uppsigað viö hestamenn. A
mánudaginn, þegar Fáksmenn
háðu sfnar kappreiðar sýndu
guöimir á sér þessar hliðar.
Meðan vatnsgutlarar borgarinn-
ar sulluðu I læragjánni, ef ekki i
sólskini, þá að minnsta kosti i
þurru og þægilegu veðri, tóku
hestamenn klára sina til kostanna
i flóðrigningu inni á Viöivöllum.
Fáksmenn segja reyndar aö þetta
sé ekki illgimi hjá guðunum, þeir
viti aö hestamenn kippa sér ekki
upp við smámuni og það var
orðin full þörf á aö vökva
jöröina.
Gæðingakeppnin
Gæðingar voru dæmdir á
laugardaginn og hefur vist aldrei
veriö meiri þátttaka I gæöinga-
keppni félagsins fyrr. í flokki al-
hliða hesta voru 34 gæðingar
dæmdir og 32 I flokki klárhesta
meö tölti.
Efmarka má einkunnimar sem
alhliða gæðingarnir hlutu, hefur
aldrei i sögu félagsins verið jafn
mikið af jafngóðum gæðingum
verið í eigu félagsmanna. Að
minnsta kosti hafa þeir ekki kom-
ið fram á mótum. Af þessum 34
hestum fengu 25 meðaleinkunn-
ina 8,0 eða hærra. Tólftihesturinn
fékk 8,40 I meðaleinkunn.
Hæstu einkunnina fékk Glæsir,
6 v. jarpur hestur, ættaður frá
Glæsibæ i Skagafirði. Jón Ingi
Baldursson er eigandi hans en
Gunnar Arnarson reiö honum til
dóma. Hann fékk 8,68 i meðal-
einkunn.
I öðru sæti varð Frami frá
Kirkjubæ, vel þekktur gæöingur
og kappreiðavekringur, sem Er-
ling Sigurðsson á og sýndi sjálfur.
Hann fékk 8,56 i meðaleinkunn.
I þriðja sæti varö 7 v. briinn
hestur Ur Skagafirði, sem Jóhann
Friðriksson á og kallar Hofs-
staða-BrUn. Eyjólfur Isólfsson
sýndiklárinn sem fékk 8,55 i eink-
unn.
B-flokkurinn
I B-flokknum voru hestarnir
ekki eins góöir, sé fariö eftir
einkunnunum. Þar náðu þrettán
hestar meðaleinkunn yfir 8,0 og
12. hestur fékk 8,16 I meöaleink-
unn.
Fyrsta sætiö hlaut Rööull, 8 v.
rauöur frá Sauðárkróki. Eigandi
er Hörður G. Albertsson en knapi
var Trausti Þór Guömundsson.
Einkunnin var 8,58.
Annað sætið kom I hlut hests
sem kona Haröar Þórdis H. Al-
bertsdóttirá og heitirsá Hljómur,
er 8 v. og brUnskjóttur frá Vatns-
leysu i Skagafiröi. Sigurbjörn
Báröarson sat hestinn og
einkunnin varð 8,57.
Þriðja sætið fékk Muggur sem
Friða H. Steinarsdóttir á, en
maöurinn hennar Sigurbjörn
Bárðarson sýndi. Muggur er
mósóttur, 14 vetra gamall og hef-
ur oft komið fram áður, bæði sem
Gæðíngaval Fáksfélaga
meira en nokkru sinni lyrr
gæðingur og sem hiaupari. Hann
fékk 8,52 i meðaleinkunn.
