Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 15
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 15
● SAMRÆMD vísitala neysluverðs í
EES-ríkjum hækkaði um 0,6% frá
febrúar til mars en á sama tíma
hækkaði vístitalan á Íslandi um 0,7%.
Frá marsmánuði í fyrra til sama
mánaðar í ár var verðbólgan 1,5% að
meðaltali í EES-ríkjunum, 1,7% á
evrusvæðinu og 1% á Íslandi, mælt
með samræmdu vísitölunni, að því er
kemur fram í frétt frá Hagstofu Ís-
lands.
Mest var 12 mánaða verðbólga á
EES-svæðinu 2,9% í Grikklandi og
2,3% á Ítalíu. Verðhjöðnun um 0,4%
mældist í Noregi og Finnlandi og
0,1% í Sviss. Þess utan mældist
minni verðbólga en á Íslandi einungis
í Danmörku og Svíþjóð, þ.e. 0,4% og
engin verðbólga mældist í Japan.
Verðbólgan hér minni
en í EES-ríkjum
● DANMÖRK er það land í heiminum
sem komið er lengst í rafrænum við-
skiptum. Bretland er í öðru sæti og
þar næst á eftir koma Svíþjóð, Nor-
egur og Finnland. Þetta eru nið-
urstöður athugunar rannsóknarfyr-
irtækis breska blaðsins Economist,
(e. Economist Intelligence Unit, EIU).
Frá þessu er greint á vefsíðu BBC.
Ísland er ekki á
lista EIU en í frétt
á vefsíðu danska
viðskiptablaðsins
Børsen segir að
athugunin nái ein-
ungis til 64
stærstu efna-
hagskerfa heims-
ins.
Við niðurröðun á lista EIU er tekið
mið af fjölmörgum þáttum er varða
upplýsingatæknina, s.s. fjölda einka-
tölva, nettenginga í heimahúsum og
stefnu stjórnvalda í upplýsingatækni.
Danmörk færist upp um eitt sæti á
lista EIU yfir þau lönd sem lengst eru
komin í rafrænum viðskiptum, var í
öðru sæti á síðasta ári. Þá var Sví-
þjóð hins vegar í fyrsta sætinu en er
nú í því þriðja. Bretland færist einnig
upp um eitt sæti, úr þriðja sæti í ann-
að. Noregur hækkar hins vegar úr sjö-
unda sæti í það fjórða og Finnland
hækkar úr sjötta sæti í fimmta.
Bandaríkin lækka hins vegar úr þriðja
sæti í fyrra í sjötta sæti í ár. Þar á eftir
koma Singapore, Holland, Hong Kong
og Sviss.
Danmörk fremst í raf-
rænum viðskiptum
● ÞAÐ er engin deila um flutning
símanúmera Íslandsbanka frá Og
Vodafone til Símans, en viðræður
hafa staðið yfir um hvernig ljúka eigi
samningum milli Og Vodafone og Ís-
landsbanka, segir Pétur Pétursson,
forstöðumaður hjá Og Vodafone. Eins
og greint var frá í Morgunblaðinu um
helgina ákvað Póst- og fjarskipta-
stofnun á föstudag að beita Og Voda-
fone 100.000 króna dagsektum ef
ekki yrði búið að flytja númerin á há-
degi í gær. Pétur segir að tillaga liggi á
borðinu um það hvernig ljúka skuli
viðskiptasambandi fyrirtækisins við
Íslandsbanka og í þeirri trú að sú til-
laga verði samþykkt hafi tilmæli verið
gefin um það hjá Og Vodafone síðdeg-
is í gær að flytja númerin.
Pétur segir íhlutun Póst- og fjar-
skiptastofnunar hafa verið sér-
kennilega og með öllu ótímabæra,
þar sem viðskiptasamband hafi verið
milli þessara tveggja félaga. Hann
segir þetta sérstaklega sérkennilegt
þar sem sambærilegt mál frá Og
Vodafone hafi legið hjá Póst- og fjar-
skiptastofnun í hálft ár óafgreitt. Með
hliðsjón af þessu sé um grófa mis-
munun að ræða við afgreiðslu sam-
bærilegra mála.
Ekki deilt um
númeraflutninginn
EKKI liggur fyrir hvort danskir líf-
eyrissjóðir muni fjárfesta á Íslandi í
náinni framtíð, en ekkert er því til
fyrirstöðu. Þetta segir Flemming
Skov Jensen, forstjóri danska lífeyr-
issjóðsins, Lønmodtagernes Dyr-
tidsfond. Hann segir að meirihluti
fjárfestinga flestra danskra lífeyris-
sjóða verði að öllum líkindum erlend-
is er fram líða stundir.
