Pressan - 02.09.1988, Qupperneq 7
Föstudagur 2. september 1988
7
I'
PRESSU
MOL&R
'g meira um ASÍ-þing. Tals-
verðar líkur eru taldar á að skipt
verði um varaforseta á þinginu í
haust. Guðríður Elíasdóttir þykir
litlaus í varaforsetaembætti en
fæstir telja þó að hún verði sett út
gegn vilja sínum. Þrjú nöfn eru
engu að síður nefnd sem hugsanleg-
ir eftirmenn Guðriðar: Karl Steinar
Guðnason, Karvel Pálmason og
Pétur Sigurðsson, formaður Al-
þýðusambands Vestfjarða. Einnig
er talið hugsanlegt að Björn Þór-
hallsson víki í haust og muni sjálf-
stæðismenn þá skáka Magnúsi L.
Sveinssyni fram í staðinn. Þetta
pólitíska lotterí í forystunni getur
þó oltið um sjálft sig, þar sem mikl-
ar breytingar hafa orðið í pólitísku
baklandi hreyfingarinnar. Eru
stjórnarkosningarnar í Iðju 1986
þegar Bjarna Jakobssyni (Sjálf-
stæðisflokki) var óvænt velt úr stóli
fyrir Guðmund Þ. Jónsson (Al-
þýðubandalagi) taldar sýna þetta.
Þar þótti koma í ljós að grasrótin í
hreyfingunni tæki ekki lengur við
pólitískum línum af toppnum og er
hún því til alls líkleg á ASÍ-þingi í
nóvember...
þ
|— órhallur Ásgeirsson, ráðu-
neytisstjóri í viðskiptaráðuneytinu,
hefur fengið lausn frá embætti.
Þórhallur verður sjötugur í janúar
næstkomandi og mun hætta störf-
um í febrúar. Þegar er farið að ræða
um eftirmann Þórhalls og er Björn
Friðfinnsson, aðstoðarmaður
dómsmálaráðherra, sterklega
nefndur í stólinn. Áður en Björn
fór að aðstoða Jón Sigurðsson í
dómsmálunum var hann fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar og for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga. Hann þykir sem sagt vel
hagvanur í kerfinu...
' itt stærsta útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtæki Vestfjarða, Einar
Guðfinnsson hf. á Bolungarvík,
hefur átt í miklum rekstrarerfið-
leikum að undanförnu líkt og fjöl-
mörg önnur íslensk fyrirtæki. En
eitthvað mun leikurinn vera að
harðna, því nýlega fréttum við að
Flugleiðir, sem átt hafa ógreidda
reikninga hjá útgerðarfyrirtækinu,
væru orðnar þreyttar á að bíða eftir
greiðslum og hefðu samþykkt að
gefa iögfræðingum sínum grænt
ljós á að ganga að útgerðarfyrir-
tækinu með greiðslur. Og nú munu
menn fyrir vestan óttast að annar
lánardrottinn sigli í kjölfar Flu,g-
leiða, nefnilega Eimskipafélag ís-
lands ...
Irni Johnsen, varaþingmað-
ur, trúbadúr og blaðamaður, hefur
Bílaþrenna
Vertu viðbúinn! Ný bílaþrenna er aö
koma á markaðinn alveg á næstunm.
Stórkostlegir vinningsmöguleikar og
nú kostar miðinn aðeins 50 krónur.
Heildarverðmæti vinninga er
24.125.000kr. 50 Lancia skutlur,
250 geislaspilarar og
500 myndavélar. ■
EFTIRVÆNTING • GLEÐI • SPENNA
Bílaþrcnna
ir.
