Vísir - 24.08.1981, Blaðsíða 16

Vísir - 24.08.1981, Blaðsíða 16
Mánudagur 24. ágúst 1981 16 •Baráttukveðjur frá sjómönnum Vestfiröingar styðja vel við bakiö á leikmönnum isa- fjarðarliðsins, sem eru nú á þröskuidi 1. deildar — i fyrsta skipti f 19 ár. Áhuginn er mik- ill og eru oft landlegur. þegar isfirðingar leika á heimaveiii. Ef bátar og togarar eru á veiö- um, þá senda þeir leikmönn- um isafjarðarliðsins baráttu- kveöjur. Fyrir leikinn gegn Völsungi á laugardaginn, fengu leikmenn liðsins skeyti frá sjómönnnum, með bar- áttukveðjum, inn i búnings- klefa. • ATLI EÐVALDSSON • Atll VIII lá Ijósrit ai skeytl frá Dortmund Atli Eðvaldsson, landsliðs- maður f knattspyrnu, sem leikur með Borussia Dort- mund, hefur beðiö landsliðs- nefnd K.S.Í. að senda sér ljós- rit af skeyti þvi, sem Dort- mund sendi landsliðsnefnd- inni. Atli hefur grun um, að i skeyti þvi, sem Dortmund sendi, stæði aö hann hafi ekki gefiö kost á sér i landsleikinn gegn Dönum, en ekki að Bo- russia Dortmund hefði synjað honum um leyfi til að leika i Kaupmannahöfn. • Haraldur til Danmerkur Ilaraldur Leifsson, einn sókndjarfasti leikmaður lsa- fjarðarliðsins, sem hefur skorað 5 mörk i 2. deildar- keppninni, er farinn til Kaup- mannahafnar til náms og mun hann þvi ekki leika meira með isfirðingum i sumar. • Nigerlumenn mættu 17 min. fyrir leik! — Ilvað, ætla Nigeriumenn ekki að mæta? Þessi spurning kom upp á Laugardalsvellin- um, fyrir landsleik islands og Nigeriu, en þá voru 20 min. þar til leikurinn átti aö hefj- ast. Nigeriumenn voru þá ekki mættir til leiks. Stuttu siðar komu þeir — mjög vel kiæddir og var það 17 min. fyrir leik- inn. • Valsmenn óhressir Valsmenn eru mjög óhressir með aö Mótanefnd K.S.Í. hef- ur sett leik þeirra gegn Eyja- mönnum á 4. september. Þeir óskuðu eftir að leikurinn færi fram 6. sept. Þaö er vel skiljanlegt, að Valsmenn séu óhressir — það má ekki búast við mörgum á völlinn á föstu- degi kl. 19.00. L________________ CD fl r hér 11 lyern 1 | hen” - segir Asgeir Sigurvinsson Ásgeir Sigurvinsson, knattspyrnukappinn kunni frá Vestmannaeyjum, sem er nú í her- búðum V-Þýskalandsmeistaranna Bayern Munchen, lék sinn fyrsta leik í „Bundeslig- unni" á laugardaginn, þegar Bayern mætti Werder Bremen. Asgeir, sem hefur átt viö meiðsli að striða, sem hann hlaut i bikarúrslitaleiknum i Belgiu, komst fyrr inn i hið sterka Bayern-lið en menn reiknuðu með. Blöö i V-Þýska- landi segja, að góður árangur Asgeirs i æfingaleikjum að undanförnu, hafi fært honum sæti i liöinu. — Ég kann mjög vel við mig hjá Bayern Munchen — liösandinn er mjög góður og þjálfarinn (Pal Csernai) er frábær. bá eru leik- menn Bayern mjög góðir félagar, sagði Asgeir i stuttu spjalli viö Visi. Ásgeir sagði, að hann væri fyrst núna að fá ánægju út úr þvi, sem hann væri að gera. — Ég er búinn að vera að æfa á öðrum fætinum i 8 vikur og hefur sá timi verið erfiður. Nú siðustu dagana hef ég getað tekiö þátt i æfingum á fullu og þegar ég gat verið með á fyrstu skotæfingunni, þá fór fyrst að vera gaman. Ný heimur opnast... — Þaö er óhætt að segja, að nýr heimur hafi opnast fyrir mér hér i Bæjaralandi, en til að byrja með átti maður erfitt