Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.2001, Qupperneq 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. APRÍL 2001
O
FSJÓNIR mínar byrj-
uðu þegar ég var 10
ára. Ég horfði á dúk á
borðinu sem var
skreyttur rauðum
blómum og allt í einu
endurtók þetta munst-
ur sig hvert sem ég
horfði, á loftið, út um gluggann. Þessir litríku
blettir þöktu húsgögnin í kringum mig og
sjálfa mig, svo það var eins og ég væri hluti af
umhverfinu.“
Þannig lýsir Kusama tilurð ofsjóna sinna
sem síðan endurtóku sig með doppumynstri.
Hún þorði ekki að segja frá þessu, en byrjaði
að teikna og mála doppur sem áttu eftir að
verða hennar einkennismerki. Þrettán árum
síðar, þegar hún stundaði nám við listhönn-
unarskólann í Kyota, sá virtur prófessor í sál-
fræði eina af sýningum Kusömu og fékk mik-
inn áhuga á verkum hennar. Hann hjálpaði
henni að skilja eðli veikinda sinna og hvatti
hana til að þróa listræna hæfileika sína.
Upphróflaðir hólkar
og makkarónur
Árið 1958 sest Kusama að í Bandaríkjunum,
fyrst í Seattle og síðan í New York. Hún um-
gengst fljótlega alla helstu forkólfa banda-
rískrar samtímalistar, eins og Joseph Cornell,
Donald Judd, Larry Rivers, On Kawara og
John Chamberlain sem hún þekkti alla vel,
einnig Andy Warhol, Mark Rothko, Ad Rein-
hardt og Barnett Newman sem flestir keyptu
af henni verk. Sá fyrsti til að styðja hana var
Donald Judd en hann var um tíma sambýlis-
maður hennar og skrifaði um list hennar í Art-
news og Arts Magazine.
Fyrstu verk Kusömu sem vöktu athygli
vestanhafs voru stór málverk þakin smágerðu
mynstri sem hún kallaði Infinity Nets (net
óendanleikans). Með því að einbeita sér að
þessu seinlega nákvæmnisverki leitaðist hún
við að vinna bug á þráhyggju sinni og halda of-
sjónum í skefjum. Í byrjun 7. áratugarins
vinnur hún þrívíð rýmisverk úr uppstoppuð-
um, reðurlaga hólkum sem hún festir í tonn-
atali á ýmiss konar hluti og húsgögn og kallar
Accumulations eða Aggregations (upphróflan-
ir). Eins þekur hún innanstokksmuni, gínur
og gólf herbergis með makkarónum (Mac-
aroni Visions eða makkarónusýnir).
Í þessum verkum fæst Kusama við ákveðn-
ar myndir þráhyggju sem eru kyn- og mat-
arárátta. Sífelldar endurtekningar sama
forms mynda heilsteypt umhverfi sem umlyk-
ur listakonuna á svipaðan hátt og hugarheim-
ur hennar. Með því að takast beint á við sýnir
sínar og þráhyggjur nær hún á þeim tökum,
rétt eins og sjúklingur í sálgreiningu getur
læknast af að setja í orð erfiðar og heftandi
minningar.
Endurspeglun
eilífrar ástar
Á sama tíma (upp úr 1964) fæst Kusama við
enn eitt form margföldunar sem næst með því
að setja spegla á veggi og loft í kassa eða litlu
herbergi sem þannig endurspeglar út í það
óendanlega innihald rýmisins. Í verkunum
Mirrored Room – Love Forever (speglarými –
eilíf ást, 1964) setur hún fjöldann allan af
doppóttum eða röndóttum, uppstoppuðum
formum í botn spegilklædds kassa sem áhorf-
andi kíkir inn í. Ári síðar sýnir Kusama In-
finity Mirror Room – Phalli’s Field (spegla-
rými óendanleikans – akur Phalla) þar sem
sýningargestir ganga inn í speglaherbergi
með doppuformum og verða þar með þátttak-
endur í margföldunar- og endaleysisferlinu.
Verkið The Peep Show: Endless Love Show
(gægjusýningin: endalaus ástarsýning, 1966)
er gert úr stórum, sexhyrndum kassa al-
klæddum speglum þar sem áhorfandi gægist
inn um lúgu og sér andlit sitt í öllum víddum,
ásamt lituðum ljósaperum í loftinu sem blikka
sitt á hvað og geta kallað fram hálfgert leiðslu-
ástand. Hér er áhorfandinn eins og gægir á
eigin spegilmynd sem smám saman fellur
saman við blikkandi ljós og líkt og máist út.
