Morgunblaðið - 20.04.2004, Page 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 49
PÉTUR Hafliði Marteins-
son, landsliðsmaður í
knattspyrnu, slasaðist á
hendi á æfingu með liði
sínu, Hammarby í Sví-
þjóð, um helgina. Pétur
fékk þrumuskot frá sam-
herja sínum í höndina
með þeim afleiðingum að
bein í úlnliðnum brotn-
aði. Þrátt fyrir þetta
hyggst Pétur leika með
Hammarby gegn Kalmar
í úrvalsdeildinni í kvöld
og með íslenska landsliðinu gegn
Lettum í Ríga í næstu viku.
„Þetta var óhapp, ég var ekki
viðbúinn og fékk boltann beint í
höndina. Ég fékk strax gifs og gat
æft með það í gær og dag, svo það
er ekkert því til fyr-
irstöðu að ég spili gegn
Kalmar. Reyndar skilst
mér að dómarinn hafi
lokaorðið um það, en
þetta er mjög pent gifs
og það eru mörg for-
dæmi fyrir því að menn
spili með svona umbúð-
ir,“ sagði Pétur í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Pétur hefur leikið
mjög vel með Hammarby
að undanförnu og verið
einn besti leikmaður liðsins. Hamm-
arby er spáð góðu gengi í ár en liðið
hefur gert markalaus jafntefli í
tveimur fyrstu leikjum sínum í úr-
valsdeildinni og þarf því á öllum
stigunum að halda í Kalmar í kvöld.
Pétur handarbrotinn en
heldur áfram að spila
WALESBÚAR hafa enn ekki
gefið upp alla von um að þeir
komist í lokakeppni Evrópu-
móts landsliða í Portúgal í
sumar með því að fá Rússa
dæmda úr keppni.
Igor Titov, miðjumaður
Rússa, féll á lyfjaprófi eftir
fyrri úrslitaleik þjóðanna um
EM-sæti í nóvember 2003. Þá
var hann varamaður og lék
ekki með en spilaði síðan síð-
ari leikinn í Cardiff sem
Rússar unnu, 1:0, og komust
þar með á EM.
Walesbúar kröfðust þess
að Rússum yrði refsað fyrir
að tefla Titov fram í leiknum
í Cardiff. Knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA, vís-
aði kæru þeirra frá á þeirri
forsendu að liði yrði ekki
refsað fyrir brot einstakl-
ings. Áfrýjun Walesbúa fór
sömu leið hjá UEFA. Þeir
telja að UEFA hafi ekki tekið
á veigamiklum atriðum í
málflutningi þeirra og hafa
því skotið málinu til íþrótta-
dómstóls sem hefur aðsetur í
Sviss,
Walesbúar
reyna enn
við EM-sæti
MATT Garnar, tvítugur enskur
knattspyrnumaður frá Crewe
Alexandra, er genginn til liðs við
ÍBV og kemur til félagsins í
næstu viku ásamt Ian Jeffs, sem
spilar áfram með ÍBV eins og í
fyrra. Garner hefur aðallega leik-
ið sem vinstri bakvörður og leysir
því væntanlega af hólmi Hjalta
Jóhannesson sem lagði skóna á
hilluna eftir síðasta tímabil.
Garner hefur verið hjá Crewe
frá 17 ára aldri en áður spilaði
hann með utandeildaliðinu Witton
Albion. Hann hefur ekki leikið
með aðalliði Crewe en hann
missti nánast alveg af tímabilinu
2002–3 vegna slæmra bakmeiðsla.
Garner gerði eins árs samning við
Crewe en hann fær sig lausan frá
félaginu áður en hann kemur til
ÍBV.
„Garner leikur með okkur allt
tímabilið, það er frágengið. Nú er
leikmannahópurinn fullmótaður
enda eru sex leikmenn komnir í
stað þeirra sex sem eru farnir frá
síðasta tímabili,“ sagði Gísli
Hjartarson hjá knattspyrnuráði
ÍBV við Morgunblaðið í gærkvöld.
Auk Garners hefur ÍBV fengið
Einar Þór Daníelsson frá KR,
Mark Schulte frá Minnesota
Thunder, Jón Skaftason frá Vík-
ingi, Hrafn Davíðsson frá Fylki
og Magnús Má Lúðvíksson frá
Drangi. Frá síðasta tímabili eru
fjórir hættir, Hjalti Jóhannesson,
Hjalti Jónsson, Ingi Sigurðsson og
Unnar Hólm Ólafsson, Tom Betts
fór aftur til Crewe og Ígor Bjarni
Kostic til Skála í Færeyjum.
ÍBV fær bakvörð frá Crewe
Já, ég á svona frekar von á aðþetta verði spennandi leikir.
Valur er með miklu reyndara lið og
stelpurnar þar eru miklu vanari að
takast á við þá spennu sem fylgir
leikjum á þessu stigi. Valsstelpur
unnu síðasta leikinn við Stjörnuna
og fengu þar með heimaleikjarétt-
inn sem er mikilvægur,“ sagði
Ragnar Hermannsson sem þjálfaði
Haukastúlkur í vetur, þegar hann
var spurður um hvort að um spenn-
andi viðureign um að ræða.
„Stjarnan er með mjög vel skip-
að og áhugavert lið sem er með
góða leikmenn í öllum stöðum og
jafnvel tvo í hverri stöðu. Helsti
óvinur þeirra í þessu einvígi er ald-
urinn og reynslan. Það getur skipt
miklu fyrir Stjörnuna hvort Svan-
hildur Þengilsdóttir verður dregin
á flot í þessa leiki. Hún styrkir
vörnina mikið og hefur gríðarlega
reynslu af þessu stigi keppninnar.