með að tjá sig, þar sem ég talaði ekki þýsku. Nú er það allt að koma og um leið minnkar spennan á manni, sagði Asgeir. Asgeir sagöi, að fólkið i Munchen væri glatt og skemmti- legt — þaö er léttara yfir fólki hér, heldur en i Belgiu. Það er mjög fallegt hérna — skógar, hæðir og vötn. — Ég hef nokkrum sinnum farið upp að vötnunum hér fyrir ofan, með félögum minum hjá Bayern Munchen og höfum við þá rennt fyrir fisk. bað er ekki mikið að hafa — eingöngu smá-tittir. Rólega af staö — Nú lékstu þinn fyrsta leik með Bayern I „Bundesligunni” — gegn Bremen? — Já, þá var ánægjulegt aö fá að leika sinn fyrsta leik á heima- velli — Ólympiuleikvanginum, þvi það er alltaf erfitt að byrja að leika með nýjum félögum. Ég fór rólega af stað — passaöi mig á að gera ekki vitleysur. Var ragur að gera eitthvað upp á eigin spýtur, enda borgar sig ekki aö byrja á að taka of stórt upp i sig. — Hvaða stöðu lékst þú? — Ég var hægra megin á miöj- unni — i stöðu, sem ég er ekki vanur að leika, sagöi Asgeir, sem lék alltaf vinstra megin hjá Standard Liege. Þetta er ekki besta spilastaðan, þvi að hún byggist upp á miklum hlaupum — maður er 80% af leiknum á hlaup- um og 20% með knöttinn, eða i snertingu við hann. Bíð eftir minu tækifæri Asgeir sagöi, að það væri erfitt að komast inn i lið eins og Bayern Munchen, sem hefur ekki tapað 30 leikjum i röð i V-Þýskalandi. Ég er ekki byrjaður aö örvænta heldur bið eftir minu tækifæri, þegar það kemur. — Ég reikna meö að fá að leika meira inni á miöjunni, þegar Bayern tekur þátt i alþjóðlegu móti á Spáni i næstu viku, sem Real Madrid stendur fyrir. Þá leika landsliðsmennirnir ekki meö, þar sem V-Þýskaland er að leika landsleik á sama tima. Það verður þvi gott að fá að leika tvo æfingaleiki — þeir hjálpa mikið, sagði Ásgeir. Verð að vera á varðbergi Asgeir sagði, að það væri fylgst náið með leikmönnum Bayern af blöðum i Munchen. — Hér eru fimm blöð, sem öll eru á höttum eftir viðtölum og uppsláttarfrétt- um. — Maður verður að vera á varðbergi og hugsa sig tvisvar um, áður en látið er hafa eitthvað eftir sér i blöðin, þvi að „viðtöl” væru yfirleitt löguð til af blaða- mönnunum, eins og þeim hentaði best. 17 9 vindsfig og rigning i Laugardainum „Áttum ekKert svar viö veður- auöunum” & fe- Múnchen. ^l'á Bayern Er að fá „leðurtuðru" — Asgeir, ein spurning aö lok- um — hefurðu hugsað þér aö fá þér stuttbuxur úr leðri, eins og Bæjarar eru þekktir fyrir aö ganga i? — Jú, ég er nú hræddur um það, sagði Ásgeir og hló, en Asgeir sagði, að það hafi klæðskeri kom- ið á æfingu hjá Bayern fyrir tveimur dögum og mælt nokkra leikmenn hátt og lágt. — Hann hefur fengið þaö hlutverk að sauma á okkur „leðurtuðrur”, eins og við köllum buxurnar. Heldurðu, að þaö verði ekki „stæll” á manni, þegar maöur byrjar að spóka sig hér um slóðir i buxunum,” sagði Asgéir og hló. -sos Baslrun lær ekKI fri hiá Hamnuraep sv - til aö leika með Dönum gegn Íslendíngum ■■■■■■■■■■■■■■■■BBUUIUI [Ásgeir ekki meö! Asgeir Sigurvinsson mun aö öllum líkindum ® j» ekki getað ieikið meö islenska landsliðinu gegn ! “ Tyrkjum i HM-keppninni 9. september á ® — Laugardalsvellinum, þar sem Bayern Munchen “ á að leika 8. september gegn Karlsruhe. ■ Þá hefur landsliðsnefnd K.S.l. fengið skeyti “frá Frakklandi þess efnis, að Karl Þórðarson “geti ekki fengið fri til að leika landsleiki Islands i ■HM-keppninni. 