Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 21
• SMÁTRAKTORAR
ásamt úrvali tengitækja
• SLÁTTUTRAKTORAR
• ÁSETUSLÁTTUVÉLAR
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 • AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070
Grindavík | Grindavíkurbær og
Grindavíkurhöfn færðu forseta Ís-
lands málverk að gjöf þegar for-
setahjónin heimsóttu hafnar-
skrifstofuna í opinberri heimsókn
til bæjarins síðastliðinn laugardag,
í tilefni þess að þrjátíu ár eru liðin
frá því Grindavík fékk kaupstaðar-
réttindi.
Málverkið sýnir sjóbúðir við
Gömlubryggju í Grindavík eins og
þar var umhorfs um 1934 og báta
eins og þá voru. Verkið málaði
Linda Oddsdóttir eigandi hand-
verkshússins Sjólistar í Grindavík.
Fram kom í máli Sverris Vil-
bergssonar hafnarstjóra við þetta
tækifæri að saga hafnargerðar í
Grindavík hefði hafist 1931 þegar
fyrsta bryggjan var byggð. Upphaf
hafnargerðar hefði síðan verið þeg-
ar grafið var inn í Hópið og sagði
Sverrir að enn væri unnið að hafn-
argerðinni. Nú eru 67 skip af ýms-
um stærðum og gerðum skráð með
heimahöfn í Grindavík.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, kvaðst ánægður með að fá
málverkið. Því yrði fundinn staður
á Bessastöðum enda hefði einmitt
vantað þar mynd frá þessum tíma í
sögu íslenskra sjávarplássa til að
sýna gestum.
Forseti Íslands kom við á hafnarskrifstofunum í Grindavík
Fært málverk af sjóbúðum
við Gömlubryggju
Morgunblaðið/Sverrir
Á hafnarskrifstofunni: Ólafur Ragnar Grímsson þakkar fyrir málverkið. Á bak við hann er listamaðurinn, Linda
Oddsdóttir, þá Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri, Ólafur Örn Ólafsson og Dorrit Moussaieff.
BOTNFISKAFLI báta frá Grinda-
vík og Sandgerði er heldur meiri á
vertíðinni í vetur, heldur en var í
fyrra. Einkanlega á þetta við um
línubátana. Bátarnir mega leggja að
nýju klukkan 10 á morgun, miðviku-
dag að loknu hrygningarstoppi.
Heildarafli á land í Sandgerðis-
höfn frá áramótum nemur nú rúmum
8.600 tonnum, þar af eru ríflega
1.300 tonn af ýsu komin á land og
rúm 4.500 tonn af þorski. Heildarafli
miðað við sama tíma í fyrra er ívið
betri, en þá var hann 6.660 tonn. Að
sögn Árna Sigurpálssonar, hafnar-
varðar í Sandgerðishöfn, hefur ver-
tíðin í vetur gengið ágætlega, eink-
um hjá línubátunum.
Um 40 smábátar gera út frá Sand-
gerði á línu og einn stór 200 tonna
línubátur, Kristinn Lárusson, sem
hefur fiskað vel í allan vetur að sögn
Árna. Þá hafa smábátarnir verið að
koma með allt að 8 tonn að landi eftir
hverja veiðiferð. Frá 1. apríl, eða
þegar þorskveiðibann vegna hrygn-
ingar hófst hefur hins vegar verið ró-
legt yfir veiðum, en þó kom heima-
togarinn Sóley Sigurjónsdóttir með
fullfermi að landi í gær.
Í Grindavík er þokkalegt hljóð í
sjómönnum að sögn Sverris Vil-
bergssonar hafnarstjóra, en rólegt
er yfir veiðum í þorskstoppinu. Þó
hafa stærri línubátar farið út fyrir
lokuðu svæðin og fiskað ágætlega.
Sverrir segir netavertíðina í vetur
hafa gengið afleitlega þangað til rétt
fyrir þorskstoppið, en línubátarnir
hafa hins vegar veitt vel í allan vetur.
Frá áramótum er búið að landa 46
þúsund tonnum af afla, þar af 8.100
tonnum af þorski. „Uppsjávaraflinn
er mun minni en í fyrra en botnfisk-
aflinn er ívið meiri og það virðist
vera dálítil aukning í þorski,“ segir
Sverrir, en ríflega 6.200 tonnum af
þorski var landað á sama tíma í
fyrra.