Misjafnir dómar
Hér að framan hafa verið
hafðir nokkrir fyrirvarar um
gæði hestanna, einkum i A-
flokknum, og sagt m.a. „ef
marká má einkunnirnar”. Þvi
miður er það ekki að ástæðu-
lausu. Það var samdóma álit
þeirra áhorfenda, sem undir-
ritaður hafði tal af að sjaldan eða
aldrei hefðu þeir séð rangari
dóma, einkum i skeiði. Og sjálfur
sá undirritaður skeiödóma á
fimmhestum og getur heils hugar
tekið undir þennan harða dóm á
dómurunum. Hjá sumum þeirra
munaöi aöeins 0,5 á einkunn hests
sem var tekinn niöur af góðri
stökkferð af mýkt og öryggi og
skeiðaði siðan af dágóðri snerpu
sprettfærið á enda og annars, sem
hægt var með góðum vilja að
segja að hefði skeiðaö ca. 10
metra. Skeiðið sem hann sýndi
var ljótt og meiri hlutann af
sprettfærinu fór hann á einhvers
konar gangflæmingi. Aðrir dóm-
ar voru eftir þessum.
B-flokkinn dæmdu aðrir
dómarar og töldu fyrrnefndir
áhorfendur að þeir hefðu dæmt af
meiri skynsemi, enda var ekki að
sjá að efstu 12 hestar i þeim flokki
væru lakari en 12 efstu i A-flokkn-
um, þrátt fyrir lægri einkunnir.
Tólf efstu hesta i hvorum flokki
komu fram á sýningu á mánudeg-
inum.
Niina voru skeiðsprettir flestra
keppnishestanna i A-flokki gæð-
inga teknir upp á myndband og
varþaðgertá vegum Sigurbjörns
Báröarsonar. A vegum Sigur-
björns eru jafnan margir hestar i
keppni og vitaö er að sumir
dómarar hafa aðra skoöun á
hvernig skeiö skuli dæmt, en
hann.
Þvi má skjóta hér mn i að á -
mótinu benti Siguröur Haralds-
son I Kirkjubæ, sem manna mest
hefur starfað aö þróun gæðinga-
dóma, fréttamanni á að Glæsir,
sem hlaut efsta sætið i A-flokkn-
um, væri afbragðs hraðtöltari. Og
sannast sagna var það of áber-
andi i sýningu gæðinganna, að
þeir tóku ekki skeiöspor, heldur
fóru á mjög greiðu tölti. Þeirra á
meðal var Dagur, hestur, sem
Sigurbjörn sat, og fékk háa eink-
unn.
Kappreiðar
Aö hefðbundnum hætti var
keppt í öllum helstu hlaupagrein-
Sigurjón
Valdimarsson
skrifaði
um.Fyrstvarkepptibrokkiá 800
metra sprettfæri. örlitinn vott
um vaxandi virðingu brokksins
mátti sjá, þar sem Sigurbjörn
Bárðarson kom meö einn brokk-
ara Feng,sem Hörður G. Alberts-
son á. Fengur virtist ekki koma
óþjálfaður til leiks eins og oft vili
verða um brokkara, enda er það
ólikt Sigurbirni að keppa á
óþjálfuöum hesti. Fengur var i
sérflokki og sigraði á 1:39,0 min.
Eftilvillmá væntaþess að menn
taki nii brokkkeppnina alvarlegar
en til þessa, þegar þessi leiðandi
maður í kappreiðum er farinn að
taka þátt i' henni.
Annar I brokkinu varö Bimba-
E iríkur
Jdnsson
tdk myndirnar.
Skjóni á 1:45,9 min og þriðji
Tvistur á 1:46,0 min.
Hörkugóð keppni
Keppnin I 800 m. stökki lofar
gtíðu um framhaldið i sumar.
Þrátt fyrir ausandi rigningu og
blautan völl, náðist ágætur
árangur. Reykur, Harðar G. Al-
bertssonar, með Hörð yngri á
baki.náði fyrsta sætinu á 59,4 sek.
og á sama tima en sjónarmun á
eftir var Þróttur Sigurbjörns
Bárðarsonar. I þriðja sæti var
Leó, Baldurs Baldurssonar, aö-
eins sekUndubroti á eftir hinum,
59,5 sek.
Reykur fyrstur i úrslitum i 800 metra stökki, en Þrdttur og Leó fylgja
fast á eftir.
