Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 9

Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 9
Laugardagur 14. nóvember 1981 9 VÍSIR U ndirbúningur flokkanna fyrir kosningar til bor gar stj ór nar — fjöídi nyrra manna vermir sæti borgarstjórnar Undirbúningur stjórn- máiaf lokkanna fyrir borgarstjórnarkosning- arnar, sem eiga að fara fram á vori komanda er mislangt á veg kominn. Ljóst er að nokkurra breytinga er að vænta hjá flokkunum, hvað varðar fyrirkomulag við uppröð- un á lista og mannaval. Þessar breytingar eru þó mismiklar eftir því hvaða f lokkur á í hlut. Vísir sló á þráðinn til forsvars- manna flokkanna og bað þá að greina frá undir- búningi og helstu breyt- ingum hjá þeim. Einsog kunnugt er hefur Sjálfstæðisflokkurinn riðið á vaðið hvað undirbúning snertir og er honum að mestu lokiö og er ljóst hvaða menn munu gefa kost á sér til prófkjörs hjá flokknum. Aðeins flokksbundir hjá Sjálfstæðisflokknum Sveinn Skúlason hjá yfirkjör- stjórn flokksins tjáði blaðinu að prófkjör Sjálfstæðisflokksins myndi fara fram dagana 29. og 30. desember. Hingað til hafi prófkjör flokksins verið opin öll- um kjörgengum mönnum en sú breyting yrði nú á, að ein- ungis flokksbundnir Sjálfstæðis- menn hefðu heimild til að kjósa að þessu sinni. Samkvæmt prófkjörsreglum flokksins yrði hver frambjóð- andi að hafa á bak við sig að minnsta kosti 50% fylgi til þess að sæti hans yrði bundið, en auk þess yrði þátttakan i prófkjör- inu að vera ekki minni enl/3 af flokksbundnum Sjálfstæðis- mönnum i Reykjavik til þess að kosningin gæti talist lögmæt. Þó væri kjörnefnd heimilt í sam- ráði við viökomandi aðila að færa sæti hans innan hinna bundnu sæta, ef ástæða þætti til þess. Ekki klárt hjá Framsókn Hjá Framsóknarflokknum varð fyrir svörum formaður fulltrúaráös flokksins, Jón Að- alsteinn Jónasson. Hann tjáði blaðinu að undirbúningur hjá flokknum fyrir kosningarnar væri i fullum gangi og yrði fund- ur haldinn næstkomandi mánu- dag þar sem ákvaröanir yrðu teknar um prófkjörsmál. Aætl- að væri að prófkjörið færi fram siðari hluta janúarmánuðar. Við siðustu borgarstjórnar- kosningar hafði flokkurinn tvær umferðir fyrir uppröðun listans. I fyrri umferð var forval innan fulltrúaráðsins, en i seinni um- ferö fyrir alla flokksbundna Framsóknarmenn. Jón var spurður hvort sami háttur yrði hafður á við komandi kosning- ar. Jón sagði aö endanleg ákvörö- un yrði tekin i byrjun næstu viku. Um væri að ræða hvort forvalið yrði alfarið i höndum fulltrúaráðsins eða hvort hinn almenni flokksmaður myndi fá heimild til þátttöku i þvi. Jón kvaðst ætla að menn hölluðust frekar að seinni kostinum. Jón sagði, aö stórvægilegra breytinga væri ekki að vænta við undirbúning kosninganna. Menn væru þó að skoða nýjar aðferðir og hvað út úr þeim gæti fengist. ^ Breyttar reglur hjá kröt- um Prófkjör Alþýöuflokksins fara að öllum likindum fram i janú- armánuði, en endanleg ákvörö- un um timasetningu er ekki ennþá afráöin. Kristin Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Alþýðu- flokksins sagði, að undirbúning- ur væri ekki hafin að fullu, en þó væri búið að ganga frá öllum formsatriöum fyrir kosningarn- ar. Prófkjörsregiur flokksins breyttust nokkuð á aukaþingi siðasta flokksþings, sagði Krist- in. Breytingin fæli einna helst i sér, að i stað þess að viðkom- andi bjóði sig fram i ákveðið Kristján Benediktsson. „Hyggst ekki gefa kost á mér aftur” — segir Kristján Benediktsson ,,Ég hef ekki áætlað að gefa aftur kost á mér til starfa i borgarstjórn. Að þvi liggja engar sérstakar ástæður. Ég hef oft skipt um starf á ævinni, auk þess sem ég er búinn að vera i borgarstjórn fyrir minn flokk i um 20 ár og þvi er ekkert óeðli- legtað ég dragi mig i hlé núna”, sagði Kristján Benediktsson borgarfulltrúi Framsóknar- flokksins i stuttu spjalli við Visir. „Ég hef enga hugmynd um það hverjum muni hlotnast mitt sæti i borgarstjórn, en eitt er vist að við Framsóknarmenn ætlum okkur ekki færri en þrjú sæti eftir komandi kosningar. sæti eins og verið hafi, þá yröi hann eftirleiðis að raða sér i önnur sæti á listanum. Þar á móti kæmi, að ef einungis eitt framboð kæmi i ákveðið sæti þá væri sá hinn sami sjálfkjörinn, eins og verið hafi i undanförnum kosningum hjá flokknum. Forval með hefðbundn- um hætti Næst var leitað til Alþýðu- bandalagsins og fyrir svörum varð Kristján Valdimarsson, formaður Alþýðubandalagsins i Reykjavik. Kristján sagöi að undirbún- ingur flokksins væri ekki kom- inn á fullt skrið en stefnt væri aö þvi að vera með forval um mánaðamótin