Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 11
BÓKAÞING – 2004
Iðnó
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
13.00 Þingsetning
Sigurður Svavarsson, formaður Félags
íslenskra bókaútgefenda.
13.05 Þýðinguna eða lífið?
Rúnar Helgi Vignisson
13.30 Bókin á skjánum
Sigurður Valgeirsson
Pallborð: Sigurður Valgeirsson og
fulltrúar fjölmiðla.
14.40 Hefur spennusagan engin
landamæri?
Niccolò Ammaniti og Katrín
Jakobsdóttir skiptast á skoðunum.
15.10 Hnignar bóklestri?
Þorbjörn Broddason gerir grein fyrir
niðurstöðum á könnun á fjölmiðla- og
frístundavenjum íslenskra ungmenna.
Pallborð: Þorbjörg Broddason og fleiri.
16.00 Þingslit
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson,
formaður Rithöfundasambands Íslands.
Þingforseti: Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI
Kl. 16.00 – 18.00
Upplestur 9. bekkinga.
BÓKASAFN GRINDAVÍKUR
Kvenfélagshúsinu Grindavík
Kl. 17.00
Þórarinn Eldjárn rithöfundur les úr
eigin verkum. Barnakórinn og nokkrir
nemendur úr Grunnskólanum og
Tónlistarskólanum skemmta með
upplestri, tónlist og söng.
EDDA ÚTGÁFA
Hótel Borg
Kl. 20.00 - 23.00
Skáldamessa Eddu á Hótel Borg. Allir
helstu rithöfundar landsins koma fram
og lesa úr verkum sínum.
Vika bókarinnar 20. - 26. apríl
Alla vikuna
Bókasafn Bolungarvíkur
„Létti spurningaleikurinn“ verður vikuna
20. - 26. apríl. Leikurinn verður þannig
að safngestir fá spurningar úr íslenskum
barnabókum eða um þær, svörin sett
í kassa og svo verður dregið úr réttum
svörum og bókarverðlaun veitt.
Bókasafn Grindavíkur
Bókavikuna verða sérstök bókamerki
afhent með öllum útlánum og þeir sem
komnir eru fram yfir skiladag þessa viku
fá ekki sekt. Þá verður vakin athygli á
íslenskum sakamálasögum, bæði gömlum
og nýjum.
Gleðilega bókaviku!
Bókasafn Reykjanesbæjar
Haldið verður upp á Viku bókarinnar í ár
með því að setja sögubrot úr íslenskum
skáldsögum í heitu pottana við sundlaugar
bæjarins. Einnig verður sett upp sýning
á íslenskum skáldverkum í safninu. Að
lokum fá öll 2ja ára börn í bænum afhenta
íslenska bók að gjöf frá EDDU - útgáfu en
gjöfin er hluti af lestrarmenningarverkefni
sem er í gangi í bænum.
Bókaútgefendur
Síðustu ár hafa bókaútgefendur í
vaxandi mæli gefið út nýjar bækur í
Viku bókarinnar og einnig endurútgefið
nýjar eða nýlegar bækur í kiljum.
Bókaunnendur hafa tekið þessari úgáfu
vel og góð stemmning hefur myndast í
kringum þessa vorbókaútgáfu. Í ár munu
einnig koma út fjölmargar nýjar bækur
bæði þýddar og íslenskar sem án efa
verða áberandi í bókaverslunum í Viku
bókarinnar.
Bókaverslanir
Bókin Tuttugasti og þriðji apríl sem kemur
út í tilefni Viku bókarinnar 2004 er gefin
viðskiptavinum sem kaupa bækur fyrir
1500 krónur eða meira þessa viku.
Margvísleg tilboð verða á barna- og
unglingabókum og íslenskum skáldsögum
í bókabúðum. Í bókabúðum Máls og
menningar og Pennanum - Eymundsson
verður glæpasögumarkaður með
íslenskum og erlendum glæpasögum.
Myndskreytingar úr bókum Sigrúnar
Eldjárn verða sýndar á Laugavegi, í
Austurstræti, Kringlunni og Smáralind.
