Morgunblaðið - 20.04.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MILLJARÐASAMNINGUR
Vegna flutnings raforku til stækk-
aðs álvers Norðuráls á Grundartanga
þarf Landsvirkjun að ráðast í 6,6
milljarða króna fjárfestingu í flutn-
ingskerfi. Skrifað verður undir samn-
ing við Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja í dag um flutn-
ing orkunnar. Í raun mun Lands-
virkjun útvega raforkuna til Norður-
áls en hin fyrirtækin koma með
samsvarandi orku inn á flutningskerfi
Landsvirkjunar.
Umsátri aflétt
Bandaríkjaher hefur náð sam-
komulagi við heimamenn í borginni
Fallujah í Írak sem felur í sér að um-
sátri um borgina verður aflétt. Meira
en sjö hundruð manns, þar af rúm-
lega sex hundruð Írakar, féllu í átök-
um í Fallujah í síðustu viku en við-
ræður höfðu staðið yfir um nokkurra
daga skeið um hvernig stilla mætti til
friðar í borginni.
Forval vegna tónlistarhúss
Ríkiskaup hafa auglýst forval á
EES-svæðinu vegna byggingar,
reksturs og hönnunar tónlistar- og
ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn.
Afhenda á verkefnalýsingu í ágúst
nk. og vitað er af áhuga fleiri en eins
aðila.
Dýrt eftirlit
Heildarkostnaður samfélagsins
vegna opinberra eftirlitsreglna er að
mati Hagfræðistofnunar Háskóla Ís-
lands allt að 12 milljarðar króna á ári.
Þar af er kostnaður fyrirtækja rúmir
sjö milljarðar. Talsmenn atvinnulífs-
ins og verkalýðshreyfingarinnar telja
mikilvægt að samhæfa og einfalda
þetta eftirlit.
Maradona veikur
Diego Armando Maradona, einn
þekktasti knattspyrnumaður sam-
tímans, liggur nú þungt haldinn á
sjúkrahúsi í Buenos Aires, höfuðborg
Argentínu, en Maradona fékk alvar-
legt hjartaáfall í fyrrinótt. Líðan
Maradona var í gærkvöldi sögð betri
en hann var þó enn í öndunarvél.
Flugvallargjaldi skipt upp
Samkvæmt frumvarpi samgöngu-
ráðherra verður flugvallargjaldi skipt
upp í flugvallarskatt og þjónustu-
gjald. Skatturinn leggst mismunandi
á farþega, allt eftir því hvort þeir
ferðast innanlands eða til útlanda.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 31
Úr verinu 14 Viðhorf 32
Viðskipti 15 Minningar 33/39
Erlent 16/17 Brids 40
Minn staður 18 Bréf 42
Höfuðborgin 19 Myndasögur 42
Akureyri 20 Skák 43
Suðurnes 21 Dagbók 44/45
Austurland 22 Íþróttir 46/49
Landið 23 Leikhús 50
Daglegt líf 24 Fólk 50/53
Listir 25/26 Bíó 50/53
Umræðan 27/32 Ljósvakar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
UPPBYGGING á svonefndum flugvallarskatti
breytist og verður í tvennu lagi, mismunandi á
flugfarþega eftir því hvort þeir ferðast innanlands
eða til útlanda, nái frumvarp samgönguráðherra
um breytingar á lögum um flugmálaáætlun og
fjáröflun til flugmála fram að ganga.
Samkvæmt frumvarpinu verður gjaldinu skipt
upp í tvennt. Annars vegar er um flugvallarskatt
að ræða sem allir flugfarþegar greiða sem ferðast
milli flugvalla hér á landi eða til útlanda og verður
hann 382 kr. á hvern farþega. Jafnframt verður
tekið upp þjónustugjald, svonefnt varaflugvallar-
gjald að upphæð 598 kr. fyrir hvern farþega sem
ferðast með flugvél héðan til annarra landa og er
miðað við að sú gjaldtaka standi undir þeirri þjón-
ustu sem veitt er. Samtals greiða því farþegar til
útlanda 980 kr. og farþegar innanlands 382 kr.
