Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 13

Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 13
Laugardagur 14. nóvember 1981 VISTR 13 Geoffrey T Þaö er ekki sama hvað börn og unglingar lesa i BUKOLLA finari tískeli? ð flóttá tneð fut'un cl/eik uriiin 7 > DAUÐl jnsmessu NÓTT Verölaunabækur Gunillu Bergström EINAR ÁSKELL Nú eru komnar út þrjár nýjar bœkur í þýðingu Sigrúnar Ámadóttur um þennan skemmtilega strák sem býT einn með pábba sínum. Hver bjargar Einari Áskeli Einar Áskell er nýlluttur í nýtt hverli. Hann er einmana, þekkir engan og leikur sér ekki við neinn. Nema Manga, leynilegan vin sinn. En þegar stóm strákarnir astla að hrekkja mann er lítið gagn í vini sem enginn sér. Þessi saga segir frá því þegar EinarÁskell eignaðist raunverulegan vin. Einar Áskell og ófreskjan Það er laugardagskvöld og Einar Áskell getur ekki sofnað. Hann getur ekki hœtt að hugsa um að hann hefur barið strák sem er minni en hann sjálfur. Á morgun œtlar hann að íinna þennan smápolla og gefa honum gula leiklanga- bílinn sinn. Noesta dag leitar Einar að litla stráknum, en hann er horfinn! Hann íinnst hvergi nokkurs staðar. Ertu skræfa Einar Áskell Einar Áskell vill ekki fljúgast á. Þegar krakkarnir eru að slást úti á götu íer hann bara burtu. Krakkamir halda að hann sé háligerð skrœfa. Þessi saga segir frá því þegar þrír nýir ólátabelgir byrjuðu í leikskólanum og réðust á EinarÁskel. Verð kr. 55,60. Félagsverð kr. 47,25. Viktor Rydberg JÓLIN HANS VÖGGS LITLA Hið sígilda œvintýri sœnska skáldsins Viktors Rydberg um Vögg litla, lítinn, látœk- an munaðarleysingja sem gamli Jólaskröggur tók með sér í jólaferðina á sleðanum sínum á alla bœina í sveit- inni og um það sem þar bar íyrir augu. Með gullíallegum mynd- skreytingum Haralds Wiberg. Ágúst H. Bjarnason þýddi. Verð kr. 74,10. Félagsverð kr. 63,00. Inger Brattström HANDANVIÐ HRAÐBRAUTINA Jónas er sextán ára og heíur íengið vinnu á barnaheimili í stuttan tíma. Hann er að undirbúa helgarferð með félögum sínum. Af henni verður þó ekki, þvi enginn kemur til að sœkja Sólong litlu, fjögurra ára þeldökka stúlku. Hið fyrirhugaða íerðalag verður annars konar ferð, kynnislerð út i heim sem byrjar í nœsta nágrenni en er þó undar- lega ólíkur öllu sem Jónas heíur áður kynnst. Fram- undan em þrír sólarhringar, fuliir af áhyggjum, spennu, kvíða og hroeðslu - og þegar þeir eru liðnir er Jónas ekki lengur sá sami. Þýðandi Þuríður Baxter. Þessi bók var lesin í Ríkis- útvarpi íyTir þremur árum undir naíninu Ferð út í veruleikann. Verð kr. 123,50. Félagsverð kr. 105,00. Astrid Lindgren RONJA RÆNINGJADÓTTIR Ævintýraleg og skemmtileg saga írá rœningjatímunum um Ronju, dóttur Matthíasar roeningjaloringja og Birki. son erkióvinar hans sem strjúka að heiman út í skóginn. Þar lila þau ótrú- legu og viðburðariku land- nemalífi þangað til þau geta snúið heim aftur og bundið endi á oevafomar illdeilur þessara tveggja raeningjaœtta. En slíkt gerist ekki átakalaust. Þessi bók er nýkomin út í heimalandi hölundar og heíur fengið frábœrar við- tökur. Myndir eftir Ilon Wikland. Þorleifur Hauksson þýddi. Verð kr. 135,85. Féiagsverð kr. 115.45. Andrés Indriðason POLLI ER EKKERT BLÁVATN Hvert getur tíu ára strákur farið sem er ákveðinn að strjúka að heiman og koma aldrei aftur - að minnsta kosti ekki strax? Og hvað getur hann gert þegar hann kemur heim aftur og enginn hefur tekið eftir að hann vantaði því mamma hans og systir