Morgunblaðið - 20.04.2004, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 47
Opna-Ölgerðar
Grolsch
Fimmtudaginn 22.apríl
Sumardaginn fyrsta - Spilað á sumarflötum.
VERÐLAUN
Sæti 1.-5. m/forgj.
Sæti 1. án forgj.
Nándarverðl. á 3. og 16. braut.
Punktamót Hámarksforgjöf
karlar 24, konur 28.
Ræst út frá kl. 9:00-14:00
Skráning á golf.is og í síma 421 4100
Keppnisgjald kr. 2.500
ÞRÍR íslenskir ólympíufarar sátu fyrir helgi
námskeið til að takast á við andlegt álag
sem því fylgir að taka þátt í ólympíuleikum.
Þetta voru þau Þórey Edda Elísdóttir
stangarstökkvari, Örn Arnarson sundkappi
og Guðmundur Guðmundsson, þjálfari
handknattleikslandsliðsins.
Námskeiðið var haldið í Osló á vegum
Visa Europe, sem er einn aðalstyrktaraðili
ólympíuleikanna í Aþenu í sumar. Íþrótta-
fólk frá fimm löndum sat námskeiðið, frá
Finnlandi, Noregi, Tyrklandi og Svíþjóð
auk Íslendinganna þriggja. Meðal þeirra
sem ræddu málin við íþróttafólkið voru
portúgalska hlaupadrottningin Rosa Mota,
sem hefur bæði unnið til gullverðlauna og
bronsverðlauna á ólympíuleikum, og breski
ræðarinn Steve Redgrave sem hefur fimm
sinnum unnið til gullverðlauna á ólympíu-
leikum.
Tekist á við
andlegt álag
KYLFINGURINN Stewart Cink setti
met á PGA-mótaröð atvinnumanna í
Bandaríkjunum aðfaranótt mánudags
er hann sigraði á Heritage Classic-
mótinu. Cink lék á sjö höggum undir
pari á fjórða og síðasta keppnisdeg-
inum og vann þar með upp níu högg
sem Ted Purdy hafði forskot á Cink
þegar keppni hófst á sunnudag. Purdy
lék hins vegar á 73 höggum á loka-
deginum og voru þeir báðir 10 högg-
um undir pari þegar keppni lauk og
sigraði Cink á fimmtu holu í bráða-
bana, með því að setja niður pútt fyrir
fugli.
Mesta sveifla á lokadegi atvinnu-
mannamóts átti sér stað árið 1999 er
Skotinn Paul Lawrie sigraði á Opna
breska meistaramótinu en hann var 10
höggum á eftir Frakkanum Jean Van
de Velde er síðasti keppnisdagurinn
hófst. Lawrie hafði síðan betur í
bráðabana gegn de Velde.
Fyrir sigurinn fékk Cink rúmar 62
millj. kr. en þetta er í þriðja sinn á
ferlinum sem hann vinnur PGA-mót
en hann hefur ekki unnið mót í rúm
fjögur ár, en hann er sem stendur í
hópi tíu efstu á peningalista PGA á
yfirstandandi keppnistímabili, með
rúmlega 110 milj. kr. í verðlaunafé
það sem af er.
„Þessi sigur skiptir gríðarlega
miklu máli fyrir mig sem kylfing. Ég
hef lagt hart að mér við æfingar eftir
mikla lægð undanfarin ár, þar sem ég
hef gengið í gegnum mikla erfiðleika.
Um stund var ég á botninum en núna
er ég á flugi á ný,“ sagði Cink eftir
sigurinn í Suður-Karólínu.
Cink með ótrúlega endur-
komu í Suður-Karólínu
Reuters
Stewart Cink fagnar sigrinum óvænta.
