Morgunblaðið - 20.04.2004, Qupperneq 56
Farfuglum
fjölgar með
degi hverjum
LÓAN er komin í Langadalinn, ekki beint
til að kveða burt snjóinn heldur leiðindin
sem hafa verið í veðrinu undanfarna daga.
Fyrstu helsingjarnir sáust einnig í Langa-
dalnum í gær þannig að vafinn er enginn á
að vorið er á fleygiferð norður yfir heiðar
og Stórasand.
Grágæsir og álftir streyma líka norður
og hefur gránað af grágæsum á túnum
bænda og sumstaðar er alhvítt af álft. Þó
að gangi á með éljum þessa stundina líta
menn björtum augum til næstu daga því
gott er í veðurkortum, lóan komin og sum-
ardagurinn fyrsti innan seilingar.
Blönduósi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
ÞAÐ rann kalt vatn milli skinns og hörunds
þátttakenda á kynningar- og öryggisnám-
skeiði friðargæslunnar sem utanríkisráðu-
neytið stóð fyrir um helgina þar sem sér-
sveit lögreglunnar setti upp einhverjar þær
erfiðustu aðstæður sem friðargæsluliðar
gætu hugsanlega lent í.
„Þó að búast megi við því að fæstir frið-
argæsluliðar lendi í aðstæðum eins og þeim
sem farið var yfir á þessu námskeiði, er
nauðsynlegt að menn hafi ákveðna nasasjón
af því hvað gæti gerst. Annað væri óábyrgt í
ljósi reynslunnar,“ segir Þorbjörn Jónsson,
sendiráðunautur í utanríkisráðuneytinu.
Hann segir að ástandið geti breyst snögg-
lega á fyrrverandi átakasvæði sem talið sé
nokkuð öruggt, eins og hafi sýnt sig í Kos-
ovo á dögunum.
Morgunblaðið/Nína Björk
Viðbrögð
æfð við
hinu versta
Búin undir/12
RÍKISKAUP hafa auglýst forval á Evrópska
efnahagssvæðinu vegna byggingar, reksturs og
hönnunar tónlistar- og ráðstefnuhúss, sem og
hótels, við höfnina í Reykjavík. Ráðgert er að
verkefnislýsing verði afhent þeim sem valdir
verða í forvali í byrjun ágúst. Austurhöfn-TR
ehf., fyrirtækið sem stofnað hefur verið um
verkefnið, veit af fleiri en einum aðila sem hafa
áhuga á verkinu. Verkkaupi gerir ráð fyrir að
sérleyfissamningur verði gerður við einn bjóð-
anda og samningstíminn verði 25 ár.
Jón H. Ásbjörnsson, deildarstjóri útboðs-
deildar hjá Ríkiskaupum, segir að væntanlega
verði byrjað að afhenda forvalsgögn næsta
mánudag, en umsóknarfrestur er til 10. júní. Í
forvalsgögnunum segir hvaða skilmála og kröf-
ur verkkaupi gerir til þeirra sem bjóða í verkið.
Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri
Austurhafnar-TR, segir að ætlunin hafi ávallt
verið að reisa og reka húsin í einkaframkvæmd.
Ríki og Reykjavíkurborg muni standa straum af
byggingarkostnaði vegna tónlistarhússins og
ráðstefnumiðstöðvarinnar, en sá sem fái verkið í
útboði muni fjármagna byggingu hótelsins og
eiga það að samningstíma liðnum. Einnig eigi
hann þess kost að taka þátt í uppbyggingu nær-
liggjandi reita í eigin þágu. Áætlaður kostnaður
við tónlistar- og ráðstefnumiðstöðina er 6,4
milljarðar og 6 milljarðar við hótelið.
Ekki kveðið á um að fylgja
verði verðlaunatillögu
Stefán segir að þeir sem valdir verða til þátt-
töku í samningskaupum muni leggja til hvernig
svæðið og húsin muni líta út, en hönnun bygg-
inganna verður innifalin í verkinu. Hugmynda-
samkeppni um skipulag svæðisins fór fram 2001
og segir Stefán að ekki hafi allir verið á eitt sátt-
ir um verðlaunatillöguna úr þeirri samkeppni,
því sé ekki kveðið á um það í forvalsgögnum að
taka verði mið af því útliti. Aðspurður hvort
ekkert sé farið eftir verðlaunatillögunni segir
Stefán að einn af höfundum hennar hafi starfað
fyrir skipulagsyfirvöld í Reykjavík frá síðasta
hausti, ásamt fleirum, við að þróa skipulag
svæðisins áfram og gera rammaskipulagið.
Þeir hópar sem valdir verða í forvalinu munu
hver um sig velja arkitekta og vinna tillögur að
útliti og hönnun. Rammaskipulagið mun fylgja
verkefnislýsingu þegar til kemur, en enn er ekki
ljóst hvað af því verður bindandi og hvað ekki.
Stefán segir miðað við að veita sérleyfi til 25
ára til að reka tónlistar- og ráðstefnuhúsið. Þá
verður viðurkennd hótelkeðja fengin til að reka
hótelið. Eignarhald tónlistar- og ráðstefnuhúss-
ins í lok rekstrartíma hefur ekki verið ákveðið,
en það verður skilgreint í verklýsingu.
