Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 14

Pressan - 02.09.1988, Blaðsíða 14
14 Föstudagur 2. september 1988 Hugsaðu málið! Ef þú ert í bílahugleiðingum, ættir þú að lesa þessa auglýsingu tvisvar. Ræddu við sölumenn okkar um kosti LADA- bílanna og vinsælustu greiðslukjörin. Afgreiðslutíminn er enginn. Við eigum einnig úrval notaðra LADA bíla. Beinir símar: Nýir bílar, sími 31236. Notaðir bílar, sími 84060 Opið laugardaga frá kl.10-16 oorm Lada bílar Tökum vel ZoUU seidir ’87 meðfarna bila uppi. Armúla 13 108 Reykjavík, sími 681 200 LADA STATIONSG LADA LUXSG 1600, KR. 316. LADA 1200 LADA SAFIR ... M m EÍI%#P : s i RM|| í I i. * m ; fVdHgw / f I ) ■ i jjPjPlf : I | /;. fll HEFUR þú tekið eftir því hve langar biðraðir myndast stundum fyrir framan klósett ætluð konum? Þetta er mun sjaldgæfari sjón á karlasaiernum og nú hefur verk- fræðinemi við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum kannað málið vís- indalega. Komst hann að því — með vísindalegum mælingum — að konur dvelja að meðaltali í 79 sek- úndur inni á salerninu, en karlar einungis í 45 sekúndur. Lausnina á þessu biðraðamáli taldi stúdentinn vera þá, að við hönnun bygginga væri þess gætt að hafa þrjú kvenna- salerni fyrir hver tvö klósett, sem ætluð væru körlum. TÆPLEGA þrítug hjón, sem gift hafa verið í fjögur ár og eiga ''ekkert eða eitt barn, verða heldur betur að passa sig! En það verða svo sem fleiri að gera. Mannfræðingur nokkur segist nefnilega hafa komist að því að helstu áhættutímabilin í hjónabandinu séu þessi: Þegar hjón hafa verið gift í fjögur ár. Þegar hjónin eru 25 til 29 ára gömul. Þeg- ar hjón eru barnlaus eða eiga ein- ungis eitt barn, sem (enn) býr heima. Engilsaxneska orðatiltækið um sjö ára kláðann (the seven year itch) fer því kannski að breytast í „fjög- urra ára fiðringinn"! RAUÐVÍN getur orsakað höf- uðverk! „Þetta eru nú ekki splunkuný sannindi," gæti einhver sagt, en sú er þó einmitt raunin. Vís- indamenn við Charing Cross-spít- alann í London segjast hafa sannað það með rannsóknum, að líkurnar á því að mígren-sjúklingar fái „kast“ stóraukist, ef þeir drekka rauðvín. GÆTIRÐU hugsað þér að kyssa sálfræðinginn þinn? Hver veit nema hann sé til í tuskið — a.m.k. ef niðurstöður erlendrar könnunar eiga við hér á landi. í rit- inu American Psychologist hefur verið sagt frá niðurstöðunum: 90% sálfræðinganna sögðust hafa laðast að sjúklingi. 20% gengu svo langt að segja sjúklingnum frá tilfinning- um sínum. Og þrír af hverjum tíu höfðu kysst sjúkling, sem var í með- ferð hjá þeim. En þetta var nú líka í henni Ameríku. HÆTTIR ÞÉR tii að „fá í bakið,,? Þá ættirðu kannski að fara að ráðum bresks læknis, sem gefið hefur út bók með leiðbeiningum fyrir bakveikt fólk. Hann mælir með því að menn kaupi sér þykkan slopp úr frotté-efni og fari í hann um leið og stigið er upp úr baðker- inu. Síðan á viðkomandi að leggjast út af í hlýju herbergi í svo sem hálf- tíma, eða þar til hann er orðinn þurr. Læknirinn segir nefnilega, að fólk eyðileggi oft hin góðu áhrif heita baðsins með því að teygja ill- þyrmilega á vöðvunum, þegar það þurrkar sér með handklæði á eftir. /MMDEUS

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.