Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 28
MINNINGAR
28 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gunnlaugur Guð-mundsson fædd-
ist á Ólafsfirði hinn
20. mars 1920. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
föstudaginn 2. apríl
síðastliðinn, nýorð-
inn 84ra ára. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Marinó
Ólafsson landpóstur,
f. 15. júlí 1878, d. 11.
apríl 1964, og eigin-
kona hans Ásta Jón-
ína Daníelsdóttir, f.
14. maí 1900, d. 25.
apríl 1934. Systkini Gunnlaugs
eru: Guðrún Guðmundsdóttir
Miller snyrtifræðingur, f. 1. des-
ember 1922, d. 26. júlí 1986, Sig-
urður Guðmundsson, fyrrverandi
flugafgreiðslumaður, f. 7. apríl
1926, og Edda Ásta Sigurðardótt-
ir húsmóðir, f. 9. febrúar 1932, en
hún var ættleidd af Sigurði Gísla-
syni. Hálfsystkini Gunnlaugs
samfeðra eru Skarphéðinn Guð-
mundsson, f. 1909, d. 1992, og
Líney Guðmundsdóttir, f. 1911, d.
1988.
Eiginkona Gunnlaugs var Guð-
rún Aðalbjörg Stefánsdóttir
Richter, f. 21. maí 1921, d. 8. des-
ember 1981. Börn þeirra eru: 1)
Stefán Richter Gunnlaugsson, f.
6. mars 1941. Synir hans og Önnu
Knauf eru Halldór
og Boði. Uppeldis-
dóttir hans er
Freyja Kjartans-
dóttir og dætur hans
og Petru Stefáns-
dóttur eru Petra og
Rakel. Sonur hans
og Maríu Jocylin
Bolon er Stefán
John. 2) Þórir Gunn-
laugsson, f. 2. ágúst
1944. Börn hans og
Sigurveigar Einars-
dóttur eru Stefán
Örn, Ingibjörg Ásta
og Sigþór. 3) Gunn-
ar Aðalbjörn Gunnlaugsson, f. 17.
desember 1946, kvæntur Eygló
Óskarsdóttur. Börn þeirra eru
Guðrún Ósk, Birgitta og Gunn-
laugur. 4) Ásta Jónína Gunn-
laugsdóttir, f. 15. janúar 1949,
gift Sigurði Hallgrímssyni.
Þeirra börn eru Guðrún Aðal-
björg, Gunnlaugur og Sigríður
Guðný. 5) Ingibjörg Gunnlaugs-
dóttir, f. 3. febrúar 1951, gift
Birni Birgissyni. Þeirra börn eru
Arna Þórunn, Gunnar Björn og
Árni Stefán. Barnabarnabörn
Gunnlaugs og Guðrúnar Aðal-
bjargar eru orðin 18 og vitað um
eitt á leiðinni.
Útför Gunnlaugs verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Ungur að árum, aðeins 14 ára,
missti Gunnlaugur móður sína sem
varð til þess að hann fór til sjós og
var í millilandasiglingum um nokk-
urra ára skeið. Það hefur verið harð-
ur skóli fyrir óharðnaðan ungling.
Síðan, eftir nokkra dvöl á Akureyri,
lá leið hans vestur á Ísafjörð og þar
bjuggu þau Guðrún Aðalbjörg lengst
af. Heimili þeirra að Tangagötu 6a
bar smekkvísi og dugnaði þeirra
hjóna fagurt vitni. Gunnlaugur vann
lengi hjá Kaupfélagi Ísfirðinga og
öðlaðist á þeim tíma réttindi sem
kjötiðnaðarmeistari. Mikið var leitað
til hans þegar halda þurfti fínar
veislur, sem síðar leiddi til þess að
hann stofnsetti veitingastaðinn Eyr-
arver sem margir Vestfirðingar
muna eftir. Síðar tók hann að sér
verkstjórastörf í rækjuvinnslu, bæði
fyrir vestan og í Keflavík, en til Suð-
urnesja fluttu þau hjónin 1970 og
Gunnlaugur lét sig ekki muna um að
byggja lítið snoturt hús fyrir þau í
Njarðvík árið 1976. Starfsferlinum
lauk Gunnlaugur svo hjá Ríkismati
sjávarafurða, en þar var hann yfir-
matsmaður á Suðurnesjum. Sama
var hvar hann kom að verki, alltaf vel
liðinn, kurteis, samvinnuþýður, úr-
ræðagóður og samviskusamur.
