Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 9
<*f p ;
_a
i
9
33Gr toameiqee .£ uipabjtaöl
Föstudagur 2. september 1988
w v» % tv .v .-wi ! r
Islenskir aðalverktakar
íslenskir aðalverktakar sf. hafa verið umluktir þagn-
arhjúpi allt frá stofnun fyrirtækisins. Engu að síður eru
aðalverktakar að verða eitt stærsta fyrirtæki landsins.
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa slegið
skjaldborg um einokunarframkvæmdir fyrirtækisins á
Keflavíkurflugvelli; gullkistu sem tryggir aðstandendum
aðalverktaka svimandi hagnað og einstökum hluthöf-
um stjarnfræðilegan arð fyrir litla fyrirhöfn.
Dæmi: Tekjur aðalverktaka voru 2 milljarðar og 750
milljónir í fyrra. Eigið fé fyrirtækisins er 2 milljarðar og
813 milljónir kr. Innstæður aðalverktaka á bankareikn-
ingum og sparisjóðum eru 3 milljarðar og 523 milljónir
kr. Vextirnir einir af þessum inneignum eru 1 milljón
króna á dag!
í þessari grein rekur Pressan feril aðalverktaka —
hverjir eiga fyrirtækið og peningana, hvernig dollara-
gróðinn streymir um íslenskt þjóðfélag og tryggir ein-
stökum hluthöfum völd og pólitísk ítök. Og hvernig kol-
krabbinn berst um á hæl og hnakka við að halda öllum
ítökum sínum.
Ekkert bendir til þess að starf
„verktökunefndar" utanríkisráð-
herra muni á nokkurn hátt leiða til
afnáms einokunar íslenskra aðal-
verktaka (ÍA) á framkvæmdum fyr-
ir varnarliðið. Steingrímur Her-
mannsson utanríkisráðherra hefur
ótvírætt látið í ljós það mat sitt, að
óbreytt ástand sé besti kosturinn, en
hefur bent á að möguleiki sé að ÍA
verði breytt í almenningshlutafélag
eða að ÍA feli fleiri aðilum en nú
undirverktöku. í fyrrnefndu hug-
myndinni er gert ráð fyrir að núver-
andi eigendur sitji enn í fyrirrúmi
og að nýir aðilar geti einungis eign-
ast mjög takmarkaðan hlut í IA.
Allt bendir því til þess að fram-
kvæmdir á Keflavíkurflugvelli verði
enn um árabil í höndum ríkisins,
SÍS og Reykjavíkuraðalsins í Sam-
einuðum verktökum.
VAXTATEKJURNAR
MILLJÓN Á DAG!
íslenskir aðalverktakar eru á
góðri leið með að verða eitthvert
allra stærsta fyrirtæki landsins.
Árið 1986 var fyrirtækið, eftir stór-
sókn, orðið 19. stærsta fyrirtæki
landsins eftir veltil að dæma.
Tekjur ÍA af verktakastarfseminni
voru í fyrra um 2.750 milljónir
króna og fjármagnstekjur námu
365 milljónum — eða 1 milljón upp
á hvern einasta dag. Hagnaður fyr-
irtækisins er ævintýralegur; var
rúmlega hálfur milljarður króna í
fyrra, eftir skatta. Hagnaður fyrir-
tækisins í fyrra var enda umtalsvert
hærri en árin á undan, þrjú ár þar
á undan var hann alls 420 milljónir
á verðlagi hvers árs. í skýrslu „verk-
tökunefndar" eru aðeins taldar upp
eignir sem tengjast beint verktaka-
starfseminni, upp á 1,5 milljarða
króna, en vitað er að ÍA á eignir
sem ekki tengjast beint starfsem-
inni, t.d. Flughótelið í Keflavík og
Höfðabakkahöllina. Eigið fé þessa
risa nam í árslok 1987 alls 2.813
milljónum króna og hljóðuðu inn-
stæður í bönkum ásamt viðskipta-
kröfum og spariskírteinum alls upp
á 3.523 milljónir króna.
Verktakasamband íslands og ein-
stakir verktakar á Suðurnesjum
hafa knúið mjög á um að komast í
þá gullkistu sem framkvæmdir
fyrir varnarliðið eru. í gegnum árin
hafa Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur barist hart gegn því
að hróflað væri við núverandi
helmingaskiptakerfi. Eftir því sem
sjálfstæðir verktakar hafa eflst og
hagsmunatengsl Sjálfstæðisflokks-
ins í þeirri atvinnugrein orðið
flóknari hefur afstaða flokksins
verið að linast. Geir Hallgrímsson
varð ráðherra fyrstur til að hefja
opinberar umræður um breytt
kerfi, en Matthías Á. Mathiesen
stöðvaði þær. Þorsteinn Pálsson er
ötull talsmaður óbreytts ástands.
Hann mun aldrei taka til greina
minnkandi tök Regins hf./SÍS inn-
an ÍA og heldur ekki brotthvarf rík-
isins úr ÍA. Hann bendir því á Sam-
einaða verktaka, ef einhver á að
fórna ítökum sínum.
íslenskir aðalverktakar eru í eigu
Sameinaðra verktaka (SV), sem
eiga alls 46,27%, Regins hf./SÍS,
28,73%, og ríkisins, 25%. Þessi
„bróðurlega“ skipting hefur haldist
um áratugaskeið og ekkert hefur
hróflað við kerfinu. Aðeins Kefla-
víkurverktakar hf. hafa fengið hlut-
deild á Keflavíkurflugvelli — við-
haldsverkefni — og við stærri fram-
Höfuðstöðvar íslenskra aðajverktaka sf. á Höfðabakka 9: Kolkrabbi Sameinaðra verktaka (46,27%), Regins
hf./SÍS (28,73%), og rikisins (25%). Aðalverktakar hafa skilað sömu fyrirtækjum og einstökum hluthöfum
milljarðagróða gegnum árin; svimandi hagnaður sem byggist á einokunarframkvæmdum i þágu bandariska
varnarliðsins á Islandi.
Einokunin á Keflavíkurflugvelli hefur tryggt eignar-
aðilum aðalverktaka svimandi hagnað gegnum árin og
tryggt einstökum hluthöfum völd og aðstöðu
kvæmdir hafa IA leitað til undir-
verktaka. Milljarðarnir hafa runnið
til þessara sömu aðila öll árin. Nú
hefur verið upplýst að ÍA hafi
ákveðið að útdeila uppsöfnuðum
arði til eigenda sinna, alls 500
milljónum króna. Ríkið hefur þar
af fengið 125 milljónir, Reginn
hf./SÍS um 144 milljónir og Sam-
einaðir verktakar um 270 milljónir.
Hverjir eru nánar tiltekið þeir
heppnu, viðtakendur þessara
hundraða milljóna. Jón Baldvin
Hannibalsson tekur væntanlega
fegins hendi við hlut ríkisins í göt-
óttan ríkissjóð. Reginn hf. notar
sinn hlut vafalaust til að auka veg-
semd samvinnuhreyfingarinnar. En
hverjir eru Sameinaðir verktakar?
Samsafn iðnaðarmanna á Suður-
nesjum? Nei.
HVERJIR FÁ
MILLJÓNAARÐ?
Sameinaðir verktakar eru hluta-
félag yfir 140 aðila. Félagið var
stofnað 1951 en gert að hlutafélagi
1957 (annar fundarstjóra var Geir
Hallgrímsson og annar fundarrit-
ara var Indriði Pálsson, forstjóri
Skeljungs). Víst er að meðal stofn-
enda hlutafélagsins voru margir
iðnaðarmenn og þeir eru þar margir
enn. Stærsti hluthafinn nú er hins
vegar Reginn hf. með 7,46%, aðrir
stórir eru Félag vatnsvirkja (7%),
Brú hf. (4,48%), Stoð hf. (4,48%),
Goði hf. (4,48%), Þorkell Ingi-
bergsson byggingameistari og fjöl-
skylda (3,73%), Byggingamiðstöð-
in/Trésmiðja Borgarfjarðar (Hall-
dór H. Jónsson og fjölskylda)
(3,7%), Rafvirkjadeildin hf. (3,6%)
og Iðnsamtök hf. (2,98%). Brú hf.,
Stoð hf. og Goði hf. eru öll „sof-
andi byggingafélög, sem aðeins eru
til á pappírunum. Þar af var Brú
hf., fyrirtæki Þorbjörns Jóhannes-
sonar í Borg, úrskurðað gjaldþrota
1967. Sameinaðir verktakar eiga
rúm 2% sjálfir og forstjórinn, Thor
Ó. Thors, á 0,9%. Um 98% af
hlutafé SV eru í eigu fólks og fyrir-,
tækja á höfuðborgarsvæðinu, ein-
ungis um 2% eru af Suðurnesjum.
Hlutaféð hefur að litlu sem engu
leyti gengið til nýrra aðila öll þessi
ár. Þannig eru alls um 17% hluta-
fjár í höndum eiginkvenna/ekkna
stofnenda og um 6% í eigu óskiptra
dánarbúa.
Af þessari skiptingu er ljóst hvert
270 milljóna króna arður SV renn-
ur. T.d. fær Halldór H. Jónsson í
sínar hendur að minnsta kosti 10
milljónir króna, Thor Ó. Thors 2,4
milljónir, ekkjur og dánarbú
ýmissa stofnenda taka við alls um
62 milljónum króna og þannig
mætti lengi telja. Þetta er væntan-
lega væn búbót fyrir aðstandendur
SV, sem auk þess útdeilir arði á eig-
in vegum, alls um 24 milljónum
króna, i vor. í vor var hlutafé SV
hækkað úr 180 milljónum króna í
270 milljónir, sem verður að teljast
umtalsverð fjárhæð í Iokuðu eign-
arfélagi útvalinna fjölskyldna á
höfuðborgarsvæðinu, iðnaðar-
manna, ekkna og misjafnlega sof-
andi fyrirtækja.
Allar hugmyndir um mögulegar
breytingar, sem til greina þykja
koma, ganga út frá því að núver-
andi eigendur ÍA haldi lykilstöðu
sinni. Helst er talað um minnkandi
hlutdeild ríkisins, en þó er væn
þátttaka þess talin nauðsynleg.
Helst er að sjá að það eigi að lenda
í verkahring ekkna og dánarbúa að
missa sinn spón úr askinum!
HÖFÐARAKKAHÖLLIN
GREIDD Á BORÐIÐ!
Til marks um vaxandi veldi og
velgengni ÍA má nefna að i árslok
1982 nam eigið fé fyrirtækisins um
820 milljónum króna, miðað við
lánskjaravísitölu í árslok 1987, en
við þau tímamót var eigið fé ÍA
orðið 2.813 milljónir, hafði vaxið að
raunvirði um tæpa 2 milljarða eða
um 243%. Félagið er svo ríkt að það