Morgunblaðið - 20.04.2004, Qupperneq 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í tilefni Viku bókarinnar efna Morgunblaðið og Vaka-Helgafell
til getraunaleiks. Frá þriðjudeginum 20. apríl til og með
mánudeginum 26. apríl birtist ein tilvitnun á dag úr verkum
Halldórs Laxness og spurt er úr hvaða verki viðkomandi til-
vitnun er.
Þátttakendur senda inn svörin sín í lok getraunarinnar.
Frestur til að senda inn lausnir er til 30. apríl.
Dregið verður úr öllum innsendum lausnum og munu 10
þátttakendur, sem svara öllu rétt, hljóta í verðlaun bókina
Perlur í skáldskap Laxness.
Þú getur kynnt þér Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Lax-
ness og verk hans á mbl.is undir Fólkinu. Þar er að finna
umfjöllun um skáldið, verk hans, umsagnir og margt fleira.
Sendu svörin til okkar. Utanáskriftin er:
Morgunblaðið
Getraunaleikur
- Halldór Laxness -
Kringlan 1,
103 Reykjavík
„Yfirleitt orkaði nútímaskáldskapur á okkur
einsog væri verið að klóra striga.“
GETRAUNALEIKUR
- Halldór Laxness
1. tilvitnun:
VIKA bókarinnar hefst í dag og stendur til mánudagsins
26. apríl. Yfirskrift vikunnar er að þessu sinni Íslenska
skáldsagan en áfram er þemanu Börn og bækur veitt
sérstök eftirtekt. Þetta er sjötta árið í röð sem Félag ís-
lenskra bókaútgefenda hefur frumkvæði að skipulagn-
ingu Viku bókarinnar en aðildarfélög Bókasambandsins
hafa sameinast um Dag bókarinnar frá árinu 1996.
Þungamiðja dagskrárinnar verður á Alþjóðadegi bók-
arinnar og höfundarréttar, föstudaginn 23. apríl, sem
einnig er fæðingardagur Halldórs Kiljans Laxness.
Linda Vilhjálmsdóttir rithöfundur semur ávarp Dags
bókarinnar og verður það flutt 23. apríl. Einnig verður
efnt til Bókaþings í Iðnó á Degi bókarinnar.
Dagskrá á Viku bókarinnar fer víða fram, m.a. í bóka-
söfnum, bókabúðum, skólum, kaffihúsum. Félag ís-
lenskra bókaútgefenda gefur út bókina Tuttugasta og
þriðja apríl sem er smásagnasafn eftir ellefu rithöfunda
og verður bókin gefin í bókabúðum til 26. apríl.
Félag starfsfólks bókaverslana veitir verðlaunin Lóð á
vogarskál íslenskra bókmennta 2003. Þetta er í fjórða
sinn sem verðlaunin eru afhent. Allir pottverjar á sund-
stöðum borgarinnar geta lesið ljóð Þórarins Eldjárn úr
Óðhalaringlu í boði Eddu – útgáfu.
Í Bókabúðum Máls og menningar og Pennanum-
Eymundsson verður glæpasögumarkaður með íslensk-
um og erlendum glæpasögum. Myndskreytingar úr bók-
um Sigrúnar Eldjárn verða sýndar á Laugavegi, í Aust-
urstræti, Kringlunni og Smáralind. Einnig verða tilboð á
íslenskum skáldsögum, glæpasögum og bókum Sigrúnar
Eldjárn. Íslenskar skáldsögur verða í brennidepli í öllum
söfnum Borgarbókasafns og verða mismunandi áherslur
milli safna. Einnig verður boðið upp á ráðgjöf um val á
lesefni fyrir börn í öllum söfnunum út vikuna.
Dagskráin í dag
Aðalsafn, Tryggvagötu 15 Hvað les ungt fólk? Ung-
lingar velja uppáhaldsbækurnar sínar. Gestum á öllum
aldri verður einnig boðið að stilla út sínum uppáhalds-
sögum frá bernsku- og unglingsárunum.
Ársafn, Hraunbæ 119 Vakin er athygli á fjölhæfum
kvenrithöfundum.
Borgarbókasafn, Gerðubergi Íslenskum rithöfundum
og verðlaunabókum þeirra verður sérstakur sómi sýndur
þessa vikuna.
