Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 28

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 28
28 Föstudagur 2. september 1988 dagbókin hennar Kœra dagbók Égeralvegstjörl'af hræðslu! Get ekki borðað, er með króníska magapínu, glamrandi tennur og ís- kaldar hendur. Skólinn byrjar nefnilega í þessari viku. En ekki bara „skólinn“, eins og venjulega, heldur MENNTÓ! Mig fer sko að svima, þegar ég hugsa urn það. Þetta hefði þó kannski verið allt í lagi, ef ég hefði ekki sótt um i MR til að þóknast pabba og mömmu. Skólastjórinn (æ, hann er víst kallaður rektör) er sagður ógeðs- lega strangur og flestir kennararnir líka. Þeir eru svo hræddir við rekt- örinn og hann skipar þeim fyrir eins og herforingi. Síðan láta kennar- arnir þetta bitna á aumingja börn- unum, af því þeir þora aldrei að rífa kjaft við skólastjórann. Pabbi segir reyndar að þetta séu bölvaðar ýkj- ur, en það eru nú hundrað ár frá því hann var í MR svo livað ætli hann viti. Það var ekki einu sinni byrjað að pína krakkana til að hlaupa hringinn í kringum Tjörnina í leik- fimitímum, þegar hann var þarna! (Það segir pabbi vera af því að kroppatemjarar í gamla daga hafi unnið fyrir kaupinu sínu. Þessir ný- móðins kennarar sendi bekkina út að hlaupa í hvaða óveðri sem er, en fái sér sjálfir kal'fi og smók inni á kennarastofu.) Einhver sagði mér að maður væri alltaf látinn skrifa ritgerð um stjórnmálaástandið í fyrsta ís- lenskutímanum í MR, svo ég hef soldið verið að reyna að fylgjast með fréttunum. (Þó það sé leiðin- legra en að hreinsa ofninn í eldavél- inni fyrir mömmu — og þá er nú mikið sagt.) Ég skil nú ekki mikið í þessu, en mér fannst samt ferlega skrýtið að sjálfstæðiskallarnir skyldu alit i einu ekki geta andað nema spyrja verkalýðskallana hvort þeir mættu það. Hvenær urðu þeir eiginlega vinir? Ég hélt alltaf að það væru kommarnir, sem ættu verkalýðskallana. Það er alveg greinilegt að ég næ ekki upp í þetta... (Mamma sagði að „bossa- bandalagið" hefði sigrað í efna- hagsaðgerðunum. Kallarnir geri hvað sem er til að halda rössunum á sér í ráðherrastólunum. En maður getur ekki skrifað svoleiðis í ritgerð í elsta og virðulegasta skóla lands- ins!) Bless I bili, Diílla. siúkdómar og fólk Sagan af offitu Jóns S. EINSKONAR INNGANGUR Ég hef á liðnunt árum starfað sem læknir á mörgum stöðum, bæði hér heima og erlendis. Á læknastofum og kontórum koma upp margvísleg vandamál fólks, vandamál sem stundum eru stór- vægileg en oft ekki en valda samt miklum áhyggjum og erfiðleikum. Stundum vantar fólk ákveðnar upplýsingar og oft veldur fáfræði um eigin líkama því að smávægileg- ustu verkir geta valdið miklu hugar- angri. Ég ætla í þessum þáttum að fjalla lítillega um ýmis einkenni og kvart- anir sem oftsinnis skjóta upp koll- inum, ræða þau lítillega og spjalla um aðgerðir. Ef lesendur vilja fá einhverjar upplýsingar um einkenn- in sín, eða sjúkdóminn sinn, þá er auðvítað best að láta frá sér heyra, skrifa mér línu eða koma til mm boðum á annan hátt. OFFITA Við Jón S. höfðum verið saman í skóla í Gaggó Aust. Á þeim árum var Jón mikill