Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 14.11.1981, Blaðsíða 20
VÍSLR Laugardagur 14. nóvember 1981 Frimerkjasöfnun getur veriö vottur um sköpunarform. Þaö eru ekki allar skoöanir jafn gjaldgengar .... og þaötaki þvi varla aö hafa hugsjónir , ,Ætli l yröu ei einhvet þrivið uppákot Aðalsteinn Ingólfsson er eiginlega fluttur til útlanda. i bili að minnsta kosti. Til Sví- þjóðar. Er bara hér i snöggferð til að vera viðstaddur útkomu bók- ar um Kjarval, sem hann á nokkurn þátt í. Til Sviþjóöar? i hvaö iangan tima: Hvaö að gera? Hvers vegna? Til að skrifa ritgerö og veröa doktor i iistfræöi. — Skrýtiö orð listfræði, segir Aðalsteinn. Ég heldþaðhafiverið Björn Th. sem fann það upp. Auð- vitað getur enginn verið fræðing- ur í listum eins og þær leggja sig. Fagiö var kallað listasaga þar sem ég lærði það.Sjálfum er mér nokkuð sama hvað ég er kallaöur. Þetta með utanförina kom nú þannig til að okkur fannst við orð- in dálitið föst i skorðum hér og kominn timi til að hreyfa sig eftir 7 ára törn. Þetta var spurning um annað hvort aö fá vinnu erlendis eöa halda áfram nami. Lengi vel vorum við hjónin mjög veik fyrir Bandarikjunum — stórkostleg söfn þar — og ég var m.a.s. búinn að fá vinnu við safn i Omaha, Nebraska!, sem er ekki beint nafli alheims. En i þann mund fékk ég lika tilkynningu um styrk til að sækja háskólann i Lundi og það réði úrslitum. Hvers vegna Sviþjóð? — Það komu einfaldlega ekki önnur lönd til greina fyrir mig en Norðurlöndin ef ég ætlaði i nám, þau eru einu löndin sem taka gild islensk doktorsverkefni i lista- sögu. Ég sé enga ástæðu til að vera að skrifa um eitthvað sem ekki kemur íslandi viö. Þegar þú segist hafa verið kominn i of fastar skorður hér heima, hvað áttu við? — Ég á þá liklega helst við hluti sem koma starfi manns beint við, það að vera blaðamaður og gagn- rýnandi. Það mæðir á manni til lengdar. Smátt og smátt hættir maður að geta sagt nokkuð nýtt um suma listamenn, sem eru að sýna. Og mann fer að langa til að verða sér úti um ný og fersk við- horf. Alinn upp á vellinum Geymum okkur listina um sinn, Aöalsteinn, hvaö um þig sjálfan? Hvaðan kemurðu? Þegar ég fer að skopast að ætt- fræðinni stæri ég mig stundum af þvi að vera kominn af austfirsk- um höfðingjum annars vegar og irskum þrælum hins vegar, þvi pabbi minn er úr Dölunum og mamma austan úr Vopnafirði. Þó erégekki alinn upp isveit, heldur á vellinum. Áttu við Keflavikurflugvöll? — Já. Pabbi er veðurfræðingur og vann lengivel á veðurstofunni á flugvellinum sem er rekin i samvinnu hersins og rikisins og starfsmenn fengu bústaði á svæð- inu. Við bjuggum i sérblokk og vorum keyrð i skólann i Keflavik og Njarðvik. Annars var flugvöll- urinn og umhverfi hans mitt leik- svæði allt frá ’55-’62, eða frá 7 ára aldri fram á gelgjuskeiðið. Hlýtur að hafa verið skrýtið? — Ég veit það nú ekki. Okkur fannst þetta ósköp eðlilegt allt saman. Það var helst að krakk- arnirúr Njarðvikunum litu á okk- ur sem skrýtna fugla. Þeim þótti það liklega eftirsóknarvert að búa á vellinum, öfunduðu okkur af ýmsu, svo sem þessum greiða aðgangi sem við höfðum að tyggjóiog sælgæti, nú eða þá bi'ó- myndunum. Ætli ég hafi ekki séð allar biómyndir löngu áður en þærkomu til íslands ef hægt er að orða það á þann veg. Og allar hryllingsmyndirnar. Og ég hef haft biódellu siðan, — Kanarnir voru álitnir „fair éame” — það þótti vi'st engin höfuðsynd að stela frá þeim eða gera þeim skráveifu þvi þeir þóttu eiga svo mikið. A11- ar þessar amerisku drossiur. Við, sem bjuggum innan um þá, litum öðru vísi á málið, held ég. Við kynntumst þessum möinum. Ég vann auk þess flest sumur hjá Aðalverktökum — ég hugsa að það hafi gefið mér visst umburð- arlyndi og skilning á þeim. En ekki held ég að við höfum borið mikla virðingu fyrir þeim. Okkur þótti þeir skelfing barnalegir. Þeim var innprentaður sérstakur skilningur á Islandi og auövitað leiddist þeim hroðalega hér. A þessum árum máttu þeir ekkert fara nema í uniformi og urðu oft fyrir aðkasti. Þeim var talin trú um að Reykjavik væri full af kommúnistum sem vildu berja þá. Eftir á aö hyggja hefur þetta verið dálitið furðuleg æska, þvi ég lifði eiginlega i tveimur heimum. Ég var alltaf i sveit i Dölunum á sumrin sem strákur og kynntist þar fortiðinni. Man ég t.d. vel eft- ir smjörgerð i strokk og þarna voru menn sem enn gengu í sauö- skinnsskóm. Hálft árið liföi ég i sliku umhverfi hjá afa og ömmu, hitt f miðjum nútimanum, eigin- lega í framtið, þvi þarna á vellin- um koma flestar nýjungar fyrren utan hans. — Hvað um pólitik, hefur þetta haft áhrif á afstööu þina til hers- ins t.a.m.? — í fystu tók maður þessu sem sjálfsögðum hlut að herinn væri þarna. Svo fóru að koma upp i hugann efasemdir. Ég fæ alltaf öðru hverju efasemdarkast varð- andi þennan stað. Samt vildi ég ekki losna við visst sentimental- itet varðandi völlinn. Þarna lék ég mér sem smábarn. Einhvern timann langar mig að skrifa um

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.