Á Feneyjatvíæringnum 1966 sýndi Kusama
verkið Narcissus Garden (garður Narkissós-
ar), en það samanstóð af 1500 silfurlitum jóla-
kúlum sem hún dreifði um sýningarsvæðið.
Gestir gátu speglað sig í kúlunum, en um leið
var þessi afmyndaða speglun trufluð af kúl-
unum í kring. Kusama seldi kúlurnar á 2 $
stykkið („eins og að selja pylsur“) þar til tekið
var fyrir þessa óvenjulegu verslun af hátíð-
aryfirvöldum.
Það sem vakti eflaust mesta athygli (og
hneykslun) á Kusömu voru gjörningar sem
hún framdi upp úr 1967. Þegar á fyrstu ár-
unum í New York hafði þessi lágvaxna, jap-
anska stúlka með síða hárið og alvarlegu aug-
un skapað sér vissa ímynd því hún var fljótt
meðvituð um vægi fjölmiðla og umtals í lista-
heiminum. Sýningum hennar fylgdu alltaf
fréttatilkynningar og yfirlýsingar og sjálf
mætti hún á opnanir vafin í furðulega kímonóa
sem hún hannaði sjálf, í fylgd ljósmyndara
sem festi viðburðinn – og hana – á filmu.
Gjörningar Kusömu gengu yfirleitt út á að
hún málaði doppur á sjálfa sig og á nakta lík-
ama dansara eða annarra sjálfboðaliða sem
hún starfaði með. Gjörningunum má skipta í
tvo meginflokka: annars vegar þá sem beind-
ust að manneskjunni sem slíkri í þeim tilgangi
að frelsa hana undan áþján klæða, kynjaskipt-
ingar, sjálfhverfu og annarra hafta vestræns
þjóðfélags. Doppurnar voru bæði tákn sólar
(karlmannlegrar orku) og tungls (sem stendur
fyrir kvenlegt eðli), þannig að doppóttur lík-
ami rann saman við hið alheimslega, frumið
sem er kyn- og ególaust.
Hins vegar voru gjörningar sem beindust
að táknum bandarísks samfélags, eins og fán-
anum, Hlutabréfahöllinni, Frelsisstyttunni,
kirkjum o.s.frv. Kusama birtist allt í einu á
táknrænum stöðum í fylgd nokkurra stripp-
linga sem hún málaði þar til lögreglan skarst í
leikinn. Á árinu 1968 framdi hún ekki færri en
þrjátíu gjörninga, svo það er ekki nema von að
blaðamaður hafi skrifað: „New York er end-
anlega orðin doppótt“. Árið 1969 beindi hún
penslum sínum sérstaklega gegn stríðinu í Ví-
etnam og lýsti yfir að „það [sé] glæpur að eyði-
leggja þessa fallegu líkama í stríði“.
Kusama gagnrýndi líka yfirvöld listaheims-
ins líkt og í uppákomunni í ágúst 1969 þegar
átta nakin ungmenni stukku allt í einu út í
tjörnina í garði Museum of Modern Art til að
„vekja upp hina dauðu í MoMA“, en Kusama
leit á stofnunina sem „grafhýsi nútímalistar“.
Þetta er einn af hennar frægari gjörningum,
eflaust vegna þess að hún snerti taugar innsta
hrings listaheimsins og ýtti við almennum
DOPPÓTTUR VERU-
LEIKI YAYOI KUSÖMU
AMMA JAPANSKRAR NÚTÍMALISTAR
SÝNIR NÝJAR INNSETNINGAR
Yayoi Kusama er án efa einn athyglisverðasti lista-
maður samtímans. Allt frá nektargjörningum hennar í
New York á 7. áratugnum gefa verk hennar, hvort
heldur eru málverk, skúlptúrar, innsetningar, föt eða
skáldsögur, heildstæða mynd af frumlegum og per-
sónulegum heimi þessarar listakonu sem tekst að
virkja ofsjónir sínar og geðveiki á meðvitaðan hátt.
Hún er nú á áttræðisaldri og hefur hannað nýjar inn-
setningar fyrir farandsýningu sem stendur yfir þessa
dagana í japönsku menningarmiðstöðinni í París.
E F T I R Á S D Í S I Ó L A F S D Ó T T U R
Ljósmynd/A. Morin
Himnastiginn endalausi, 2000.
Hlutabréfabrennsla á Wall Street, gjörningur
Kusömu og félaga, grein úr tímaritinu Coro-
net, New York, júní 1969.
Ljósmynd/Kusama Studio
Listakonan í miðri Doppuþráhyggju á nýrri öld, 2000.