ENRIQUE Sobrino, sem sækist eft-
ir forsetastólnum hjá spænska
knattspyrnustórveldinu Real Madr-
id, segist ætla að losa félagið við
David Beckham, Luis Figo og Ro-
berto Carlos takist honum að velta
núverandi forseta, Florentino Per-
eez, úr sessi en forsetakosningar
eru framundan hjá spænsku meist-
urunum. Í staðinn segist Sobrino
ætla að kaupa Ronaldinho frá
Barcelona.
Þegar Pereez tók við forseta-
starfinu fyrir nokkrum árum hafði
hann það efst á stefnuskrá sinni að
klófesta Figo frá erkifjendunum í
Barcelona og það tókst. Síðan hefur
hann verið
óspar á að
kaupa stjörnur
til liðsins en nú
þykir mörgum
sem þreytu sé
farið að gæta í
störfum Pereez
eftir uppsveiflu
undanfarinna
ára.
Sobrino segir
að Beckham
verði að róa á önnur mið og senni-
legt sé að félagið geti fengið gott
verð fyrir hann. Beckham er að
mati Sobrino ekki nógu mikið í
spænska höfuðstaðnum og sé með
hugann við margt annað en að
leggja sig fram á knattspyrnuvell-
inum. Figo er á síðasta snúningi
sem knattspyrnumaður að mati
Sobrino sem segir að ekki komi til
greina að endurnýja samninginn
við Portúgalann. Sömu sögu sé að
segja um Carlos, hann hafi ekki
löngun til að vera áfram í her-
búðum Madrídar-liðsins og því sé
rétt að leyfa honum að taka hatt
sinn og staf. „Carlos leitar logandi
ljósi að vænum samningi og fái ég
einhverju ráðið þá fær hann ekki
þann samning hjá Real Madrid,“
segir Sobrino.
Vill selja Beckham,
Figo og Carlos frá Real
David
Beckham
Garnett hefur leikið með Timber-wolves frá árinu 1995 og er af
flestum talinn mikilvægasti leikmað-
ur NBA-deildarinnar, MVP, á
keppnistímabilinu, en lið hans náði
besta árangri allra liða á Vestur-
ströndinni. Í úrslitakeppninni hefur
Timberwolves tapað 22 leikjum og
aðeins unnið 7 leiki, og aldrei komist í
undanúrslit Vesturstrandarinnar.
Cassell sagði eftir leikinn að ekki
væri hægt að stöðva liðið ef hann
héldi áfram að skora líkt og í fyrsta
leiknum. „Ef þeir tvídekka mig þá fá
aðrir leikmenn boltann frá mér og
skora í staðinn. Ef þeir tvídekka mig
ekki þá mun ég halda áfram að gera
þeim lífið leitt,“ sagði Cassell sem
varð NBA-meistari sem nýliði hjá
Houston Rockets árið 1994. Hann
hefur komið víða við síðasta áratug
og leikið með Dallas, Nets, Phoenix
og Milwaukee.
„Cassell kann best við sig í svona
leikjum og þegar mest á reynir er
hann einfaldlega bestur,“ sagði Flip
Saunders, þjálfari Minnesota, sem
ætlar sér stóra hluti í úrslitakeppn-
inni.
Webber stóð undir væntingum
Það voru margir sem fylgdust með
fyrsta leik Sacramento Kings og
Dallas Mavericks sem fram fór í
Sacramento á sunnudag. Eins og við
var búist áttu leikmenn beggja liða
ekki í vandræðum með að skora, en
Kings náði yfirhöndinni í fjórða leik-
hluta og landaði sigri, 116:105. Stað-
an var 86:85 fyrir Kings í upphafi
fjórða leikhluta. Chris Webber
fundaði með leikmönnum Kings fyrir
leikinn og hvatti þá til dáða eftir slakt
gengi í lok leiktíðar þar sem liðið
missti af efsta sæti Vesturstrandar-
innar. Don Nelson, þjálfari Maver-
icks, var vongóður um framhaldið
þrátt fyrir tapið. „Þeir leika ekki bet-
ur en þeir gerðu í þessum leik. Eftir
að Webber fór að leika með þeim á ný
hafa þeir ekki leikið betur, og ég tel
möguleika okkar enn vera mjög
góða,“ sagði Nelson.
