Morgunblaðið - 20.04.2004, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.12 ára
AKUREYRI
kl. 8. B.i.12 ára
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA
KL. 6 og 10.
Enginn trúir því að
hann muni lifa af þetta
villta og seiðandi
ferðalag.
Viggo Mortenson í magnaðri
ævintýramynd byggð á sannri sögu!
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15.
Það vilja allir vera hún, en hún vil vera „frjáls“
eins og allir aðrir.
Sprenghlægileg rómantísk gamanmynd um
forsetadóttur í ævintýraleit!
Kvikmyndir.is
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatriði,
geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
i ,
l l i i,
j i
i
l
i ll
l i
Hann mun gera allt
til að verða þú!
Hágæða spennutryllir með Angelinu
Jolie, Ethan Hawke og Kiefer
Sutherland í aðalhlutverki.
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 16.
Sýnd kl. 10. B.i. 16. Kl. 5.40 og 8.
Enginn trúir því að hann muni lifa af þetta villta og
seiðandi ferðalag.
i tr ir í i lif f tt illt
i i f r l .
Viggo Mortensen í magnaðri ævintýramynd
byggð á sannri sögu!
Sýnd kl. 5.30, 8.15 og 10. B.i. 12 ára.
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
SV. MBL
Sýnd kl. 6. Með ísl taliSýnd kl. 10.Sýnd kl. 6 og 8.
VG. DV
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6 og 8.
Kvikmyndir.is
F r u m s ý n d e f t i r 1 7 d a g a
„Frábærar
reiðsenur,
slagsmálatriði,
geggjaðir
búningar og
vel útfærðar
tæknibrellur“
Fréttablaðið
i ,
l l i i,
j i
i
l f
i ll
l i
Fyrsta stórmynd sumarssins
SEINNI hluti hefndarsögu Quent-
ins Tarantinos Kill Bill var frumsýnd
fyrir helgi vestanhafs og fór beint á
toppinn eins og við var búist.
Myndin, sem almennt hefur fengið
rífandi góða dóma og þykir betri en
sú fyrri, halaði inn rúmlega 25 millj-
ónir dala, aðeins meira en fyrri
myndin gerði um fyrstu sýningar-
helgina í fyrra.
Áhuginn á þessum hefndaraðgerð-
um Svörtu mömbunnar gegn Billa og
gengi hans þýddi að Refsarinn (The
Punisher) þurfti að sætta sig við ann-
að sæti listans. Þar fer mynd sem
byggist á samnefndum Marvel-
myndasögum en er þó aldrei þessu
vant ekki ofurhetjumynd, heldur
fjallar hún um venjulegan mann sem
tekur lögin í sínar hendur og fer í
einsmanns herferð gegn glæpa-
mönnum heimsins, eftir að fjölskylda
hans er myrt köldu blóði. Myndin
kostaði ekki eins mikið og aðrar
byggðar á myndasögum, er fyrsta
mynd handritshöfundarins Jonathan
Hensleigh, og gerði því tiltölulega
góða hluti.
Það er líka ný mynd í þriðja sæti,
gamanmyndin Johnson-fjölskyldan
fer í frí (Johnson Family Vacation)
með Cedric the Entertainer. Önnur
gamanmynd byrjaði einnig fyrir
helgi en hún heitir Connie og Carla
og er með Toni Colette (Muriel’s
Wedding) í aðalhlutverki.
Píslasaga Krists féll töluvert eftir
páskaörtröðina, eins og við var að
búast. Myndin er nú orðin sjöunda
tekjuhæsta mynd sögunnar með
360,9 milljónir dala og skiptist á sæt-
um við Jurassic Park.
Einn stærsti skellur í lengri tíma
situr svo í tíunda sæti listans en það
er vestrinn The Alamo. Myndin kost-
aði 95 milljónir dala en hefur ekki
halað inn nema ríflega 14 milljónir
dala í tekjur og er því eins og stendur
ansi langt frá því að svara kostnaði.
Young Adam með Ewan McGreg-
or var frumsýnd um helgina í völdum
kvikmyndahúsum og er önnur
myndin á árinu sem fékk aldurstak-
markið NC-17, eða Stranglega bönn-
uð börnum innan 17 ára, næsti bær
við X-spimpilinn alræmda. Ástæðan
fyrir þessu háa aldurstakmarki ku
vera sú að það sést í lim McGregors.
Nýja Tarantino-myndin á toppinn vestra
Billa refsað
Og þá mætti brúðurin Billa. Úr nýju Tarantino-myndinni Kill Bill Vol. 2.
!" # $
%& '' $
()
*+*
,-+.
/+-
*+0
*+-
*+,
-+/
-+-
-+,
-+.
*+*
,-+.