Einnig verða tilboð á íslenskum
skáldsögum, glæpasögum og bókum
Sigrúnar Eldjárn.
Dagskrá Borgarbókasafns Reykjavíkur í
Viku bókarinnar
Íslenskar skáldsögur verða í brennidepli
í öllum söfnum Borgarbókasafns í Viku
bókarinnar og verður mismunandi áhersla
milli safna. Einnig verður boðið upp á
ráðgjöf um val á lesefni fyrir börn í öllum
söfnunum út vikuna.
Aðalsafn, Tryggvagötu 15: Hvað les ungt
fólk? Unglingar velja uppáhaldsbækurnar
sínar. Gestum á öllum aldri verður einnig
boðið að stilla út uppáhaldssögum sínum
frá bernsku- og unglingsárunum.
Ársafn, Hraunbæ 119: Vakin er athygli á
fjölhæfum kvenrithöfundum sem skrifað
hafa ljóð, leikrit, barnabækur, skáldsögur
og fleira.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi:
Hróður íslensku skáldsögunnar!
Íslenskar skáldsögur hafa hlotið
margvíslegar viðurkenningar í gegnum
tíðina, bæði hér heima og erlendis.
Höfundum þeirra og verðlaunabókum er
sérstakur sómi sýndur þessa vikuna.
Foldasafn í Grafarvogskirkju:
Skáldsögur höfunda sem fæddir eru
fyrir lýðveldisstofnun. Útstillingar verða
á bókum ásamt kynningum á völdum
höfundum. Boðið verður upp á „blint
útlán“ á skáldsögum höfunda þessarar
kynslóðar.
Kringlusafn: Svipast um í hverfinu.
Fuglaverkefni frá leikskólanum Hamraborg
verður til sýnis og börn þaðan, sem eru
fastagestir á safninu, koma í heimsókn
miðvikudaginn 21. apríl kl. 10 og skemmta
gestum með fuglasöngvum. Farfuglar
í formi bóka verða til sýnis, þ.e. brot af
þýddum skáldsögum tveggja rithöfunda
úr hverfinu, þeirra Einars Kárasonar og
Vigdísar Grímsdóttur.
Sólheimasafn, Sólheimum 27: Sjónum er
beint að íslenskum skáldsögum sem hafa
verið kvikmyndaðar. Einnig gefst gestum
kostur á að velja þá íslensku skáldsögu
sem þeir vildu helst sjá kvikmyndaða.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi
Glæpaverk: Skyggnst inn í glæpaveröld
Arnaldar Indriðasonar á sýningu í
samstarfi við Lögregluna í Reykjavík.
Sýning um bækur Arnaldar sem og yfirlit
yfir ævi hans og störf. Bækur hans fá líf
með ljósmyndum og sýndir verða munir
sem koma fyrir í bókunum. Litið verður á
umfjallanir um bækurnar, verðlaun sem
Arnaldur hefur hlotið og hægt verður
að hlusta á sögurnar á hljóðsnældu.
Lögreglan verður með leiðsögn um
sýninguna og geta hópar skráð sig með
dags fyrirvara í Gerðubergi í síma 5757700
eða á gerduberg@gerduberg.is. Sjá nánar
um leiðsögn á www.gerduberg.is
Sýningin stendur frá 17. apríl til 9. maí
2004.
Heiti potturinn!
Allir pottverjar á sundstöðum borgarinnar
geta lesið ljóð Þórarins Eldjárns úr
Óðhalaringlu í boði Eddu útgáfu.
Lóðið
Afhent í Viku bókarinnar
Félag starfsfólks bókaverslana veitir
verðlaunin Lóð á vogarskál íslenskra
bókmennta 2003. Þetta er í fjórða sinn
sem verðlaunin eru afhent.
Sigurskáldið, ljóðakeppni Eddu og
Fréttablaðsins
Yfir 150 ljóð bárust í þessa vinsælu
keppni sem mun verða áberandi á síðum
Fréttablaðsins í Viku bókarinnar og ljúka
með útnefningu sigurvegarans á degi
bókarinnar 23. apríl. Nánari upplýsingar
er að finna á heimasíðu Eddu útgáfu á
slóðinni www.edda.is.