Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 37
✝ Ingólfur Guð-mundsson fædd-
ist í Reykjavík 30.
september 1916.
Hann lést á heimili
sínu 10. apríl síðast-
liðinn. Hann var son-
ur hjónanna Helgu
Guðmundsdóttur, f.
1885, og Guðmundar
Einarssonar, f. 1883.
Systkini Ingólfs voru
fjögur, tvö þeirra,
Ragnheiður og Guð-
mundur létust í
bernsku, en hin voru
Einar Axel, f. 1910, d. 1930, og Sig-
urður, f. 1914, d. 1988.
Hinn 2. mars 1946 gekk Ingólfur
að eiga eftirlifandi eiginkonu sína,
Ástu Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, f.
9. ágúst 1926. Börn þeirra eru: 1)
Guðmundur Örn, f. 28. apríl 1946,
maki Halla Hauksdóttir. Þeirra
börn eru: Ásta Sóllilja, maki Kjart-
an Örn Ólafsson, Ingólfur og Gyða
Kristján Valsson. Þeirra dætur eru
Júlía, Halla og Ellen.
Ingólfur hóf að læra bifvélavirkj-
un hjá fyrirtækinu Jóhanni Ólafs-
syni og Co aðeins 14 ára að aldri og
starfaði þar til ársins 1938 er hann
fór til Þýskalands þar sem hann
dvaldist á eyjunni Süderok hjá upp-
alandanum Paulsen er rak ung-
lingaheimili. Hjá honum dvöldu
ýmsir Íslendingar við þýskunám
jafnframt því að aðstoða við heim-
ilisreksturinn. 1939 starfaði Ingólf-
ur við bílaviðgerðir í Hamborg.
Heimkominn í stríðsbyrjun stund-
aði hann í nokkra mánuði nám við
Verslunarskólann, en þá bauð Örn
Johnson honum starf við Flugfélag
Íslands er þá var að flytja frá Ak-
ureyri. Árið 1943 fer Ingólfur til
Bandaríkjanna studdur af Flug-
félagi Íslands og Ólafi Johnson
stórkaupmanni til flugvirkjanáms í
Pensilvania. Alla tíð síðan vann
hann fyrir Flugfélag Íslands, síðan
Flugleiðir sem flugvirki og flugvél-
stjóri á DC4, DC6 og Katalina flug-
bátum og síðan sem starfsmaður
innkaupadeildar.
Útför Ingólfs verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Valdís, sambýlismaður
hennar Kjartan Ásgeir
Maack. Barnabörn
Guðmundar eru: Val-
týr Örn og Elín Halla
Kjartansbörn. 2) Þor-
steinn, f. 19. febrúar
1950, maki Pálína
Erna Ólafsdóttir. Þau
skildu. Þeirra börn
eru: Halla Dröfn, Ásta
Ingibjörg, maki Ró-
bert Grímur Grímsson
og Sigurður Óli.
Barnabörn Þorsteins
eru: Erna Hörn Dav-
íðsdóttir og Grímur Þór Róberts-
son. Þorsteinn á einnig börnin Erlu
Björk og Einar Björn, móðir þeirra
er Guðný Bogadóttir. 3) Einar Axel,
f. 26. apríl 1951, d. 29. september
1972. 4) Haraldur Már, f. 8. maí
1953, maki Sofia Björg Pétursdótt-
ir. Þeirra dætur eru: Þóra Kristín
og Helga Margrét. 5) Ástríður
Helga, f. 16. febrúar 1962, maki
Ingó tengdafaðir okkar lést laug-
ardaginn 10. apríl síðastliðinn heima í
faðmi stórfjölskyldunnar eins og
hann hafði svo innilega óskað sér.
Ekki var það síst fyrir góða hjálp
hjúkrunarþjónustunnar Karítasar.
Engum sem lifði þá stund mun líða
hún nokkurn tíma úr minni. Við hljót-
um að vera þakklát fyrir hversu stutt-
an tíma hann þurfti að líða, en vissu-
lega mun þessa hlýja, spaugsama
manns verða sárt saknað. Hvenær
sem við komum í heimsókn fagnaði
hann okkur og gerði að gamni sínu.
