Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 26

Morgunblaðið - 13.04.2004, Page 26
MINNINGAR 26 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Valgerður Hann-esdóttir fæddist í Reykjavík 20. júlí 1931. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Fossvogi 1. apríl síð- astliðinn eftir rúma sólarhrings legu. Foreldrar hennar voru Valgerður Björg Björnsdóttir, húsfrú í Reykjavík, f. 24. maí 1899, d. 27. janúar 1974, og Hannes Valgarður Guðmundsson, húð- og kynsjúk- dómalæknir, f. 25. febrúar 1900, d. 27. maí 1959. Systkini hennar eru 1) Leifur Hannesson, f. 13. jan. 1930, d. 14. maí 2001, maki Áslaug Stefánsdóttur, f. 10. júní 1929, d. 19. des. 2001. 2) Lína Hannesdóttir, f. 14. september 1935, maki Hilmar Pálsson. 3) Helga Hannesdóttir, f. 10. maí 1942, maki Jón G. Stefánsson. Valgerður giftist Ólafi Ólafs- syni veggfóðrarameistara 2. júní 1956. Börn þeirra eru: a) Hannes Valgarður, f. 25. ágúst 1955, veggfóðrari, kvæntur Guðrúnu Sæmundsdóttur, f. 30. júlí 1960, og eiga þau þrjú börn, Valgerði Björgu, f. 12. feb. 1987; Guð- björgu Fjólu, f. 4. des. 1995, og Önnu Sigríði, f. 13. júní 1997. Fyrir átti Guðrún Aðalgeir Björnsson, f. 24. des. 1976. b) Björg, f. 19. júní 1959, búfræð- ingur. Hún var gift Erni Karls- syni verkfræðingi og eiga þau þrjá syni, Ólaf Örn, f. 9. júlí 1990, Karl Gottlieb, f. 17. sept. 1993, og Egil Örn, f. 15. okt. 1994. c) Val- gerður Birna, f. 20. jan. 1966, deildar- stjóri í Next. Hún á einn son, Óðin Claudíó Romanelli, f. 28. apríl 1997. Faðir hans er Claudíó Romanelli. Valgerður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1951. Hún lagði stund á hús- stjórnarfræði við Holte Hus- holdningskole í Danmörku eftir stúdentspróf og stundaði um tíma nám við læknadeild H.Í. Hún vann hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, Smjörlíkisgerðinni og Ríkisútvarpinu, auglýsinga- deild fram að því að hún stofnaði eigið heimili í Reykjavík og bjó hún og eiginmaður og börn þeirra lengst af á Leifsgötu 19 í Reykjavík. Bjó hún ásamt eig- inmanni og börnum þeirra þar til dauðadags. Valgerður var hús- móðir mestan hluta starfsævi sinnar en gegndi jafnframt ýms- um störfum. Hún þýddi og end- ursamdi, ásamt Sigríði Haralds- dóttur hússtjórnarkennara, Hússtjórnarbókina sem var kennslubók til margra ára í grunnskólum Reykjavíkur. Útför Valgerðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Valgerður var elst af okkur þremur systrum. Hún var ómet- anleg systir sem leysti þrautir allra í fjölskyldunni af einstakri hógværð og umhyggju. Við andlát Valgerðar rifjast upp fyrir okkur allar þær fegurstu ánægjustundir sem við í fjölskyldunni höfum átt með henni og Óla og börnunum í gegnum ára- tugi á heimili þeirra, í veiðiferðum og í sumarhúsi foreldra okkar inni í Fossvogi. Valgerður kannski frem- ur en nokkurt okkar hinna í fjöl- skyldunni bar gæfu til að gera fjöl- skylduhugsjónina að áþreifanlegum jákvæðum veruleika í lífi sínu. Hún hafði þolinmæði, útsjónarsemi, hug- kvæmni, eftirfylgju og óbilandi trú til að koma börnum sínum, barna- börnum og eiginmanni ávallt að gagni með stöðugri nærveru sinni og hjálp. Systa eins og hún var jafnan köll- uð var mikil húsmóðir og bar heim- ili hennar þess óspart vitni. Allir í fjölskyldunni voru ætíð velkomnir á hvaða tíma sólarhringsins sem var. Dagsdaglega rak hún heimili sitt af stakri prúðmennsku og festu og skilaði dagsverki sínu með sóma og bar ávallt mikla umhyggju fyrir sín- um nánustu, börnum, barnabörnum, ættingjum og vandamönnum. Hún hafði unun af heimilisstörfum og matargerð og allt lék í höndum hennar. Valgerður hafði mikla ánægju af að bjóða gestum á heimili sitt og eldaði hún alltaf