Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 1
ELLEFU starfsmönnum rússnesks orkufyrir- tækis hefur verið rænt í Írak, að því er arabíska sjónvarpsstöðin Al-Jazeera greindi frá í gær- kvöldi, og hafði eftir fulltrúa fyrirtækisins í Moskvu. Sagði hann að „vera kynni“ að tveir íraskir öryggisverðir hefðu verið skotnir til bana í bardaga við mannræningjana. Sjö Kínverjar, sem var rænt í landinu um helgina, voru látnir lausir í gær, að sögn kín- verska sendiráðsins í Bagdad. Aftur á móti hafði ekkert frést af þremur Japönum sem rænt var á skírdag. Skömmu eftir hádegi í gær rann út frestur sem ræningjarnir höfðu gefið japönsk- um stjórnvöldum til að verða við kröfum um að kalla japanskt herlið burt frá Írak, ella yrðu gíslarnir líflátnir. Al-Jazeera hafði þó greint frá því, að ræningjarnir hefðu framlengt frestinn um sólarhring. Í gær hafði verið tilkynnt um að minnsta kosti þrettán erlenda ríkisborgara sem hefði verið rænt eða væri saknað í Írak, auk Rússanna og Japananna; níu Bandaríkjamenn, Kanadamann, Ísraela og tvo Tékka. Vopnahlé haldið í Fallujah Vopnahlé var enn haldið í borginni Fallujah í gær, þar sem hersveitir bandamanna hafa bar- ist við vígamenn undanfarna daga, en íraskir læknar segja, að yfir 600 Írakar hafi fallið í átökunum í borginni, flest konur, börn og gam- almenni. Bandaríski herinn sagði í gær, að það sem af er apríl hefðu sjötíu liðsmenn herja bandamanna fallið og tífalt fleiri Írakar. Richardo Sanchez, yfirmaður bandaríska heraflans í Írak, sagði í gær, að borgin Najaf væri enn á valdi liðsmanna róttæka sjítaklerks- ins Moqtadas Sadrs. Annar yfirmaður í banda- ríska herliðinu, John Abizaid, sagði Bandaríkja- menn hafa umkringt Najaf, og markmið þeirra væri að „drepa eða handtaka“ Sadr. Lögreglustjórinn í Najaf sagði aftur á móti, að náðst hefði „samkomulag bandamanna og fulltrúa Sadrs“ um að hersveitir bandamanna myndu ekki fara inn í Najaf og menn Sadrs myndu í staðinn fela írösku lögreglunni stjórn borgarinnar. 11 Rússum rænt í Írak Bandamenn hyggjast „drepa eða handtaka“ Moqtada Sadr Doha, Bagdad, Washington. AFP, AP. Lóðaúthlutun í Hafnarfirði  Mikil uppbygging í Blikastaðalandi  Nýtt hús í gömlum stíl við Lindargötu STOFNAÐ 1913 100. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Gljátína og kátína Jón Steinar og Hannes Hólm- steinn gáfu 5 milljónirnar | 4 Við erum heimurinn Lafleur-útgáfan er að allt árið um kring | Listir 16 Fasteignablaðið NÁMSMÖNNUM sem skara fram úr í stærðfræði og ættingjum þeirra er hætt- ara við að fá geðsjúkdóm en þeim sem ekki hafa gengið í framhaldsskóla, en þeim sem eru sterkari á sviði mannvísinda er síður hætt við geðsjúkdómum. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Jóns Löve Karlssonar læknis á sambandi gáfnafars og geðveiki sem birtust í aprílhefti lækna- tímaritsins British Journal of Psychiatry. Rannsókn Jóns nær aftur til ársins 1963 og byggist hún á rannsóknum á sam- anburði á stúdentum frá MR frá árinu 1871 til 1960 og frá MA eftir 1930. Bar hann þá sem voru meðhöndlaðir við geð- sjúkdómum á Kleppsspítalanum saman við námsskýrslur nemenda úr MR og MA og við þá sem ekki höfðu gengið í fram- haldsskóla. Kom í ljós að dúxum í mennta- skóla og ættingjum þeirra var mun hætt- ara við geðveiki. Einnig skoðaði Jón sérstaklega þá sem luku stúdentsprófi ár- in 1931 til 1960 frá stærðfræðideild MR. Hætta á geðveiki meðal ættingja stærð- fræðideildarstúdenta var tvöfalt meiri en búast mátti við. /4 Rannsókn íslensks læknis Stærðfræðisnill- ingum hættara við geðveiki Reuters Á kosningafundi í Skopje KONA með makedóníska fánann málaðan á andlitið á útifundi stuðningsmanna Saskos Kedevs, forseta- frambjóðanda stærsta stjórnarandstöðuflokksins í landinu, í gær. Forsetakosningar fara fram í landinu á morgun í kjölfar þess að Borís Trajkovskí forseti fórst í flugslysi í Bosníu í síðasta mánuði. RÚSSNESKA ríkisstjórnin vill koma á vöruflutningum sjóleiðis milli Murmansk í Rússlandi og Churchill í Manitoba, Kanada, og