Drengirnir úr Dal skemmta sér prýðilega milli Sýninga.
í 350 m. stökki var keppnin ekki
nærri því eins spennandi og
árangur ekki heldur eins góður.
Þtí ber þess að geta, að tveir hest-
ar, Blakkur og SkelfirÆgir hlupu
á ágætum tima i undanrásum,
25.1 og 25,2 sek, en voru langt frá
að hlaupa eins vel i Urslitunum.
Sigurvegari varð sú þekkta G jálp
á Laugarvatni á 26,1 sek. Don
varð annár á 26,8 sek. og Skelfir
Ægir þriðji á 27,1 sek.
Mansi heitir sá sem sigraði i
folahlaupinu, hann hljóp á 18,9
sek. Annar varð Lýsingur á 19,0
sek og Litbrá þriðja á 19,4 sek. öll
eru þau 6 v. gömul.
Skjóni á 22,2 en Fannar
skeiðaði ekki
Þá er komið að skeiðinu sem að
vanda var það sem mesta eftir-
væntingu vakti. Þar voru ýmsir
snillingar mættir til leiks, bæði
gammvakrir hestar og snjallir
knapar. t 250 m skeiði sigraði
Skjóni frá Móeiðarhvoli á mjög
góðum tima, 22,2 sek. og er varla
hægtað segja aö honum hafiverið
veitt keppni. Aðalsteinn Aðal-
steinsson sat Skjóna. Annar var
Villingur á 23,3 sek og Þór þriöji á
23,6 sek. Allt eru þetta þekktir
vekringar frá mörgum mótum á
liðnum árum. Miðað við árstima
og aðstæður er ekki annað hægt
að segja en að árangur þeirra var
frábær.
Meðal keppenda var Fannar,
sem Tómas Ragnarsson sat nú i
annað sinn á kappreiðum. Svo er
að sjá að þessi ungi og bráðflinki
knapi hafi ekki enn öðlast þá
hörku sem til þarf að ráða við
þann skapmikla snilling sem
Fannar er, i keppni. Tómas náði
Fannari aldrei niður á skeið.
Lyfting frá Flugumýri, þetta
töfrandi hross, var einnig i
keppninni. Hún greip illa á sig I
fyrri spretti og hljóp upp. Hún
mun hafa meiðst nokkuö mikið og
hætti keppni.
Ljóturljóður á ráði Fáks
Sigurður ölafsson sat Klaka
sinn í skeiðkeppninni og nú eru
liðin 50 ár siðan hann sat hest
fyrst I keppni. Þetta er merkur
áfangi, sem fáir menn ná, að
keppa i' íþrótt sinni i 50 ár. Það
var félagi hans, Fáki, til litils
sóma — að ekki sé sagt til hábor-
innar skammar — að ekki skyldi
vera minnst á þetta afmæli einu
oröi i hátalarakerfi mótsins, hvað
þá að Sigurður hefði veriö
heiðraður á nokkurn hátt.
Af hlaupagreinum var mest
þátttaka i 150 metra skeiöi. Þar
voru 31keppandi skráður.Eins og
oft vill verða gekk erfiölega með
skeiöið á þessum spotta. Sem
dæmi má nefna að aöeins fjórir
hestar lágu báöa sprettina. Börk-
ur sigraöi eins og oftast áöur, þar
sem hann hefur keppt. Hann hljóp
á 15,2 sek. Vafi varð annar á 15,4
sek. og Fengur sá sem sigraði i
brokkinu, varö þriðji á 15,8 sek.
Unglingakeppni
Dagný Ragnarsdóttir varð
hlutskörpust keppenda i ung-
lingaflokki 10-12 ára. Hún keppti á
Glotta. og hlaut 8,20 f einkunn.
í öðru sæti varð Hanna Dóra
Kjartansdóttir á Dúnu-Blesa,
með 8,05 f einkunn og Sigrún
Valdimarsdóttir náöi þriðja sæt-
inu á Krapa meö einkunnina 8,01.