Uppsjávarafli jókst töluvert eftir
að innsiglingunni til Grindavíkur var
breytt árið 1999 og segir Sverrir að
menn hafi verið að sjá löndunartölur
upp í 157 þúsund yfir árið, þar af
uppundir 100 þúsund tonn af upp-
sjávarafla. „Það er ekki hægt að
segja annað en að þessi breyting hafi
skilað sér eins og til var ætlast. Bát-
unum fjölgaði reyndar ekki en frysti-
togarar sem áttu hér heimahöfn en
höfðu ekki landað hér, komu og hafa
verið afgreiddir hér síðan. Þá hafa
stóru uppsjávarskipin komið hingað
til hafnar.“
Góð vertíð
hjá línubátum
Höfnin tapaði 164 milljónum |
Liðlega 164 milljóna króna tap varð
af rekstri Reykjaneshafnar á árinu
2003. Kemur það fram í reikn-
ingum hafnarinnar sem staðfestir
hafa verið í atvinnu- og hafnarráði.
Samkvæmt reikningunum eru
rekstrartekjur tæplega 80 milljónir
og rekstrargjöld tæpar 77 millj-
ónir.
Til viðbótar rekstrargjöldum
koma til frádráttar afskriftir upp á
34 milljónir, önnur gjöld upp á 22
milljónir og fjármagnsgjöld upp á
92 milljónir. Tap ársins er því 164
milljónir.
Handteknir með fíkniefni |
Lögreglan í Keflavík handtók tvo
menn rétt fyrir klukkan eitt að-
faranótt sunnudags þar sem þeir
óku í bíl á Reykjanesbraut við
Grindavíkurveg. Reyndust þeir
hafa 42 ætlaðar e-pillur og sjö
grömm af ætluðu amfetamíni í fór-
um sínum.
Lögregla lagði hald á efnið og
handtók mennina. Þeir voru yfir-
heyrðir á sunnudag og látnir lausir
að yfirheyrslum loknum.
Reykjanesbær | Bæjarráð
Reykjanesbæjar hefur ákveðið að
ráða Brynju Árnadóttur kennara
sem skólastjóra Myllubakkaskóla í
Keflavík. Staðan var auglýst í vet-
ur og sóttu sjö um. Auk Brynju
voru það Björgvin Þór Þórhalls-
son, Björn Víkingur Skúlason,
Daði V. Ingimundarson, Leifur Ís-
aksson, Sigurður Þ. Ingimundar-
son og Sigurlín Sveinbjarnar-
dóttir. Ráðning Brynju var
ákveðin með þremur atkvæðum
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í
bæjarráði en tveir fulltrúar Sam-
fylkingarinnar vildu ráða Björn
Víking Skúlason.
Brynja hefur starfaði við Myllu-
bakkaskóla frá árinu 1963 og
gegnt stöðu skólastjóra ásamt Sig-
urði Ingimundarsyni liðinn vetur
eftir fráfall Vilhjálms Ketilssonar
skólastjóra.
Ráðin skólastjóri
Myllubakkaskóla
Reykjanesbær | Handverkssýning
verður haldin í Íþróttahúsinu við
Sunnubraut í Keflavík dagana 15.
og 16. maí næstkomandi, ef næg
þátttaka fæst. Er þetta þriðja
handverkssýningin sem Reykjanes-
bær stendur fyrir.
Ætlunin er að fá alla þá sem
vinna við listir og handverk á
Reykjanesi, íbúa í Reykjanesbæ,
einstaklinga og félagasamtök,
Vogabúa, Grindvíkinga, Sandgerð-
inga, Garðbúa og einnig nágranna
okkar á Keflavíkurflugvelli til að
sameinast um eina stóra sölusýn-
ingu áðurnefnda helgi, segir í frétt
á vef Reykjanesbæjar. Sýnendur
annars staðar af landinu eru vel-
komnir svo framarlega sem nægt
rými er, en heimamenn verða látnir
ganga fyrir. Framkvæmd sýning-
arinnar verður á svipaðan hátt og
áður og áhersla lögð á að gera þetta
á sem ódýrastan hátt til að greiða
fyrir aðkomu sem flestra.
Menningarfulltrúi Reykjanes-
bæjar óskar eftir að áhugafólk
skrái sig til þátttöku fyrir 23. apríl.
Sýning á handverki