segir að nú sé rétti tíminn til að hrinda þessum draumi í framkvæmd. Þetta kemur fram í viðtali dagblaðsins Winnipeg Free Press við Georgiy Mam- edov, sendiherra Rússlands í Kanada, á páskadag. Hann segir að vöruflutningar milli landanna á þessari sjóleið geti verið hagkvæmir fyrir bæði ríkin. Ríkisstjórn Rússlands sé með ráðstafanir í undirbún- ingi vegna nauðsynlegra framkvæmda í Murmansk og tími sé kominn til að ræða framhaldið við kanadíska ráðamenn. Mamedov segir að Rússland sé loksins í aðstöðu til að ráðast í nauðsynlegar fjár- festingar vegna uppbyggingar þessarar flutningaleiðar. Fram kemur í frétt blaðs- ins að rannsóknir hafi sýnt að þessi flutn- ingaleið sé sú hagkvæmasta milli Mið- Norður-Ameríku og Norður-Evrópu. Snertir Ísland Undanfarin ár hafa Kanadamenn af ís- lenskum ættum bent á hagkvæmni þess- arar leiðar í sambandi við vöruflutninga milli Íslands og Mið-Norður-Ameríku. Mál- ið hefur verið skoðað lauslega en ráðamenn hafa bent á að ýtarlegri upplýsingar um magn flutninga og fleira þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun um framhaldið verði tek- in. Churchill er við Hudsonflóa í norður- hluta Manitoba. Vegna íss er sjóleiðin opin aðeins í um þrjá mánuði á ári, en talið hægt að halda henni opinni þó nokkuð lengur. Rússar vilja flutningaleið milli Murmansk og Churchill Gæti auðveld- að flutninga milli Íslands og Kanada Winnipeg. Morgunblaðið. „ÞETTA var bara eins og lax. Það var rosaleg- ur kraftur í þessu,“ sagði Ólafur Guðmunds- son sem veiddi 28 punda stórurriða í Þing- vallavatni á föstudaginn langa. Um er að ræða stærsta urriða sem veiðst hefur hérlendis svo vitað sé. Veiðistaðurinn er leyndarmál en Ólafur tók þann stóra af báti úti á vatni ásamt félaga sínum. Urriðinn var veiddur á 12 gramma spún, DAM. 5, og var 40 mínútur að gefast upp. Æddi hann út um allt og dró bátinn af stað í öllum látunum. „Undir lokin gafst hann snögglega upp og við hjálpuðumst að við að ná honum um borð í bátinn. Við gátum ekki notað silungsháfinn enda náði hann rétt yfir hausinn á honum. Við teygðum okkur því eftir honum og vippuðum honum upp í bátinn. Tilfinningin sem fylgir því að landa svona fiski er ólýsanleg og hann fer upp á vegg.“ Þetta er stærsti fiskur sem Ólafur hefur veitt en í fyrra veiddi hann 17 punda urriða í Skorradalsvatni. Áður en Ólafur náði þeim stóra í Þingvalla- vatni hafði hann fyrr um daginn fengið einn 12 punda urriða og síðan annan 5 punda. Dr. Össur Skarphéðinsson, sérfræðingur í stórurriðanum í Þingvallavatni, segir urr- iðann sem veiddist á föstudaginn stærsta urr- iða sem veiðst hefur á stöng hérlendis. Össur segir ekki ólíklegt að fiskurinn sé úr seiða- sleppingunni frá 1992 og spáir því að á næstu árum muni veiðast enn stærri urriðar í vatn- inu. „Það eru 8–10 ár síðan það fóru að veiðast 12–14 punda urriðar og upp úr því fór maður að verða var við 17–20 punda urriða,“ segir hann. „Að stærstum hluta held ég að þetta séu fiskar úr sleppingunni 1992.“ Ólafur Guðmundsson með 28 punda stórurrið- ann sem hann fékk í Þingvallavatni. „Rosalegur kraftur“ Veiddi 28 punda urriða í Þingvallavatni GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði í gær, að ekkert hefði kom- ið fram í skýrslu frá bandarísku leyniþjónustunni skömmu fyrir 11. september 2001 er bent hefði til að „eitthvað væri um það bil að gerast í Bandaríkjunum“. Vera kunni, að endurbóta sé þörf á bandarísku leyniþjónustunni. „Það var ekk- ert [í skýrslunni] sem sagði: „Árás er yfirvofandi,““ sagði Bush við frétta- menn. „Skýrslan var ekki um það. Þetta var eins konar saga um það hvað Osama [bin Laden] ætlaðist fyrir,“ sagði Bush. Skýrslan frá leyniþjónustunni, sem Bush fékk í hendur um mitt ár 2001, var birt opinberlega á sunnu- daginn. Látið hefur verið að því liggja að þar hafi komið fram við- vörun um yfirvofandi árás al-Qaeda á Bandaríkin. Ekkert um „yfirvof- andi árás“ Crawford í Texas. AP. George W. Bush ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.