„Hvort sjóðirnir munu fjárfesta á
Íslandi ræðst af því hve öruggar slík-
ar fjárfestingar eru og að sjálfsögðu
af því hvað þær gefa af sér,“ segir
Jensen. „En þetta kemur vel til
greina og ég er kominn til Íslands
vegna þess að ég hef áhuga, og ég
veit að aðrir sjóðir hafa einnig sýnt
áhuga. Ekkert liggur þó fyrir um
fjárfestingar þess sjóðs sem ég veiti
forstöðu á Íslandi á þessari stundu.“
Jensen flutti erindi um fjárfest-
ingarstefnu Lønmodtagernes Dyr-
tidsfond, með sérstaka áherslu á er-
lendar fjárfestingar sjóðsins, á
hádegisfundi Dansk-íslenska versl-
unarráðsins í gær.
Hann sagði í samtali við Morgun-
blaðið að lífeyrissjóðurinn hefði ver-
ið stofnaður árið 1980 til þess að
ávaxta verðbætur á laun á tímabilinu
1977–1979, sem hefðu verið frystar
sem liður í aðhahaldsaðgerðum
dönsku ríkisstjórnarinnar á þeim
tíma. Sjóðurinn er nú sá stærsti í
Danmörku með heildareignir upp á
um 54 milljarða danskra króna, sem
Ekkert því til
fyrirstöðu að fjár-
festa á Íslandi
Forstjóri stærsta
lífeyrissjóðs Dan-
merkur segist vilja
kynna sér mögu-
legar fjárfestingar
hér á landi
svarar til um 630 milljarða íslenskra
króna. Í upphafi hafði sjóðurinn um
7,7 milljarða danskra króna, segir
Jensen, og til þessa hefur sjóðurinn
greitt út til lífeyrisþega um 23,5
milljarða danskra króna.
Norex-samstarfið gott
Jensen sagði næsta víst að Norex-
samstarfið, sem Kauphöll Íslands er
aðili að, sé gott fyrir Ísland, sem
þurfi á erlendum fjárfestingum að
halda. Samstarfið gefi vissulega
góða möguleika á því að erlendir
fjárfestar fjárfesti á Íslandi, og vel
sé hugsanlegt að danskir lífeyris-
sjóðir verði þar á meðal.
Jensen hefur áður kynnt sér hugs-
anlegar fjárfestingar á Íslandi því
hann var á meðal þeirra u.þ.b. eitt
hundrað dönsku fjárfesta sem
mættu á fjárfestingarráðstefnu um
íslenska hlutabréfamarkaðinn, sem
haldin var í Danmörku í október á
síðasta ári að undirlagi Dansk-ís-
lenska verslunarráðsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Kemur til greina Fleming Skov
Jensen, forstjóri stærsta lífeyris-
sjóðs Danmerkur, segir vel koma til
greina að fjárfesta á Íslandi.
JIM Cantalupo, forstjóri og stjórn-
arformaður McDonald’s, lést gær-
morgun af völdum hjartaáfalls.
Hann var sextugur að aldri. Canta-
lupo var staddur í Orlando á Flórída
þar sem haldin er ráðstefna eigenda
og stjórnenda McDonald’s-staða víðs
vegar um heim. AP-fréttastofan
greindi frá þessu.
Reuters-fréttastofan greindi frá
því í gær að Charlie Bell, rekstr-
arstjóri fyrirtækisins, hefði verið
ráðinn forstjóri í stað Cantalupo.
Cantalupo tók við starfi forstjóra
McDonald’s í janúar 2003 og hefur
honum einkum verið þakkað að fyr-
irtækið hefur breytt um ímynd og
leggur meiri áherslu á heilsufæði
auk þess sem fjármál keðjunnar
hafa breyst til hins betra.
Kom eins og reiðarslag
Jón Garðar Ögmundsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Pizza Hut
og Hard Rock Café, sem hefur gert
kauptilboð í fyrirtækið Lyst ehf.,
sem rekur McDonald’s hér á landi,
er staddur á ráðstefnunni í Orlando
ásamt Birni Ingimarssyni, rekstr-
arstjóra fyrirtækisins. Hann segir að
andlát Cantalupo hafi komið eins og
reiðarslag yfir þátttakendur á ráð-
stefnunni og sett allt úr skorðum.
Öllum dagskrárliðum ráðstefnunnar
í gær hafi verið aflýst. Hún haldi þó
áfram í dag en hún stendur til
fimmtudags. Segir hann að þátttak-
endur séu á bilinu 12 til 14 þúsund.