leikfimimaður, hann stökk léttilega yfir hestinn þegar ég festist á honum miðjum. Hann sveif upp kaðlana ens og lipur apa- köttur en ég komst vart frá jörðu af ýmsum ástæðum. Ég öfundaði allt- al' Jón S., hann var svo lipur og lið- lega vaxinn. Svo liðu árin og ég missti sjónar á Jóni S., ég frétti af honum í bissness, að hann hefði kvænst og skilið og gengið i það heilaga aftur og sumir sögðu, að hann væri farinn að drekka of ntik- ið. Einhvern tímann sá ég mynd af Jóni þar sem hann var að afhenda einhverju líknarfélagi peningaupp- hæð í hópi nokkurra glaðlegra Lionsmanna. Mér fannst Jón breyttur á myndinni, hann var ekki lengur eins og áður, hann var tekinn að fitna rnjög verulega. Leiðir okkar lágu svo saman í einhverjum bankanum þar sem við vorum að greiða mikinn reikninga- fjölda og við vorum hvor í sinni bið- röðinni en hlið við hlið. Við heils- uðumst kumpánlega og virtum hvor annan fyrir okkur. Sannast sagna brá mér þegar ég nú leit Jón S. augunt eftir öll þessi ár. Hann hafði fitnað og það mikið að buxnastrengurinn virtist vera að springa og jakkinn sýndist vera tveimur númerum of lítill. Jón var sveittur í öngþveiti bankans, rauður í andliti og honum leið ekkert of vel. Þegar við höfðum blaðrað sntá- stund unt ekki neitt sagði hann: Heyrðu Óttar, ég verð að koma ein- hvern tímann og tala við þig, ég er ÓTTAR GUÐMUNDSSON orðinn alltof feitur. Komdu á morg- un, sagði ég, og Jón kom. Skoóun: Jón mældist 180 sm á hæð og þyngdin var 102 kg. Lækn- ar hafa stundum ákveðna þumal- fingurreglu þegar þyngd manna er metin. Líkamshæð mínus 105 er svokölluð kjörþyngd, og stefnt skal að því að fólk sé í kjörþyngd eða í hæsta lagi 10% yfir henni. Sam- kvæmt þessu ætti Jón S. að vera 75 kg að þyngd og mætti vera í hæsta lagi í kringum 85 kg. Jón er því að minnsta kosti 25 kg of þungur. Jón sagðist hafa byrjað að þyngjast upp úr tvítugu, hann fór þá að borða mikið og hreyfa sig minna, hætti í íþróttum og fór að drekka meira en góðu hófi gegndi. Við skoðun var Jón S. kominn með ýmsa þá kvilla sem rekja má til offitu, blóðþrýstingurinn var 160/ 102, fastandi blóðsykur var fullhár og hann varð móður við minnstu áreynslu. MEGRUNARKÚR? VÍRAR Á KJÁLKANA? Við komum okkur saman um að vandamál Jóns væri fyrst og fremst offitan. Hann yrði að ná sér niður í 85—90 kg í fyrstu lotu með ein- hverjum ráðunt. Ætti ég kannski að fara á einhvern megrunarkúr með gulrótasafa eða kálsúpu? spurði Jón, en ég sagði honum eins og var, að ég hefði enga trú á slíkum að- ferðum, ekki frekar en hann færi til einhvers læknis og léti víra saman á sér skoltana. Þú verður að breyta mörgu í þínu lífi, en aðalatriðið er að þú getir lifað með þeim breyting- um, sem þú gerir. Það nennir eng- inn að éta kálsúpu eða gulrótasafa nema stuttan tíma í einu og skolta- vírun dugir ekki nema þann tíma sem skoltarnir eru víraðir saman og enginn nennir að ganga um á Lions- fundum til langframa með skoltana víraða saman. Sérðu þig fyrir þér á kúttmagakvöldinu? Jón hló, nei hann gat ekki séð sjálfan sig fyrir sér með víraðan munninn til lang- t'rama eða étandi