Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 25

Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 25 ða ann- ur saga nda, ali Eystra- berjast gslega staðar í efur kjunum ttu sem og aráðs í rðir ð draga rjáls fé- saltsríkj- unum og samræmingar á löggjöf um kaup á kynlífs- þjónustu eftir því sem samstaða næst um. Hið síðasttalda er þó umdeilt enda skiptar skoðanir á Norðurlöndum um hversu árangursríkt það sé að gera vændiskaup refsiverð, líkt og gert hefur verið í Svíþjóð og fyrirhugað er í Finnlandi. Sænsk stjórn- völd sýndu dirfsku og pólitískt frumkvæði með því að ráðast gegn vændi og mansali með breyttri löggjöf þar sem ábyrgðin er flutt af herðum þess sem stund- ar vændi yfir á herðar þess sem kaupir sér aðgang og afnot af líkama annarrar manneskju. Nú þegar hefur fengist nokkur reynsla af framkvæmd laganna og ár- angur náðst því dregið hefur úr mansali til Svíþjóðar. Á rúmum áratug hefur Eystrasaltsríkjunum tekist að byggja upp lýðræðissamfélög. Það hefur tekist í samvinnu við og með stuðningi ríkja í Vestur-Evrópu, ekki síst Norðurlanda. Eystrasaltsríkin eru nýgengin í NATO og ganga í ESB 1. maí nk. Þar með lýkur ferli sem hófst er ríkin urðu sjálfstæð að nýju og losnuðu undan ógnarvaldi Sovétríkjanna. Þar með hefst líka nýtt tímabil í samstarfi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem hefur í för með sér mikla mögu- leika jafnt sem stórar áskoranir. Innganga Eystra- saltsríkjanna í ESB brýnir þörfina fyrir samstarf á sviði löggæslu og landamæraeftirlits því þar með eignast EES-svæðið nýja næstu nágranna. Aukin áhrif Norðurlanda Samstarfið við ESB, Rússland og Eystrasaltsríkin dregur ekki úr samstarfi milli Norðurlanda eða þýð- ingu þess. Þvert á móti er líklegast að samstarfið og mikilvægi þess aukist eftir því sem Norðurlöndin verða virkari í öðru alþjóðlegu samstarfi. Reynslan hefur sýnt að Norðurlöndin, sem eiga um flest líka og sameiginlega hagsmuni, standa sterkar saman en hvert í sínu lagi við að halda þeim og stefnumiðum sínum á lofti í alþjóðasamfélaginu og ekki er að sjá að það breytist í náinni framtíð. Stækkun ESB felur í sér ný tækifæri fyrir norrænt samstarf því flest bendir til þess að samstarf ríkja- hópa með sameiginleg gildi og hagsmuni muni aukast til muna innan ESB. Stækkunin eykur þörfina á að Norðurlönd hafi samráð um hagsmunamál sín í Evr- ópusamstarfinu og á það jafnt við um norrænu ESB- löndin og EES-löndin Ísland og Noreg. Enn fremur er litið til þess að Norðurlönd gætu átt samstarf við Eystrasaltsríkin þegar þau eru komin inn í ESB um að koma sameiginlegum hagsmunamálum fram. Brýnt er að Norðurlönd taki virkan þátt í mótun og útfærslu stefnu hinnar norðlægu víddar ESB og þar með þess svæðasamstarfs innan ESB sem mestu máli skiptir fyrir Norðurlöndin. Þemaráðstefna Norð- urlandaráðs í Helsinki er liður í því. rasaltsríkin kilvægt and kki úr eða er lík- - sem öðru Höfundur er alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. um saman á mismunandi svið- gin vali. Fyrir þessu eru for- antshafsbandalagið hefur verið gt frá því að það var stofnað. gengu í bandalagið en ákváðu draga sig út úr sameiginlegri NATO. Svipaður sveigjanleiki hags- og myntbandalagi Evr- ngen-samningnum og félags- álanum. r að útvíkka þessi fordæmi. hafa öll ríkin þurft að halda ram saman og einstök ríki að sérstakar undanþágur. En frá sáttmálarnir gefið kost á að- kölluðu auknu samstarfi – sem nokkrum ríkjum kleift að m og auka samstarfið á sér- stökum sviðum án þess að öll hin aðild- arríkin taki þátt í því. Í stað þess að ein- stök ríki þurfi að ganga í gegnum erfiðar samningaviðræður til að geta valið að taka ekki þátt í nýju samstarfi geta þau ríki, sem styðja það, einfaldlega kosið að taka þátt í því. Lönd sem vilja meiri samruna geta samið um það sín á milli. Þau þurfa ekki að draga Breta og aðra sárnauðuga með sér vegna þess að hin- um ríkjunum ber ekki skylda til að slást í hóp með þeim. Með þessum hætti get- um við losnað við kerfisbundnu togstreit- una sem hefur einkennt samskipti ESB- ríkja. Ég er þó