góðan mat og bakaði tertur af einstakri snilld. Hún var sannkallaður höfðingi heim að sækja og ávallt var gott að vera í návist hennar. Í meira en 40 ár var öll stórfjölskyldan samankomin í kvöldmat hjá Systu og Óla á gaml- árskvöld. Valgerður hélt sérstaklega nánu sambandi við stórfjölskyldu sína, börn, tengdabörn og barnabörn og aðra venslamenn enda einstaklega trygglynd að eðlisfari. Kærleiksríkt samband var milli Valgerðar og eig- inmanns hennar en til margra ára tók hún virkan þátt í erilsömu starfi Ólafs og studdi hann í einu og öllu. Með Valgerði er gengin óvenju kær systir, móðir, amma og eiginkona sem allir í fjölskyldu okkar munu sakna og minnast með þakklátum og hlýjum huga. Börn hennar og barnabörn nutu frábærar umönn- unar hennar allt fram að andláti hennar. Blessuð sé minning hennar. Helga og Lína. Frá því ég fyrst man eftir Val- gerði föðursystur minni var hún aldrei kölluð annað en Systa. Hún var kölluð þessuð gælunafni af bróður sínum Leifi sem var einu og hálfu ári eldri og henni afar kær. Á æskuheimili þeirra, hjá ömmu Völlu á Hverfisgötu 12, var stór svarthvít ljósmynd í ramma af Systu og Leifi föður mínum sem tekin var á ljós- myndastofu þegar þau voru tveggja og þriggja ára. Systkinin vefja hvort annað örmum og eru bæði svo falleg og björt yfirlitum með sitt óvenjuljósa hár. Þegar ég var lítil telpa fannst mér alltaf jafngaman að horfa á þessa mynd af þeim. Við andlát Systu sem bar brátt að misstu allir úr fjölskyldunni mik- ið, því hún Systa var okkur öllum svo góð og við höfum vart áttað okkar á að hún sé farin að eilífu. Hennar er og verður sárt saknað því að með henni er gengin einstök og að mörgu leyti óvenjuleg kona. Það er þó huggun harmi gegn að tekið verður vel á móti Systu eftir þessa jarðvist. Góðir ættingjar og vinir sem því miður hafa margir fallið frá undanfarin ár munu ef- laust taka vel á móti henni og ég er ekki í vafa um að systkinin munu faðmast aftur á himnum. Frá unglingsárum mínum minn- ist ég Systu sem glæsilegrar ungar konu með sinn einstaklega góða mann, Óla, sér við hlið ásamt börn- unum sem urðu þrjú, þau Hannes, Björg og Vala. Heimili þeirra stóð öllum opið og var afar gestkvæmt um tíma, móttökur og veitingar eins og á höfðingjasetri. Hið árlega boð sem haldið var á gamlárskvöld á Leifsgötunni hjá Systu og Óla gleymist engum sem þar var. Því- líkar veislur, svínalærið með stökkri puru ásamt öllu meðlæti sem hugs- ast gat, heimalagaði ísinn með súkkulaðibitunum og marengstopp- arnir hennar Systu voru alltaf til- hlökkunarefni. Veislugestir með lúðra, hatta og knöll og ógleym- anlegt fjör og þegar leið á kvöldið töfraði Systa fram hlaðborð með tertum og tilheyrandi. Það var öll- um ljóst, jafnt yngri sem eldri kyn- slóðinni, að Systa var engin venju- leg húsmóðir. Ég vissi það ekki fyrr en eftir andlát hennar að hún var verð- launanemandi frá hússtjórnarskól- anum í Danmörku og kom það ekki á óvart því handbragðið á svo mörg- um sviðum bar þess vitni alla tíð. Í fjölskylduboðunum var oft minnst á skólagöngu Systu og Línu systur hennar í hússtjórnarskólanum í Danmörku en Systa hefði aldrei flíkað því eða sagt frá því að fyrra bragði hve vel hún stóð sig. Þann stutta tíma sem hún nam lækn- isfræðina við Háskóla Ísands fékk hún tíu í verklegu prófunum. Systa hefði eflaust orðið afburða góður læknir ef hún hefði klárað lækn- isfræðina því hún var svo fjölhæf og flink. Hún flanaði aldrei að neinu, skoðaði hlutina og mat af yfirvegun og hvorki fordæmdi né hallmælti sama hvað var uppi á teningnum. Systa var mjög ritfær og hafði frábæra kunnáttu í stafsetningu móðurmálsins og var oft til hennar leitað af ættingjunum og vinum varðandi