Hann gantaðist og stríddi barnabörn-
unum en þeim þótti, eins og okkur
hinum, innilega vænt um hann. Ingó
fór víða í tengslum við starf sitt,
kynntist mörgu fólki og upplifði
margt. Fram til síðustu stundar sagði
hann okkur sögur af fólki og viðburð-
um á sinn skemmtilega hátt. Eins og
hans var von og vísa skemmti hann
hjúkrunarfólkinu í Fossvogi með
grínsögum meðan hann lá þar.
Ekki er hægt að minnast á Ingó án
þess að Ástu sé getið í leiðinni, það
var svo fallegt að sjá hvað þau gátu á
stundum verið eins og ástfangnir
unglingar. Eitt það síðasta sem hann
sagði við hana í þessu lífi var: „Þú átt
mig allan, lifandi og dauðan“ og lýsir
það vel þeirra innilega sambandi.
Við viljum með þessum fáu orðum
þakka fyrir allt sem Ingó gaf okkur,
hann sem var svo stór hluti af tilveru
okkar. Hlýjar og góðar minningar
verða okkur öllum styrkur.
Tengdadæturnar
Halla og Sofia.
Í dag kveðjum við hann Ingó afa
okkar. Margs er að minnast og margt
ber að þakka fyrir. Hann afi var í einu
orði sagt gullmoli. Við gætum auð-
veldlega skrifað langa lofræðu um
hann en það vildi hann alls ekki og því
ætlum við aðeins að minnast á nokkra
af hans einstöku eiginleikum.
Það fyrsta sem kemur upp í hug-
ann þegar hugsað er um afa eru allar
skemmtilegu sögurnar sem hann
sagði okkur í gegnum árin. Hann
hafði nefnilega ferðast mikið og
kynnst mörgu fólki. Sumar sögurnar
hafði maður heyrt oft og kom hann þá
stundum með þær í nýjum og nýjum
búningi eins og góðum sögumanni
sæmir.
Afi var líka alveg einstaklega stríð-
inn og sérlega slunginn í að uppnefna
fólk eða réttnefna eins og hann kallaði
það. Nú það var hann Þráinn (Grím-
ur) af því að hann þráaðist við að
koma í heiminn, svo voru það hjúkr-
unarfræðingarnir Droplaug (sú sem
gaf honum augndropa) og Pillu-
mamma (sem kom með pillurnar) og
að lokum hann Lilli (sem var aðeins
203 cm á hæð).
Gaman þótti afa að grípa í spil en
þá varð nú alltaf að leggja eitthvað
undir svo að heilu húsin, bílarnir og
jafnvel sumarbústaðurinn gengu
manna á milli.
Afi bar velferð fjölskyldunnar alltaf
fyrir brjósti. Hann var duglegur að
hrósa manni ef vel gekk en líka dug-
legur að benda manni á það sem betur
mætti fara. Langar okkur aðeins að
minnast á samband afa og móður okk-
ar en eins og afi orðaði það sjálfur þá
var það ást við fyrstu sýn. Afi bar
mikið traust til mömmu bæði faglega
og hvað snerti fjölskylduna. Mamma
reyndist honum líka vel og viljum við
nota tækifærið og þakka henni hér
með fyrir það.
Það fór ekki framhjá neinum hvað
afi var skotinn í henni ömmu okkar
sem staðið hefur honum við hlið í
gegnum súrt og sætt, en þau voru gift
í hvorki meira né minna en 57 ár og
geri aðrir betur. Sambandi þeirra
verður einna best lýst með einum af
síðustu orðum afa til ömmu: „Þú átt
mig allan, bæði lifandi og dauðan.“
Hinsta ósk afa var að fá að deyja
heima og fékk hann þá ósk uppfyllta í
faðmi fjölskyldunnar. Þetta var ynd-
isleg stund en samt svo sárt að sjá á
eftir honum afa Ingó sem verið hefur
svo stór hluti af lífi okkar. En minn-
ingin um góðan mann lifir.
Þín mildhlý minning lifir,
svo margt að þakka ber.
Þá bjart og blítt var yfir,
er brosið kom frá þér.
Þú sólargeisla sendir
og samúð, vinarþel.
Með hlýrri vinar hendi
mér hjálpaðir svo vel.
Afastelpurnar,
Þóra Kristín og Helga Margrét.