Kynni mín af Gunnlaugi hafa var-
að í um 38 ár. Hann tók stráknum
auðvitað með varúð í fyrstu, enda
hugsanlega framtíð annarrar heima-
sætunnar í húfi. Það er öllum góðum
feðrum eðlislægt að hafa rétt mátu-
lega horn í síðu þeirra sem sækja að
ungviðinu þeirra. Allt fór vel og öll
þessi ár hefur aldrei fallið eitt
styggðaryrði á milli okkar. Hann var
svo einstaklega ljúfur og þægilegur
maður. Átti til að tuða svolítið um
bruðl og skrýtnar ákvarðanir á póli-
tíska sviðinu, en svo kom gjarnan
gamansaga í kjölfarið og andlitið
gliðnaði í brosi og glettni.
Það varð honum mikið áfall þegar
Guðrún Aðalbjörg féll frá aðeins sex-
tug að aldri. Hennar var sárt saknað,
en hann kaus að búa áfram í
Lyngmóanum, umvafinn hjálpsemi
og hlýju góðra nágranna sinna þar
og góðra vina, sem auk fjöskyldunn-
ar, hjálpuðu við að draga úr sárasta
söknuðinum. Aldrei tók hann í mál
að flytja sig um set. Honum fannst
stofnanir og sambýli eldri borgara
ekki vera fyrir sig, vildi búa í sínu
einbýlishúsi þar til yfir lyki.
Með þessum fátæklegu línum vil
ég kveðja Gunnlaug Guðmundsson
tengdaföður minn og þakka fyrir
samfylgdina. Ekki með harm í huga,
en með söknuði og trega. Hann skil-
ur svo margt gott eftir sig, svo marg-
ar ljúfar minningar. Þær munu ylja
okkur um ókomin ár.
Björn Birgisson.
Með þessum orðum vil ég þakka
Gunnlaugi, kærum tengdaföður og
vini, þau rúm 38 ár sem við höfum
þekkst.
Þið Gógó tókuð mér sem ykkar
þriðju dóttur frá upphafi, ég fann
aldrei annað en ást, hlýju og um-
hyggju frá ykkur og þína góðsömu
glettni sem alltaf var til staðar.
Við bjuggum hjá ykkur í Tanga-
götunni okkar fyrsta ár og eignuð-
umst þar okkar fyrsta barn, sem var
ykkur svo kærkomið.
Þegar kom að okkar fyrstu íbúð
varst þú óþreytandi við að smíða eld-
húsinnréttingu og gera fínt með
þinni vandvirkni og snyrtimennsku.
Síðan fórst þú með mig í verslunar-
leiðangur, ekki gekk að ég ætti ekki
sleif og önnur eldhúsáhöld. Þú
keyptir handa mér það sem þér
fannst mig vanta á nýtt heimili, þetta
er bara eitt dæmi um þína góð-
mennsku í minn garð sem hefur
haldist öll þessi ár.
Leið okkar hjóna lá til Svíþjóðar
og tvö börn bættust í hópinn, tár og
stolt voru í augum þínum vorið 1972
þegar þú komst til okkar og hélst á
nafna þínum undir skírn.
Eftir heimflutning okkar til Hafn-
arfjarðar og þið Gógó komin til
Keflavíkur voru sunnudagabíltúrar
til afa og ömmu vinsælir. Þar var vel
tekið á móti okkur með góðgæti og
glensi.
Gógó þína misstir þú fyrir 22 árum
og hefur saknað hennar mikið, og
varla breytt nokkrum hlut á heimili
ykkar síðan. Þannig hélstu minningu
hennar í huga þínum og okkar allra
öll þessi ár.
Hjartans þakkir fyrir árin sem þú
gafst mér.
Eygló.
Elsku afi. Nú loka ég augunum og
sé myndir, þú varst vanur að spyrja
sástu myndir þegar maður vaknaði
og áttir þá við drauma.
