Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 13.04.2004, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 45 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.10. Ekki eiga við hattinn hans AKUREYRI Kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16 ára. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali Frábær teiknimynd frá Disney fyrir alla fjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! Gamanmynd eins og þær gerast bestar! „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið ÁLFABAKKI 4. Ísl texti Án efa einn besti spennuhrollur sem sést hefur í bíó. „The Dawn of the Dead“ er hressandi hryllingur, sannkölluð himnasending. Þá er húmorinn aldrei langt undan. Semsagt, eðalstöff. ” Þ.Þ. Fréttablaðið. Stranglega bönnuð innan 16 ára. AKUREYRI Kl. 6. Ísl texti AKUREYRI Kl. 6. Með íslensku tali ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.45. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i.12 ára AKUREYRI Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8, og 10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára Rafmagnaður erótískur tryllir  SV. MBL KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. Með ensku tali / Sýnd kl. 6. Með íslensku tali Viggo Mortenson í magnaðri ævintýramynd byggð á sannri sögu! i rt í ri i t r ri ! Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og seiðandi ferðalag. VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4741-5200-0002-4854 4507-4300-0029-4578 4741-5200-0002-5562 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. HJÓNIN David og Victoria Beck- ham segja í yfirlýsingu sem þau sendu frá sér síðdegis í gær, að nýjar fréttir sem birst hafi í breskum blöð- um um helgina um að David hafi ver- ið konu sinni ótrúr séu enn fárán- legri en þær fréttir sem áður hafi birst og séu tilhæfulausar. „Hjónin leiða þessar fréttir hjá sér og munu ekki tjá sig um þær frekar á þessu stigi,“ segir í yfirlýsingu, sem um- boðsfyrirtæki Beckham-hjónanna sendi frá sér í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram, að hjónin hafi haft samband við lög- menn vegna málsins. Blaðið News of the World, sem hefur síðustu tvær helgar birt fréttir um konur sem eiga að hafa átt í ást- arsambandi við Beckham, segist hins vegar standa við fréttir sínar og segir að þær tali sínu máli. Beckham-hjónin komu í morgun til Englands frá Spáni og dvelja nú á sveitasetri sínu í Hertfordshire. Bresk blöð, þó einkum götusölu- blöðin, hafa að undanförnu varið mikilli prentsvertu í fréttir af meintu framhjáhaldi Beckhams. Roy Greenslade, fyrrum ritstjóri Mirror, sagði nýlega í samtali við fréttavef BBC að þetta væri stærsta götu- blaðafrétt frá því Sunday Times hóf að birta útdrátt úr bók Andrews Mortons um Díönu prinsessu árið 1982. REUTERS Victoria Beckham mætti á völlinn þegar eiginmaður hennar og félagar hans í Real Madrid léku gegn Osasuna á sunnudaginn. Beckham-hjónin vísa nýjum fréttum um ótryggð á bug MIKILL mannfjöldi mætti á tónlist- arhátíðina „Aldrei fór ég suður,“ sem haldin var í tengslum við skíða- vikuna á Ísafirði á laugardag. Meira en þrjátíu tónlistarmenn og hljómsveitir komu fram á hátíðinni, sumir þekktari en aðrir, en allir af ríkulegum vilja til að gleðja Ísfirð- inga og gesti þeirra með skemmti- legri tónlist. Meðal þeirra sem fram komu voru Dóri Hermanns, skip- stjóri og aðalatriði kvöldsins, Muggi hafnarstjóri, Þórhallur og Ólavi frá Þingeyri, Mugison og einnig sveitirnar Trabant, Singa- pore Sling, Funerals, Gus Gus, Hud- son Wayne, Kira Kira og Kippi Kaninus. Frítt var inn á hátíðina og gáfu allir vinnu sína. Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem tónlistarmaðurinn Mugison, stóð fyrir hátíðinni ásamt Ragnari Kjartanssyni, Rúnari Óla, Greip Gíslasyni, föður sínum Mugga og unnustu sinni, Rúnu Esradóttur. Hann kveðst afar ánægður með hátíðina sem haldin var í Sindrabergi, gömlu frystihúsi á höfninni á Ísafirði. „Þetta gekk stórkostlega, það voru rúmlega þúsund manns á svæðinu allan tím- ann, í tíu klukkutíma. Það var skemmtilegt rennirí á fólki, allir aldurshópar komu og öll fjöl- skyldan mætti,“ segir Örn. „Það var líka frábært að blanda saman atriðum. Fólk sem mætti til að sjá Dóra Hermanns og Sigga Björns leika fékk líka að sjá Kiru Kiru og og Kippa Kaninus.“ Örn segist ekki tilbúinn að giska á hversu margir gestir komu á svæðið út af hátíðinni, en margir útlendingar hafi komið. „Sumir komu á puttanum, aðrir tóku bíla- leigubíl, renndu inn í bæinn um miðjan dag og enga gistingu að fá, svo pabbi fór í það að koma þeim fyrir hjá vinum og kunningjum.“ Heimsfrægir heimamenn og stórar sveitir í bland Hátíðargestir voru fjölmargir og skemmtu þeir sér með besta móti.Mugison tryllti lýðinn með angurværu tilraunarokki. Liðsmenn hinnar líflegu sveitar The Funerals skörtuðu litríkum klæðum. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Mikil ánægja með tónlistarhátíðina „Aldrei fór ég suður“ á Ísafirði MICHELLE McManus, sem vann Idol-keppnina í Bretlandi á síðasta ári, virðist ekki ætla að ná að fylgja sigrinum eftir og önnur smáskífa hennar, sem kom út í síðustu viku, komst að- eins í 16. sætið á breska vin- sældalistanum. Fyrsta smáskífa McManus fór beint í 1. sætið skömmu eft- ir að hún vann Idol-keppnina í desember og fyrsta breiðskíf- an, sem kom út fyrir mánuði, seldist þokkalega í upphafi en er nú í 75. sæti á breska listan- um. Breska blaðið The Sun full- yrðir í dag að ferli McManus sé lokið, og að þeir hafi haft rétt fyrir sér sem töldu að það myndi vinna gegn henni að hún svarar ekki til hinnar hefð- bundnu poppstjörnuímyndar. Will Young, sem vann fyrstu Idol-keppnina í Bretlandi árið 2002, nýtur hins vegar mikilla vinsælda í Bretlandi. Hann er nú í tónleikaferð um Bretland og er allstaðar uppselt og hann hefur komið tveimur smáskíf- um í efsta sæti vinsældalistans. Hin fallna breska Idol-stjarna. Breska Idol-stjarn- an fallin?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.