Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 48
ÍÞRÓTTIR
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SPÆNSKI kylfingurinn
José Maria Olazábal leik-
ur á fyrsta móti sínu í
Evrópu á þessu ári þegar
hann hefur leik á opna
Kanaríeyjamótinu sem
hefst á Kanaríeyjum
næsta fimmtudag. Mótið
fer fram á Fuertevent-
ura-vellinum og þar mun
íslenski kylfingurinn
Heiðar Davíð Bragason
úr Kili Mosfellsbæ vera í
eldlínunni.
Heiðar Davíð er áhugamaður og
er þetta í fyrsta sinn á hans ferli
sem tekur þátt á móti á Evrópu-
mótaröðinni. Olazábal verður
þekktasti kylfingurinn á þessu móti
en hann hefur sigraði tvívegis á
Mastersmótinu á Aug-
usta-vellinum, en hann
hefur sigrað á þremur at-
vinnumannamótum á
Kanaríeyjum á sínum
ferli 1989, 1992 og 1997.
Fuerteventura-
völlurinn var hannaður
af Juan Catarineu og var
opnaður fyrir 12 árum
eða árið 1992.
Sigurvegari mótsins
fær rúmlega 24 millj. kr.
í sinn hlut en heildarverðlaunafé
mótsins nemur um 145 millj. kr.
Heiðar Davíð Bragason getur
hins vegar ekki tekið á móti verð-
launafé nái hann slíku sæti á þessu
móti þar sem hann er áhugamaður í
íþróttinni.
Olazábal og Heiðar Davíð
etja kappi á Kanaríeyjum
Heiðar Davíð
Öldungar
blaka á
Akranesi
ÖLDUNGAMÓT Blakssam-
bands Íslands, það 29. í röð-
inni, fer fram á Akranesi 22.
til 24. apríl. Þar mæta 80 lið
til leiks, 50 kvennalið og 30
karlalið og verður leikið í
báðum íþróttahúsum staðar-
ins í sjö deildum kvenna og
fjórum karla. Búist er við að
keppendur verði á bilinu
650–700. Leikið verður frá
klukkan 8.45 til 21.30 á
fimmtudag og föstudag en á
laugardag á leikjum að vera
lokið klukkan 15. Þá verður
verðlaunaafhending og um
kvöldið er lokahófið í íþrótta-
húsinu á Jaðarsbökkum.
Á fimmtudagskvöldið
verður árlegt öldungaþing
þar sem málefni eldri blak-
ara verða rædd.
KATRÍN Jónsdóttir hefur ákveðið
að ganga til liðs við bikarmeistara
Vals í knattspyrnu og leika með þeim
í úrvalsdeildinni í sumar. Katrín hef-
ur leikið með Kolbotn í Noregi í rúm
sex ár en fram að því spilaði hún
lengst af með Breiðabliki, reyndar
eitt tímabil með Stjörnunni. Katrín
er 26 ára og er þriðja leikjahæsta
landsliðskona Íslands með 48 A-
landsleiki að baki. Hún kemur ekki
til landsins fyrr en 18. júní, þar sem
hún er að ljúka lokaprófum í lækn-
isfræði í Ósló, og missir því af fyrstu
fjórum umferðum Íslandsmótsins.
„Ég var búin að vera lengi í sam-
bandi við bæði Val og Breiðablik í
nokkurn tíma og þetta var mjög erfið
ákvörðun. Bæði félögin eru með frá-
bæra hópa en að lokum langaði mig
meira til að spila með Val og það
varð því niðurstaðan. Ég hlakka til
að spila á Íslandi á ný eftir þessa
löngu fjarveru, en reyndar þarf ég
fyrst að ná þessum lokaprófum, því
ef það tekst ekki, verð ég að vera
áfram í Noregi í sumar og þá væri
þetta úr sögunni,“ sagði Katrín við
Morgunblaðið í gær.