jarnúar/febrú- ar. 1 forvali flokksins felst, að það verða tvær umferðir. Forvalið hefur ávallt verið bundiö viö flokksmenn. Fyrri umferöin þjónar þeim tilgangi að tilnefna menn til þátttöku og i þeirri um- ferð eru ekki gjaldgengir þeir sem eru borgarfulltrúar hverju sinni. Þessi umferð er hugsuð til þess að koma á framfæri nýju fólki og kynna það. Kjörnefnd Guðrún Helgadóttir „Ekki ákveðin hvort ég hætti ” segir Gudrún Helgadóttir ,,Ég er ekki búin að gera það alveg upp við mig ennþá hvort ég held áfram eða dreg mig i hlé. Það er svo langt i forvalið hjá okkur, að það brennur ekkert á mér að taka ákvörðun strax og ég hef raunar litið hugsað um þetta ennþá af al- vöru”, sagði Guðrún Helga- dóttir borgarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins, en raddir hafa heyrst þess efnis að hún muni ekki gefa kost á sér i forval flokksins við næstu kosningar. ,,Ég gæti vel hugsaö mér að töluverðar mannabreytingar yrðu hjá Alþýðubandalaginu við næstu kosningar. Vel getur verið að einhverjir af núverandi borgarfulltrúum okkar láti af störfum sinum, en hverjir þeir eru, er ómögulegt að spá um. vinnur siöan úr niðurstöðum þessarar umferöar og býr til lista fyrir seinni umferðina og þá koma þeir inn sem voru ekki kjörgengir i fyrri umferöinni, auk þeirra sem hlutu flest at- kvæði i undangenginni umferð. Miklar breytingar Ljóst er að einhverjir núver- andi borgarfulltrúar munu draga sig i hlé við næstu kosn- ingar og væntanlega birtast ein- hver ný andlit á listum flokk- anna þó of snemmt sé að spá um þaö enn þá hverjir þaö veröa. Vitað er að Björgvin Guö- mundsson borgarfulltrúi Alþýðuflokks mun draga sig i hlé og snúa sér alfarið aö störf- um sinum hjá B.Ú.R. Hjá Framsóknarflokknum er ljóst að Kristján Benediktsson borgarfulltrúi muni draga sig i hlé. Likur benda til aö Guörún Helgadóttir borgarfulltrúi Birgir tsieifur Gunnarsson. „Ekki merkh legur ágrein- ingur” — Segir Birgir . Isleifur Gunnarsson „Agreiningurinn sem rikir milli kandidata Sjálfstæðis- flokksins til borgarstjórnar- kosninganna er aö minu mati ekki merkilegur. Þaö er eðlilegt iprófkjöriaðhverhugsi fyrstog fremst um sitt skinn, og þetta virðistrikja hjá þessum aðilum. Ég tel að hér sé ekki um neinn málefnalegan klofning að ræða, sagði Birgir lsleifur Gunnars- son borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, en hann hefur ákveöið að gefa ekki kost á sér til próf- kjörs flokksins. „Astæðan fyrir þvi að ég hætti er sú, að ég ákvað 1979 þegar ég komst inná þing að helga mig alfariö þeim störfum og draga mig i hlé sem borgar- fulltrúi. Auk þess er þetta liður i þeirri viðleitni minni að vera ekki alltaf i sama starfinu og fá svolitla fjölbreytni, enda er það hverjum manni nauðsynlegt.” Alþýöubandalagsins láti af sin- um störfum i borgarstjórn. Ljóst er að þrir núverandi borgarfulltrúar Sjálfstæöis- flokksins muni draga sig i hlé, þeir Birgir ísleifur Gunnarsson sem verið hefur i borgarstjórn i 20 ár og Ólafur B. Thors, sem setið hefur i borgarstjórn um 10 ára skeið og Elin Pálmadóttir. Af framangreindu má ljóst vera, aö töluverðar manna- breytingar verða á borgar- stjórnarliði flokkanna og má ef- laust vænta margra nýrra og jafnvel áður óþekktra manna sem verma skuli sæti borgar- stjórnar að aflokinni kosning- unni aö vori, bæði vegna þeirra sem hætta og eins vegna þess að nú verður borgarfulltrúum fjölgaö úr 15 i 21. —SER Björgvin Guðmundsson. „Þörfá nýjum mönnum” — segir Björgvin Gudmundsson „Astæðan fyrir þvi að ég hef dregið mig i hlé i borgarstjórn er ekki vegna leiða yfir þvi amstri sem störfum i henni óneitanlega fylgir”, sagöi Björgvin Guðmundsson borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins, sem nú hefur ákveðið að láta af störfum sem slikur. „Það liggja tvær ástæður að baki þessarar ákvörðunar minnar. Annars vegar er það vegna ráðningar minnar til B.Ú.R. og hinsvegar vegna þess að ég tel mig vera búinn að vera borgarfulltrúi nógu lengi. Ég hef verið sem aðalmaður Alþýðuflokksins i borgarstjórn i rúmlega tiu ár og svipaöan tima sem varamaður, þannig að ég tel eðlilegt að hleypa nýjum mönnum ab. Ég vil engu spá um það hver verður arftaki minn i fyrsta sæti listans. Eins og lög flokksins gera ráð fyrir verður opið próf- kjör fyrir kosningarnar og það, hver kemur i minn stað þori ég ekki að segja um. Mér þykir það mjög liklegt að ungir menn muni gefa kost á sér á lista flokksins og skipi sér i efstu þrjú sæti hans, en ég vil ekki nefna nein likleg nöfn i þvi sambandi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.