Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 4

Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ gekk mikið á hjá þeim Sigfúsi Unnarssyni og Hjördísi Ingu Páls- dóttur á sunnudaginn. Dagurinn byrjaði með því að Hjördís Inga fór að fá hríðir en hún var komin tæpa níu mánuði á leið og var farið að bíða eftir öðru barni þeirra. Sigfús var aftur á móti önnum kafinn við þrifnað um borð í togaranum Snorra Sturlusyni VE þar sem hann lá rétt fyrir utan Heimaey en til stóð að landa úr honum í Eyjum í gærmorgun. Þegar leið á daginn og hríðarnar fóru að koma með styttra millibili var ljóst að líklega myndi Sigfús missa af fæðingunni ef hann kæm- ist ekki fljótlega í land. Brugðið var á það ráð að setja tuðru frá borði á Snorra með Sigfús innanborðs og tvo félaga hans, þá Jóhannes Stein- grímsson netamann og Friðrik Ingason bátsmann en þeir ætluðu að koma verðandi pabbanum í land. „Við vorum búnir að vera að þrífa ansi lengi þegar það er kallað í mig og mér sagt að ég sé á leið í land. Ég skelli mér í sturtu og geri mig kláran og rétt fyrir fimm vor- um við komnir um borð í tuðruna,“ sagði Sigfús þegar hann rifjaði upp þessa miklu svaðilför. „Það má segja að það hafi allt farið úrskeiðis sem gat farið úr- skeiðis. Það var ekki öryggislína og það vantaði svokallaðan lúgu- mann.“ Sá aðili sér um samskipti á milli skipstjórans og kranamanns- ins. „Við fórum of snemma af stað, vorum ekki komnir með leyfi til að fara og svo hrekkur tuðrann ekki í gírinn.“ Hélt áfram að slaka Þegar það gerist reyna þeir að koma skilaboðum til kranamanns- ins en einhver misskilningur varð þar á milli og hélt hann áfram að slaka þeim í sjóinn. Um leið og tuðrann lenti í sjónum þá var ljóst að illa færi enda höfðu þeir ekki vélaraflið til að koma sér frá togar- anum. „Tuðran valt yfir okkur og við enduðum í sjónum og á auga- bragði að okkur fannst var skipið komið óraveg frá okkur með tuðr- una ennþá hangandi við skips- krokkinn og þeir náðu henni aftur um borð en því miður ekki okkur,“ sagði Sigfús og hélt áfram. „Við vorum því þrír þarna í sjón- um og eina sem við gátum gert var að reyna að halda okkur saman og halda þannig á okkur hita.“ Þeir voru allir í flotgöllum en Sigfús þó verst klæddur af þeim þar sem hann var í svokölluðum vinnuflot- galla en hann heldur ekki eins vel vatni. „Það er alstaðar sjóstreymi í gegnum gallann en þeir ná að loka flotgallanum hjá sér og líkamshit- inn á þeim hitar upp þann sjó sem er í gallanum þeirra.“ Sigfús var orðinn mjög kaldur þegar hann náðist loks um borð í Báruna, tuðru í eigu þeirra Guð- jóns Pálssonar og Péturs Stein- grímssonar lögreglumanns í Eyj- um. Beið á útsýnispallinum Á meðan á þessu stóð beið Hjör- dís Inga í rólegheitunum á útsýn- ispallinum á nýja hrauninu eftir að sjá tuðruna nálgast land. „Við sáum ekki hvað var að gerast en vorum farin að spá í út af hverju þetta tæki svona rosalega langan tíma. Það var ekki fyrr en lögreglubíllinn kom upp á útsýnispall sem við gerð- um okkur grein fyrir að eitthvað hafði komið fyrir. Á sama tíma sjáum við björgunarbátinn sigla á miklum hraða út úr innsigling- unni,“ sagði Hjördís Inga sem fór strax af stað niður á bryggju þar sem hún beið komu eiginmannsins. Báran var ekki lengi að ná þeim um borð og koma þeim til Eyja. „Mér varð rosalega létt þegar ég sá björgunarbátinn enda gat ég ekki orðið talað fyrir skjálfta,“ sagði Sigfús en líkamshiti hans var kom- inn niður í 34° þegar komið var með hann á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. Sigfús var allan tímann með meðvitund en segist aldrei hafa orðið eins kalt á ævinni. Á bryggjunni beið Hjördís ásamt móður sinni og systur og fylgdu þær honum upp á spítala. „Ég var nú eiginlega að koma í land til að fylgja henni upp á spítala en ekki öfugt,“ sagði Sigfús. „En þannig endaði það víst.“ Þegar upp á sjúkrahús var komið var strax hafist handa við að hlúa að Sigfúsi og reyna að ná líkamshit- anum upp. „Það var blásara beint að honum, hann var með hitapoka út um allt á sér, allir ofnar voru á fullu og svo var hann með hitaslöngu í æð,“ sagði Hjördís Inga sem sat við hlið Sigfúsar á sjúkrahúsinu en þá var ekki enn búið að leggja hana inn. „Mér var orðið svo heitt að ég var farin úr peysunni og búin að hringja í mömmu og biðja hana um að koma með ís handa mér,“ sagði hún og Sigfús bætti við: „Hún var að kafna en ég að krókna.