1 Aðrir „útlendingar” — Pétur Pétursson, Teit- ■ ur Þórðarson, Janus Guðlaugsson, Magnús ÖBergs, örn Óskarsson, Arnór Guðjohnsen og Atli ■ Eðvaldsson geta leikið leikinn gegn Tyrkjum. ■ -SOS — Við komum til tslands, til að vinna sigur — en við áttum ekkert svar við veðurguðunum, sem voru Isiendingum hliðhollir, sagði Justin Mc. Onwudiwe, þjálfari landsliðs Nígeríumanna, sem eru ekki vaniraö leika knattspyrnu i 9 vindstigum og beljandi rigningu. — Það er ekki hægt að leika knattspyrnu i sliku veðri — ekki hægt að hemja knöttinn, sagði Onwudiwe, eftir aö Nfgeriumenn höfðu mátt þola tap gegn is- lendingum. bað var varla stætt á Laugar- dalsvellinum, þegar leikurinn fór fram — enda m jög hvasst. Það er óhætt að segja, að Islendingar hafi fengiö óskabyrjun, þvi að Arni Sveinsson skoraði fyrsta mark Islendinga — úr fyrirgjöf af 30mfæri. Ámi sendiknöttinn fyr- ir mark Nigeríumanna — utan af kanti. Knötturinn fór fyrir markið og tók siðan sveig og sveif yfir markvörð Nigeriumanna — Oge- bendbe, sem átti ekki von á aö knötturinn stefndi að marki. Islendingar réðu gangi leiksins og bættu þeir Lárus Guðmunds- son og Marteinn Geirsson viö mörkum (3:0) i seinni hálfleik. Lárus skoraði sitt mark með skalla, eftir fyrirgjöf frá Pétri Ormslev, en Marteinn skoraði sitt mark úr vitaspyrnu. Marteinn misnotaöi aðra vita- spyrnu — lét þá Ogebendbe verja frá sér. Anægður með sigurinn — Það var litið hægt að sýna i sliku veðri. Ég er ánægður með sigurinn, sagði Guðni Kjartans- son, þjálfari landsliösins, sem sagðist hafa átt von á Nigeriu- mönnum sterkari. Pétur Ormslev var besti leik- maður islenska landsliðsins. -SOS r- sagöi MG. Onwudiwe. pjálfarl Nigeriumanna, eftir tapið gegn fslendingum -0:3 Baunneiftur fimmta... - í 1500 m hiaupi á EM í Hoiiandi Ragnheiður ólafsdóttir varð i fimmta sæti i 1500 m hlaupi á Evrópumeistara- móti unglinga, sem fór fram i Utrecht i Hol- landi um helgina. Ragnheiður komst i úrslita- hlaupið og má meö sanni segja, að hún hafi staöið sig vel — hún hljóp vegalengd- ina á 4:21.71 min. — SOS RAGNHEIÐUR ÓLAFSDÓTT- IR. Þrjú mörk með skaila Janus Guðlaugsson og félagar hans hjá F ortuna Köln innu góðan sigur (3:1) yfir SC Freiburg i 2. dcildarkeppninni i V-Þýskalandi og er Fortuna Köln nú I fimmta sæti f deildinni. Það var Karl-Heinz Möd- rath sem skoraði öll mörk Fortuna og öll með skalla. — SOS Frá Gunnari Salvarssyni i Kaupmannahöfn. — Það er nú ljóst, að Allan Simonsen verður eini „Útlendingurinn”, sem leik- ur með Dönum gegn islendingum hér i Kaupmannahöfn á miðviku- daginn. Hamburger SV gefur Lars Bastrup ekki fri til að leika, þar sem hann á að leika meö fé- laginu gegn 1. FC Nurnberg sama dag. Danska knattspyrnusambandið er ekki mjög ánægt með fram- komu forráðamanna Hamburger SV — segir, aö það sér ófært að einhverjir menn I V-Þýskalandi séu að meta mikilvægi lands- leikja Dana, en forráðamenn Hamburger SV sögðu, að leikur Dana gegn Islendingum væri ekki svo mikilvægur, aö nauðsynlegt