Það eru margar minningar sem
birtast hjá mér, afi minn, sem varst
svo flinkur að gera köldu veisluborð-
in með röðuðu roast beef, skinku og
laxasneiðum og salöt svo ekki sé
minnst á fisk í hlaupi sem hreyfðist á
borðinu.
Það var stutt í stríðnina hjá þér og
hafðir þú nú líka gaman að því þegar
þú varst spurður að því til hvaða rak-
ara þú færir þar sem þú varst ekkert
farinn að grána og sumir héldu því
fram í gríni að þú létir lita það, en
sem klipparinn þinn um tíma veit ég
að svo var nú ekki.
Ég man hvað mér þótti merkilegt
að fá að kíkja upp undir skyrtuerm-
arnar þínar og sjá tattoo-in þín sem
þú varst nú ekkert voða stoltur af á
efri árum.
Þú fylgdist vel með öllum krökk-
unum þínum og varst mjög stoltur af
okkur öllum sem sýnir sig kannski
best á veggnum inni í herbergi, allar
ljósmyndirnar, blaðaúrklippurnar
GUNNLAUGUR
GUÐMUNDSSON
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Minningarkort
Minningar- og
styrktarsjóðs
hjartasjúklinga
Sími 552 5744
Gíró- og kreditkortaþjónusta
LANDSSAMTÖK
HJARTASJÚKLINGA
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
.
1
2
7
0
.9
7
Hjartkær móðir okkar, fósturmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARGRÉT A. KRISTÓFERSDÓTTIR
frá Kúludalsá
Höfðagrund 8,
Akranesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness 2. apríl verður
jarðsungin frá Akraneskirkju miðvikudaginn
14. apríl kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Akraness og dvalar-
heimilið Höfða.
Kristófer Þorgrímsson, Ágústa Þorleifsdóttir,
Ragnheiður Þorgrímsdóttir,
Auðunn Þorgrímsson,
Magnús Þorgrímsson, Rúnar Lund,
Kristófer Pétursson, Ólafía Björnsdóttir,
Karen, Margrét, Ragnhildur, Helga og Gísli Jónsbörn,
Þorgrímur, Magnús, Kristófer og Ómar Kristóferssynir,
Edda Andrésdóttir, Jón Óskar Auðunsson,
Hilmir Bjarki Auðunsson, Auður Ósk Auðunsdóttir,
Guðbjörg S. Jónsdóttir,
Guðrún, Pétur og Margrét Aðalheiður Kristófersbörn,
langömmubörn og aðrir aðstandendur.
Móðir okkar
HREFNA GUNNARSDÓTTIR
Eskihlíð 18a,
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir fimmtu-
daginn 8. apríl.
Gunnar Smári Þorsteinsson,
Ingibjörg Larsen,
Þorsteinn S. Þorsteinsson,
Gísli Þorsteinsson,
Erla Þorsteinsdóttir,
Ingólfur Þorsteinsson,
Katrín Þorsteinsdóttir,
Róbert Þorsteinsson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
INGÓLFUR GUÐMUNDSSON
flugvélstjóri,
Mánatúni 4,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 10. apríl.
Ásta Ingibjörg Þorsteinsdóttir,
Guðmundur, Þorsteinn, Haraldur Már
og Ástríður Helga Ingólfsbörn
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GRÓA AXELSDÓTTIR,
Hlévangi,
Keflavík,
lést föstudaginn 9. apríl.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju mánu-
daginn 19. apríl kl. 14.00.
Þorbjörg Ágústa Birgisdóttir,
Sigríður Vilhjálmsdóttir, Már Sigurðsson,
Ásmundur G. Vilhjálmsson, Ragnheiður Björnsdóttir,
Axel Arndal Vilhjálmsson, Kristbjörg G. Ólafsdóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
ANTON EINARSSON,
Hraunbæ 85,
Reykjavík,
lést á heimili sínu laugardaginn 10. apríl.
Marta Hermannsdóttir,
Hörður Antonsson, Ingibjörg Helga Sigurðardóttir,
Sólveig Antonsdóttir,
Hanna Sólrún Antonsdóttir, Jón Halldór Guðmundsson,
Daníel Freyr Kjartansson,
Eyrún Huld Harðardóttir,
Sigurður Helgi Harðarson,
Eva Hlín Harðardóttir.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir
Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir
Einarsson,
útfararstjóri.
Bryndís
Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS