Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 26

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 26
26 Föstudagur 2. september 1988 HrflHHHBMBÉMHHHIHI Fjölbreytt úrval af sófasettum og hornsófum Nýjar gerðir, nýir litir. Áklœði eða leður. Ath. við getum útvegað flesta horn-sófa f þeirri stœrð sem óskað er. Lítið inn hjá okkur það borgar sig B orgarhúsgögn v/Grensásveg opið laugardaga kl. s. 686070-689549 r 3 3 10-4 STRESSAÐIR sælkerar takið eftir! Þau tíðindi berast frá þeirri merku menntastofnun, Yale-há- skóla, að á álagstímum sé betra að narta í eftirlætisábætinn sinn en taka róandi lyf. Þessu hafa menn- irnir komist að eftir viðamiklar rannsóknir, en við íslendingar höf- um auðvitað vitað þetta lengi. Það er engin tilviljun, þegar fólk hleyp- ur út í sjoppu eftir kóki og prins- póló (eða frændum þeirra), þegar allt er á suðupunkti. AMERÍSKAR auglýsingar eru kapítuli út af fyrir sig. „Tökum dæmi,“ eins og maðurinn sagði: Heilsíðu-auglýsing frá póstfyrir- tæki, sem selur alls kyns „töfraíyf". Þeir bjóða upp á „orkugjafa“ í mörgum styrkleikum, sem m.a. eiga að tryggja mikið úthald, hvort sem er í gráum hversdagsleikanum eða þegar mála á bæinn rauðan. Sjálft lyfið getur líka verið með ýmsu móti. Fjólubláir belgir, bleikar hjartalaga pillur, grænir belgir, blá- ar pillur, doppóttar pillur, ílangar pillur og kringlóttar pillur. Fullyrt er í auglýsingunni að þeir sem taki lyfið „líti alltaf vel út og verði í full- komnu líkamlegu og andlegu ástandi". Það er auðvitað ekki amalegt, en hvaða töframeðal skyldi þetta eiginlega vera? Jú, með litlum stöfum stendur að innihald hylkjanna sé koffín, þ.e. sama efni og við fáum úr kaffi og tei! í sömu auglýsingunni eru líka kynntar pillur, sem gera fólk „sól- brúnt“. Sérstaklega er tekið fram að neytendur verði ekki appelsínugul- ir, eins og af alræmdu lyfi einhvers annars fyrirtækis. Einnig er boðið upp á litla, ljósbrúna svefntöflu og tvö mismunandi lyf, sem „tryggja þér þann íturvaxna kropp, sem þig hefur alltaf dreymt um“. Síðast en ekki síst er það svo draumur drykkjumannsins: pilla við timbur- mönnum. Og hún er sögð virka á innan við tuttugu mínútum — hvorki meira né minna. Hins vegar treystir fyrirtækið sér eingöngu til að gefa upp samsetningu lyfsins, ef menn skrifa sérstaklega og biðja um þær upplýsingar. KONUR eru í miklum vítahring í baráttunni fyrir hærri launum. Lágar tekjur þeirra í einu starfi hafa nefnilega áhrif á það hve háa upp- hæð næsti vinnuveitandi er tilbúinn að greiða þeim. Svo segir spreng- lærður sálfræðingur við Baltimore- háskóla og þó þetta komi konum kannski ekki svo mjög á óvart er ekkert verra að fá þessi sannindi framreidd á vísindalegan hátt. Sálfræðingurinn fyllti út fjöld- ann allan af starfsumsóknum, bæði í nafni karla og kvenna, og lét þar m.a. getið um menntun, starfs- reynslu og núverandi laun viðkom- andi aðila. Umsóknirnar fékk hann síðan 80 viðskiptafræðinemum og lét þá segja sér hvað þeim þætti sanngjarnt að borga „fólkinu“ í byrjunarlaun. Og hvað kom í ljós? Þeir, sem voru með léleg laun fyrir, fengu áfram mun lægri laun en hin- ir — þótt þeir væru með nákvæm- lega sömu menntun og starfs- reynslu! Sem sagt: Einu sinni lág- launakona alltaf láglaunakona. Endum okkar vinsælu SUMARÚTSÖLU á Laugavegi 91, (áður Domus) Sérstaklega hagstætt verð. ^HBBHIISHEBHk Opíð 13—18, laugardag 10—14. Lauga»egi91,(áAurDomus).

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.