ekki að mæla með tveggja hraða Evrópu. Í því felst að við séum öll sammála um ákvörðunarstaðinn og okk- ur greini aðeins á um hversu hratt við eigum að ferðast. Ég vil ekki fara á þann ákvörðunarstað sem sum af samstarfs- ríkjum okkar kunna að sækjast eftir. En ég vil ekki leggja stein í götu þeirra. Sumir segja að þetta myndi þýða að ríki, sem kjósa að taka ekki þátt í frekari samruna, missi áhrif. En áhrif eru ekki markmið í sjálfu sér – heldur leið að settu marki. Bretar þurfa ekki að sitja við borðið þegar ákvarðanir eru teknar um evruna. Sú ákvörðun okkar að taka ekki upp evruna hefur ekki skaðað efna- hag okkar. Við viljum halda pundinu en það þýðir ekki að við séum á móti evr- unni eða vonum að myntsamstarfið mis- heppnist. Evrópusambandið ætti að hætta að reyna að gera allt og einbeita sér frekar að því að gera færra á áhrifaríkari hátt en nú. Það ætti að gefa aðildarríkjunum færi á að finna leið til að nálgast Evr- ópumálin á þann hátt sem hentar hefðum þeirra, innan ramma Evrópusambands- ins. Það er á þessum grundvelli sem bresk- ir íhaldsmenn eru andvígir stjórnar- skránni sem lögð hefur verið til. Við er- um auðvitað á móti mörgum ákvæðum hennar en við erum líka andvíg þeirri hugmynd yfirhöfuð að Evrópusambandið fái stjórnarskrá. Það er mikill munur á sambandi þjóðríkja, tengdum með sátt- mála, og einni heild, hvort sem hún er kölluð ríki eða ekki, sem er með eigin lagalegan persónuleika og fær vald sitt frá eigin stjórnarskrá. Verði stjórnarskráin samþykkt í ein- hverri mynd, sem líkist tillögunni sem liggur nú fyrir, fær Evrópusambandið marga af eiginleikum og búningum ríkis: eigin forseta og utanríkisráðherra, eigið lagakerfi. Æðsta vald laga Evrópusam- bandsins myndi ekki eiga rætur að rekja til laga þjóðþinganna heldur yfirþjóð- legrar stjórnarskrár. Þetta er róttæk breyting, ekki aðeins nokkurs konar til- tekt eins og sumir hafa látið í veðri vaka. Ég tel að ekki sé rétt að ráðast í svo mikla breytingu án þess að leita álits fólksins sem veitir okkur umboð til að stjórna. Kjörin þing eiga ekki frelsisrétt- indi okkar. Þingin vernda þau og ættu ekki að skerða þau án skýrs umboðs. Bera verður allar tillögur um nýja stjórnarskrá undir bresku þjóðina og íbúa allra aðildarríkja Evrópusambands- ins. ópa Reuters ðarleiðtoganna Tonys Blair, Gerhards Schröder og Jacques Chirac um það amkeppnisstöðu ríkjanna innan Evrópusambandsins. Höfundur er leiðtogi breska Íhaldsflokksins og fyrrverandi innanríkisráðherra Bretlands. E in helsta réttlætingin jafnaðarmanna á ríkisvaldinu fyrir utan að tryggja ör- yggi þegnanna er að gæta hagsmuna þeirra sem minna mega sín. Nokkrir hópar í okkar ríka samfélagi verða ætíð út undan hjá núverandi rík- isstjórnarflokkum. Þessir hópar eiga þó það sameiginlegt að að- stoð við þá er ein helsta réttlæt- ing á tilvist ríkisvaldsins. Það er ekki hægt að réttlæta önnur rík- isútgjöld á meðan málefni þess- ara hópa eru í ólestri. Geðsjúkir einstaklingar eru út undan Fyrsti hópurinn er geðsjúkir einstaklingar. Það er hreint út sagt ótrúlegt að málefni geð- sjúkra einstaklinga í samfélagi okkar séu í ólestri ár eftir ár og hjá 9. ríkustu þjóð í heimi sem við Íslendingar erum. Meira að segja geðsjúk börn verða fyrir barðinu á fjárskorti og áhuga- leysi stjórnvalda á málefnum þeirra. Úrræði og athvarf alvarlega veikra einstaklinga eru ann- aðhvort ekki til staðar eða ekki fullnægjandi. Það á að vera for- gangsatriði hverrar ríkisstjórnar að gera stöðu þessara ein- staklinga eins góða og hægt er. Gerum betur við aldraða Annar hópurinn sem iðulega verður út undan er aldraðir. Eldri borgarar þessa lands hafa byggt upp þetta ríka samfélag. Þess vegna ber okkur að gera vel við þá og koma á móts við þeirra óskir, t.d. hvað varðar sveigjanleg starfslok og mögu- leika á hjúkrunarrýmum. Undirritaður hefur lagt fram þingsályktun um að skoða þung- lyndi eldri borgara sérstaklega. Þunglyndi meðal eldri borgara er að einhverju leyti falið og ógreint hér á landi en engin stofnun innan heilbrigðisgeirans fæst á skipulagðan hátt við