,+-
*.+-
10+/
0
+
1/+/
,1+2
1/.+3
,/+1
USHER / Confessions
„Yeah!“ er tvímælalaust einn af
betri smellum það sem af er árinu
2004 en samt tók maður stóru
plötunni með fyrirvara því fyrri
plötur hans hafa
einkennst af
nokkrum sterkum
lögum sem slógu í
gegn auk nokk-
urra til uppfyll-
ingar. Og þótt
Confessions hefði vissulega mátt
vera 3–4 lögum styttri þá fær
maður aldrei þá tilfinningu að ver-
ið sé að rembast við að fylla disk-
inn, bara með einhverju sótt-
hreinsuðu uppfyllingarefni. Lögin
eru hreint ekki öll góð og fjarri
því. Ætli ein 5 þeirra séu ekki ná-
lægt því besta sem Usher hefur
sent frá sér og sumt af restinni
líka með því versta. Eins og svo
oft þegar R&B plötur eiga í hlut
þá er einn helstu ljóður hennar
stefnuleysi, hana vantar heild-
arsvip, sem skrifast á að höfundar
og upptökustjórar eru of margir.
En mikið er maður samt til í að
segja bara „Yeah!“ og vera ligeg-
lad, hlusta á lagið aftur og aftur í
góðum græjum og færa sig svo yf-
ir í næsta mögulega smell, eins og
ballöðuna fínu „Burn“ og hið
kröftuga „Throwback“. Heilsteypt-
asta plata Ushers, en samt eitt-
hvað sundurleit og karakt-
erlaus. CLAY AIKEN /
Measure of A Man
Hann vann hug og hjarta þjóðar
sinnar og víðar í annarri Idol-
Stjörnuleitinni sem haldin var í
Bandaríkjunum og jafnvel þótt
hann hafi lent í öðru sæti þá virð-
ist sem hann ætli að standa uppi
sem sigurvegari
umræddrar leitar,
sé mið tekið af
hinum eiginlega
vinsælda-
mælikvarða,
plötusölunni.
En eins og hann
er nú með fína rödd Clay bless-
aður þá nær hann engan veginn að
sýna á sér sínar bestu hliðar á
sinni fyrstu sólóplötu, sem er ein-
hver sú karakterlausasta, nið-
ursoðnasta og sótthreinsaðasta
poppplata sem sett hefur verið
saman í lengri tíma. Nú er lag,
kæri Clay, að sýna næst úr hverju
þú ert gerður – þú sjálfur.
Skarphéðinn Guðmundsson
Erlend tónlist
ÞEGAR endurreist Todmobile
hélt tónleika í Laugardalshöll
ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
hinn 14. nóvember síðastliðinn
var strax tekin ákvörðun um að
mynd- og hljóðrita tónleikana.
Geisladiskurinn Sinfónía er kom-
inn út og nú er kominn út mynd-
diskur undir sama nafni.
Hér er á ferðinni veglegur
pakki því ásamt tónleikunum í
Laugardalshöll er hægt að sjá
svipmyndir frá undirbúningi tón-
leikanna og einnig heimild-
armynd um sögu Todmobile sem
gerð var árið 2000 í tengslum við
safndisk sveitarinnar, Best. Þá
eru hér 14 myndbönd með sveit-
inni og jafnframt upptaka frá
tónleikum Todmobile í Íslensku
óperunni 19. nóvember 1993. Allt
í allt tveir diskar og efnið um
fjórir tímar að lengd.
Gaman
„Já, ég er nú barasta drullu-
montinn af þessu,“ segir Þorvald-
ur Bjarni Þorvaldsson og brosir
þegar þessar upplýsingar eru rifj-
aðar upp fyrir honum.
„Mér finnst sjálfum
t.d. mjög athyglisvert og
skemmtilegt að bera
saman þá Todmobile sem
lék í Laugardalshöllinni
við þá sem spilaði tíu ár-
um fyrr í Óperunni.“ segir
hann.
„Manni fannst eins og
þetta væri orðin gömul
sveit árið 1993 og gaman að
sjá hvernig tónlistarmenn-
irnir hafa þróast síðan þá á þess-
um árum.“
Þorvaldur glottir í kampinn
þegar hann er spurður út
í myndböndin.
„Öll myndböndin eru
þarna utan eitt eða tvö,“
upplýsir hann. „Það má
kannski segja að þetta
sé svona „comic relief“
hluti pakkans. Tvö eða
þrjú myndbönd stand-
ast vel tímans tönn en
önnur síður (hlær).
Það er kostulegt að sjá sum
þeirra í dag.“
Þorvaldur segir að ekki hafi
þurft að setja sig í neitt sérstakar
stellingar í sambandi við vinnslu
á mynddiskinum.
„Hvað mér viðkom rann það
dálítið saman að hljóðblanda
sjálfan geisladiskinn og svo þenn-
an myndisk. Meginmunurinn er sá
að hér er hljómurinn settur í „5.1
dolby surround“.“
Veglegur mynddiskur frá Todmobile
Um fjórir tímar af efni
Morgunblaðið/Kristinn
Þorvaldur og Andrea á sviði Laugardalshallarinnar 14. nóvember 2003.
Mynd- og geisladiskurinn
Sinfónía er komin út.
arnart@mbl.is