kálsúpu þegar all- ir aðrir væru að hárna í sig steik með bökuðum kartöflum. ÁÆTLUN Hvað á ég þá að gera? Við leggj- um upp einhverja áætlun fyrir þig, sagði ég. Þú verður að borða minna og brenna meiru. Ég geri á þér ein- falda rannsókn, mæli starfsemi skjaldkirtils og hvernig nýrun starfa og reyni að meta hvort þú mátt ekki reyna á þig. Síðan breytum við mat- aræðinu. Þú verður að borða meira á morgnana og fyrir klukkan 10 áttu að vera búinn að borða 1/3 alls þess sem þú kemur til með að snæða yfir daginn og fyrir klukkan 2 áttu að vera búinn með 2/3. Þeim ntun meira sem þú borðar á morgn- ana, þeim mun minna þarftu að láta í þig á kvöldin. Því sem þú borðar eftir klukkan 6 á kvöldin „ Við skoðun var Jón S. kominn með ýmsa þá kvilla sem rekja má til offitu, blóð- þrýstingurinn var 160/102, fastandi blóðsykur var full- hár og hann varð móður við minnstu áreyns/u“ TEIKNING JÓN ÓSKAR brennirðu ekki þar sem þú hreyfir þig lítið eftir það, svo þú hættir öllu kvöldáti. Hættu með allt sælgæti, liættu að setja sykur í kaffið, forð- astu fitu og rjómasósur. Passaðu þig vel um helgar þar sem þá er manni oft hætt við að éta alltof mikið og safna á sig. Ef þú verður svangur drekktu vatn og forðastu áfengi eins og þú getur. LÍKAMSRÆKT Svo verðurðu að fara að hreyfa þig og gera hreyfinguna að ein- hverju sem þú vilt ekki vera án. Byrjaðu á gönguferðum á hverjum degi í u.þ.b. hálftíma og farðu síðan að hlaupa eftir svona 2 mánuði og hlauptu þá 2,5-5 km ekki sjaldnar en annanhvorn dag. Byrjaðu með því að ganga og hlaupa til skiptis. Sund er ekki sérstaklega góð Iík- amsæfing þegar menn ætla að megra sig. Ef þú gerir þetta — breytir mat- aræðinu lítilsháttar en reynir fyrst og fremst að borða aldrei milli mála og ekkert á kvöldin og borðar meira á morgnana og fyrir klukkan 2 og minnkar áfengisneyslu og gerir lík- amsæfingar að góðri venju þá efast ég ekki um það, Jón minn, að þér tekst að léttast um u.þ.b. 15—20 kg á nokkrum vikum. Hann horfði á mig vantrúaður á svip. Ætlarðu sem ég sé ekki að reyna að koma mér á einhvern strangan megrunarkúr? Nei, megr- unarkúrar eru svo leiðinlegir og líf- ið á að vera skemmtilegt. Reyndu þetta og komdu til mín vikulega og við vigtunt þig og spjöllum sarnan um þetta. kvikmyndir BIOBORGIN Foxtrot * ★. íslenskur þriller gerð- ur af fagmennsku en vantar sál. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Bönnuð: 12 ára. Örvænting (Frantic) ★ ★★. Polanski-spennumynd í anda Hitchcocks og gerist í Parls. Slapp- ur endir. Sýnd 5 7, 9 og 11.10. Rambo III S S . Staljone gerir sig að flfli í Afganistan. Sýnd 7, 9 og 11. Beetlejuice ★★. Enn ein drauga- gamanmyndin. Sýnd 5. BÍÓHÖLLIN Góðan daginn Víetnam ★ ★ ★ Grát- fyndin mynd um útvarpsmann sem sendur er til Vletnam til að hressa upp á dátana með fyndnu Ijósvaka- efni. Vitlaus maður á vitlausum stað. Sýnd 4.30, 6.45, 9 og 11.10. Frantic. Sýnd 5 og 9. Skær Ijós stórborgar ★ ★. Sýnd 7, 9 og 11. í fullu fjöri ★★. Unglingagaman- mynd. Sýnd 7, 9 og 11. Rambo III. Sýnd 7, 10 og 11.10. Beetlejuice. Sýnd 5. Hættuförin (Shoot to Kill). Góö spennumynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Lögregluskólinn 5 ★★. Fimmta myndin í gamanmyndasyrpunni um lögguskólaliðið. Sýnd 5. HÁKÓLABÍO Á ferö og flugi ★★★. Fyndin Hughes-gamanmynd um tvo ferða- félaga (Steve Martin og John Candy) í helgarfríi I flugvélum, lest- um og bílum. Sýnd 5, 7, 9 og 11. LAUGARÁSBÍÓ Stefnumót á Two Moon Junction ★ ★. Nakin spennumynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð: 14 ára. Sá illgjarni ★★★. Hryllingsmynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Bönnuð: 16 ára. Skyndikynni ★★★. Stórfyndin kvennamynd um erfiðleika kynlífs- ins á tímum alnæmis. Sýnd 5, 7, 9 og 11. REGNBOGINN: Hamagangur i heimavist ★ ★ Grln- mynd I unglingastíl, upplögð fyrir þá sem eru að byrja I menntó. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Helsinki — Napóli. Spennandi farsi um heimsborgina Berlín. Eddie gamli Constantine dúkkar upp á tjaldinu eftir langt hlé. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð: 12 ára. Montenegro ★★★. Stórfyndin og djörf sænsk mynd gerð af Júgóslav- anum Dusan Nakajev. Sænsk hús- móðir gefst upp á stöðluðu heimilisllfi og flýr með júgóslavn- eskum innflytjendum. Sýnd 9 og 11.15. Bönnuð: 14 ára. Leiðsogumaourinn ★★. Norsk/ samísk spennumynd um lappagoð- sögn, gerð i skugga Hrafns Gunn- laugssonar. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð: 14 ára. í skugga páfuglsins ★. Sýnd 5 og 7. Krókódila-Dundee ★★★. Fyndið framhald af krókódílatöffaranum frá Ástralíu. Sýnd 5, 7, 9.10 og 11.15. STJÖRNUBÍO: Morð að yfirlögðu ráði ★ ★. Ohugn- anleg og blóðug eltingamynd um hálfbræður og glæpamenn sem draga þriðja bróöurinn með sér inn í vafasamar gerðir. Byggð á sann- sögulegum atburðum. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Bönnuð: 16 ára. Von og vegsemd *★★. Úrvals- mynd frá Bretlandi styrjaldarár- anna. Sýnd 5, 7 og 9. Nikita litli ★★. Spennumynd fyrir unglinga í kalda stríðs-anda. Sýnd 11.05. ★ ★★★= FRÁBÆR, SÍGILD ★ ★ ★ = MJÖG GÓÐ ★ ★ = GÓÐ ★ = SÆMILEG í = AFLEIT I ARANGURINN Jón S. fór og kom svo aftur eftir viku og hafði þá lést um 2 kg. Hann var ánægður með árangurinn og næstu vikurnar breyttist margt hjá Jóni S. Hann fór að taka megrunina alvarlegar, hann fór að hreyfa sig meira og eftir 4 vikur mátti sjá hann hlaupa reglulega á götum borgar- innar í litskrúðugum æfingagalla frá Hugo Boss. Smátt og smátt hætti hann að koma en um daginn hitti ég Jón í Vesturbæjarlauginni, hann var orðinn 89 kg og allur ann- ar. Ég ætla að hlaupa skemmti- skokkið í Reykjavíkurmaraþoninu í ár og sennilega hálft maraþon á næsta ári. Þetta er allt annað, mér líður betur, blóðþrýstingurinn er kominn í lag og konunni finnst ég hafa breyst ótrúlega mikið, bæði í útliti og á öðrum sviðum, og nú er ég aftur farinn að passa í jakkaföt númer 54. Við þögnuðum um stund og virt- um fyrir okkur tvær fallegar stúlk- ur í aðskornum sundbolum, svo horfðumst við í augu og brostum. Báðir vissu hvað hinn var að hugsa og Jón S. virtist vera að fá aftur sitt gamla sjálfstraust og öryggi.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.