Stefán segir verkefnið þegar hafa verið kynnt
meðal verktaka, fjárfesta og hótelrekenda og
veit um fleiri en einn aðila sem hafa áhuga. „Þó
nokkrar viðræður hafa átt sér stað við aðila sem
hefur verið að kynna sér verkefnið. Við erum að
vonast eftir tveimur til þremur, eða jafnvel fjór-
um umsóknum í forvalinu,“ segir hann.
Gert er ráð fyrir að á seinni hluta 2006 geti
framkvæmdir hafist og að þeim verði lokið fyrir
árslok 2008. Tónlistar- og ráðstefnumiðstöðin er
áætluð um 15.000 fermetrar og gert ráð fyrir að
hótelið verði allt að 250 herbergi.
Forval vegna ráðstefnu- og
tónlistarhúss auglýst á EES
ÞAÐ hefur lengi verið til siðs í
Eyjum að spranga, eins og það er
kallað, en það er líka hægt að
gera það í vesturbænum í Reykja-
vík ef kaðall og digur trjágrein er
fyrir hendi. Bjart veður og fal-
legt, eins og verið hefur síðustu
daga, spillir ekki fyrir þó svo að
ýmsum finnist heldur kuldalegt.
Morgunblaðið/Ásdís
„Sprangað“ í Vesturbænum
EITT af því sem komið hefur
til skoðunar í viðræðum rík-
isins og bænda um gerð nýs
mjólkursamnings er að hluti
af beinum stuðningi ríkisins
við bændur verði greiddur
sem styrkur við kornrækt.
Þórólfur Sveinsson, formaður
Landssambands kúabænda,
segir að þetta hafi talsvert
verið skoðað, en ekkert sé
ákveðið. Málið verði þó skoð-
að áfram í viðræðunum, en
Þórólfur vonast eftir að þeim
ljúki í vor.
Þórólfur segir að viðræðu-
nefndir ríkisins og bænda
hafi leitast við að koma á móts
við þau viðhorf sem eru uppi
innan WTO með því að færa
hluta af stuðningi ríkisins yfir
í svokallaðar grænar
greiðslur
Styrkir
til korn-
ræktar í
athugun
Færa hluta/29
ARI Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir út-
gjöld fyrirtækja vegna margskon-
ar opinbers eftirlits of mikil og
mikilvægt sé að samhæfa starf eft-
irlitsstofnana og draga úr kostn-
aðinum. Þórunn Sveinbjörnsdótt-
ir, fyrsti varaformaður Eflingar
stéttarfélags, segir fjölþætt eftirlit
á vegum hins opinbera valda fyr-
irtækjum miklum kostnaði og þörf
sé á að einfalda framkvæmd eft-
irlitsins eins og kostur er. Þórunn
og Ari eiga bæði sæti í ráðgjaf-
arnefnd um opinberar eftirlits-
reglur.
Hagfræðistofnun Háskóla Ís-
lands kemst að þeirri niðurstöðu í
skýrslu, sem unnin var fyrir for-
sætisráðuneytið og kynnt var í
gær, að heildarkostnaður sam-
félagsins vegna opinberra eftirlits-
reglna hér á landi hafi numið níu
til tólf milljörðum króna árið 2002
miðað við verðlag síðasta árs.
Árlegur kostnaður fyrirtækja er
metinn á um 7,2 milljarða og
kostnaður stjórnvalda um 1,5–5
milljarðar. Þar fyrir utan er
óbeinn kostnaður samfélagsins,
sem fellur einkum á fyrirtækin, en
stofnunin leggur ekki mat á.
Skýrsla Hagfræðistofnunar var
kynnt í gær og að sögn Þóru
Helgadóttur, starfsmanns Hag-
fræðistofnunar, sem vann að gerð
skýrslunnar, er erfitt að leggja ná-
kvæmt mat á ábata samfélagsins
af opinberum eftirlitsreglum. Ef
litið sé til árlegrar athugunar sem
gerð er í Bandaríkjunum og hún
yfirfærð yfir á Ísland, megi ætla
að ábatinn af opinberu eftirliti sé
verulega hærri en kostnaðurinn.
Í niðurstöðum sínum segir Þóra
að yfirvöldum beri að tryggja
ákveðna félagslega og efnahags-
lega hagsmuni með opinberum eft-
irlitsreglum þar sem ábati af þeim
sé yfirleitt meiri en kostnaðurinn
fyrir samfélagið í heild sinni. Hins
vegar sé brýnt að reynt sé að ná
markmiðum fram með sem skil-
virkustum hætti.
Kostnaður vegna opinberra eftirlitsreglna allt að 12 milljarðar á ári
Mikilvægt að samhæfa
og einfalda eftirlitið
Kostnaður/28
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti í gær-
kvöldi mann um borð í þýskan togara sem
staddur var 270 sjómílur suðvestur af land-
inu á karfaslóð.
Maðurinn hafði fengið hjartaáfall og var
hann fluttur á sjúkrahús þegar í land var
komið. Læknir var um borð í þyrlunni og
fylgdi henni Fokker-vél gæslunnar.
Sjúklingur
sóttur á haf út
♦♦♦