Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.2001, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. APRÍL 2001
F
RÆNDI vor Odd Nerdrum er
hinn þægilegasti maður og ligg-
ur ekki á skoðunum sínum enda
engin ástæða til þess í sjálfu sér.
Hann lifnar allur við þegar hann
talar um heimspeki listarinnar
og manninn sem hann telur að
hafi skapað nútímann, prófess-
orinn þýska Immanúel Kant. Sjálfur tekur
Odd ekki leiðsögn nútímalistfræðinga og held-
ur ótrauður sína leið. Myndir hans eru fáu eða
engu líkar og er sjón sögu ríkari í því sam-
bandi, á köflum er hann eins og Rembrandt
endurborinn, en þó er viðfangsefni þeirra nær
hinum bersögla samtíma okkar en hollenska
meistarans. Það sem athygli vekur er að höf-
undur þeirra kennir þær við það heldur nei-
kvæða hugtak ,,kitsch“.
,,Verk mín eru ekki listaverk heldur
,,kitsch“,“ segir Odd Nerdrum og lætur sér
hvergi bregða. ,,Á þessu tvennu er mikilvæg-
ur greinarmunur, því þegar þú lítur á hlutina
á listrænan hátt, ert þú að horfa á þá öðruvísi
en þú ættir að virða verk mín fyrir þér. Til að
gefa þér vísbendingu um hvað ég á við má
taka dæmi af hinu fræga málverki eftir Þór-
arin B. Þorláksson af hesti á Þingvöllum mál-
að aldamótaárið 1900, sem þú horfir á með
ákveðnu hugarfari, en þú horfir á málverk eft-
ir Erró með allt öðru hugarfari. Þetta eru
tvær gjörólíkar aðferðir við að horfa á mál-
verk. Til að skýra þetta enn betur, þá horfir
þú á mynd Þórarins B. Þorlákssonar á sama
hátt og þú horfir á kitsch-mynd, á Erró og
Kristján Davíðsson horfir þú á með allt öðru
hugarfari, listrænu hugarfari. Þú þarft að
breyta hugarfari þínu áður en þú horfir á
myndirnar. Hin listræna leið til að horfa á
myndir er sú að skilja þær með tilliti til nú-
tímans, skilja skírskotunina til nútímans í
myndinni og hvernig myndin speglar einhver
tiltekin menningarleg vandamál í nútímanum.
Mynd Þórarins B. Þorlákssonar er á margan
hátt það sem við köllum eilífðarsýn, sama sýn
á veröldina og hjá Grikkjunum forðum daga,
eilíf andrá sem birtist á yfirborði myndarinn-
ar. Allt sem skiptir máli er í myndinni og sjá-
anlegt á yfirborði hennar, en hjá Kristjáni
Davíðssyni leynist allt að baki myndarinnar
þannig að þú þarft að lesa þinn skilning í
hana. Greinarmunurinn er sá að í kitschinu er
allt á yfirborðinu, en í listinni með stórum
staf, býr allt það sem listamaðurinn vildi segja
að baki myndarinnar.“
Og þarna er komin skýringin á því hvers
vegna að þú kallar þig kitsch-málarann?
,,Já, vegna þess að ég nota ekki hina list-
rænu aðferð heldur kitsch-aðferðina sem
snýst um hjarta þitt, langanir þínar og tilfinn-
ingar, eilíft andrúm sem við þekkjum öll og
MÁLARI YFIR-
BORÐSINS
OG RAUN-
VERULEIKANS
Á Kjarvalsstöðum verður opnuð í dag kl.16 sýning
á málverkum eftir norska listamanninn Odd Nerdrum
sem mörgum er kunnur fyrir óvenjulega myndlist sína
sem segja má að sé einhvers konar blanda af nútíma-
list og málverkum barokktímans. Odd hefur margoft
áður lagt leið sína hingað til lands og mörg íslensk
kennileiti ber fyrir augu í myndum hans, en þetta er
í fyrsta skipti sem hann sýnir verk sín hér á landi.
ÞORVARÐUR HJÁLMARSSON ræddi við Odd. Morgunblaðið/Ásdís
Norski myndlistarmaðurinn Odd Nerdrum.
Kona drepur særðan mann, 1994. Eig. Astrup Fearnley Museet for Moderne Kunst, Ósló.