hafi verið aö gefa Bastrup fri til að leika hann. Þaö má nú fastlega reikna með, að danska knattspyrnusamband- ið krefji Hamburger SV um skaðabætur — peninga, fyrir að láta Bastrup ekki lausan i lands- leikinn. Þrir af fjórum atvinnumönnum Dana, sem áttu aö leika gegn Is- lendingum, eru þvi úr leik. Dönsku blöðin segja, að Is- lendingar eigi viö svipaö vanda- mál að glima og Danir, að þeir fái ekki atvinnumenn sina til leiks. — Islendingar tefla þvi fram sinu sterkasta „heimaliöi”, þar sem Arni (Marteinn) Geirsson, 54 landsleiki og hinn knái Sigurlás Þorleifsson eru hvað sterkastir. — Gsal/—SOS NígeríiP tapaði Nigeriumenn léku gegn Sheffield Wednesday f Eng- landi, áður en þeir komu til ts- lands. Þeir töpuðu (0:2) fyrir miðvikudagsliðinu. Frá tslandi héldu Nigeriumenn til Eng- lands, þar sem þeir leika gegn Brighton nú i vikunni og síðan leika þeir einn leik i Portúgal. — SOS, • LARUS GUÐMUNDSSON...sem hefur skorað 2 mörk I tveimur landsleikjum, sést hér reyna skot, en markverði Nfgerlu tókst að bjarga á siðustu stundu. • LARS BASTRUP...Ieikmaðurinn sterki Hamburger SV. Uruguay úr leik Vonir Uruguay um að komast I úrslitakeppni HM i knattspyrnu á Spáni 1982, minnkuöu heldur betur i gærkvöldi, þegar Uruguay-menn töpuðu mjög óvænt á heimavelli — 1:2 fyrir Perú. Perú hefur nú forystu i riöli 2 i S-Ameriku — meö 5 stig eftir þrjá leiki. Uruguay er með tvö stig eftir 2 leiki og Kólumbia er með 1 stig eftir þrjá leiki. Perú á eftir að leika gegn Uruguay heima. —sos 5 nýiiðar gegn Nígeríumönnum Landsiiðið hélt tii Danmerkur i morgun 7/ Bjarki kom, sá og sigraði í Hróarskeldu 5 nýliðar léku með Iandsliðinu gegn Nígerfumönnum — þeir Guðmundur Baldursson (Fram) og Ómar Torfason (Vikingi), sem byrjuðu inná og Sigurður Lárus- son (Akranesi), Ólafur Björnsson (Breiðabliki) og Ragnar Mar- geirsson (Keflavik), sem komu inn á sem varamenn. Landsliðið var þannig skipað: Guðmundur Baldursson (Þor- steinn Bjarnason), Viðar Hall- dórsson (Ólafur Björnsson), öm Óskarsson, Marteinn Geirsson, Sævar Jónsson, Magnús Bergs, Ómar Torfason (Sigurður Lárus- son), Ami Sveinsson, Pétur Orm- slev, Sigurlás Þorleifsson (Ragn- ar Margeirsson) og Lárus Guö- mundsson. Þessir 15 leikmenn ásamt Sig- urði Halldórssyni, héldu til Dan- merkur f morgun. -SOS MARTEINN GEIRSSON...fyrirliöi Islenska landsliðsins. V-Húnvetningurinn efni- legi, B jarki Haraldsson, kom sá og sigraði á Andrésar Andarleikunum i Hróars- keldu i Danmörku. Þessi 12 ára frjálslþrótta kappi varð sigurvegari i 800 m hlaupi og kúluvarpi og tryggöi sér þar með tvo gullpeninga. Bjarki hljóp 800 m á 2:16.2 ■mín., sem er nýtt islenskt strákamet og þá kastaöi hann kúlunni 11,17 m. Arnar Kristinsson frá Akureyri (KA) keppti einnig 112 ára flokki og varð þriðji i 800mhlaupi — 2:24.6mín. og fjóröi í 100 m hlaupi — 13.8 sek. Gyða Steinsdóttir keppti I 11 ára flokki og varð hún önnur i 800 m hlaupi — 2:33.4 min. Lilly Viöarsdóttir (ÚIA) keppti i 12 ára flokki og varð hún önnur f langstökki — stökk 4.49 m og sjöunda I 800m hlaupi — 2:41.1 min. 250 keppendur frá Norður- löndunum tóku þátt i mótinu. -SOS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.