Hann afi Ingó er látinn eftir snarpa
baráttu við krabbamein. Við sitjum
hinum megin við hafið og minning-
arnar um afa fylla hugann. Minningar
um pípu og gulan bronco, zippo-
kveikjara, grænan tópas, bíltúra með
afa niðrá höfn, upp í „hús“ og út á
Reykjavíkurflugvöll og ferðir upp í
sumarbústað þar sem baksað var með
bát og veiðistöng. Það var alltaf jafn
gaman að heimsækja ömmu og afa á
Fornhagann og seinna í Mánatúnið,
þiggja kaffi og kræsingar hjá ömmu
og spjalla við afa um heima og geima.
Afi átti óteljandi sögur í farteskinu
sem hann þreyttist aldrei á að segja
og við aldrei að hlusta; ævintýri og
háskafarir úr fluginu og óteljandi sög-
ur af öllum hrekkjunum og stríðninni
sem hann var frægur fyrir og við
barnabörnin fórum ekki varhluta af.
Þrátt fyrir að afi væri stríðinn var
hann einstaklega hlýr og umhyggju-
samur og hafði mikinn áhuga á því
sem við tókum okkur fyrir hendur. Í
símtali nokkrum dögum áður en hann
dó eyddi hann allri umræðu um eigin
líðan en vildi fullvissa sig um að við
hefðum það gott.
Það er sárt að geta ekki hitt afa, þó
ekki nema einu sinni enn, til að kveðja
en við huggum okkur við að dauða-
stríðið var ekki langt og þegar kallið
kom var hann þar sem hann vildi helst
vera, heima, í faðmi fjölskyldunnar.
Það eru forréttindi að hafa átt afa
Ingó. Við munum sakna hans.
Ásta S. Guðmundsdóttir, Boston,
Ingólfur Guðmundsson, Berlín.
INGÓLFUR
GUÐMUNDSSON
Fleiri minningargreinar um Ing-
ólf Guðmundsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Minningarkort
Krabbameinsfélagsins
540 1990
krabb.is/minning
Helluhrauni 10, 220 Hfj.
Sími 565 2566
Englasteinar
Einstakir legsteinar
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞÓRIR B. EYJÓLFSSON,
Starengi 100,
Reykjavík,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans fimmtu-
daginn 8. apríl sl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðviku-
daginn 21. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið eða Grafar-
vogskirkju.
Helga Pálsdóttir,
Erna Þórisdóttir, Magnús Eiríkur Eyjólfsson,
Guðrún Kristín Þórisdóttir, Aðalsteinn Heimir Jóhannsson,
Helga Kristín Magnúsdóttir,
Dóra Jóna og Þórný Edda Aðalsteinsdætur.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
BJARNI ÁSGEIRSSON
Skálaheiði 9,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju föstudaginn 23. apríl kl. 13.30.
Ásgeir Rafn Bjarnason, Anna Steinsdóttir,
Haraldur Jón Ásgeirsson, Þóra Ösp Magnúsdóttir,
Ásgeir Ásgeirsson, Margrét Árnadóttir,
Ingþór Ásgeirsson, Ingibjörg Hauksdóttir,
Steinn Árni Ásgeirsson, Kristín Svansdóttir,
Anna Sigríður Ásgeirsdóttir, Bjarni Björnsson
og systkinabörn.
Kær vinkona okkar,
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Kaplaskjólsvegi 29,
sem lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
11. apríl, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 21. apríl kl. 15.00.
Ólafur Stefánsson, Soffía Sigurjónsdóttir,
Bragi Ólafsson,
Helga Ólafsdóttir,
Sigurjón Ólafsson,
Guðríður Tómasdóttir,
Stefán Jóhann Björnsson,
Þórir Björnsson,
Gunnar Björnsson.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ÓLAFS HALLDÓRSSONAR,
Breiðvangi 63,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á lyfjadeild St.
Jósefsspítala og Hrafnistu í Hafnarfirði.
Björg Ólafsdóttir, Sigurður Arnþórsson,
Halldór M. Ólafsson, Eygló Hjaltadóttir,
Guðbjörg Ólafsdóttir, Hjálmar Hjálmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sálumessa verður sungin föður okkar,
HARALDI BLÖNDAL
hæstaréttarlögmanni,
í Landakoti, Kristskirkju, föstudaginn 23. apríl
kl. 10.30.
Þórarinn Blöndal,
Margrét H. Blöndal,
Steinunn H. Blöndal,
Sveinn H. Blöndal.