vafaatriði. Önnur tungu- mál lágu einnig vel fyrir henni ekki síst danska og þýska sem hún þýddi töluvert úr. Hún vann um tíma á auglýsingadeild Ríkisútvarpsins, einnig að ýmsum þýðingum og út- gáfumálum, m.a. fyrir Verslunar- ráðið. Þó Systa fengist við ótrúlegustu málefni í gegnum tíðina var hún þó fyrst og fremst mikil fjölskyldu- manneskja og lagði allt í sölurnar á þeim vettvangi.Hún var blanda af bestu húsmóður, eiginkonu, móður og ömmu sem hugsast gat og sé ég fáar konur feta í fótspor hennar. Hún var ávallt boðin og búin að hjálpa, gæta og hlúa að á allan hátt ekki síst dætrum sínum og barna- börnum sem hún reyndist ómetan- leg stoð. Mér þótti mjög vænt um Systu og er mjög þakklát og í raun ríkari sem manneskja að hafa átt þess kost ekki síst undanfarin ár að kynnast henni enn betur og á annan hátt en áður. Það var svo gaman að ræða við hana og hún kom sífellt á óvart með þekkingu sinni og áhuga á ótal mörgum málefnum jafnt and- legum sem veraldlegum. Hún hafði töluverðan áhuga á byggingarlist eins og fleiri úr fjölskyldunni og þreyttumst við aldrei á að skoða saman innbæinn og eldri byggðina á Akureyri og víðar. Systa var ansi glúrin á hvað væru góð hús og vildi helst hafa þau bæði reisuleg og traust enda bjó hún sjálf í stórum og góðum húsum alla tíð. Yfir kaffibolla á góðum stundum sá hún oft ansi spaugilegar hliðar á ýmsum hlutum, glettnin skein úr grænum augum, viðmælandi henn- ar skellihló og hún um leið. Það eru svo margar góðar sam- verustundir sem koma upp í hug- ann þegar litið er til baka. Það voru heilagar kvöldstundir og alltaf jafn- gaman þegar hún leit til mín og Sól- eyjar í Stigahlíðina. Heimsóknirnar í gegnum tíðina á Leifsgötuna til Systu og Óla eða Völu og Hannesar. Bíltúrarnir um bæinn og innlit til systra okkar beggja, ógleymanlegar ferðir með Helgu til Aðalbjargar og Óla á Akureyri. Ferðir austur fyrir fjall, til Bjargar og víðar eru mér svo dýrmætar núna að ég hefði ekki viljað missa af þeim fyrir nokkurn mun og má vart til þess hugsa að þeim sé lokið en hugga mig og aðra við að minningin um Systu lifir um ókomin ár. Megi góður Guð gefa Ólafi, börn- um, tengda- og barnabörnum styrk til að takast á við sorgina. Þórdís Leifsdóttir. Nú er skarð fyrir skildi, Systa er horfin úr lífi okkar, hetja og höfð- ingi. Valgerður Hannesdóttir, föður- systir mín, lést fyrir aldur fram. Við í fjölskyldunni kölluðum hana alltaf Systu. Hún var ein af þeim mann- eskjum sem snertu við fínustu strengjum í hjörtum okkar sem henni kynntumst. Systa var góðum gáfum búin og fjölhæf með eindæm- um. Þá var hún ofurnæm í sam- skiptum og einstakur hlustandi enda lét hún sér jafnan annt um aðra. Minningar hafa hrannast upp í huga mínum síðustu daga og gjarn- an tengdar lífsgleði og sérstöku skopskyni Systu, sem oft leyndi mjög á sér. Þá var hún listamaður á sviði matreiðslu og baksturs og báru allar veislur hennar þess glöggt merki. Systa var gæfukona, lifði við ágæta heilsu og átti góðan eiginmann, börn og barnabörn. Ég vil votta þeim mína dýpstu samúð um leið og ég þakka Systu sam- fylgdina. En ég veit að látinn lifir: það er huggun harmi gegn. (Jónas Hallgr.) Gerður Leifsdóttir. Það var glaður hópur nýstúdenta úr Menntaskólanum í Reykjavík sem gekk út í lífið í skrúðgöngunni 17. júní 1951. Sum okkar höfðu fylgst að í skólanum í sex ár. Þar á meðal var Valgerður Hannesdóttir sem nú er kvödd. Við nutum þess að vera busar á 100 ára afmæli skólans og fórum þá smástelpur í síðum kjólum á fagnað á Hótel Borg. Margs er að minnast. Systa eins og Valgerður var köll- uð var alin upp að Hverfisgötu 12. Því glæsilega húsi sem afi hennar og vinur Guðmundur Hannesson prófessor hafði teiknað og