Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 25

Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 25 STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2004-2005. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíðaráform, sendist fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í maí á hreint ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Benidorm, þessa vinsæla áfanga- staðar. Sumarið er komið á Spáni og hér getur þú notið lífsins við frá- bærar aðstæður og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Þú bókar ferðina og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Benidorm 19. maí frá kr. 29.995 Verð kr. 29.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting, skattar. Staðgreiðsluverð, vikuferð. 19. maí. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Almennt verð kr. 31.500. Verð kr. 39.950 M.v. 2 í íbúð/stúdíó, flug, gisting, skattar. 19. maí. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Almennt verð, kr. 41.950. Val um 1 eða 2 vikur. FJÓRIR hljóðfæraleikarar, sem saman kalla sig Tímahrak, héldu tónleika ásamt Lars Graugaard tón- skáldi í Listaháskólanum á miðviku- dagskvöldið. Segja má að nafn hóps- ins hafi verið réttnefni því hópurinn lenti í tímahraki á tónleikunum. Fyrsta verkið, sem var spuni byggð- ur á hugmyndum Graugaards, teygðist óhóflega og var ákveðið að spila ekkert meira eftir það. Þó hafði verið ætlunin að flytja einnig aðra tónsmíð eftir Graugaard sem nefnist Rainmen, auk þess sem Tímahrak hafði hugsað sér að leika eitthvað eftir þá sjálfa „ef tími gæfist til“. Verkið sem fékk að hljóma á tón- leikunum bar nafnið Nomad. Graugaard sat aftast á sviðinu vopn- aður ferðatölvu, en hinir sátu sitt- hvorum megin við hann. Það voru Pétur Grétarsson (slagverk), Sig- urður Halldórsson (selló), Matthías Hemstock (slagverk) og Hilmar Jensson (gítar). Tónlistin lofaði góðu í upphafi. Heyra mátti allskonar hljóð sem voru dularfull og forneskjuleg og var það töluvert heillandi. Þessi framandi stemning fikraði sig upp í kraftmikinn hápunkt þar sem þétt- ur, ákveðinn og seiðandi taktur var allsráðandi. Eftir það fór tónlistar- mönnunum að fatast flugið, hið sama tók við aftur og aftur í allt of langan tíma og var það æ meira þreytandi eftir því sem á leið. Vissulega mátti heyra áhugaverða kafla inn á milli, t.d. var angurvært gítarsóló yfir hröðum og ástríðuþrungnum leik hinna hljóðfæraleikaranna talsvert mergjað, en flest annað var óttalega klént. Það var eins og tónlistar- mennirnir festust í hverri hugmynd og spóluðu í sama farinu áður en næsti kafli byrjaði. Eins og gefur að skilja var heill klukkutími af slíku tónlistarlegu ofáti, ef svo má að orði komast, ekki beint skemmtilegur. Svona síbylja er því miður allt of algeng á raftónleikum, tónskáldin detta niður á eitthvað sniðugt en vita ekki hvernig þau eiga að vinna úr því; í staðinn er það sama spilað í sífellu þar til mann langar mest til að standa upp og skipa flytjendun- um að hætta þessum hávaða. Breskur blástur Í tónleikaskrá Lúðrasveitar verkalýðsins, sem kom fram í Sel- tjarnarneskirkju á laugardaginn, mátti lesa eftirfarandi: „Líkt og undanfarin ár eru vortónleikar sveitarinnar helgaðir tilteknu landi. Í þetta skipti varð Bretland fyrir valinu, enda um auðugan garð að gresja í þeirri miklu tónlistarhefð sem þar er. Má segja að vandamálið hafi ekki verið það að finna verk við hæfi, heldur frekar reyna að tak- marka hvaða verk skildi flytja.“ Í ljósi þessa er undarlegt að Lúðrasveitin hafi valið útsetningu eftir Percy Grainger, sem var Ástr- ali (þó hann hafi átt breska forfeður) og lagið hið írska „O, Danny Boy“. Hins vegar var kærkomin tilbreyt- ing að heyra eitthvað annað en Plán- eturnar eftir Gustav Holst, en sveit- in flutti Es-dúr og F-dúr svíturnar eftir hann, auk þess sem hún sótti í smiðju Bítlanna og lék jafnframt hinn ódauðlega Colonel Bogey eftir Alford og Pomp and Circumstance eftir Elgar. Var efnisskráin því í rauninni ekki illa samansett; hún var a.m.k. fjölbreytt, ólíkt tónleikunum sem fjallað var um hér fyrir ofan. Leikur lúðrasveitarinnar er svo önnur saga; þar var ekki allt sem skyldi þó bendingar stjórnandans Tryggva M. Baldvinssonar hafi ver- ið nákvæmar og skýrar. Heildar- hljómurinn var oft loðinn og óhreinn og sumt, eins og Imagine eftir John Lennon, var beinlínis vandræðalegt. Ýmsir blásarar misstu líka stjórn á sér í síðasta kafla fyrri svítu Holst; þeir þrumuðu svo ógurlega að heild- arsvipurinn bjagaðist og var útkom- an eins og verið væri að þenja risa- stóran lírukassa til hins ýtrasta. Colonel Bogey var hins