Mggisi
STYRKTARFÉ LAG
ekki setið auðum höndum síðan
hann laut í lægra haldi fyrir Eggerti
Haukdal í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi fyrir síðustu
alþingiskosningar. Árni þykir jafn-
vel farinn að þrengja að Þorsteini
Pálssyni, formanni flokksins, með
vasklegri framgöngu sinni í kjör-
dæminu. Síðastliðinn vetur stóð
hann fyrir 26 fundum vítt og breitt
um kjördæmið og lengi verður í
minnum haft þegar hann bjargaði
ungmennafélaginu, HSK, með tón-
leikahaldi undir berum himni í
Kerinu. HSK hafði tapað stórfé á
útihátíð um verslunarmannahelgi,
en tónleikarnir í Kerinu skiluðu
héraðssambandinu 1,5 milljónum
króna. Héraðssambandið Skarp-
héðinn (HSK) hefur verið eitt helsta
vígi Framsóknar á Suðurlandi, en
talið er að ýmsir vilji gjarnan launa
Árna björgunarafrekið með því að
gefa honum atkvæði í prófkjöri hjá
Sjálfstæðisflokknum. Það þykir
því ekkert sjálfgefið að þeir Þor-
steinn Pálsson og Eggert Haukdal
setjist fyrir ofan Árna fyrir næstu
kosningar...
L
■ ■álfatvinnumennska þykir
varla lengur feimnismál innan
íþróttahreyfingarinnar. Lengst af
hafa launagreiðslur til leikmanna
eingöngu tíðkast hjá stóru félögun-
um á Reykjavíkursvæðinu, en færst
hefur í vöxt að minni félög á lands-
byggðinni nái til sín leikmönnum
með girnilegum tilboðum. Þannig
virðist t.d. körfuknattleiksdeild
Tindastóls á Sauðárkróki ætla að
takast að höggva skarð í raðir
Njarðvíkinga því Valur lngi-
mundarson, kóngurinn í Njarðvík,
ku vera á leið norður ásamt tveimur
eða þremur félögum sínum úr
Njarðvíkurliðinu. Tindastóll vann
það afrek á síðasta keppnistímabili
að vinna sig upp í úrvalsdeildina.
Félagið virðist reiðubúið að leggja
allt í sölurnar til að halda sér uppi...
A
ftir því sem menn verða
opinskárri um launagreiðslurnar
hjá íþróttafélögunum má búast við
áð skattyfirvöld verði áhugasamari
um að félögin standi skil á tekju-
skatti. Fyrstudeildarfélögin í fót-
bolta eru sögð borga allt að 2,5
milljónum fyrir toppþjálfara. Yfir-
leitt eru greiðslurnar fyrir sjö mán-
aða tímabil. Þetta þykja því dágóð
mánaðarlaun og mörg dagsverkin í
sjálfboðavinnu við að afia tekna
fyrir þeim. Innan íþróttafélaganna
sjálfra eru menn því farnir að tala
um að ekki sé eðlilegt að hlífa þess-
um hátekjumönnum við greiðslum
opinberra gjalda...
Í^orystumenn Sambandsins eru
enn sagðir ráðþrota vegna erfið-
leika í rekstri verslunardeildar.
Mjög mæðir á Ólafi Friðrikssyni
framkvæmdastjóra að finna leið út
úr vandanum, sem þó er ekki
áhlaupaverk eftir gífurlegan tap-
rekstur á síðasta ári og tap það sem
af er árinu. Hefur því pressan á að
fundin verði viðunandi lausn aukist
mjög. Ekki síst vegna erfiðleikanna
hjá kaupfélögunum, en þar hugsa
margir til þess með hryllingi ef farið
verður að tillögum sem fram komu
fyrir síðasta aðalfund SÍS, um að
kaupfélögin verði jafnvel skyldug
til að auka viðskipti sín við deild-
ina. Nýjasta ráðstöfun forystu-
manna SÍS þykir því hálfbrosleg frá
sjónarhóli þeirra. Hún felst í því að
Erling Aspelund, ein dyggasta stoð
Guðjóns Ölafssonar forstjóra, hef-
ur tekið að sér yfirumsjón með
starfsmannaþjálfun hjá verslunar-
deildinni...