Morgunblaðið - 13.04.2004, Qupperneq 36
DAGBÓK
36 ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn:
Rán, Sighvatur Bjarna-
son og Gemini koma í
dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg 5.
Fataúthlutun þriðjud.
kl. 16–18, sími 867 7251.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl. 9
jóga, kl. 13 postulíns-
málun. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
9–12.30 bókband, kl. 9
leikfimi, kl. 9.30 dans,
kl. 9.45 boccia, kl. 13–
16.30 smíðar, kl. 20.30
línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 bað, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10–11.30 sund,
kl. 14–15 dans, kl. 15
boccia.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 bað og hár-
greiðsla, kl. 10 sam-
verustund, kl. 14 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin og
vefnaður, kl. 13.30
myndband.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Opin vinnu-
stofa 9–16.30, leikfimi
kl. 10–11, verslunarferð
í Bónus kl. 12.40, bóka-
bíllinn á staðnum kl.
14.15–15.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hársnyrting, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Mosfellsbæ, Dval-
arheimilinu, Hlaðhömr-
um. Kl. 13–16 föndur,
spil og bókbands-
námskeið, kl. 16–17
leikfimi og jóga.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Málun kl. 13,
tréskurður kl. 13.30,
Garðakórinn, kór
FEBG, æfing kl. 17.
Lokað í Garðabergi eft-
ir hádegi, kirkjan með
opið hús í safnaðar-
heimilinu.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Skák kl. 13.
Alkort spilað kl. 13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar ganga frá Ás-
garði, Glæsibæ, kl. 10.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, frjáls prjónastund,
leikfimi í Bjarkarhúsi
kl. 11, brids og billjard
kl. 13, saumur og billj-
ard 13.30.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10 létt ganga,
kl. 13 boccia.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 10–17 handavinna,
kl. 9.30 gler og postu-
línsmálun, kl. 9.05 og kl.
9.55 leikfimi, kl. 10.50
róleg leikfimi, kl. 14
ganga, kl. 14.45 boccia,
kl. 19 brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.05 og 9.55 leik-
fimi, kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13–16 handavinnu-
stofan opin, leiðbein-
andi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín og glerskurður,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð, kl. 13 mynd-
list, línudans og
hárgreiðsla, kl. 15 línu-
dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9. 30 boccia, kl. 9–16.30
handavinna, kl. 13.30
helgistund. Fótaað-
gerðir virka daga, hár-
snyrting þriðju- til
föstudags.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Í dag þriðjudag 13. apr-
íl sundleikfimi í Graf-
arvogslaug kl. 9.30. Á
morgun miðvikudag 14.
apríl, spilað í Fjölnissal
kl. 13.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 10–
11 boccia, kl. 14 leik-
fimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
skinnasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl.
9.15–16 postulín, kl.
10.15–11. 45 enska, 13–
16 spilað og bútasaum-
ur.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
9.30 glerskurður og
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og leik-
fimi, kl. 13 handmennt
og postulín, kl. 14 fé-
lagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13–
16 keramik, taumálun,
almennt föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl.
11.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, kl. 20.
Sinawik í Reykjavík.
Fundur í kvöld kl. 20 í
Sunnusal Hótels Sögu.
Gestur fundarins Ragn-
ar Jónsson frá Garð-
yrkjufélagi Íslands.
Í dag er þriðjudagur 13. apríl,
104. dagur ársins 2004. Orð dags-
ins: Takið því hver annan að yður,
eins og Kristur tók yður að sér,
Guði til dýrðar.
(Rm. 15, 7.)
Pawel Bartozek skrifará frelsi.is: „Það hefur
oft verið sagt um vinstri-
græna að þeir séu á móti
öllu. Sem betur fer hefur
tekist að festa slagorð við
flokkinn og valda honum
þannig heppilegu fylgis-
tapi.
En, auðvitað er ekki til
neitt sem heitir að vera
„á móti öllu“. Til dæmis
eru vinstri-grænir fylgj-
andi því að Landssíminn
verði ekki seldur, þeir
eru fylgjandi því að
menntun sé kostuð af
Ríkinu og menning sömu-
leiðis.
Má því segja að sú full-
yrðing að VG sé „á móti
öllu“ sé stytting á því VG
sé á móti öllu sem Heim-
dallur sé fylgjandi?
Já, það má með sanni
segja að það sé orðin
ánægjuleg þróun að
stefna Heimdallar og
Sjálfstæðisflokksins […]
hafi náð þeim árangri að
verða að pólitískum rétt-
trúnaði, einhvers konar
pólitískum alsannleik
sem menn þurfa sér-
staklega að setja sig upp
á móti.
Eða er ég kannski bara
að misskilja eitthvað?
Hef ég kannski þrifist í
jaðar-
frjálshyggjufélagsskap
svo lengi að ég er farinn
að samsama skoðanir í
því umhverfi við skoð-
anir róttækrar íslenskrar
alþýðu? Ja, að minnsta
kosti heyri ég þennan
frasa, að VG sé „á móti
öllu“ oftast úr munni ...
ungs Samfylkingarfólks.