Foldasafn í Grafarvogskirkju Skáldsögur höfunda
sem fæddir eru fyrir lýðveldisstofnun. Útstillingar á
bókum ásamt kynningum á völdum höfundum. Boðið er
upp á „blint“ útlán á skáldsögum höfunda þessarar kyn-
slóðar.
Sólheimasafn, Sólheimum 27 Sjónum beint að ís-
lenskum skáldsögum sem hafa verið kvikmyndaðar.
Einnig gefst gestum kostur á að velja þá íslensku skáld-
sögu sem þeir vildu helst sjá kvikmyndaða.
Menningarmiðstöðin Gerðubergi Skyggnst inn í
glæpaveröld Arnaldar Indriðasonar á sýningu í sam-
starfi við Lögregluna í Reykjavík. Sýning um bækur
Arnaldar sem og yfirlit yfir ævi hans og störf. Lögreglan
verður með leiðsögn um sýninguna og geta hópar skráð
sig með dags fyrirvara í Gerðubergi í síma 5757700 eða á
gerduberg@gerduberg.is.
Jón forseti kl. 20 Í tilefni af viku bókarinnar efnir
Skáldaspíran til smásagnaveislu á Jóni forseta, Að-
alstræti. Höfundar smásagnasafnsins Tuttugasta og
þriðja apríl lesa úr verkum sínum.
Sólon kl. 20 Bókaútgáfan Salka stendur fyrir útgáfu-
gleði í tilefni af útkomu bókarinnar Ótuktarinnar eftir
Önnu Pálínu Árnadóttur. Anna Pálína les úr bókinni og
spallar við áheyrendur.
Vika bókarinnar
Morgunblaðið/Þorkell
REUMERT-verðlaunin, mikilvæg-
ustu sviðslistaverðlaun Dana, voru
afhent í fyrrakvöld en íslenski leik-
arinn Kristján Ingimarsson var til-
nefndur í tveimur flokkum. Kristján
hlaut ekki verðlaunin að þessu sinni.
Leikskáldið Astrid Saalbach hlaut
verðlaunin fyrir besta leikritið fyrir
Verdens ende, en hún hlýtur einnig
Leikskáldaverðlaun Norðurlanda
2004 fyrir það leikrit. Danska leik-
konan Charlotte Böving var tilnefnd
fyrir túlkun sína á hlutverki í Ver-
dens ende en hlaut ekki verðlaunin.
Kristján var tilnefndur sem besti
karlleikari í aukahlutverki fyrir túlk-
un sína á Kalíban í Ofviðrinu eftir
Shakespeare og sýningin Kunsten at
dø (Listin að deyja) var tilnefnd sem
athyglisverðasta leiksýning ársins,
en Kristján samdi, leikstýrði og lék í
henni ásamt Paolo Nani. Verkið Zir-
kus Nemo – nu med neon, eftir Sør-
en Østergaard, fékk verðlaunin.
Kristján
vann
ekki til
verðlauna
Í SALNUM í kvöld kl. 20 verða tón-
leikar í tónleikaröð Tónlistarskóla
Kópavogs. Þetta eru fimmtu og síð-
ustu tónleikarnir í tónleikaröðinni
starfsárið 2003–2004 og er þetta
fjórða árið sem kennarar skólans
halda tónleika í Salnum í samvinnu
við Kópavogsbæ. Er þess að vænta
að framhald verði á starfseminni
sem hefur mælst vel fyrir og orðið
kennurum hvatning til dáða. Tón-
leikar þessir hafa verið fernir til
fimm ár hvert og á þessum vett-
vangi hefur nemendum og aðstand-
endum þeirra gefist kostur á að
hlusta á kennara skólans og kynn-
ast þeim betur sem listamönnum,
en tónleikarnir eru annars opnir
öllum.
Í kvöld koma fram Berglind
María Tómasdóttir flautuleikari og
Arne Jørgen Fæø píanóleikari. Á
tónleikunum verða flutt tvö af vin-
sælustu verkum flautubók-
menntanna, Sónata í D-dúr op. 94
eftir Prokofiev og Fantaisie eftir
Gabriel. Einnig verða flutt tvö verk
eftir tónskáld úr framvarðarsveit
íslenskra tónskálda og sjö verk eft-
ir nemendur í Tónveri Tónlistar-
skóla Kópavogs: Þrjár andrár eftir
Atla Ingólfsson, Sononymus fyrir
flautu og tölvu eftir Hilmar Þórð-
arson og verk eftir Alex Macneil,
Bjargeyju Ólafsdóttur, Hrein Elías-
son, Pál Ragnar Pálsson, Áslaugu
Einarsdóttur, Tinnu Bjarnadóttur
og Hauk Davíð Magnússon sem öll
eru nemendur í Tónveri Tónlistar-
skóla Kópavogs.