“ Sigfús var þó ekki lengi að hrista þetta af sér og rúmum þremur tímum eftir að hann kom upp á sjúkrahús var hann útskrifaður. Fæðingin gekk mjög vel Stoppið var stutt á heimili þeirra því tæpri klukkustund síðar voru þau komin aftur upp eftir, en núna út af fæðingunni. „Fæðingin gekk mjög vel og sex mínútur fyrir eitt um nóttina fæddi ég drenginn. Þetta gekk svo fljótt fyrir sig að mamma missti af fæðingunni en hún skrapp fram í tvær mínútur og þegar hún kom aftur var þetta allt yfirstaðið. Ég þurfti bara að remb- ast einu sinni og þá var þetta kom- ið,“ sagði Hjördís Inga og Sigfús náði fæðingunni eftir allt saman þótt vissulega hafi heimferðin verið erfiðari en hann áætlaði. „Hún var að kafna en ég að krókna“ Morgunblaðið/Sigurgeir Sigfús Unnarsson, eldri sonurinn Anton Máni, Hjördís Inga Pálsdóttir og nýfæddur sonur þeirra komin heim. Á átta klukkustundum gerðist ótrúlega margt hjá ungu pari í Eyjum. Fyrst var hon- um bjargað úr sjávarháska og síðan fylgdist hann með fæðingu sonar þeirra. Saman fóru þau öll heim af sjúkrahúsinu fyrir hádegi í gærmorgun. Þar hitti Sigursveinn Þórð- arson fréttaritari ungu fjölskylduna í gær. HÉRAÐSDÓMUR Norður- lands eystra hefur dæmt karl- mann á þrítugsaldri í 150 þús- und króna sekt fyrir að hafa undir höndum vopn af ýmsu tagi og fyrir að hafa í fórum sín- um 2,52 grömm af hassi. Ákærði hefur áður sætt refs- ingum fyrir brot á hegningar- lögum og fíkniefnalöggjöf. Þrisvar afskipti Lögregla hafði þrisvar af- skipti af ákærða á síðasta ári vegna brots á vopnalögum. Í eitt skiptið var hann með á dvalarstað sínum haglabyssu, loftskammbyssu, byssusting og nokkra hnífa. Í annað skipti var hann með loftriffil sem hann átti en hafði ekki skotvopna- leyfi fyrir, með sér í áætlunar- bíl, og í þriðja skiptið var mað- urinn með vasahníf með 8 cm löngu blaði inni á bar á Akur- eyri. Málið dæmdi Freyr Ófeigs- son dómstjóri. Sækjandi var Eyþór Þorbergsson sýslu- fulltrúi. Sekt fyr- ir brot á vopna- lögum EKKERT hefur þokast í samkomu- lagsátt í kjaraviðræðum Félags grunnskólakennara og samninga- nefndar launanefndar sveitarfélaga að undanförnu. Kjarasamningur grunnskólans rann út um seinustu mánaðamót. Finnbogi Sigurðsson, formaður FG, segir þolinmæði kennara nán- ast að þrotum komna vegna þess að ekkert hafi miðað í viðræðunum. Samningafundur var haldinn hjá ríkissáttasemjara í gær og er næsti fundur boðaður á föstudag. Á morgun mun launanefnd sveitarfé- laga fara yfir stöðuna og er næsti viðræðufundur svo boðaður á föstu- daginn. Finnbogi segir að ekki sé enn farið að ræða hugsanlegar aðgerðir í hópi kennara til að þrýsta á um gerð samninga en næstkomandi mánudag verði farið yfir stöðu deil- unnar og hvað gera beri í framhald- inu á fundi stjórnar samninga- nefndar og formanna svæðafélaga í FG. „Það gerist nákvæmlega ekki neitt. Menn hittast, rabba eitthvað saman en pappírar ganga lítið sem ekkert á milli manna og annað er í sama dúr,“ segir hann. Þolinmæði kenn- ara er að bresta ÞRÍR sakborningar, sem sæta ákæru ríkissaksóknara fyrir inn- flutning á alls 27 kílóum af kanna- bisefnum til landsins, neituðu allir sök við þingfestingu málsins í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Tveir sakborninganna eru íslenskir og einn þýskur. Í ákæru eru talin til ellefu skipti sem ákærðu stóðu að innflutningi kannabisefna og er þess krafist að þeir verði dæmdir til refs- ingar. Einn sakborninganna hlaut í Hæstarétti í október 2003 5 ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefna- smygl hingað til lands í tengslum við mál sem kennt var við „Operat- ion Germanía“ á rannsóknastigi og teygði anga sína um Evrópu. Með- ákærði frá Þýskalandi hlaut þá í Héraðsdómi Reykjavíkur í júní 2003 tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína. Aðalmeðferð nýja málsins hefst fyrir héraðsdómi 24. júní. Neita aðild að stór- felldu fíkniefnasmygli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.