Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 19

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 19
Föstudagur 2. september 1988 19 1| ngliðahreyfingar stjórn- málaflokkanna funda stíft þessa dagana og hefur myndast sam- keppni þeirra á milli um að hafa dagskrána sem frumlegasta. Sam- band ungra framsóknarmanna heldur þing sitt á Laugarvatni um þessa helgi og brá á það ráð að bjóða fyrrum leiðtoga þýskra græn- ingja, Petru nokkurri Kelly, á þing- ið til að hressa upp á mannskapinn. En nú hyggjast ungkratar bæta um betur. Samband ungra jafnaðar- manna heldur 39. þing sitt í Kefla- vík dagana 17.—18. september nk. og hefur nú lagt snörur fyrir þá al- ræmdu ítölsku þingkonu Ciccio- linu i því skyni að bjóða henni á þingið. Cicciolina varð heimsfræg fyrir að bjóða sig fram og boða ást- arleiki í stað hernaðar og átaka og hefur verið fús til að fletta sig klæð- um á torgum og hefur oftsinnis ver- ið fjarlægð fyrir ósiðsamlega hegð- an á almannafæri. Það er víst að ítalska þingkonan léttlynda myndi draga fleiri en ungkrata til Keflavík- ur ef bragð þeirra heppnast.... y J msa hefur fýst mjög að bregða sér til Viðeyjar, skoða breyt- ingarnar á Viðeyjarstofu og kirkj- unni og fá sér kaffi og með því í veitingastofunni. Flestum hefur þó brugðið illilega í brún þegar reikn- ingarnir fyrir veitingarnar eru lagð- ir á borðið. Kaffibolli með þunnri púðursykurstertusneið kostar rúm- lega 700 krónur og ein lítil eplakaka með kúluskafís tæplega 500 krón- ur. Farið yfir er hins vegar ódýrara en eplakakan eða 300 krónur. Sam- anlagt er þó skreppið um þúsund- kall. Það er að segja ef maður lítur inn í veitingastofuna í Viðeyjar- stofu... Ítalandi um ungkrata: Erlingur Kristensen, formaður SUJ, mun ekki gefa kost á sér aftur. Heitustu nöfnin í formannsstólinn munu vera Kristján Þorvaldsson, frétta- stjóri Alþýðublaðsins, Elín Alma Arthúrsdóttir, viðskiptafræðingur og einn frambjóðenda krata í Suð- urlandskjördæmi við síðustu al- þingiskosningar, Tryggvi Arthúrs- son, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Vilhjálmur Þorsteinsson, tölvu- fræðingur og framkvæmdastjóri... b andaríkjamönnum er mikið í mun að halda sem bestum tengsl- um við íslendinga. Ekki síst á menningarsviðinu. Starf forstjóra Menningarstofnunar Bandaríkj- anna á Islandi er því vel feitt emb- S Viðútvegumþériðnaðarmenn,. til allra verka og sérhæföa viðgerðarmenn á öllum svlðum. s Gula línan erekki „bllskúrsfyrir- tæki“. Hjá Gulu línunni vinna reyndir fagmenn sem veita þér persónulega þjónustu um allt milll himins og jarðar. Varahlutir, viðgerðir, sæta- áklæði, ökukennarar, umboð ■ allt fyrir bílinn, S Sólstofuivnéllur, nuddpottar, arkitektar, umboðsaðilar. S Ritvélar, tölvur, diskettur, húsgögn, þýðingar, bókhalds-' þjónusta... S Gluggar, gler, gluggatjöld, þjófavarnarkerfj^glyggaþvottur, allt áskrá hjáGulultnpnni. rðyrkgimenn, landslagsarki- tekttfr, gróður, ábtgður, bilaplðn, ' . hltalagnir, snjómokstur, hleðslu- menn, vinnuvélar, leiktæki, garðhúsgögn; allt fyrix-.garðinn og umhverfið. ;=--’'ötilýsing, innilýsing, raflagnir 'og rafmagnsviðgerðir. Við . útvegum vana menn á stundinni. '3-i‘éppi, dúkar, stólar og borð, - ' ískápar, eldavélar. Vörur og þjónusta með einu símtali Hvað er Gula línan? Gula línan er upplýsingabanki um þjónustu, vörur og umboð, Dæmin hér að ofan eru aðeins brotabrot af því sem við bjóðum upp á. Hvernig notar þú Gulu línuna? Þú hringir bara í síma 62 33 88 og við gefum þér án tafar traustar upplýsingar um hverjir geti veitt þér þá þjónustu sem þú þarft á að halda, hvar þú fáir þær vörur sem þig vanhagar um og hverjir hafi umboð fyrir. tiltekna vöru, vöru- flokk eða vörumerki. Hverjir eru á skrá hjá Gulu línunni? Upplýsingabrunnur Gulu línunnar er nánast óþrjótandi. Uppflettiorðin á skránni okkar eru nú 7665 talsins og þeim fjölgar stöðugt. Þar á meðal eru hundruðir vöruflokka, einstaklinga, fyrirtækja og þjónustuaðila sem bíða eftir því að greiða götu þína hratt og örugglega, vinna fyrir þig stór og smá verkefni af öllum toga og selja þér eða leigja þá hluti sem þörfin kallar á hverju sinni. Tímasparnaður - nútímaleg þjónusta - hlýleg afgreiðsla Þú átt vitaskuld um fleiri leiðir að velja en Gulu línuna til að afla upplýsinga. Þú getur flett símaskránni, leitað í auglýsingum, ráðfært þig við kunningjana o. s. frv. En Gula línan gefur þér svarið strax; eitt símtal og vandinn er leyst- ur. Þú