Vísir - 24.08.1981, Blaðsíða 2

Vísir - 24.08.1981, Blaðsíða 2
2 (Spurt á Fáskrúðsfirði) Hvernig finnst þér að búa áFáskrúðsfirði? Kristjana Guölaugsdóttir, hús- móöir: Mjög gott. Fjóla Hreinsdóttir, banka- starfsmaöur: Þaö er hreint ágætt. Pétur Jóhannesson, aöfluttur frá Færeyjum: Ég hef hvergi kunnað betur við mig. Gisli Guömundsson, verkamaö- ur: Það er aldeilis fint. Auöbjörg Gunnarsdóttir, hús- . móöir: Þaö er mjög gott. VtSIR Mánudagur 24. ágúst 1981 fflli Rfl ' n fepAi fik ki einhvers- nttHI konar ojf pa i i fUI Ul Ulm ibi fyrir m ki U1IIIIIUI u •akkana” - segir Óiafur Jónsson nýráðinn forstöóumaður Tðnabæjar A föstudaginn var, var Tóna- bær formlega opnaöur sem fé- lagsmiöstöö fyrir Hliða- og Háa- leitishverfi i Reykjavik og hefur margur ibúinn þar vafalaust ver- ið glaöur i bragöi og léttur i lund i tilefni þess dags. En allar félags- miöstöövar þurfa sér forstööu- mann til aö sjá um og skipuleggja alla þá miklu starfsemi sem þar fer fram. í stöðu forstööumanns Tónabæjar hefur verið ráöinn Ólafur Jónsson og tók hann viö þvi starfi stuttu áöur en Tónabær var opnaöur formlega. Dregist haföi hjá borgarráöi aö ráöa i stöðuna þannig aö i miklu var aö snúasthjá Ólafifyrstu dagana, en Visi tókst aö ná tali af honum meö aðstoð tækninnar, segulbandi og sima. „Áhuga á unglingastarf i" Ólafur er gagnfræöingur og múrari aö mennt og hefur starfaö sem múrari utan siöustu þriggja ára en þá hefur hann starfaö á vegum Æskulýösráös Reykjavik- ur i félagsmiöstöövum borgarinn- ar sem eftirlitsmaöur og um skeiö sem forstööumaöur I Bústööum. Hann er 27 ára, giftur Kristinu Guðmundsdóttur og eiga þau tvö börn. Hann var fyrst spuröur aö þvi hvaö kæmi til aö hann færi úr múrverki i félagsmálastörf? „Já, ég er mikið i iþróttum og iþróttir og unglingastarf eru mik- il áhugamál hjá mér, og þarna sá ég mér leik á borði aö gæti sam- einaö þessi áhugamál min.” Ólafur er landsþekktur sem handknatleiksmaöur, en hann keppir meö landsliöinu á þeim vigstöövum svo og er hann Vik- ingur I húö og hár. En hefur Ólaf- ur fleiri áhugamál en þau fyrr- nefndu? Ólafur Jónsson nýráöinn forstöðumaöur félags- miöstöövarinnar i Tónabæ. (Visism. ÞL) „Ég spila golf af fullum krafti. Svo heima fyrir þá er þaö pianó- leikur, þaö hef ég sem heima- hobbi og hef haft mjög gaman af. Meira er það ekki þvi vinnan, áhugamálin og Iþróttirnar taka allan minn tima.” Opið hús og diskótek Tónabær veröur starfræktur á sama hátt og aörar félagsmið- stöðvar i borginni. En Ólafur sagöi aö mikil breyting yröi frá þvi sem áöur var, Tónabær yröi rekinn meö allt ööru sniöi. Hver er þá helsta starfsemin I Tónabæ? „Viö munum byggja þetta upp á opnum húsum og diskótekum. Siöan veröa starfræktir ýmsir klúbbar sem sinna áhugamálum hvers og eins. Unglingarnir munu skapa sér meö þessu sjálfir aöhald og þeir munu sjálfir hafa innra eftirlit meö starfsemi staöarins. Unglingarnir eru kjarninn fyrir húsiö þó svo þaö sé hér önnur starfsemi, svo sem hljómleikar og leiklist.” Koma iþróttir til meö aö skapa háan sess i Tónabæ? „Ég vonast eftir mjög góöu samstarfi viö Val og Fram þó svo ég sé nú Vikingur og aö viö höfum barist og bitist á undanförnum árum. En ég vonast