Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 38
ÍÞRÓTTIR 38 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ FLENSBURG steig stórt skref í átt- ina til þýska meistaratitilsins í hand- knattleik er það vann Kiel, 32:27, í uppgjöri toppliðanna. Flensburg er með fjögurra stiga forystu á Kiel þegar fimm umferðier eru eftir, en Magdeburg er stigi aftar og á leik til góða. Sören Stryger skoraði 6 mörk fyrir Flensburg og Svíarnir Johan Pettersson og Stefan Lövgren 6 hvor fyrir Kiel.  Magdeburg lagði Grosswallstadt að velli, 28:25, en þar skoraði Sigfús Sigurðsson eitt mark fyrir Magde- burg og Snorri Steinn Guðjónsson 3 fyrir Grosswallstadt. Gregorz Tkac- zyk, Pólverjinn snjalli, skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg.  Gylfi Gylfason skoraði 6 mörk þegar Wilhelmshavener vann Guð- mund Hrafnkelsson og félaga í Kronau-Östringen 31:22.  Guðjón Valur Sigurðsson þótti skásti leikmaður Essen og skoraði 4 mörk þegar lið hans steinlá óvænt fyrir botnliði Eisenach, 31:19.  Einar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Wallau-Massenheim en Rúnar Sigtryggsson komst ekki á blað þegar lið þeirra gerði jafntefli við Stralsunder á útivelli, 25:25.  Gunnar Berg Viktorsson skoraði 4 mörk fyrir Wetzlar en Róbert Sig- hvatsson ekkert í ósigri í Pfullingen, 29:26.  Jaliesky Garcia lék ekki með Göppingen gegn Gummersbach vegna meiðsla. Flensburg hafði betur í uppgjörinu við Kiel FÓLK  SILJA Úlfarsdóttir bætti árang- ur sinn í 400 metra hlaupi á móti í Athens í Bandaríkjunum um helgina, hljóp á 53,70 sekúndum en átti áður best 53,97.  DANÍEL Hafliðason, knatt- spyrnumaður úr Víkingi, er geng- inn til liðs við 1. deildarlið Þróttar í Reykjavík. Daníel lék 11 leiki með Víkingum í 1. deildinni í fyrra en hætti áður en tímabilinu lauk.  HELGI Sigurðsson lék ekki með AGF vegna meiðsla þegar lið hans tapaði, 4:1, fyrir AaB í dönsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í gær. AGF siglir lygnan sjó í áttunda sæti deildarinnar.  AC MILAN, topplið ítölsku 1. deildarinnar í knattspyrnu, slapp fyrir horn á laugardag þegar það sigraði Empoli, 1:0. Andrea Pirlo skoraði markið úr vítaspyrnu þeg- ar aðeins fimm mínútur voru til leiksloka en fráfarandi Evrópu- meistarar Milan halda níu stiga forskoti í deildinni. Vítaspyrnan var umdeild, Jon Dahl Tomasson féll en sjónvarpsmyndir sýndu litla snertingu hjá honum við varnar- mann Empoli.  JUVENTUS skoraði líka á síð- ustu stundu því David Trezeguet gerði sigurmarkið gegn Lazio, 1:0, þegar einungis tvær mínútur voru eftir af leiknum.  INTER Mílanó lék sama leik gegn Perugia, skoraði tvívegis á síðustu fjórum mínútunum og sigr- aði, 3:2. Adriano skoraði tvö fyrri mörkin og Obafemi Martins gerði sigurmarkið.  ANCONA, sem þegar er fallið í 2. deild, vann loks sinn fyrsta sig- ur á tímabilinu, í 29. tilraun. Milan Rapaic skoraði tvívegis í sigri á Bologna, 3:2.  ARJEN Robben, hollenski knatt- spyrnumaðurinn sem er á leið til Chelsea, lék væntanlega sinn síð- asta leik með PSV Eindhoven um helgina. Robben fór meiddur af velli eftir 17 mínútur þegar PSV vann Groningen, 5:0.  GUUS Hiddink, landsliðsþjálfari Hollands, sagðist gera ráð fyrir að Robben yrði tilbúinn í tæka tíð til að spila með landsliðinu á EM í Portúgal í júní.  FRANCIS Jeffers, sóknarmaður Arsenal sem er í láni hjá Everton til vorsins, leikur ekki meira með liðinu. Jeffers lýsti því yfir á föstu- dag að hann myndi aldrei aftur spila undir stjórn David Moyes, knattspyrnustjóra Everton, og sáttafundur með þeim á laugardag bar engan árangur.  