Dirk Nowitzki skoraði 31 stig fyrir
Mavericks og tók 13 fráköst en í liði
Kings bar mest á Peja Stojakovic
sem skoraði 28 stig og Webber var
með 26 stig og 12 fráköst.
Á Austurströndinni áttust við
Miami Heat og New Orleans Hor-
nets en liðin enduðu í 4. og 5. sæti í
deildarkeppninni. Lítt þekktur nýliði
Miami, Dwayne Wade, tryggði liðinu
sigur með því að skora sigurkörfuna
1,7 sek. fyrir leikslok, lokastaða
81:79. „Þetta eru skotin sem ég elska
að taka, og alla tíð hef ég beðið um að
fá að taka síðasta skotið ef mjótt er á
mununum,“ sagði Wade eftir leikinn
en hann skoraði alls 21 stig í leiknum.
Cassell
fór á
kostum
SAM Cassell, leikstjórnandi NBA-liðsins Minnesota Timberwolves,
fór fyrir sínum mönnum gegn Denver Nuggets í fyrsta leik liðanna í
átta liða úrslitum Vesturstrandarinnar í fyrrinótt, en Cassell skoraði
alls 40 stig, sem er persónulegt met hjá hinum 34 ára gamla bak-
verði. Kevin Garnett skoraði 30 stig og tók 20 fráköst og er greini-
legt að leikmenn Timberwolves ætla sér eitthvað annað en að falla
úr keppni í fyrstu umferð líkt og undanfarin ár.
Reuters
Sam Cassell, leikmaður Minnesota Timberwolves, setti per-
sónulegt met er hann skoraði 40 stig gegn Denver Nuggets.
HJÖRVAR Hafliðason, knatt-
spyrnumarkvörður, gekk í gær til
liðs við Íslandsmeistara KR en hann
hefur leikið með Val undanfarin ár.
Hjörvar kom til Vals frá HK árið
1999 og hefur verið í herbúðum Hlíð-
arendaliðsins síðan en hann missti
nær alveg af tímabilunum 2001 og
2003 vegna alvarlegra hnjámeiðsla.
SÍÐASTA föstudag héldu meist-
araflokkar KR í körfuknattleik sitt
lokahóf og fengu eftirtaldir leikmenn
verðlaun: Besti leikmaður kvenna:
Hildur Sigurðardóttir. Besti leik-
maður karla: Steinar Kaldal. Mestu
framfarir kvenna: Hólmfríður B.
Sigurðardóttir. Mestu framfarir
karla: Steinar Páll Magnússon.
Birgi Hákonarsyni, sem nú lætur af
störfum sem formaður körfuknatt-
leiksdeildar KR, var sérstaklega
þakkað fyrir vel unnin störf, sem og
Inga Þór Steinþórssyni sem lætur af
störfum sem þjálfari karlaliðsins.
HANS Meyer hættir þjálfun þýska
knattspyrnuliðsins Herthu Berlín í
vor, en hann tók við þjálfun þess í
janúar þegar Huub Stevens var
leystur frá störfum. Falko Götz og
Ralf Rangnick hafa verið nefndir
sem líklegir eftirmenn Meyers, en
Götz var sagt upp hjá 1860 München
um helgina í kjölfar slaks árangurs.
HOLLENDINGURINN Gerald
Vanenburg hefur tekið við þjálfara-
starfi hjá 1860 München – af Falko
Götz, sem var látinn taka poka sinn
eftir tap fyrir Hamburger SV um
helgina. Vanenburg, 40 ára, fyrrum
landsliðsmaður Hollands, lék með
liðinu 1998 og 1999.
FÓLK