Katrín verður Valsliðinu góður
liðsauki en það hefur verið nær
ósigrandi í vetur og er mjög líklegt
til afreka í sumar. Hún varð norskur
meistari með Kolbotn árið 2002 en
félagið vann þá titilinn í fyrsta sinn.
Katrín skoraði 43 mörk í 97 deilda-
leikjum með Kolbotn en áður en hún
hélt utan skoraði hún 25 mörk í 79
deildaleikjum með Breiðabliki og
Stjörnunni.
Katrín valdi að
leika með Val
KRISTJÁN Uni Óskarsson skíða-
kappi varð í 20. sæti í stórsvigi á
FIS-móti í Aal í Noregi á laugardag-
inn. Hann fékk 19,51 FIS-stig fyrir
árangurinn. Kristinn Ingi Valsson
og Ari Berg luku ekki við fyrri ferð-
ina í þessu móti. Daginn eftir féllu
þeir allir úr keppni.
GUÐRÚN Arinbjarnardóttir varð
í 30. sæti í mótinu á laugardaginn og
fékk 68,61 FIS-stig fyrir það.
Hrefna Dagbjartsdóttir fékk 95,05
stig fyrir 40. sætið og Elín Arnars-
dóttir 107,38 stig fyrir 45. sætið. Ás-
laug Eva Björnsdóttir féll úr leik í
síðari ferðinni. Þær féllu allar úr
keppni í mótinu sem var daginn eftir.
RUUD van Nistelrooy kemur inn í
lið Manchester United í kvöld þegar
það tekur á móti Hermanni Hreið-
arssyni og samherjum í Charlton á
Old Trafford. Van Nistelrooy hefur
ekki leikið fjóra síðustu leiki með lið-
inu vegna meiðsla í hné.
ÞÁ er talið að Roy Keane verði
með Manchester United í leiknum
en hann hefur verið meiddur.
KÖRFUKNATTLEIKSDEILD
Hauka hélt lokahóf sitt sl. föstudag,
þar sem Sævar Haraldsson og Hel-
ena Sverrisdóttir voru útnefnd
bestu leikmenn í meistaraflokkum
karla og kvenna. Þórður Gunnþórs-
son fékk viðurkenningu fyrir mestu
framfarir í meistaraflokki karla og
Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir í
meistaraflokki kvenna. Að auki fékk
Marel Guðlaugsson viðurkenningu
fyrir 150 leiki með meistaraflokki
karla.
BANDARÍKJAMAÐURINN Phil
Mickelson, nýkrýndur sigurvegari á
Mastersmótinu í golfi sem fram fór á
Augusta-vellinum, hefur boðað
komu sína á Opna skoska mótið sem
fram fer á Loch Lomond-vellinum
8.–11. júlí nk. Ernie Els frá Suður-
Afríku mun einnig taka þátt á þessu
móti en hann varð annar á Masters-
mótinu, en hann sigraði á Opna
skoska meistaramótinu á síðasta ári.
„Ég mun taka þátt í þessu móti og
hef í hyggju að halda því áfram á
næstu árum. Staðurinn er yndisleg-
ur og völlurinn er stórkostleg áskor-
un,“ sagði Mickelson sem er í fimmta
sæti á heimslistanum þessa stundina
og í efsta sæti á peningalista PGA-
mótaraðarinnar.
KJELL Inge Olsen, þjálfari
norska knattspyrnuliðsins Viking,
sagði í gær starfi sínu lausu. Olsen
hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir
að liðið tapaði fyrsta leik tímabilsins,
4:0, á útivelli gegn Tromsö. Félagið
boðaði til fréttamannafundar í gær
þar sem Olsen tilkynnti um ákvörð-
un sína og gaf hann þá skýringu að
hann hefði ekki áhuga á starfinu.
Bjarne Berntsen mun stýra liðinu
um einhvern tíma þar til nýr þjálfari
hefur verið ráðinn.
FÓLK
BLAK
Úrslitarimma kvenna, annar leikur:
Neskaups.: Þróttur N. – Þróttur R. ....20.30
Þróttur R. er yfir 1:0 og verður Íslands-
meistari með sigri.
