Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 31

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 31
Sjónvarpið — Föstudag kl. 22.00 ATLANTIC CITY ððPt r Stöð 2 — Sunnudag kl. 21.30 ATLANTIC CITY ★ ★ ★ ★ Kanadísk/frönsk 1980. Leikstjóri: Luis Malle. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Susan Sarandon, Kate Reid, Michael Piccoli og fl. Snilldarverk franska leikstjórans Malle um borg fjárhættuspilanna, Atlantic City, og breytingaskeið hennar þar sem gamlir staðnaðir refir blandast nýjum bjartsýnum aðkomumönnum. Kvikmynd sem er full af stórkostlegum mannlýs- ingum og undarleg blanda evr- ópskrar og amerískrar kvikmynda- gerðar. Lancaster, í besta hlutverki kvikmyndaferils síns, leikur aldrað- an töffara sem er heigull innst inni. Stöð 2 — Laugardag kl. 21.40 HRAÐLEST VON RYANS ★ ★ ★ (Von Ryans Express) Bandarísk 1965. Leikstjóri: Mark Robson. Aðalhlutverk: Frank Sinatra, Trevor Howard, Sergio Fantoni, Edward Mulhare, Raffa- ella Carra, Brad Dexter og fl. Spennandi og vel gerð mynd úr síðari heimsstyrjöldinni. Banda- rískur ofursti (Sinatra) lendir í her- búðum á Ítalíu. Hann stjórnar flóttatilraun með því að ná flutn- ingalest á vald fanganna. Úrvals- leikarar í aukahlutverkum. BRÆÐUR MUNU BERJAST ★ ★ ★ (House of Strangers) Bandarísk 1949. Leikstjórn: Joseph L. Mankiewicz. Aðalhlutverk: Edward G. Robinson, Susan Hay- ward, Richard Conte, Luther Adler. Spennuhlaðið drama um mis- kunnarlausan fésýslumann (Robin- son) sem notfærir sér syni sína fjóra til að ná markmiðum sínum. Ein- stakur söguþráður sem síðar var oftsinnis notaður í kvikmyndum með misjöfnum árangri. Með betri kvikmyndum hins fjölhæfa leik- stjóra Mankiewicz. (M.a. The Quiet American, Suddenly Last Summer og Cleopatra.) Wh-o RtCHRRD VtnDMRf „Ég hef aldrei þurft að labba um sviðið í 7 mínúfur og gera ekki neitt,“ segir Bjarni Dagur Jonsson. I sumarskapi í Sjallanum HREINRÆKTAÐUR NORÐANÞÁTTUR er eiginlega allt saman norðanfólk sem stendur að þættinum. Ég og Saga erum bæði Norðlendingar og Gunnlaugur Jónasson dagskrár- gerðarmaður er frá Siglufirði, einn- ig er allt tækniliðið frá Akureyri." — Hafa komið upp einhver neyðarleg atvik í sumar í beinni út- sendingu? „Nei, við höfum verið svo rosa- lega heppin, að þetta tæknilið á Stöð 2 og frá Samverki á Akureyri er alveg einvalalið, og ekki síst mjög góð stjórn Gunnlaugs Jónassonar hefur gert það að verkum að þetta hefur gengið hnökralaust. Að vísu komu fyrir smálitamistök í fyrstu útsendingunni sem ég var í, þannig að við þurftum að byrja upp á nýtt, en það voru smávægileg mistök. Dagskrárlega séð hafa engin mistök orðið. Ég hef aldrei þurft að labba um sviðið í 7 mínútur og gera ekki neitt.“ — Þú ert þá ánægður með sum- arið? „Ég er ánægður með sumarið, en þetta hefur verið alveg ofboðslega mikil vinna, miklu meiri vinna en fólk getur ímyndað sér,“ segir Bjarni Dagur í sumarskapi. Sjónvarpið — Laugardag kl. 23.00 MADIGAN ★ ★ ★ Bandarísk 1968. Leikstjóri: Donald Siegel. Aðalhlutverk: Richard Wid- mark, Henry Fonda, Harry Guard- ino, Inger Stevens, James Whit- more og fl. Vel gerð og raunsæ löggumynd um dagleg vandamál Madigans lög- regluforingja (Widmark) sem ýmist eltist við glæpamenn, á í stríði við grjótharðan yfirmann sinn (Fonda) eða eiginkonu sína (Stevens) — allt með misjöfnum árangri. Myndin er tekin í New York með úrvalsleikur- um og hefur yfir sér skemmtilegan blæ sjöunda áratugarins þegar spæjararnir voru í dökkum að- skornum jakkafötum með litla hatta og lakkrísbindi. Þátturinn I sumarskapi verður á dagskrá Stöðvar 2 föstudagskvöld- ið 2. september. Hann verður að þessu sinni sendur út frá Sjallanum á Akureyri og verða skemmtikraft- ar allir norðanmenn. Stjórnendur þáttarins verða samkvæmt venju þau Saga Jónsdóttir og Bjarni Dag- ur Jónsson. Pressan hafði samband við Bjarna Dag og spurði hvort hann ætlaði að vera miklu lengur í sum- arskapi? „Það eru tveir þættir eftir. Það er þátturinn á Akureyri, sem sendur verður út frá Sjallanum, og síðan er það lokaþátturinn, sem verður 9. september og verður hlaðinn spenn- andi söngatriðum og gríni, nokkurs konar uppskera sumarsins. Hann verður á Hótel íslandi og ég býst við að það verði jafnvel lengri þáttur en hinir.“ — Hverjir koma fram í þættin- um frá Akureyri? „Það verða eingöngu norðlensk atriði sem koma fram í Akureyrar- þættinum. Það verða t.d. Skrið- jöklarnir, Herramenn frá Sauðár- króki og ýmsir söngvarar og grínar- ar. Það er svo einkennilegt, að það LÍF OG STARF NATALIE WOOD Sunnudaginn 4. september verð- ur á dagskrá Ríkissjónvarpsins heimildamynd um Hollywood-leik- konuna Natalie Wood, sem lést á dularfullan hátt fyrir nokkrum ár- um. Þýðandi myndarinnar, Kristrún Þórðardóttir, sagði í samtali við Pressuna að í henni væri fjallað um leikferil Natalie Wood frá barn- æsku. Rætt væri við ýmsa þá er þekktu hana, leikara og eiginmenn, auk þess sem sýndir verða kaflar úr viðtölum við hana sjálfa. Myndinni lýkur á dauða Ieikkon- unnar, en hún féll fyrir borð á skútu sinni, að því er talið er. Var hún þá á siglingu með eiginmanni sínum, leikaranum Robert Wagner, og meðleikara úr síðustu mynd sinni Brainstorm, Christopher Walken. Þótti ýmislegt óljóst við þann dauðdaga. Stöð 2 — Föstudag kl. 21.50 MAÐURINN ÍGRÁU FÖTUNUM ★ ★ ★ (The Man in the Gray Flannel Suit) Bandarísk 1956. Leikstjóri: Nunnally Johnson. Aðalhlutverk: Gregory Peck, Frederich March,' Jennifer Jones, Lee J. Cobb, Ann Harding og fl. Ritara (Gregory Peck) hjá stóru fjölmiðlafyrirtæki i New York býðst starfsframi en hann verður samtímis að Iáta fjölskyldulíf sitt ganga upp. Góð mynd með af- bragðs leikurum með ádeilubroddi á ameríska drauminn, gerð eftir metsölubók Sloans Wilson.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.