eru larnar að heiman og pabbi situr einn eftir í öngum sínum? Polli getur ýmislegt gert þegar hann tekur til sinna ráða. Eftir það fer margt að breytast í kringum hann. Andrés Indriðason hlaut bamabókaverðlaun Máls og menningar fyrir bókina Lyklabarn sem kom út í hitteðíyrra. Verð kr. 123,50. Félagsverð kr. 105,00. Hringur Jóhannesson myndskreytti BÚKOLLA Ævintýrið skemmtilega með nýjum og fallegum litmynd- um eftir Hring Jóhannesson. Verð kr. 74,10. Félagsverð kr. 63,00. K.M. Peyton DAUÐIÁ JÓNSMESSUNÓTT Jónatan Meredith situr í dýra heimavistarskólanum sínum og þykir litið til dýrðarinnarkoma. Ekki bœtir úr skák að í nafni jafnréttis er búið að taka stelpur inn í efstu bekkina, og þœr ekki smávegis skrítnar sumar! Það eina sem er gaman er að œfa f jallgöngu með Hugo stœrð- fraeðikennara, en hann er með merkilegri mönnum í augum Jónatans. Svo deyr enskukennarinn voveiílega - og fjör fœrist í leikinn. Dauði á Jónsmessunótt er sjállstœtt framhald bókar- innar Sýndu að þú sért hetja eítir höfund bókanna vin- sœlu um Patrick Pennington. Spenna bókarinnar, írábœr persónusköpun og mann- skilningur höfundar svikur engan. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi. Verð kr. 135,85. Félagsverð kr. 115,45. Theódóra Thoroddsen ÞULUR Hinar lallegu og vinsœlu þulur Theódóru Thorodd- sen hafa lengið verið ófáanlegar. Þetta er 5. út- gáfa þeirra og hér er að finna allar þulur sem Theódóra orti. Kjörgripur allra bama - og fullorðinna. Myndir eftir Guðmund Thorsteinsson og Sigurð Thoroddsen. Verð kr. 74,10. Félagsverð kr. 63,00. Geoffrey Trease Á FLÓTTA MEÐ FARANDLEIKURUM Þessi saga gerist í Englandi á síðustu áratugum 16. aldar. Þetta voru róstusamir tímar víða í Evrópu, en í Englandi hafði friður ríkt óvenju lengi undir st jóm Elísabetar 1. drottningar. Ungur drengur, Pétur Brownrigg, lendir í úti- stöðum við lénsherra íöður síns og verður að ílýja átt- haga sína. Á flóttanum verður hann margs vísari. m.a. um samsœri gegn drottningu. og lendir i ýmsum háska. Meðal helstu persóna bókarinnar er leik- ritahöfundurinn William Shakespeare. Silja Aðal- steinsdóttir þýddi og las söguna í Ríkisútvarpi fyrr á þessu ári. Verð kr. 135,85. Félagsverð kr. 115,45. Mál IMI og menning Valdís Óskarsdóttir FÝLUPOKARNIR Hefur þú nokkuð komið í Séstvallagötu? Ekki það nei. Þetta er líka ósköp fyriríerðariítil gata. Hún sést varla, og við emm of stór til að komast þangað inn. Aftur á móti eiga fýlupokamir sem eiga heima við Sést- vallagötu mjög auðvelt með að koma sér fyrir hjá þér og mér og okkur öllum. Ertu ekki viss um það? Horfðu þá á fólkið í kringum þig Ný og endurskoðuð útgála einnar vinsœlustu bama- bókar síðari ára. Myndir eftir höíundinn. Verð kr. 111,15. Félagsverð kr. 94,45. Astrid Lindgren MADDITT OG BETA Þetta er sjálistœtt framhald sögunnar Madditt sem kom út í fyira. Ný bók um stelpuna Madditt sem dettur svo margt skemmtilegt í hug og um litlu systur hennar Betu sem leikur allt eftir henni. „Þú ert alveg klikkuð Madditt," segir Beta. Samt fylgir hún systur sinni gegnum þykkt og þunnt, það gildir einu hvaða fííldirfsku Madditt finnur uppá. Bœkurnar um Madditt eru á leiðinni að verða álíka vinsœlar og bœkurnar um Emil í Kattholti. Nýbúið er að gera eítir þeim skemmtilega íramhalds- þœtti íýrir sjónvarp. Myndir eftir Ilon Wikland. Sigrún Ámadóttir þýddi. Verð kr. 135,85. Félagsverð kr. 115,45.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.