bjó í. Síð- ustu árin ásamt Hannesi syni sínum og fjölskyldu hans. Fylgdi því viss hátíðleiki að koma þar inn. Þarna átti Systa heima þangað til hún og Ólafur giftu sig og stofnuðu heimili á Leifsgötu 21 og bjuggu þau þar æ síðan. Hópurinn úr MR 1951 hefur ver- ið samhentur og lengi vel hittumst við árlega og síðan við hættum störfum oft á ári. Systa tók þátt í félagslífinu. Hún var hins vegar hlé- dræg og vildi ekki láta mikið á sér bera. Í sínum hópi var hún ein- staklega góð og trygg vinkona, kát og gamansöm. Nokkru eftir stúd- entspróf fór Systa á hússtjórnar- skóla í Danmörku. Varð hún sann- kallaður listamaður í öllu því sem að heimilishaldi lýtur. Ber heimili hennar og Ólafs þess glöggt vitni. Hún þýddi ásamt Sigríði Haralds- dóttur „Hússtjórnarbókina“ og gaf vinkonum sínum sem minna máttu sín þá ágætu bók. Systu var mjög annt um fjöl- skyldu sína og veitti börnum sínum alla þá umhyggju sem hægt var til síðasta dags. Við bekkjarsysturnar höfum und- anfarið átt stefnumót mánaðarlega. Síðast hinn 11. mars. Þá gaf Guð- ríður Systu mynd af bekknum þeirra, þegar þær voru í vorskóla sex ára gamlar. Valgerður hlaut skyndilegt og banvænt heilablóðfall að morgni 31. mars. Á kveðjustund viljum við þakka löng og góð kynni og færum Ólafi og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur frá bekkjarsystrum okkar. Bergljót, Bergþóra og Ólöf. Systa, eða Valgerður Hannes- dóttir eins og hún hét fullu nafni, var nágranni minn og fjölskyldu minnar frá því að ég man eftir mér á Egilsgötunni eða fyrir um 45 ár- um. Það er jú hálft æviskeið marga og ótímabært fráfall hennar kemur mér og fjölskyldu minni til þess að hugsa um þær stundir sem við átt- um saman í gegnum árin. Sérstak- lega er okkur minnisstæð heimsókn hennar til Kaupmannahafnar fyrir um 15 árum sem hún naut og þótti gaman að dvelja hjá okkur um nokkurra daga skeið ásamt Val- gerði dóttur sinni. Þar hitti hún gamlan nágranna sem bjó við hlið hennar á sínum yngri árum og hún yngdist upp og skemmti sér kon- unglega. Sendingarnar hennar á nýveiddum laxi sem Leifur heitinn bróðir hennar kom með til okkar til Hafnar verða seint þakkaðar. Systa kom oft við heima meðan á dvöl fjölskyldu minnar í Höfn stóð og kært var á milli hennar og móð- ur minnar og stóð heimili hennar ætíð opið fyrir fjölskyldu mína. Það var gaman að vera áhorfandi að stórfjölskyldu Systu, samheldnar systur og fjölskyldur þeirra komu öll saman á afmælum stórra og smárra og boðin í Fossvoginum voru engu lík. Samband Systu við börn sín þrjú var náið, svo náið að stundum hélt maður að hún hefði gleymt sjálfri sér, hún vakti yfir velferð þeirra og barna þeirra dag og nótt og eru ófá- ir dagarnir sem hún dvaldi hjá Björgu dóttur sinni fyrir austan fjall er mikið stóð til og Óðinn hennar Völu hefur misst mikið, hans gætti hún nær daglega frá fæðingu og Hannes og fjölskylda hans býr ekki langt undan eða hin- um megin götunnar. Óli hefur misst lífsförunaut og félaga. Hannes, Björg og Vala hafa misst móður sem ekki var bara mamma heldur besti félagi sem börn geta eignast í móður. Við fjölskyldan að Hamri kveðj- um í dag Systu með upphafslínum að ljóðinu „Ég leitaði blárra blóma“ eftir nágranna þeirra hjóna Óla og Systu, Tómas Guðmundsson, og við vottum Óla, Hannesi og Dúni og dætrum, Björgu og sonum, Völu og Óðni samúð okkar og biðjum góðan guð að gæta þeirra um ókomin ár. Ég leitaði blárra blóma að binda þér dálítinn sveig, en fölleit kom nóttin og frostið kalt á fegurstu blöðin hneig. (Tómas Guðm.) Guðmundur, Guðrún og fjölskylda. VALGERÐUR HANNESDÓTTIR Minningarkort Krabbameinsfélagsins 540 1990 krabb.is/minning Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.