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, efri deild A-riðill:
Leiknisvöllur: KR – Grindavík..................20
Deildabikar kvenna, neðri deild:
Egilshöll: HK/Víkingur - Fjölnir .........21.30
Í KVÖLD
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
Elfsborg – Malmö FF .............................. 1:5
Helsingborg – Djurgården...................... 1:1
Gautaborg – Halmstad ............................ 0:0
Staðan:
Malmö 3 2 1 0 10:2 7
Halmstad 3 2 1 0 6:2 7
Gautaborg 3 1 2 0 3:0 5
Djurgården 3 1 2 0 6:4 5
Örgryte 3 1 2 0 3:2 5
Kalmar 2 1 1 0 2:1 4
AIK 3 1 1 1 2:3 4
Örebro 3 1 0 2 4:10 3
Hammarby 2 0 2 0 0:0 2
Helsingborg 3 0 2 1 3:4 2
Trelleborg 3 0 2 1 2:3 2
Landskrona 3 0 2 1 1:2 2
Sundsvall 3 0 2 1 1:2 2
Elfsborg 3 0 0 3 2:10 0
Noregur
Lyn – Vålerenga ....................................... 1:1
Deildabikar karla
Leiðrétting á stöðum sem voru rangar í
blaðinu í gær:
Neðri deild, B-riðill:
Breiðablik 4 3 0 1 20:3 9
Númi 4 2 1 1 4:6 7
ÍR 4 2 0 2 10:9 6
Reynir S. 4 1 2 1 11:11 5
KFS 4 1 1 2 8:18 4
Selfoss 4 1 0 3 7:13 3
Neðri deild, D-riðill:
Völsungur 4 3 1 0 18:6 10
Fjarðabyggð 4 3 1 0 11:6 10
Leiftur/Dalvík 4 2 0 2 14:11 6
Tindastóll 4 1 0 3 11:12 3
Magni 4 1 0 3 12:17 3
Höttur 4 1 0 3 6:20 3
PGA-MÓTARÖÐIN
Heritage Classic, Hilton Head, par 71:
Stewart Cink, Bandaríkjunum.......274 (-10)
62 millj. kr. 72-69-69-64
Ted Purdy, Bandaríkjunum ...........274 (-10)
37 millj. kr. 69-67-65-73
Cink vann á fimmtu holu í bráðabana.
Carl Pettersson, Svíþjóð..........................276
18 millj. kr. 72-71-66-67
Ernie Els, Suður-Afríku..........................276
18 millj. kr. 69-70-68-69
Patrick Sheehan, Bandaríkj....................276
18 millj. kr. 71-66-69-70
Fred Funk, Bandaríkjunum ...................277
69-69-69-70
SKOTFIMI
Sport-skammbyssa, skotið af 25 metrum:
Carl J. Eiríksson, SIB .............................546
Sigurgeir Guðmundsson, SFK................538
Guðjón Freyr Eiðsson, SFK ...................536
Eiríkur Ó. Jónsson, ÍFL..........................530
Karl Kristinsson, SR................................528
Carl J. varð Íslandsmeistari.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Úrslitakeppnin, 16-liða úrslit, fyrstu leikir:
Minnesota – Denver ........................... 106:92
Miami – Charlotte ................................ 81:79
ÚRSLIT
HERBERT Arnarson tekur að öllu
óbreyttu við þjálfun úrvalsdeildar-
liðs KR en Böðvar Guðjónsson,
stjórnarmaður í körfuknattleiks-
deild KR, staðfesti við Morgun-
blaðið í gærkvöld að samningar við
hann væru á lokastigi. „Það er ekk-
ert leyndarmál að við höfum átt í
viðræðum við Herbert og vonandi
verður hægt að tilkynna um ráðn-
ingu hans innan skamms,“ sagði
Böðvar.
