Vísir - 03.09.1981, Síða 18
Simon Spies og
kvinnurnar hans
— danski ferðaskrifstofukóng-
urinn stendur nú á sextugu
Seint veröur sagt um danska
feröaskrifstofukónginn Simon
Spies aö hann hafi veriö við eina
fjölina felldur i kvennamálum
um ævina. Kappinn stendur nú á
sextugu og lætur hvergi deigan
siga.
Spies er margmilljóneri og
spreöar seölum i óliklegustu
hluti og honum er sama hvort
þeir gefi eitthvað i aðra hönd
eöa ekki. Aö dönskum sið spurði
danskur blaöamaöur hann fyrir
skömmu hve margar stúlkurnar
heföu verið á þessum sextiu
árum.
„Ég hef nú aldrei kastað tölu
á þær ” svaraði sá gamli. „En
ég gæti trúaö að þær væru i
kringum þúsund. Ég er þrigiftur
og þar fyrir utan á ég að baki
fjöldann allan af hjónaböndum,
em ekki voru til á pappirnum.”
Spies sagðist vera til i að
ganga i fjórða formlega hjóna-
bandið ef á vegi hans yrði
skynsöm og falleg stúlka, sem
heföi toppstykkið i lagi.
En snúum okkur þá að
fjármálunum. Nóg um gróöann
af ' feröaskrifstofurekstrinum.
En hvaö verður um hann?
Nefna má nokkur dæmi:
— Verndarsjóöur villtra dýra
,fær árlega 10.000 kr.
— Isaksen-mótorinn, sem
mun vera mjög spar á orku og
er norsk uppfinning fékk 1
milljón.
— Krystalsframleiöendurfá 1
milljón króna til aö reyna aö
framleiða enn hreinni krystal.
— Hönnuðir sérstakra rúma
fyrir sjúklinga með legusár
fengu 1 milljón. Móðir Spies
þjáist einmitl af legusári.
— Fornleifafræðingar, sem
vinna að uppgreftri Karþagó-
borgar hinnar fornu, fengu 50.000
kr.
—Ogþaðerufleiri, sem fengið
hafa svipaðar gjafir, til að
mynda heimili fyrir börn, sem
hvergi eiga sér samastað.
Spies er ekki meölimur i
dönsku þjóðkirkjunni þvi hann
vildi komast hjá þvi aö borga
skatta til hennar og auk þess er
hann óánægður með það
hvernig danskir prestar leggja
út af bibliunni.
Og meðþessari grein birtast
nokkrar myndir af kappanum
eins og hann kann best viö sig.
Arið 1947 giftist Spies sinni
fyrstu eiginkonu, Ursulu. Hún
var þýsk og býr nú I Hamborg.
Hér er Spies með Lillian á
Kanarieyjum, árið 1966.
Spies hefur kunnað að vekja athygli á sér svo um munar. Þessi
mynd gerði allt vitlaust I Danmörku árið 1972.
Og kappinn lætur ekki deigan slga. A þvi herrans ári 1981 er Spics
umkringdur kvenfólki þótt orbinn sé sextugur. Myndin var tekin I
Gambiu.
Getty á sidasta snúningi
Ekki fara alltaf saman rikidæmi og hamingja. Þaó hefur
sannast á hinum 23ja ara gamla J. Paul Getty þriöja, sem
k er barnabarn Paul Getty, sem ersagóur einn ríkasti maður ,
k heims. Getty hinn ungi, sem komst i heimsfrettirnar fyrir t
nokkrum árum þegar honum var rænt og ræningjarnir M
skáru af honum annaö eyraö, er forfallinn drykkju-^æ
maður og eiturlyfjaneytandi. Oq afleiðingarnar^^^
• letu ekki a ser standa því hann hlaut
^ alvarlegan heilaskaða: hann missti a
sjonina og andleg heilsa hans ,á|l
i
„Staða okkar I tónlistaribnaðinum er svipuð og hjá þeiin sem teekju að sér að skrifa bækur um það
hversu bækur eru ónauðsynlegar”.
FALL heim-
sækir ísland
— umdeildir og forvitnilegir gestir
Breska rokk-hljómsveitin „The
Fall” er væntanleg til landsins á
þriðjudaginn og aö sögn fróðra
manna er hér um merkilega
heimsókn að ræöa. Fall mun
halda hér þrenna hljómleika á
þriðjudag og miðvikudag á Borg-
inni og á laugardaginn tólfta i
Austurbæjarbiói.
Það eru vist fáir, sem þekkja til
þessarar rokkgrúppu hér á út-
kjálka veraldar. Hinum sömu til
fróðleiks skal stiklað á stóru i
stormasamri ævi the Fall.
Hljómsveitin var stofnuð i
Manchester um áramótin 1976 til
’77 og vakti fljótlega athygli fyrir
fjöruga sviðsframkomu, hvað
sem er átt við með þvi „bein-
skeitta texta og óheflaða tónlist”.
Fyrstu tvær breiðskifur Fall náðu
litilli útbreiðslu en i þriðju tilraun
tókst grúppunni að vekja umtal.
Eins og sönnum listamönnum
sæmir þá hefur ágæti hljóm-
sveitarinnar verið umdeilt og
gagnrýnendjr skipst i tvo and-
stæða hópa annar hópurinn dáir
drengina en hinn hatar þá.
Skemmtilegt!
Og með fjórðu og fimmtu breið-
skifum sinum hafa Fall fest sig i
sessi, sem best sést á þvi hvernig
þeir komu út I vinsældarkosning-
um hjá breska poppbla
inu Zig Zag. Þar skutu þeir aftur
fyrir hljómsveitum eins og Adam
& the Ants og Jam fyrir bestu
sviðsframkomu (uröu i 5. sæti),
Siouxsie and the Banshees og
Clash, sem besta hljómsveitin
(uröu i 2. sæti) og David Bowie og
Rolling Stones fyrir bestu stóru
plötuna (urðu i 4. sæti) óneitan-
lega glæsilegur árangur.
Mannaskipti hafa verið tið
innan Fall og mun það vera 13. út-
gáfan sem heimsækir landann.
Og að lokum skjótum við hér að
skilgreiningu forystusauðarins á
tónlistarlegri stöðu Fall:
„Staða okkar i tónlistariðnaðin-
um er svipuð og hjá þeim sem
tæki að sér að skrifa bækur um
það hversu bækur eru ónauösyn-
legar”. Svo mörg voru þau orð.