Valsliðið er mjög reynt, er með
frábæran markmann og ef vörn og
markvarsla er í lagi þá fá þær allt-
af nokkur mörk úr hraðaupphlaup-
um. Þær eru í nokkrum vandræð-
um í sókninni þar sem þær hafa
ekki neina skyttu, fyrir utan Gerði
Betu. Þær þurfa því að treysta
nokkuð á að spila sig í gegn, nota
línuna, þar sem þær eru mjög
sterkar, og nýta hornin vel. Það
skiptir líka miklu máli hvort Drífa
verður komin inn eða ekki því hún
er mikill slúttari.
Starnan er líka með frábæran
markvörð sem getur unnið leiki
upp á sitt eindæmi ef hún dettur í
gang. Ég held að það sé stór
spurning hvort Stjörnustelpur hafi
trú á að þær geti þetta. Mér finnst
Stjarnan á margan hátt með fjöl-
breyttara lið, hafa fleiri valkosti og
meiri breidd. Aldurinn hefur hins
vegar gríðarlega mikið að segja og
Valsliðið er með meiri reynslu og
keppnisþroska.
Ætli ég spái þessu ekki í odda-
leik og hallast frekar að því að Val-
ur hafi betur en ég er ekki tilbúinn
að leggja mikið undir þá spá. Von-
andi verða þetta jafnir og
skemmtilegir leikir, það er það sem
gerir þetta svo skemmtilegt á vor-
in,“ sagði Ragnar.
Morgunblaðið/Þorkell
Rakel Dögg Bragadóttir, leikmaður Stjörnunnar, sækir að marki Vals í leik liðanna á Íslands-
mótinu fyrr í vetur, þar sem Valsmaðurinn Anna Guðmundsdóttir er til varnar.
Ragnar Hermannsson, þjálfari Haukaliðsins, spáir í undanúrslit kvenna
Hallast að sigri Vals
FYRSTI leikurinn í undanúrslitum kvenna í handknattleik fer fram í
kvöld – þegar Valsstúlkur taka á móti Stjörnunni að Hlíðarenda. Það
lið sem fyrr sigrar í tveimur leikjum kemst í úrslit og mætir þar ann-
aðhvort ÍBV eða FH, en fyrsti leikur þessara liða verður eftir viku.
HJÁLMAR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, lék allan leik-
inn með Gautaborg í gær þegar lið
hans gerði markalaust jafntefli við
Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni.
Gautaborg hefur ekki fengið á sig
mark í fyrstu þremur umferðunum
en tveir leikir liðsins hafa endað 0:0.
LETTAR tilkynntu í gær 26
manna landsliðshóp fyrir vináttu-
landsleikinn í knattspyrnu gegn Ís-
lendingum sem fram fer í Ríga 28.
apríl. Í hópnum eru 12 leikmenn er-
lendra liða en átta af hinum fjórtán
leika með öflugasta félagsliði Lett-
lands, Skonto Riga.
LETTAR komust mjög óvænt í úr-
slitakeppni Evrópumóts landsliða
sem fram fer í Portúgal í sumar.
Þeir skákuðu Pólverjum og Ung-
verjum í riðlakeppninni og sigruðu
síðan Tyrki í úrslitaleikjum um EM-
sæti.
KUNNUSTU leikmennirnir í hópi
Letta eru Marian Pahars, sóknar-
maður frá enska liðinu Southampt-
on, Igors Stepanovs, varnarmaður
hjá Beveren í Belgíu sem lék um
skeið með Arsenal og Maris Verpa-
kovskis, sóknarmaður frá Dynamo
Kiev í Úkraínu sem skoraði mikil-
vægustu mörk Letta á lokaspretti
undankeppninnar. Verpakovskis
skoraði ennfremur sigurmarkið í úti-
sigri Letta á Slóvenum, 1:0, um síð-
ustu mánaðamót.
ANDREJS Stolcers leikur með
Fulham í Englandi en aðrir í lettn-
eska hópnum sem spila erlendis eru
á mála hjá liðum í Rússlandi, Úkr-
aínu og Danmörku. Fyrirliðinn,
Vitalis Astafjevs, sem spilar með
Admira í Austurríki, lék sinn 100.
landsleik á dögunum, gegn Slóven-
um.
CRAIG Bellamy, leikmaður New-
castle, verður ekki með þegar liðið
mætir Marseille í undanúrslitum
UEFA-bikarsins í knattspyrnu á
fimmtudaginn. Bellamy tognaði í
læri í leik Newcastle gegn Aston
Villa og óttast er að hann leiki ekki
meira á tímabilinu. Bellamy er hins-
vegar bjartsýnn á að hann nái að
taka þátt í lokaleikjum Newcastle í
ensku úrvalsdeildinni.
HOLLENSKI knattspyrnumaður-
inn Ronald de Boer fer að öllum lík-
indum til Katar en hann er ákveðinn
í að hætta hjá Glasgow Rangers eft-
ir þetta tímabil. De Boer sagði í gær
að ef hann legði ekki skóna á hilluna í
vor myndi hann spila í Katar næsta
vetur. „Aðstæður í Katar eru full-
komnar, aðeins 26 deildaleikir og
alltaf hlýtt í veðri. Það hentar mínum
líkama vel. Ég veit ekki með hvaða
liði ég kem til með að spila, maður
semur við deildina sjálfa og fer síðan
í eitthvert liðanna sem eru öll frá
höfuðborginni Doha,“ sagði de Boer,
sem er 33 ára.
FÓLK
Pétur
Marteinsson