Herbert, sem er 34 ára, hefur
verið í röðum KR frá árinu 2001 en
hann gat ekkert leikið með liðinu á
nýloknu tímabili vegna meiðsla.
Hann spilaði um árabil í Bandaríkj-
unum en lék einnig sem atvinnu-
maður um skeið í Hollandi og Belg-
íu. Til ársins 1997 lék hann með ÍR
þegar hann var heima en eftir það
spilaði Herbert eitt tímabil með
Grindavík og eitt með Val áður en
hann gekk til liðs við KR-inga.
Hann á að baki 146 leiki í úrvals-
deildinni og skoraði að meðaltali 19
stig í leik en mest 43 stig í leik með
ÍR gegn Val fyrir tíu árum. Herbert
er áttundi leikjahæsti landsliðs-
maður Íslands með 111 A-landsleiki
að baki.
Ingi Þór Steinþórsson hefur
þjálfað KR-inga undanfarin fimm
ár en hann tilkynnti í síðustu viku
að hann sæktist ekki eftir end-
urráðningu fyrir næsta tímabil.
KR-ingar höfnuðu í sjöunda sæti
úrvalsdeildarinnar í vetur og töp-
uðu síðan fyrir Grindavík í oddaleik
í 8-liða úrslitunum.
Samningar KR-inga við
Herbert eru á lokastigi
Herbert Arnarson
Maradona kvefaðist á laugardagþegar hann spilaði golf fram á
kvöld, og síðan veiktist hann alvar-
lega á sunnudaginn eftir að hann
hafði fylgst með Boca Juniors leika
gegn Nueva Chicago. Hann var flutt-
ur á sjúkrahúsið með óreglulegan
hjartslátt og hefur átt erfitt með
öndun. Í yfirlýsingu frá sjúkrahús-
inu í gærkvöld var sagt að hann væri
með sýkingu í lungum.
Alfredo Cahe, einkalæknir Mara-
dona, vísaði á bug sögusögnum um
að neysla eiturlyfja hefði leitt til
veikindanna. „Ég hef miklar áhyggj-
ur af allri þeirri vitleysu sem sumir
fréttamenn hafa látið frá sér fara.
Það er hreint ótrúlegt, veikindin
hafa ekkert með fíkn hans að gera,“
sagði Cahe en Maradona hefur um
árabil átt við fíkniefnavanda að
stríða.
Argentínska þjóðin hefur haldið
niðri í sér andanum eftir að veikindi
hetjunnar spurðust út og fjöldi fólks
hefur haldið til fyrir utan sjúkrahús-
ið þar sem Maradona liggur.
Maradona er 43 ára gamall og hef-
ur verið þjóðhetja í Argentínu frá því
hann skipaði sér í hóp bestu knatt-
spyrnumanna heims frá upphafi í
byrjun níunda áratugarins. Hann
var í fararbroddi þegar Argentína
varð heimsmeistari árið 1986 og aft-
ur þegar liðið komst í úrslitaleik HM
fjórum árum síðar. En frá árinu 1991
og þar til hann lagði skóna endan-
lega á hilluna árið 1997 settu fíkni-
efnin svip á ferilinn. Hann fékk 16
mánaða bann árið 1991 og aftur árið
1994 þegar hann var sendur heim frá
lokakeppni HM í Bandaríkjunum
fyrir að falla á lyfjaprófi.
Maradona á batavegi
Reuters
Diego Maradona tekur í hönd aðdáanda á sunnudag meðan
hann fylgist með leik Boca Juniors og Nueva Chicago. Eftir
leikinn var hann fluttur á sjúkrahús.
DIEGO Maradona, einhver
frægasti knattspyrnumaður
sögunnar, er í stöðugu ástandi
og á batavegi á sjúkrahúsi í
Buenos Aires í Argentínu, sam-
kvæmt upplýsingum frá lækn-
um í gærkvöld. Hann var fluttur
þangað síðdegis á sunnudag og
hefur legið á gjörgæslu, tengd-
ur við öndunarvél.