Morgunblaðið/Ásdís
Þau leika í kvöld: Berglind María Tómasdóttir og Arne Jørgen Fæø.
Úr tónleikaröð kennara
Á tónleikum í
Hjallakirkju í
Kópavogi í
kvöld kl. 20.30
flytur kór kirkj-
unnar Hátíðar-
messu í A dúr
op. 12 eftir Cés-
ar Franck. Ein-
söngvarar eru
Kristín R. Sig-
urðardóttir
sópran, Gréta Jónsdóttir mezzo-
sópran, Snorri Wium tenór og
Gunnar Jónsson bassi. Lenka
Mátéová leikur á orgelið, Elísabet
Waage á hörpu og Bryndís Halla
Gylfadóttir á selló. Stjórnadi er
organisti kirkjunnar Jón Ólafur
Sigurðsson.
Franck samdi elsta hluta mess-
unnar árið 1860 ári eftir að hann
var ráðinn organisti og kórstjóri
við hina þá tveggja ára gömlu St.
Clotilde kirkju í París. Messan
var frumflutt í kirkjunni 2. apríl
1861 undir stjórn höfundar og þá
fyrir sópran, tenór og bassa
ásamt stórri hljómsveit. Höfund-
urinn umritaði
síðan og endur-
skoðaði mess-
una mörgum
sinnum. Kyrie,
Gloria og Sanc-
tus eru elstu
hlutarnir. Árið
1872 frumflutti
hann messuna i
umritun þar
sem orgel,
harpa og selló og kontrabassi
komu í stað hljómsveitarinnar. Í
þessari gerð birtist í fyrsta sinn
hin alþekkta og rómaða altaris-
göngumótetta Panis angelicus
sem upphaflega var orgelspuni
við altarisgönguna í St Clotilde á
jólanótt 1861.
Á tónleikunum í Hjallakirkju
verður flutt síðari breyting á
verkinu þar sem búið er að bæta
altrödd í kórinn. Altröddin er að
hluta unnin úr tvískiptum tenór
og sópran í upphaflegu gerðinni
svo og úr hljóm orgelsins. Ekki er
vitað til þess að messan hafi áður
verið flutt í heild sinni hér á landi.
Hátíðarmessa
Césars Franck
í Hjallakirkju
Kristín R.
Sigurðardóttir
Snorri
Wium
23. apríl nefnist
bók sem gefin er
út í tilefni af Degi
bókarinnar. Í bók-
inni eru birtar 11
nýjar sögur eftir
jafnmarga ís-
lenska höfunda.
Það sem sögurnar
eiga sammerkt er
dagsetningin 23. apríl, auk þess sem
höfundum var úthlutað ártali með það
fyrir augum að bókin spannaði heila
öld. Þannig hefst fyrsta sagan 1904
og sú síðasta tekur mið af 2004. Les-
endum er látið eftir að greina fleiri
þræði. Höfundar sagnanna eru: Krist-
ín Helga Gunnarsdóttir, Rúnar Helgi
Vignisson, Gerður Kristný, Stefán
Máni, Auður Jónsdóttir, Ágúst Borg-
þór Sverrisson, Hlín Agnarsdóttir, Ein-
ar Örn Gunnarsson, Kristín Marja
Baldursdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir
og Bjarni Bjarnason.
Útgefandi er Félag íslenskra bóka-
útgefenda.
Smásögur
♦♦♦
VÍNARKVÖLD í hádeginu er yf-
irskrift síðustu hádegistónleika Óp-
erunnar á vormisseri, sem haldnir
verða í dag kl. 12.15. Á tónleik-
unum flytja söngvararnir Hulda
Björk Garðarsdóttir sópran, Snorri
Wium tenór, Ólafur Kjartan Sig-
urðarson baríton og Davíð Ólafsson
bassi tónlist úr óperettum, m.a.
Leðurblökunni, Sardasfurstynjunni
og Kátu ekkjunni. Kurt Kopecky
leikur á píanó.
Hádegistónleikarnir standa í um
40 mínútur.
Morgunblaðið/Ásdís
Kurt Kopecky, Hulda Björk Garðarsdóttir og Snorri Wium.
Vínarkvöld í hádeginu