Frumvarpið er lagt fram í kjölfar dóms EFTA-
dómstólsins frá því í desember í fyrra þess efnis að
óheimilt sé að hafa mismunandi farþegaskatta inn-
anlands og milli landa. Var leitað álits Davíðs Þórs
Björgvinssonar lagaprófessors af því tilefni og
komst hann að þeirri niðurstöðu að því er fram
kemur í athugasemdum með frumvarpinu að
heimilt sé að leggja á farþega gjöld hvort heldur
er í innanlandsflugi eða millilandaflugi til að mæta
sérstökum kostnaði sem leiði af veitingu þjónustu
sem þeir njóti sem flugfarþegar. Skilyrði sé að
gjaldið sé lagt á þá sem njóta þjónustunnar og
samhengi sé milli kostnaðar við þjónustuna og
fjárhæðar gjaldsins.
Einnig sé heimilt að hafa gjöldin mismunandi há
eftir því hvort um innanlandsflug eða millilanda-
flug sé að ræða, enda sé samsvörun milli mismun-
andi gjalda og mismunandi þjónustu sem þeir njóti
sem gjaldið greiði og mismunurinn sé hóflegur og í
samræmi við muninn á þeim kostnaði sem hlýst af
því að veita þjónustuna.
„Það er mat samgönguráðuneytisins að vara-
flugvallakerfið sé nauðsynlegt til þess að haldið
verði upp áreiðanlegu og öruggu millilandaflugi og
kerfið sé þannig nauðsynlegur þáttur í þjónustu
við þá sem ferðast í millilandaflugi. Á hinn bóginn
er ljóst að fjárfesting, þjónusta og afgreiðslutími
varaflugvallanna er langt umfram þörf innanlands-
flugsins og miðast við varaflugvallarhlutverk
þeirra fyrir stórar flugvélar,“ segir ennfremur í at-
hugasemdum með frumvarpinu.
Flugvallargjaldi skipt upp í flugvallarskatt og þjónustugjald
Farþegar út greiða 980 kr.
en innanlands 382 krónur
JÓN í Belg fór á vatn á sunnudags-
morgun til dorgveiða. Það var logn
og ládeyða er hann ýtti úr vör vest-
an undir Stekkjarnesi og hélt út að
ísskörinni sem komin var upp undir
Þorbjargarhólma. Þar keyrði hann
bátinn fastan upp í skörina og sat
lengi að dorginni, án þess að verða
var, frekar en verið hefur svo oft í
vetur. Alls engin tekja á dorg og
sáralítil í net.
Það tók að hvessa af suðvestri
svo sem oft ber við og vatnið varð
úfið og alda gerðist kröpp. Jón
mátti hafa verulega fyrir því að
koma bátnum aftur í vörina og
binda hann þar. Hér hefur hann
lokið við að binda bátinn. Hafn-
armannvirki eru ekki merkileg á
Stekkjarnesi, en þau hafa lengi
dugað Belgjarbónda. Skarð er inn í
hraunkambinn passandi fyrir stefni
bátsins, en ísabroddur rekinn í jörð
er landfestan.
Enginn stundar vatnið fastar hér
um slóðir en Jón Aðalsteinsson 78
ára gamall. Þótt afrakstur sé lítill
er ekki gefið eftir í lífsbaráttunni.
Vinnusemi og sjálfsbjargarviðleitni
halda honum ungum í anda.
Morgunblaðið/BFH
Jón er sínum
hnútum kunnugastur
Mývatnssveit. Morgunblaðið.
FJÖGUR þeirra fimm skotvopna
sem stolið var úr heimahúsi í Grinda-
vík þriðjudaginn 13. apríl fundust á
sunnudag, samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar í Keflavík sem rann-
sakar málið. „Við erum himinlifandi
og auðvitað afskaplega ánægðir með
þetta,“ segir Ásgeir Eiríksson,
sýslumannsfulltrúi í Keflavík.
