Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.2001, Side 18

Lesbók Morgunblaðsins - 07.04.2001, Side 18
18 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 7. APRÍL 2001 N ORRÆN sýning á nýj- um málverkum 21 lista- manns er nú hafin í Gerðarsafni í Kópa- vogi. Hún er kennd við Carnegie-listverðlaun- in, sem einn stærsti fjárfestingarbanki Norðurlanda, með höfuðstöðvar í Svíþjóð, styrkir. Þetta er farandsýning sem efnt hef- ur verið til árlega frá 1998, hingað komin eftir viðdvöl í fimm skandinavískum söfnum. Á henni eru 47 verk sem mætu fólki þykir rjómatoppur þessa listmiðils í nefndum löndum. Tilgangur sýningarinnar er þríþættur, að sýna úrval norrænnar málaralistar samtím- ans, að hvetja listamenn til dáða með veg- legum verðlaunum og að skrásetja allt þetta í bók með myndum af verkunum og við- tölum við höfundana. Sýningin í Gerðarsafni er afrakstur ársins 2000, en 22 fróðir menn um myndlist á Norðurlöndum tilnefndu þá 89 listamenn. Dómnefnd valdi svo síðastliðið sumar listafólk til sýningarinnar og veitti þrenn verðlaun. Hreinn Friðfinnsson hlaut ein þeirra, varð annar og átti gott aldamóta- ár því Ars Fennica-verðlaunin svonefndu komu einnig í hans hlut. Formlega var Carnegie-sýningin opnuð hérlendis í gær en þetta er síðasti áfangi úr- vals síðasta árs á flakki milli Norðurlanda. Næsta mánuðinn verður hægt að skoða mál- verkin alla daga nema mánudaga og er að- gangur ókeypis. Fyrri ár sýningarinnar hef- ur hún verið sett upp í Listasafni Íslands og á Kjarvalsstöðum, en helstu söfn höfuð- borga Norðurlandanna hýsa hana jafnan. Verðlaunin rausnarlegu Til þessa hafa 64 listamenn valist til sýn- inga Carnegie, sem leggur með þessu hvað stærstan skerf norrænna fyrirtækja til myndlistar. Hér er auk þess eina reglulega farandsýningin á samtímalist af þessum slóðum. Fyrirtækið var stofnað af skoskum aðalsmanni fyrir tæpum 200 árum í Gauta- borg. Það varð risi í sænskri verslun og skipaútgerð og sneri sér að fjármagnsmark- aði á síðustu öld. Nú er Carnegie leiðandi fjárfestingarbanki með starfsemi í 7 löndum og 900 starfsmenn. Sú leið er farin að veita fá en vel úti látin peningaverðlaun fyrir vinnu sem þykir skara fram úr. Fyrstu verðlaun nema 500.000 sænskum krónum, önnur verðlaun 300.000 og þriðju 200.000. Þar að auki fær ungur listamaður 50.000 sænskra króna styrk á hverju ári. Hlutur 6 manna dóm- nefndar er meðal annars þess vegna þýðing- armikill. Hún er skipuð til þriggja ára og núverandi formaður er Lars Nittve, for- stöðumaður Tate-safnsins í Lundúnum. Bera Nordal á sæti í nefndinni, en hún veit- ir listasafninu í Málmey forstöðu. Þar starf- aði einnig sýningarstjórinn Ulrika Levén, sem gekk með blaðamanni um sali Gerð- arsafns í vikunni. Að þessu sinni teygjast mörk málaralistar yfir í ljósmyndun; sum verka á sýningunni eru að hluta til eða alveg komin úr kassa myndavélar. Það á til dæmis við um eina af þremur hugarsmíðum Hreins. Annar ís- lenskur listamaður, Tumi Magnússon, á verk á sýningunni, myndina „Fire escape“ málaða á staðnum og nokkurs konar síma- minni sem nær fyrir horn. Annars eru lista- verkin 47 af ýmsum toga og eiga það eitt sammerkt að vera máluð eða dragast í þann dilk myndlistar. Sú ljóðræna nautn Af þjóðrækni rata ég fyrst að vegg Hreins Friðfinnssonar á efri hæð safnsins og þykir eins og lóðsinum Ulriku að þar hangi fínleg verk, jafnvel „ljóðræn nautn“ svo vitnað sé til orðalags dómnefndar. Stærsta verk Hreins er saman sett úr tré- spöðum sem hann safnaði í málningarbúð í Hollandi þar sem hann býr. Búðin blandar mikið liti og spaðarnir eru notaðir til þess. Þeim hefur verið dýft misdjúpt oní fötur og gætu verið margar sjálfstæðar smámyndir. Eða minnt á dropa í ýmsum litbrigðum. Á rigningardegi heitir enda verkið, en það mun vera vísun listamannsins í upplagt verkefni þegar skýþungt er: að fara í lita- búðina. Þá kemur lítið verk og hógvært, tvær glerplötur með fingraförum listamannsins í grunnlitunum; gulum, rauðum og bláum. Staðsetning heitir það. Loks allstór ljós- mynd af prismu sem varpar litlum regnboga í lófa Hreins. Ulrika bendir á að hendur komi þarna jafnan við sögu; handbragðið, ummerkin, opinn lófi eða möguleiki. Við skoðum næst ljósmyndir Mari Slaatt- elid, sem hlaut fyrstu verðlaun hjá dóm- nefndinni. Þær eru annars vegar af átta ára dóttur hennar sem horfir beint í linsuna með leifar af hvítum andlitsmaska framan í sér og svip sem þokast frá skeytingarleysi að leiða eða furðu. „Protective“, heitir þessi myndröð. Hitt verkið heitir „Reading Wo- man“, einnig röð mynda en nú af tveimur litatónum hlið við hlið á svörtum grunni. Spurning er hvort þetta minni á opnar bæk- ur eða augnskuggabox eða eitthvað annað, en orðin með myndunum eru fengin úr bæklingum í snyrtivöruverslun: Glæsileg, fáguð, virk. Dúkkur og dularfullt andlit Þriðju verðlaun hlaut Petri Hytönen fyrir vatnslitamyndir, óvenjulegar vegna stærðar og efnis. Önnur myndin er skemmtilega blá, úr finnskum vetri þar sem dúkkur og MÁLVERK ER MARGT OG ÞAÐ LIFIR Í NORÐRINU Sýningin Carnegie Art Award 2000 á norrænum samtímamálverkum er nýhafin í Gerðarsafni í Kópa- vogi. ÞÓRUNN ÞÓRSDÓTTIR tók forskot á sæluna með sýningarstjóranum, en tveir Íslendingar, annar verðlaunahafi, eru meðal 21 útvalins listamanns. Mari Slaattelid: Vernd. Karin Mamma Andersson: Bóhemar.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.