Hvað sem öllu líður þá
má fullyrða að Vinstri-
grænir séu á móti öllu
einkaframtaki. [Þegar
einkavæða á ríkisfyr-
irtæki] rísa vinstrigræn-
ingjarnir upp og mót-
mæla af krafti því að öld
nýs arðráns sé á leiðinni.
„Þingflokkur Vinstri-
hreyfingarinnar – græns
framboðs mótmælir
harðlega fyrirhugaðri
einkavæðingu Símans.
Markmið um jafnan að-
gang landsmanna að
þjónustu eru í hættu ef
ráðist er í einkavæðingu.
Síminn veitir almanna-
þjónustu og því á hann að
vera á forræði almanna-
valdsins.“
Hefur VG einhverjastefnu [um] hvað
skuli vera á framfæri
hins opinbera, en fyrir
hverju skuli treysta
einkaaðilum? Eða telur
flokkurinn kannski að
allt sem sé prívat sé vont.
Telur flokkurinn að HR
hafi skaðað menntun í
landinu og tilkoma
Stöðvar 2 og SkjásEins
hafi gert íslenskt sam-
félag fátækara? Og hvers
vegna á þá ekki bara að
þjóðnýta Ökuskólann,
Securitas, Morgunblaðið,
Baug og Flugleiðir, eða
önnur fyrirtæki sem hafa
mikilvægu „þjóðfélags-
legu“ hlutverki að
gegna? Af hverju stafar
tregða VG við að kynna
slíkar hugmyndir? Ótta
við fylgistap? Eða
kannski almennri
hræðslu við breytingar?
Sem virðist vera hinn
drifkrafturinn í hug-
sjónabaráttu flokksins.
Á eftir vantrú á fólki,
auðvitað...“
STAKSTEINAR
Á móti öllu?
Víkverji skrifar...
Víkverji ekur mikið á vegum úti oggetur ekki sagt annað en um-
ferðarmenning þjóðarinnar sé heilt
yfir með bærilegasta móti. Auðvitað
stingur aksturslag stöku bílstjóra í
stúf en það er yfirleitt ekkert til að
amast yfir.
Það er þó eitt sem fer í taugarnar
á Víkverja: Hvað margir ökumenn
eru tregir að lækka ljósin í myrkrinu
á veturna. Þegar bílar nálgast úr
gagnstæðri átt í svartamyrkri á ekki
að þurfa að minna ökumenn á að
lækka ljósin. Það á að vera jafn sjálf-
sagt og að nema staðar á rauðu um-
ferðarljósi.
Samt gera þetta alls ekki allir. Í
það minnsta lendir Víkverji ítrekað í
því á ferðum sínum að þurfa að
blikka bílstjórann sem kemur á móti
til að minna hann á að lækka ljósin.
Stundum oftar en einu sinni. Og þeir
allra verstu láta sér hreinlega ekki
segjast, heldur mæta Víkverja með
háum ljósum og tilheyrandi óþæg-
indum. Hvernig stendur eiginlega á
þessu? Eru menn svona latir að þeir
nenna ekki að lækka ljósin eða
stendur þeim á sama um allt og alla í
umferðinni í kringum sig?
Víkverji hefur á tilfinningunni að
þetta vandamál hafi færst í vöxt á
seinni árum og þó þessi orð séu að
öllum líkindum töluð í tómið mátti
hann til með að fá útrás fyrir þessa
gremju sína.
x x x
Víkverji hefur yndi af góðum matog gefur sér því iðulega tíma til
að staldra við þegar vörukynningar
eru í gangi í stórmörkuðum. Ef ske
kynni að hann uppgötvaði eitthvað
nýtt. Árangur kynninga af þessum
toga ræðst auðvitað fyrst og síðast
af gæðum vörunnar en viðmót og
sölutækni kynnenda getur einnig
haft sitt að segja. Ef þeir eru daufir í
dálkinn og áhugalitlir minnka lík-
urnar á því að neytendur
hrífist með.
Víkverji kynntist hinu
gagnstæða á dögunum.
Kom hann að borði í
stórmarkaði, þar sem
kona nokkur var að
kynna brauð. Veitti hann
konunni athygli úr
fjarska, þar sem hún var
með fullan munninn og
stundi af unaði. „Þið
verðið að fyrirgefa en
þetta er svo gott að ég get ekki hætt
að borða það,“ afsakaði konan sig við
búðargesti. Fólk dreif að úr öllum
áttum og skyndilega voru gestir og
gangandi komnir í kappát við kon-
una. Og ekki sá Víkverji betur en
þeir ryddu viðkomandi brauði ofan í
vagnana sína. „Ég má ekki missa af
þessu,“ mátti lesa úr augunum.