Vopnin fundust á Reykjavíkur-
svæðinu og standa vonir til að
fimmta byssan komi einnig í leitirn-
ar. Ekki er vitað hvort skotið hafi
verið af byssunum, en rannsókninni
miðar vel áfram. Ekki er hægt að
upplýsa að svo stöddu um það hverj-
ir tóku byssurnar, samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar í Grindavík.
„Við munum hefja aðgerðir í að
skoða vörslu vopna hér á Suðurnesj-
um 15. maí og fram að því gefst
mönnum kostur á að koma sínum
málum í lag. Við höfum fengið mjög
góð viðbrögð á þessar aðgerðir,“
Sem dæmi nefnir Ásgeir að byssu-
sali nokkur sem hann hringdi í á dög-
unum hafi vart mátt vera að því tala
við hann vegna annríkis við að selja
byssuskápa. Auk skotvopnanna fjög-
urra hafðist einnig uppi á skotvopni
á höfuðborgarsvæðinu sem stolið var
úr heimahúsi í Keflavík í desember
2003, en úr því máli voru tvö skot-
vopn notuð til ráns sem framið var í
verslun Bónuss í Kópavogi í desem-
ber.
Lögreglan í Keflavík fer með
rannsókn málsins sem miðar vel og
hefur notið aðstoðar lögreglunnar í
Reykjavík við rannsóknina
Lögregla finnur skotvopn úr
innbrotum í Grindavík og Keflavík
Himinlifandi með
skotvopnafundinn
FRÁ því Hitaveita Reykjavíkur
tók til starfa og fram til loka ársins
2002 hefur hún sparað viðskipta-
vinum sínum um
580 milljarða
króna að núvirði
miðað við 4%
ávöxtun og að
þeir hefðu að
öðrum kosti hit-
að hús sín með
gasolíu. Þetta
kom fram í er-
indi sem Jó-
hannes Zoëga,
fyrrverandi hitaveitustjóri, flutti á
aðalfundi Jarðhitafélags Íslands á
dögunum.
Jóhannes rakti þróunarsögu
borholudælna Hitaveitu Reykja-
víkur í erindi sínu og sagði virkjun
jarðhitans hafa bætt hag þeirra
sem hefðu getað nýtt sér þá auð-
lind og hefur Jóhannes lagt mat á
þennan sparnað. Frá því Hitaveita
Reykjavíkur hefði tekið til starfa
og fram til loka ársins 2002 hefði
beinn sparnaður viðskiptavina
numið 270 milljörðum króna miðað
við að þeir hefðu hitað hús sín með
gasolíu. Núvirði þessa sparnaðar
miðað við aðeins 4% ávöxtun næmi
því um 580 milljörðum króna. Þá
sagði Jóhannes að beinn sparn-
aður hitaveitunotenda í Reykjavík
og nágrenni hefði numið um fimm-
tán milljörðum króna á ári síðast-
liðin þrjú ár.
Fram kom í erindi Jóhannesar
að gengið væri út frá því að Hita-
veita Reykjavíkur hefði tekið til
starfa 1. desember árið 1943 þegar
fyrsta húsið, Hnitbjörg Einars
Jónssonar myndhöggvara, hefði
verið tengt veitunni.
Sjálfur var Jóhannes hitaveitu-
stjóri í Reykjavík frá árinu 1962 til
ársins 1987 eða í aldarfjórðung.
Hitaveitan hefur
sparað 580 milljarða
Jóhannes Zoëga
ELDUR kviknaði í barnaherbergi í
íbúð við Írabakka á níunda tímanum
í gærkvöldi. Slökkviliðið fór á stað-
inn og gekk greiðlega að slökkva eld-
inn. Tveir voru fluttir á sjúkrahús,
kona á sjötugsaldri og sjö ára dreng-
ur, til eftirlits. Eldurinn var bundinn
við barnaherbergið og var reykkaf-
ari sendur inn til að slökkva hann og
gekk það mjög vel, en herbergið er
mikið skemmt. Talið er að eldurinn
hafi kviknað við fikt barna með
kveikjara og að neisti hafi fyrst kom-
ist í dótakassa.
Eldur í barnaherbergi