Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 32

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 32
PRESSU Bttiklar vangaveltur eru sagðar uppi um framtíð viðskipta- ráðuneytisins og kemur jafnvel til greina að leggja það niður. Ýmsir telja að það eigi ekki rétt á sér lengur eftir að mikilvæg verkefni voru flutt yfir í sérstaka viðskipta- deild í utanríkisráðuneytinu. Ráðu- neytið þykir sem sagt fulllítið af- greiðslubatterí. Til greina kemur að gera það að sérstöku bankamála- ráðuneyti, með því að færa ýmis verkefni frá Seðlabankanum yfir í ráðuneytið. Ef sá kostur verður valinn yrðu verðlagsmál og láns- heimildir flutt yfir í iðnaðarráðu- neytið, en víða erlendis þykir eðli- legt að iðnaður og verslun tilheyri sama ráðuneytinu... þ |— rátt fyrir harðærið láta Sam- bandsmenn engan bilbug á sér finna. I mánuðinum mun fyrir- hugaður stofnfundur nýs fyrirtækis á sviði krítarkorta, sem manna í millum er farið að kalla SAM-kort. Halldór Guðbjarnason, fyrrum bankastjóri Útvegsbankans, hefur síðustu misseri unnið að undirbún- ingi og fram að þessu hefur hann þótt líklegasjur í forstjórastólinn. Guðjón B. Ólafsson er hins vegar sagður ætla Halldóri önnur störf hjá SÍS, því hann er sagður beita sér mjög fyrir þvi að annar fyrrum bankastjóri fái starfið. Kandídat Guðjóns mun vera góðvinur hans og skólabróðir, Stefán Gunnars- son, fyrrum bankastjóri Alþýðu- bankans... |ón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra lagði fram fjárlaga- gerð fyrir árið 1989 á ríkisstjórnar- fundi í gær. Ljóst er að verði ekki gripið til aukinnar tekjuöflunar og niðurskurðar í útgjöldum ríkis- sjóðs verður hallinn á ríkissjóði hátt á fjórða milljarð króna. Til- lögur fjármálaráðherra um tekju- aukningu og þó aðallega niður- skurð munu hafa lagst mjög þung- lega í samráðherra hans, sem finnst ráðherra fulldjarfur í hugmyndum. Drögin að fjárlagagerðinni eru þessa dagana til kynningar í stjórn- arflokkunum og hermir sagan að þingmennirnir séu felmtri slegnir og sumir hálfhugsjúkir vegna plaggsins... o af hugmyndum Jóns Baldvins mun vera sú, að mötuneyti opinberra starfsmanna verði lagt niður en tekið upp svonefnt kerfi matarmiða. Þessi hugmynd er upp- haflega sænsk og er opinberum starfsmönnum úthlutað mánaðar- lega ákveðnum skammti af matar- miðum, sem þeir geta notað á hvaða veitingahúsi sem er. Veitingahúsin fá aftur miðana endurgreidda hjá ríkinu. Við sjáum fyrir okkur virðulegan embættismann með frúnni úti að borða á glæsilegum veitingastað gera upp reikninginn með elegans; afhenda þvælda skömmtunarmiða Jóns Baldvins.... D |— amela Brement, fyrrum sendiherrafrú Bandaríkjanna á ís- landi, er stödd á landinu þessa dagana. Svo miklar voru vinsældir Brement-hjónanna á sínum tíma, að íslenskum stjórnvöldum þótti þjóðráð að bjóða til mikillar veislu fyrir sendiherrafrúna fyrrverandi. Fór veislan fram í ráðherrabústaðn- um og mun hafa tekist vel, enda á kostnað hins opinbera... v/cpnmjM 'DQ Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Magnússon eru smekkfólk á fleira en tónlist, það er greinilegt. Á sýningunni VERÖLDIN 88 hafa þau innréttað 230 fermetra íbúð eftir eigin höfði. Valið húsmuni, liti og alla umgjörð; jafnvel vegghallann!! íbúð sína kalla þau dvalarheimili sitt. Árangurinn kemur svo sannar- lega á óvart; smekklegur og frumlegur í senn. Á sýningunni VERÖLDIN 88 er fjöldi nýjunga. Allskonar kynning á vöru og þjónustu. Auk allskonar skemmtiatriða. Athugið að Ragnhildur og Jakob verða sjálf í dvalarheimili sínu á virkum dögum kl. 18 og 20, en um helgar kl. 15,17,20 og 21. Opið virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22. V/CDHI niM'QQ V%>l \ WWII1 INNAN VEGGJA OG UTAN

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.