eftir góöu samstarfi viö þá vini mina i sam- bandi viö Iþróttir.” Er eitthvaö sérstakt sem þú vilt leggja áherslu á ööru fremur í sambandi við starfsemi Tónabæj- ar? „Nei. Það veröur mitt stærsta mál aö breyta staðnum i þetta fé- lagsmiöstöövarform sem að þarf aö ráða rikjum. Félagsmiðstöðv- ar hafa reynst vel og ég tel þær mjög góöan vettvang fyrir fólk, og mjög gott er að reka félags- miðstöðvar i þvi formi sem þær eru. Þær hafa gert mikið gagn fyrir krakka þar sem þær eru og þaö þyrfti að fjölga þeim.” Hefur þú fundiö áhugann hjá fólki með starfsemina i Tónabæ? „Þetta er allt svo skammt á veg komið, ég er svo nýkominn i starfið. En þaö skýrist i næstu viku, þvi ég á eftir aö vinna aö samstarfi viö skólana hér i ná- grenninu. En áhugi fólks er ör- ugglega fyrir hendi.” Með glæsilegri salarkynn- um borgarinnar Hvernig er Tónabær til þess fallinn aö vera félagsmiöstöð? „Þetta eru mjög glæsileg salar- kynni hérna, sjálfsagt meö glæsi- legri salarkynnum borgarinnar. Hér er hægt aö vinna á viðara sviöi en á mörgum öörum stöð- um. Þó Tónabær sé gamalt hús þá hafa breytingarnar heppnast al- veg sérlega vel. Og Tónabær er vel i stakk búinn til aö taka viö þessari starfsemi. Hér geta veriö 470 manns i einu og sæti eru fyrir 270 manns þannig aö margt getur veriö starfrækt i einu.” Kemur Tónabær ekki til meö aö vera þitt annaö heimili? „Jú, örugglega. Ætli maður veröi ekki einhverskonar pabbi fyrir krakkana,” sagöi Ólafur Jónsson nýráöinn forstööumaöur félagsmiöstöövarinnar i Tónabæ. — HPH Enflur- svning I iðnó Kratar i Reykjavik komu saman I Iönó, siöastliöið fimmtudags- kvöld. Þar fór fram endursýning á „Alþýöu- blaösfarsanum ” Ekki var fundurinn eins fjöl- sóttur og búist haföi veriö viö, enda fólk sennilega búiö aö fá skammtinn sinn. En þarna var Alþýöublaösdeilan sumsé rifjuö upp einn ganginn enn og lét Jón Baldvin Hannibalsson þá ósk I Ijós i ræöu sinni aö þeir tveir, þaö er hann og Vilmundur „læröu af mistökum feöra sinna”, Hannibals og Gylfa. Talsveröar umræöur uröu á fundinum, þrátt fyrir dræma mætingu og sýndist sitt hverjum eins og fyrri daginn. Meöal annars var rætt um blaöaútgáfu Vilmundar og voru menn mjög á tvennu máli um ágæti hennar. Þetta kemur einnig glögglega fram I blaöinu sjálfu, þvl þar gefur aö llta heilslöuaug- lýsingu frá Húsnæöis- stofnun rikisins. Höfuö hennar er sem menn vita toppkratinn Siguröur Guömundsson og má af þessu ráöa aö hann hafi siöur en svo á móti fram- takinu. Glrnileg slefnuskrá Þá viröast einhverjar hræringar uppi innan „gömlu” flokkanna á Akureyri vegna bæjar- stjórnarkosninganna. Scgir sagan aö Tryggvi Gislason sé farinn aö ó- kyrrast I bæjarstjórnar- liöi Framsóknarmanna og ætli hann ekki aö gefa kost á sér aftur. Segir islendingur, aö hann ætli aö „láta sæti sitt eftir „einhverri konu og nefnir blaöiö Þóru Hjaltadóttur, sem llklegan eftirmann Tryggva. Skýringin á umræddri „ókyrrö” hans gæti Hka veriö sú, aö um væri aö ræöa leik Framsóknar- manna gegn yfirvofandi kvennaframboöi. Þaö væri nefnilega heldur óglæsilegt, aö ætla aö bjóöa fram „kallalista” gegn „pilsvörgunum” fyrir noröan. Þaö væri ó- neitanlega sterkara, aö hafa hann blandaöan. Hræringar hjá