1 eldri flokknum sigraði Ester
Harðardóttir á Blesa meö 8,39 i
einkunn. Tómas Ragnarsson varð
annar á Bjarka með 8,37 og Þór-
unn Eyvindsdóttir varð þriðja á
Blöndu-Blesa meö 8,22.
I unglingakeppninni er knapinn
talinn keppandinn frekar en
hesturinn, þvi að helmingur
einkunnarinnar er fyrir ásetu og
taumhald knapans og það sem
hesturinn gerir er að sjálfsögðu
mikið fyrir atbeina hans. Þannig
verður hiutur knapans i keppn-
inni meiri en hestsins.
Tölt
Háð var töltkeppni i iþróttastil
tengd þessu móti. Sagt er að hún
hafi verið sett upp til að gefa
Fáksfélögum kost á að ná lág-
marks stigafjölda til þátttöku i
fjóröungsmótinu. Sumir segja að
stigin skrifist á nafn knapans og
hann geti komið til keppni meða
hvaða hest sem er á fjtírðungs-
mótinu, hafi hann náð tilskyldum
stigafjölda. Sumir efast lika um
að mótsstjtírn hafi heimild til að
setja fram þessar lágmarkskröf-
ur og skilja raunar ekki tilgang-
inn, sé fyrirkomulagið eins og
fyrr er lýst.
Hvað um það, töltkeppni var
háð á Viðivöllum og þar uröu efst-
ir og jafnir Hreggviður Eyvinds-
son á Goöa og Trausti Þór Guö-
mundsson á Röðli, báðir meö 85
stig. Tómas Ragnarsson á Bjarka
og Eyjólfur Isólfsson á Rökkva
komu næstir meö 83 stig.
Undirritaöur sá ekki töltkeppn-
ina en hefur hlerað að misræmi i
ddmum hafi veriö mikiö.
I heildina var mótiö nokkuö
gott. Þráttfyrirrigninguna náðist
allgóður árangur I mörgum
greinum og mótinu ttíkst að ljúka
á tilætluöum tima, þrátt fyrir að
byrjað var nokkru seinna en
áformaö var. Ekki var þó alveg
fritt viö öll mistök og voru sum
þeirra heldur af verri endanum,
einsog þegar rangt var stillt upp i
úrsl itahlaup. Ahorfendur voru
komnir allmargir, en þeim
fækkaöi óöfluga þegar byrjaði að
rigna og voru fáir að lokum, enda
litiö fýsilegt að standa timunum
saman úti f rigningu jafnvel þótt
horft sé á skemmtilegar kapp-
reiöar.
SV
Hljómur Þórdisar H. Albertsson varö I ööru sæti i B-flokki gæöinga.
Knapi Sigurbjörn Báröarson.
Gullblesi Halldórs Sigurössonar. Knapi Sveinn Hjörleifsson
„Fjórtaktað skeið er til
Fréttamaður haföi einnig upp
á Sigurbirni Báröarsyni og
spurði hann fyrst hvort ástæöan
til að hann léti nú taka skeiö-
sprettina upp á band væn sú"áð
hann véfengdi hæfni dómaranna
til að þekkja og meta skeiðiö.
„Nei, alls ekki,” svaraði
hann. „Ég læt taka þessar
myndir til fróöleiks og glöggv-
unar, jafnt fyrir dómara sem
knapa og aðra, sem kunna aö
hafa not af þeim.”
Aöspurður sagðist hann ekki
telja dómara gera of háar kröf-
ur um skeið, um það væri
ágreiningurinn ekki, heldur
hvort ætti aö viöurkenna fjór-
taktað skeið.
— Telur þú aö það beri aö við-
urkenna?
„Já, að vissu marki. Að þvi
marki að hesturinn tapi ekki
svifi.”
Siguröbjörn Báröarson
— Getur hestur svifið, ef hann
er I fjórtakti?
„Já, ef hann er i fjórtakta
skeiði,” sagði Sigurbjörn.