notfærir þér háþróaða tölvutækni nútím- ans en færð samt hlýleg og persónulega þjón- ustu. Hjá Gulu línunni vinnur nefnilega vinur- inn þinn sem veit allt. Traust fyrirtæki - fagþekking - gæðaeftirlit Gula linan ér rekin af Miðlun hf., traustu fyrirtæki sem hefur margra ára reynslu af upp- lýsingaöflun og upplýsingavinnslu. Bakhjarlinn er því traustur, starfsmennirnir vanir og vinnan vönduð. Við höldum t. d. uppi ströngu gæða- eftirliti með öllum þeim þjónustuaðilum sem við beinum viðskiptum til. Þeir sem ekki standa sig eru afskráðir. Ókeypis þjónusta Þjónusta Gulu línunnar kostar þig ekki neitt. Þú bara hringir í síma 62 33 88 og við afgreiðum málið. Einfaldara og þægilegra getur það ekki verið. Opnunartími Gula línan er opin virka daga frá kl. 8 til 20 og laugardaga kl. 10-16. Geymdu símanúmerið á góðum stað Við ráðleggjum þér að klippa út þennan gula miða og varðveita hann á öruggum stað þar sem auðvelt er að grípa til hans. T. d. í dagbókinni, á skrifborðinu eða við símtólið. Það gæti enn frekar sparað þér tíma. X--- 62 33 88 -X GULA LÍNAN GEFUR ÞÉR RÉTT SVAR, ÓKEYPIS 0G ÁN TAFAR ætti, ekki síður en staða sendiherra. Hugh Ivory, sá sem gegnt hefur for- stjóraembættinu síðustu ár, hefur nú hins vegar Iátið af störfum hér á landi og snúið aftur til heimahag- anna. Nýi forstjórinn er þegar kom- inn til Iandsins. Hann heitir Willi- am Crowell og starfaði síðast við menningartengsl í Kína. Crowell þessi er sagður tala reiprennandi kínversku og leggur sig nú í líma við að tala íslensku. Starfsmenn menn- ingarstofnunarinnar líta nú björt- um augum til þess að tengslin eflist enn við „íslenskumælandi" for- stjóra stofnunarinnar... jög bagalegt ástand hefur skapast í húsnæðismálum háskól- ans og er svo komið að ekki fæst skrifstofuaðstaða fyrir fasta há- skólakennara. Nú munu vera um 40 fastir háskólakennarar á biðlista við háskólann sem sækjast eftir ein- hverri vinnuaðstöðu. Þar á meðal eru nokkrir lektorar og dósentar. Hefur háskólinn gripið til þess ráðs að borga kennurum sínum sérstak- lega fyrir að sjá sjálfir um að útvega sér skrifstofuaðstöðu úti í bæ eða fyrir að færa öll verkefni með sér heim og sinna rannsóknum þar... b»,- „ ari og listamaður, opnar sýningu í Mílanó4. september næstkomandi. Björgvin sýnir ljósmyndir unnar nteð svokallaðri gumbichromat-að- ferð, sem gefur myndum hans sér- stakt yfirbragð. Sýningin í Mílanó mun vera hluti af listamannaskipt- um sem Friðrik Brekkan, formaður Ítalíufélagsins, stendur fyrir. Fyrir milligöngu Friðriks hafa nokkrir ítalskir listamenn sýnt hér á landi og er von til að einkaframtak hans eigi eftir að skila sér i enn frekari samskiptum milli landanna á menningarsviðinu... arson stjórnmálafræðingur hafi orðið undir þegar ráðherra skipaði Hannes Hólmstein Gissurarson í stöðu Iektors við félagsvísindadeild er hann þó ekki aldeilis á förum úr deildinni. Fyrir nokkru ákvað deildarfundur að ráða Ólaf í stöðu aðjúnkts i stjórnmálafræði og hef- ur háskólaráð lagt blessun sína yfir ráðninguna. Ekki er þó talið víst að Ólafur kæri sig um að gegna aðjúnktsstöðunni til langframa þar sem hún er heldur illa launuð, en nemendur munu þó njóta óbreyttr- ar kennslu Ólafs því deildin hefur samþykkt að hann kenni öll þau námskeið sem hann hefur haft við deildina á undanförnum árum. Hannes Hólmsteinn mun hins veg- ar ekki kenna nein skyldunámskeið við deildina í vetur. Sumsé óbreytt ástand í stjórnmálafræðinni þrátt fyrir ráðningu Hannesar... H^Éeira af Hannesi Hólm- steini: Eftir að félagsvísindadeild ákvað að Hannes ætti ekki að kenna nein skyldunámskeið í vetur, þar sem hann væri óhæfur til þess að mati dómnefndar, kom sá möguleiki upp að hann kenndi val- fög við deildina. Samkvæmt nýj- ustu fregnum úr háskólanum hafa engir nemendur skráð sig á þau námskeið. Námsnefnd í félagsfræði samþykkti hins vegar að Hannes gæti kennt á almennu námskeiði deildarinnar, sem fjallar um heim- speki félagsvísinda. Er þó talið að mótmæli komi fram í deildarráði með tilvísun til þess að Hannes var dæmdur óhæfur til að kenna þekk- ingarfræði þegar hann sótti um stöðu við heimspekideild árið 1986. Þykir því næsta víst að Hannes muni ekki annast neina kennslu í vetur og þar sem ekki hefur fengist skrifstofuaðstaða handa Hannesi í deildinni fer líkast til lítið fyrir nýja stjórnmálafræðilektornum innan háskólans næsta árið...

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.