heim „gömlu” Ctlit er fyrir ýmis konar hræringar fyrir næstu borgarstjórnar- kosningar I Reykjavík og bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. Einsog fram hefur komiö eru uppi hug- myndir um kvennafram- boö á báöum stööum. Þá segir Akureyrarblaöiö islendingur aö nú séu I undirbúningi nýir fram- boöslistar fyrir nefndar kosningar. Aö þeim standi umhverfis- verndarmenn, svonefndir grænfriöungar. Helstu stefnuskráratriöi þeirra séu algert fiskveiöibann, bann viö virkjunum, mal- bikun gatna og húsbygg- ingum úr steypu! ÖU eru þessi atriði á- kaflega girnileg fyrir I- búa i þréttbýli og ekki aö efa, aö margir munu ljá þeim atkvæöi sitt, ef til kemur. Samvlnnu hafnað Svo sem kunnugt er, hefur K.R. stefnt aö þvl aö byggja nýtt hús undir félagslega starfsemi. Fyrir nokkru fór félagið fram á aö Æskulýösráö Reykjavlkur leigöi hluta fyrirhugaös félagsheim- ilis fyrir ýmsa starfsemi I þágu ungra og aldinna vesturbæinga. En Æsku- lýösráö hafnaöi samvinnu aö minnsta kosti i náinni framtiö. Fyrtust KR-ingar nokkuö viö og I fréttabréfi félagsins um þetta segir: „Viröist á- hugi þeirra (þ.e. Æsku- lýösráös) ekki vera mikill fyrir tómstundastarfi yngri og eldri borgara I þessu elsta ibúöahverfi borgarinnar. Hins vegar hefur borgarstjórn og Æskuiýðsráð ekki taliö eftir sér aö sópa ótöldum milljónum i slíka starf- semi I hinum nýrri borgarhverfum. Hvers eiga ibúar Vesturbæjar- ins aö gjalda?” Svo mörg voru þau orö. • BÚSSU- tafllð Jæja, nú er Torfutafliö fullgert, búið aö breyta hvitum reitum i svarta og öfugt, og ljúka viö annað minni háttar dútl. Eitthvað eru menn þó aö hafa áhyggjur af ýmsum smámunum I sambandi viö tafliö, þótt þeir þyki ekki hafa nein afgerandi áhrif á ágæti verksins. Eins og allir eiga aö vita, er tafiboröiö niöurgrafiö, og i þvi litlar frárennslis- holur. Til eru þeir s-vart- sýnismenn, sem óttast aö frárennslin séu of litil til aö gegna hlutverki sinu, ef rigni eitthvað aö ráöi. Veröi skákmenn þvi aö gripa bússur eöa vöölur hyggist þeir taka eina skák. Sé þaö huggun harmi gegn, aö borgar- JóhannaS. Sigþórs- dóttir skrifar: stjórnarmenn séu meira eöa minna annálaöir veiðimenn, sem eigi út- búnaöinn kláran heima, ef þá langar I „eina bröndótta.” Á veturna þegar taflboröiö leggur megi reyna ýmsar nýj- ungar eins og „skauta- skák” eöa „istafl”. úlvarplð lær pað ópvegið Fréttastofa útvarps fær væna gusu i Nýju Landi, undanviilingi Alþýöu- blaösins. Þar segir Vilmundur hana „bæli I- haldssemi”, og þjón og þræl kerfisins. Og hann tekur dæmi þessu til staö- festingar: ,,A fyrsta degi snérist Rikisútvarpið gegn Flug- leiöum og i liö meö valdakerfinu. Þeir spuröu einskis. Þeir hlýddu. Þeir voru ótrúlega hlutdrægir, þeir spuröu ráöherrann eins og þeir væru pela- börn og hneigöu sig fyrir Ólafi Ragnari, en þeir spuröu Sigurð Helgason eins og hann væri af- brotamaöur. Þetta var auövitaö gert i nafni rót- tækni... Sama var uppi á teningnum i sambandi viö súrálsmáliö. Þá voru þeir djarfir og spuröu djarft, meö allt valdakerfiö I landinu á bak viö sig. Þaö er litill vandi aö vera djarfur, ef maöur er I öruggu skjóli...” Svo mælir Vilmundur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.