Svona atgang hefur Víkverji ekki í
annan tíma séð við vörukynningu í
verslun og hvort sem kynning-
artækni konunnar var meðvituð eða
hreinasta tilviljun hlýtur hún að hafa
fengið vænan bónus frá framleið-
andanum í lok dags. Ef þetta er ekki
leiðin til að selja vöru, hvernig gera
menn það þá?
Morgunblaðið/Kristinn
Það er ekki sama hvernig brauð er á borð borið.
ÞAR sem það er bannað að
mismuna þegnum landsins
þótti mér gott að heyra að
einhver þingmaður ætlar
að athuga með að allir fái
nafnið sitt rétt skráð í
þjóðskrá, hvort sem þeir
heita löngum eða stuttum
nöfnum.
Í alltof mörg ár hefur
fólki verið mismunað hvað
þetta varðar, þ.e. þeir sem
heita t.d. tveim löngum ís-
lenskum nöfnum hafa orðið
að sætta sig við að aðeins
birtist fyrsti stafur seinna
nafns í nafni viðkomandi,
sem hefur oft og tíðum orð-
ið til þess að með tímanum
hefur það nafn alveg horfið
og jafnvel gleymst að hann
héti tveim nöfnum.
Tækninni hlýtur að hafa
farið fram á þessu sviði
eins og annars staðar. Ég
hlakka til þegar ég sé öll
nöfnin mín loksins birtast á
ný.
Þriggja nafna kona.
Góðæri öryrkja
HVER er framtíð barna
einstæðra öryrkja? Eiga
þau ekki að fá að mennta
sig? Ef þau verða 20 ára
1–2 mánuðum fyrir stúd-
entspróf þá fellur mennt-
unarstyrkur þeirra niður
en hann er um 17 þús. kr. á
mánuði. Á bara að herða
sultarólina?
Og um leið á foreldrið að
henda ungmenninu út á
götu, annars missir for-
eldrið heimilisuppbótina,
17.469 kr. Samtals eru
þetta tæplega 35 þús. kr. á
mánuði. Bara að herða
sultarólina meira, takk
fyrir.
Á þetta ungmenni og
önnur í svipaðri aðstöðu að
hætta í skóla einum og
hálfum mánuði fyrir stúd-
entspróf? Ég mundi vilja
að tryggingaráð eða ráð-
herra svaraði þessu. Hvers
vegna gildir styrkurinn
ekki út síðustu önnina?
Eiga þessi ungmenni sem
eru svona óheppin að vera
börn öryrkja og fæðast fyr-
ir maímánuð að lifa á loft-
inu og búa á götunni?
Á.Á.
Gettu betur
EFTIR að hafa horft á
hina bráðskemmtilegu
þætti Gettu betur hef ég
oft verið að láta mér detta í
hug að það væri réttlátt að
sá skóli sem hefur staðið
sig framúrskarandi vel en
ekki orðið hlutskarpari
fengi t.d. helgarferð til
stórborgar erlendis en
vinningsliðið fengi veglega
utanlandsferð því að þau
hafa líka lagt mikið á sig.
Áhorfandi.
Vantaði
kurteisina
NÝLEGA var umræða í
útvarpinu um uppeldi á
börnum. Þá rifjaðist það
upp fyrir mér að í úrslita-
þætti Gettu betur hrifsuðu
þau sem voru í vinningslið-
inu bikarinn af útvarps-
stjóra og þökkuðu ekki fyr-
ir sig. Fannst mér það
stinga í stúf við allt annað í
annars skemmtilegri
keppni. Þarna vantaði
kurteisina. Einnig fannst
mér slæmt að allir skyldu
ryðjast upp á sviðið svo út-
varpsstjóri komst varla
fyrir. Fannst þetta ekki
góður endir á annars ágæt-
um þætti.
030838-2389.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Öll nöfnin
í Þjóðskrá
LÁRÉTT
1 sögn, 4 kuldaskjálfta,
7 býsn, 8 stór, 9 spök,
11 raup, 13 atlaga,
14 fiskar, 15 bjó til,
17 mjög, 20 ekki gömul,
22 rödd, 23 sefaði,
24 fyrirkomulag, 25 bik.
LÓÐRÉTT
1 sori, 2 sálir, 3 rudda,
4 hrörlegt hús, 5 slanga,
6 kylfu, 10 getnaður,
12 tjón, 13 púka, 15 súlu,
16 trylltur, 18 fletja fisk,
19 gera grein fyrir,
20 grafi, 21 syrgi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 renningur, 8 sunnu, 9 fúlan, 10 tin, 11 arðan,
13 sinna, 15 skári, 18 sláni, 21 lóm, 22 stall, 23 álaga,
24 ragmennið.
Lóðrétt: 2 efnuð, 3 nautn, 4 nafns, 5 uglan, 6 assa,
7 knáa, 12 aur, 14 ill, 15 sess, 16 ásana, 17 illum,
18 smáan, 19 ásaki, 20 iðan.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html