ASHLEY Cole, vinstri bakvörð- ur Arsenal, haltraði af velli seint í leiknum gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni á páskadag. Hann er tognaður á ökkla og óvíst að hann verði leikfær á ný um næstu helgi. ÓLAFUR Stefánsson skoraði sjö mörk fyrir Ciudad Real á páskadag þegar lið hans steig eitt skrefið enn í áttina að spænska meistaratitlinum í handknattleik. Ciudad vann þá öruggan útisigur á Bidasoa, 27:18, í uppgjöri Íslendingalið- anna. Patrekur Jóhannesson skoraði eitt mark fyrir Bida- soa en Heiðmar Felixson ekk- ert. Ciudad, er sjö stigum á undan næstu liðum, Ademar Leon, Portland og Barcelona, þegar sex umferðum er ólokið. Sjö mörk Ólafs gegn Bidasoa „ÞAÐ má segja að þetta hafi orðið dálítið endasleppt hjá okkur. Eftir að við urðum deildarmeistarar var stefnan ótrauð sett á titilinn en það tókst ekki og við erum von- sviknir með það. En á heildina lit- ið held ég við getum verið sáttir með árangurinn. Það má auðvitað segja að öll lið hafi orðið fyrir vonbrigðum með veturinn, nema eitt,“ sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells eftir tapið gegn Keflavík. Keflvíkingar eru einfaldlega með besta liðið og þeir sýndu það og sönnuðu til dæmis með frábær- um árangri í Evrópkeppninni. Þeir eru með góðan og stóran hóp þar sem hlutverkaskiptingin er á hreinu og menn vita til hvers er ætlast af þeim. Maður verður auð- vitað að hrósa þeim fyrir frábær- an vetur,“ sagði Hlynur. Oft vill það brenna við að lið frá smærri stöðum á landinu koma fram og eru mjög sterk um tíma en síðan koma mörg mörgur ár. „Við verðum allir áfram í Hólm- inum og vonandi flytja brottfluttir Hólmarar til okkar á ný þannig að ég sé enga ástæðu til annars en að við verðum í toppbaráttunni næsta vetur. Hólmarar kunna því vel að hafa gott körfuboltalið hér og vilja alls ekki hrynja niður í botninn. Það stendur heldur ekki til og við ætlum að reyna eins og við getum að bæta árangur okkar. Við vitum að það verður erfitt enda aðeins eitt sæti sem kemur til greina til að okkur takist það. En það er al- veg ljóst að við verðum með topp- lið næsta vetur,“ sagði fyrirliðinn. „Ætlum að bæta okkur“ Ég fann það eftir annan leikokkar við Snæfell að við myndum hafa þetta. Þá losnaði um alla spennu hjá mínum mönnum. Leikirnir við Tindastól voru erfiðir og mikil spenna í mannskapnum, síðan náðum við mjög góðum leikj- um við Grindavík en í fyrstu leikj- unum við Snæfell var þessi spenna komin aftur. En þegar hún hvarf var ég nokkuð viss í minni sök. Það kom dálítið bakslag í menn eftir tapið í Hólminum í fyrsta leiknum en svo var þetta í fínu lagi. Ég held að ef úrslitarimman er skoðuð komi í ljós að Snæfell hafði einfaldlega ekki nægilegan mannskap til að ná að vinna okk- ur,“ sagði Guðjón. Höfum notað sex leikstjórnendur í vetur Þjálfarinn vildi þakka frábæran árangur liðsins hversu margir góð- ir leikmenn eru í hópnum. „Við er- um til dæmis búnir að nota sex leikstjórnendur í vetur og það er ekki svo lítið. Svo erum við með óvenju hávaxið lið miðað við síð- ustu áratugina hjá Keflavík, fimm tveggja metra menn. Það breytir auðvitað leiknum fyri rokkur, við getum dreift álaginu á stóru mennina og erum svo með fínar skyttur fyrir utan þó svo við höf- um skorað færri þriggja stiga körfur í vetur en oft áður. Vörnin hefur verið frábær á stundum hjá okkur og það er virkilega gott að vera með menn eins og til dæmis Nick og Sverri, maður segir þeim bara hvað þeir eiga að gera í vörninni og þeir gera það. Þrátt fyrir að við höfum leikið ágæta vörn í vetur þá erum við það lið sem fær hvað flest stig á sig en um leið skorum við mest. Hugmyndafræðin hjá okkur er að keyra á fullu og fá fleiri góð skot- færi en mótherjarnir. Við viljum leika hratt. Við lékum rúmlega 60 leiki í vet- ur með leikjunum í Evrópukeppn- inni og sigurhlutfall okkar í þess- um leikjum er ríflega 75%, sem ég tel bara ansi gott. Við höfum lent í ýmsu en náð að berja okkur saman og þétta hópinn við mótlætið og það munaði alls ekki miklu að við næðum enn lengra í Evrópukeppn- inni,“ sagði Guðjón. Mótlætið þjappaði liðinu saman Spurður um umfjöllunina síð- ustu vikurnar um grófan leik og ruddalegan sagði Guðjón: „Við höfum ekkert viljað ræða það op- inberlega. En ef við tökum Arnar sem dæmi þá var hann auðvitað óheppinn þegar hann steig fyrir leikmann Snæfells í einum leikn- um. Hins vegar langar mig í þessu sambandi að benda fólki á að ef það hefðu verið fimm myndavélar á leikjum Keflavíkur og Njarðvík- ur þegar þessi lið börðust sem harðast fyrir nokkrum árum þá hefðu sjálfsagt verið orðnir ansi fáir til að leika. Þetta voru harðir leikir, en það er auðvitað hluti af þessu öllu.“ Hann sagði mótlætið hafa þjapp- að liðinu saman. „Bæði þetta mál með Arnar og eins með Fannar. Við nýttum okkur þetta eins og við gátum, ræddum við alla leikmenn- ina og reyndum að þjappa okkur enn frekar saman. Þegar Arnar gaf einum leik- manni puttann í Grindavík, var rætt við alla leikmenn og ítrekað að þeir hegðuðu sér vel innan vall- ar vegna þess að þegar komið er í úrslitakeppnina þá taka menn strax út leikbann séu þeir dæmdir í það og auðvitað vilja liðin ekki missa menn í leikbann. Reyndar virðist eins og KKÍ hafi sofnað að- eins í þessu sambandi því það er auðvitað ekki viðunandi að það sé ekki starfhæf aganefnd á meðan úrslitakeppnin fer fram. Við erum orðnir vanir óhróðri í okkar garð. Það fylgir því að vera góður og Njarðvíkingar þurftu að ganga í gegnum þetta á sínum tíma. Menn fá símhringingar og það hefur alltaf verið en með til- komu Netsins geta menn talað um allt án þess að láta nafns síns getið og það finnst mér ekki rétt. En við verðum að lifa við þetta og menn fá alltaf minnimáttar- kennd gagnvart þeim liðum sem gengur best hverju sinni,“ sagði Guðjón. Spurður um framhaldið sagðist þjálfarinn eiga von á að haft yrði samband við sig og Fal um áfram- haldandi þjálfun, en það yrði ekki gert fyrr en eftir stjórnarkosn- ingu. „Við ætlum að halda okkar uppskeruhátíð á fimmtudaginn og síðan er það lokahóf KKÍ á föstu- daginn þannig að það er nóg að gera,“ sagði Guðjón. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Keflvíkingar fagna með því að lyfta Íslandsbikarnum á loft í Keflavík. Guðjón Skúlason, þjálfari Íslandsmeistara Keflavíkur Himinlifandi „ÉG er alveg himinlifandi með veturinn. Við stöndum í svipuðum sporum eftir hann og við gerðum eftir síðasta vetur. Við erum bikar- og Íslandsmeistarar líkt og þá, gáfum fyrirtækjabikarinn en erum meistarar meistaranna í staðinn. Svo sigruðum við á Valsmótinu og urðum Reykjanesmeistarar,“ sagði Guðjón Skúlason, annar þjálf- ara Keflvíkinga, eftir að lið hans hafði tryggt sér 3-1 sigur á Snæfelli í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.