Að sögn Jóns Garðars var Canta-
lupo að koma úr baði í gærmorgun
þegar hann fékk hjartaáfall, að því
er talið er. Hann segir að allir séu
hissa á því sem gerst hafi því að
Cantalupo hafi verið kominn á lygn-
an sjó eftir mikinn hamagang á síð-
asta ári. Hann hafi verið að fá verð-
laun fyrir framúrskarandi árangur í
starfi enda hafi tekist að snúa fyr-
irtækinu algjörlega við. „Nú hefði
Cantalupo því átt að vera að upp-
skera fyrir erfiði síðasta árs, en þá
gerist þetta,“ segir Jón Garðar.
Á ráðstefnu McDonald’s er verið
að kynna helstu nýjungar hjá keðj-
unni og fjalla um hvernig hægt er að
fylgja eftir þeim viðsnúningi sem
orðið hefur í rekstrinum.
Um 30 þúsund veitingahús eru
rekin í rúmlega 100 löndum undir
merkjum McDonald’s og um 47
milljónir manna snæða þar á hverj-
um degi.
Forstjóri McDonald’s
lést úr hjartaáfalli
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
FJÁRFESTINGARSTEFNA Burð-
aráss, Kaldbaks og Straums er óljós,
að mati greiningardeildar Íslands-
banka, því ekki liggur fyrir í hvernig
verkefni verður ráðist í erlendis,
hvaða atvinnugreinar koma til greina
eða í hvaða löndum. Deildin telur að
of miklar væntingar séu bundnar við
nýtingu handbærs fjár félaganna eftir
sölu margra stórra eignarhluta síð-
ustu misseri.
Í Morgunkorni Íslandsbanka segir
þannig: „Að mati Greiningar ÍSB eru
væntingar bundnar við nýtingu þess
handbæra fjár umfram forsendur og
hefur skapast óeðlilegt yfirverð á
peningum í verðlagningu Straums,
Kaldbaks og Burðaráss. Við slíkar að-
stæður er hætta á að dragi úr vænt-
ingum fjárfesta og gengi félaganna
lækki ef bið verður á því að þau ráðist
í stærri fjárfestingar. Einnig er hætta
á að félögin ráðist í áhættumeiri verk-
efni en ella til að bregðast við auknum
væntingum til þeirra.“
Stefnan skilgreind vítt
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, segir fjár-
festingarstefnu félagsins skilgreinda
mjög vítt. Hann segir innlendan
markað það lítinn að fjárfestingar-
félögin geti tæplega skilgreint sig t.d.
eftir atvinnugreinum.
Hvað varðar erlendan markað seg-
ir Eiríkur að Kaldbakur vilji ekki ein-
skorða sig um of á meðan fyrstu
skrefin eru tekin þar. Menn vilji
skoða sig aðeins um til að byrja með
en líkt og áður hafi komið fram sé fé-
lagið að skoða fjárfestingartækifæri í
Evrópu.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri
Straums Fjárfestingarbanka, segir
greiningu ÍSB á fjárfestingarfélögum
ekki eiga við um Straum. Straumur sé
ekki lengur fjárfestingarfélag heldur
fjárfestingarbanki sem veitir alhliða
fjármálaþjónustu. Starfsemi Straums
var breytt um síðustu áramót.
Hann segir Straum vera annað fé-
lag en það var og starfsemi bankans
fjölþættari en áður. Starfseminni sé
skipt í þrjú tekjusvið; verðbréfasvið,
fyrirtækjasvið og lánasvið. „Starf-
semi Straums er lík starfsemi ann-
arra fjárfestingarbanka og fjárfest-
ingarbankahluta viðskiptabankanna.
Varðandi umræðu um yfirverð eigna
þá er það mín skoðun að hún á við um
fyrirtæki sem verið sé að leysa upp og
ætla að hætta rekstri,“ segir Þórður.
Friðrik Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Burðaráss, segist telja að félag-
ið hafi gefið stóru myndina af því
hvert það stefni. „Það þarf líka að
hafa í huga að það er svolítið snúið
fyrir fjárfestingarfyrirtæki að segja
nákvæmlega hverjar áherslurnar
eru, bæði vegna breytilegra markaðs-
aðstæðna og vegna eðlis starfseminn-
ar. Hvort eitthvað verður nánar gefið
út varðandi stefnu félagsins leiðir
tíminn í ljós,“ segir Friðrik.
Greiningardeild Íslandsbanka um
Straum, Kaldbak og Burðarás
„Óljós fjárfest-
ingarstefna“