þunglyndi eldri borgara. Þung- lyndi meðal eldri borgara getur í sumum tilfellum verið frábrugðið þunglyndi annarra aldurshópa þar sem missir maka eftir langt hjónaband, einmanaleiki og lífs- leiði geta verið veigameiri orsök en hjá öðrum hópum sem og fjárhagsáhyggjur og kvíði vegna framtíðarinnar. Þessi hópur á svo sannarlega skilið að fá meiri athygli og forgang hjá stjórn- málamönnum. Málefni fanga eru málefni samfélagsins Þriðji hópurinn sem er af- skiptur er fangar. Málefni fanga og fangelsa eru ekki hátt skrifuð hjá ríkisvaldinu og er næsta tryggt að þeir sem þaðan koma út eru verri menn en þegar þeir fóru inn. Engin meðferðarúrræði má finna í fangelsum og þar eru reglur sem niðurlægja fanga og brjóta þá niður. Dæmdir kyn- ferðisafbrotamenn fá enga skipu- lagða meðferð við sínum sjúk- dómi og mæta þeir því aftur í hverfin jafnsjúkir og þeir voru þegar þeir fóru inn. Það er ekki borgurunum í hag að fá skemmda og veika menn aftur á göturnar. Það myndi spara samfélaginu mikla fjár- muni ef ríkisvaldið kæmi á fót fullnægjandi meðferðarúrræðum fyrir fanga. Undirritaður hefur lagt fram þingsályktun um að aðskilja beri unga fanga frá þeim eldri m.a. til þess að betrun og endurhæfing takist betur. Samneyti eldri og forhertari fanga við unga og óreyndari fanga gerir þeim yngri ekkert gott og getur beinlínis stuðlað að frekari afbrotum hjá ungum föngum þegar þeir losna úr fangelsi. Örorka á ekki að þýða fátækt Fjórði hópurinn er öryrkjar. Hlutskipti öryrkja er ekki öf- undsvert. Um er að ræða ein- staklinga sem vegna sjúkdóms eða slysa hafa ekki fulla starfsorku. Þetta er hópur sem samfélaginu ber að rétta hjálparhönd en örorka á ekki að þýða fá- tækt. Gæta þarf sér- staklega að ungum ör- yrkjum sem hafa ekki haft tækifæri á vinnumarkaði til að byggja upp sparnað og lífeyri. Setjum börnin í forgrunn Fimmti hópurinn sem má nefna er börn sem ættu að krefj- ast fullrar athygli hvers stjórn- málamanns. Fátækt foreldra bitnar ekki síst á börnunum. Það þarf að skilgreina ákveðnar tóm- stundir og íþróttir sem hluta af grunnskólastiginu þar sem und- anfarin misseri hefur vaxandi hópur barna ekki efni á eðlilegri þátttöku í slíkum athöfnum. Þátttaka barna í íþróttum vegna kostnaðar er mikið áhyggjuefni á mörgum heimilum. Staða langveikra barna og veikindaréttur foreldra þeirra hefur verið talsvert lakari hér á landi heldur en á hinum Norð- urlöndunum. Þetta er einn af þeim hópum sem okkur ber að gera vel við og það er til skamm- ar að það sé ekki gert. Er þetta allt hægt? En er þetta aðeins orðræða stjórnarandstöðuþingmanns sem vill gera allt fyrir alla? Nei, alls ekki. Það er ljóst að ríkisvaldið hefur svigrúm til að stórbæta stöðu viðkomandi hópa. Til marks um hið mikla svigrúm sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa búið við lengi má nefna eina sláandi staðreynd. Á föstu verðlagi eru útgjöld ríkisinsárið 2004 100 milljörðum króna hærri en þau voru árið 1997. Þetta þýðir að ríkið hefur haft 100 milljarða króna meira á milli handanna á hverju ári en það hafði árið 1997! Í áætlun fjármálaráðuneytisins um ríkisbúskapinn til ársins 2007 er síðan gert ráð fyrir að heild- artekjur ríkisins verði tæpum 100 milljörðum króna hærri en þær voru 2000. Þessar tölur staðfesta að ríkisstjórnin hefur nægilegt svigrúm til að gera ým- islegt. Eins og allir vita snúast stjórnmál um forgangsröðun. Við í Samfylkingunni viljum aðra for- gangsröðun hjá ríkisvaldinu og við viljum og munum mæta þörf- um þessara fimm ofangreindra hópa. Það krefst ekki mikilla fjárútláta en það krefst athygli stjórnmálamanna. Slíka athygli er ekki að finna hjá ríkisstjórn- arflokkunum. Brostin rétt- læting á ríkisvaldinu Eftir Ágúst Ólaf Ágústsson Höfundur er alþingismaður Samfylkingarinnar. ’Það er ekki hægt að rétt-læta önnur ríkisútgjöld á meðan málefni þessara hópa eru í ólestri.‘ Sænska myndin Lilja að eilífu hefur hreyft við mörg- um og Norðurlöndin hafa tekið höndum saman við Eystrasaltsríkin til að stemma stigu við mansali.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.