vegar al- veg þokkalega spilaður og ýmislegt í svítunum var ágætlega gert. Pomp and Circumstance eftir Elgar var hæfilega tignarlegt og aukalagið, Ob-la-di, ob-la-da, var best. Hvað annað varðar á tónleikunum þá skipti tæknilega hliðin ekki öllu máli; rétta stemningin var alltént til staðar, leikur lúðrasveitarinnar var a.m.k. líflegur og kraftmikill þó hann væri ekki fullkominn. Enda virtust hljóðfæraleikararnir skemmta sér ágætlega og ég gat ekki betur séð en að sumir áheyr- endur gerðu það líka. Tónlistarmenn í tímahraki Jónas Sen TÓNLIST Listaháskólinn, Hrái salur RAFTÓNLEIKAR Lars Graugaard og Tímahrak (Pétur Grét- arsson, Hilmar Jensson, Matthías Hem- stock og Sigurður Halldórsson). Miðviku- dagur 14. apríl. Seltjarnarneskirkja LÚÐRASVEITARTÓNLEIKAR Lúðrasveit verkalýðsins undir stjórn Tryggva M. Baldvinssonar. Tónlist eftir Alford, Grainger, Holst, Bítlana og Elgar. Laugardagur 17. apríl. María Jónsdóttir söngkona hlaut nýverið styrkfrá The Associated Board of the RoyalSchools of Music í London til framhalds-náms við einhvern af konunglegu tónlist- arháskólunum í Bretlandi. Styrkinn hlaut María í fram- haldi af 8. stigs prófi með hæstu einkunn frá Söngskólanum í Reykjavík. Áður hafa íslensku söngv- ararnir Hulda Björk Garðarsdóttir og Loftur Erlingsson hlotið styrkinn, en þau luku einnig framúrskarandi loka- prófi frá Söngskólanum. Það var prófdómari The Associated Board of the Royal Schools of Music, ABRSM, Timothy Barratt, sem dæmdi próf nemenda Söngskólans síðastliðið vor og mælti hann með styrkveitingunni eftir að hafa hlustað á söng Maríu og metið heildarárangur hennar á lokapróf- inu. Hún hlaut framúrskarandi einkunn, var hæst þeirra nemenda er luku prófi og hlaut verðlaunagrip Söngskól- ans í framhaldi af því. „Mér bauðst að sækja um þennan styrk í kjölfarið á prófinu. Skilyrðið var að maður kæmist inn í einhvern þeirra fjögurra skóla sem ABRSM eru með,“ segir María, en þeir skólar eru Royal Academy of Music og Royal College of Music í London, Royal Northern Coll- ege of Music í Manchester og Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. „Ég komst inn í skólann í Glasgow og gat þá sótt um styrkinn – og fékk hann.“ Eignaðist barn á sama tíma María segist halda að tveir slíkir styrkir séu veittir á ári, en í styrknum felst niðurfelling skólagjalda auk 3.000 punda uppihaldsstyrks í eitt ár, með möguleika á um- sókn um framhald í annað ár. „Þetta kemur sér auðvitað rosalega vel, eins og að vinna í lottói, því ég hefði auðvit- að farið hvort sem er,“ segir María, sem stefnir á að taka fjölskylduna með. „Okkur leist mjög vel á aðstæður þeg- ar ég tók inntökuprófið, og mér leið eins og ég væri mjög velkomin.“ Námið sem María ætlar í heitir post- graduate diploma og er fornám að öðrum deildum skól- ans, þar sem kennt er meðal annars tungumál, leiklist og sviðsetning auk söngsins. „Ég stefni á að vera í alls fjög- ur ár úti, og taka tvö ár í post-graduate námið, vegna þess að mér býðst að sækja um styrkinn aftur að ári ef ég held áfram í sama námi. Hins vegar reyni ég eflaust að komast inn í óperudeildina við skólann meðan ég verð í náminu.“ Hið vellukkaða 8. stigs próf tók María í lok meðgöngu dóttur sinnar, sem fæddist í maí. „Ég átti að vera í prófi á fimmtudegi, en fór þá upp á spítala því ég var komin með einhverja verki. En ég var ekki byrjuð, svo ég dreif mig í prófið á laugardeginum, og átti svo stelpuna á mánudegi. Þannig að þetta var mjög tæpt, og mér var í raun alveg sama hvernig mér gengi í prófinu – ég vildi bara klára það. En kæruleysið hefur gefið mér einhvern aukakraft,“ segir María um velgengni sína. María Jónsdóttir er uppalin í Kópavogi og lauk stúd- entsprófi frá MK 1997. Hún hóf nám við Söngskólann haustið 1998 og hefur þar numið undir leiðsögn Val- gerðar Jónu Gunnarsdóttur, en jafnframt sótt námskeið hjá Martin Isepp, Mariu Therese, Kurt Widmer og Rob- in Stapleton. Hún er félagi í Óperukórnum í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes, hefur starfað með Nem- endaóperu Söngskólans og komið fram sem einsöngvari við ýmis tækifæri, nú síðast með Elínu Guðmundsdóttur píanóleikara, en þær héldu einsöngstónleika sem var samvinnuverkefni Söngskólans og Vetrarhátíðar í Reykjavík. María lýkur burtfararprófi í söng, ABRSMdip., frá Söngskólanum í Reykjavík nú í vor og heldur einsöngs- tónleika því tengda í maí. Hlýtur styrk frá konunglegu tónlistarháskólunum Kæruleysið gaf mér aukakraft María Jónsdóttir ásamt dóttur sinni sem fæddist um sama leyti og hún þreytti prófið í Söngskólanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.