Pressan - 02.09.1988, Qupperneq 13
Föstudagur 2. september 1988
13
Norðmenn brugga og brugga
Norska áfengisverslunin er sífellt heimahúsum. Mest er um heimatil-
að opna fleiri útibú um landið, en búið léttvín og brennivín, en ölgerð
það hefur ekki orðið til þess að er á undanhaldi. Héildarneyslan í
draga úr heimabruggi. Á síðasta ári Noregi er 7,2 Iítrar af hreinum vín-
var t.d. fjórðungur alls áfengis, sem anda á hvert mannsbarn.
Norðmenn neyttu, bruggaður í
Vettlingar til Nígeríu
Nígeríumenn hafa pantað sextíu- ið nokkur ár. Fyrir vettlingana fá
þúsund fingravettlinga frá Noregi. þær væntanlega þrjár milljónir
Pöntunin kom konunum hjá Selbu norskra króna, eða um 21 íslenska
Husflidcentral þægilega á óvart, en milljón. Það er svo sem gott
þær áttu einungis tvöþúsund stykki og blessað, en er virkilega
á lager. Nú sitja því 35 prjónakonur svona kalt í Nfgeríu?
kófsveittar við að uppfylla óskir
Nígeríumannanna, en það gæti tek-
VEXTIR
VERÐTRYGGING
MONZA
Nú bjóðum við uppá einstök greiðslukjör.
Lánum allt að helmingi kaupverðsins í eitt ár-
án vaxta og verðtryggingar. Auk þess bjóðum
við umtalsverðan afslátt á Chevrolet Monza.
Chevrolet Monza SLÆ 1,8 lítra vél beinskiptur/sjálfskiptur
Chevrolet Monza SL/E 2,0 lítra vél sjálfskiptur
Chevrolet Monza Classic 2,0 Iftra vél beinskiptur/sjálfskiptur
Sumarkjör okkar á Chevrolet Monza þýöa - þrátt fyrir gylliboö annarra-
hagstæöasta veröiö á markaönum í dag
-NEI
-NEI
Staðgreiðsluverð
frá kr. 586.000,-
MO^ilZA SiL. £
mmmÉamsÉsmmÉmmtm
: y
tB BiLVANGUR st=
"" ■ IC-JÍ HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 687300
Svefnherbergið gert
að kynlífsstofnun
Hjón í skilnaðarhugleiðingum
ættu að kynna sér bók eftir lækn-
inn Dr. Paul Pearshall. Áður en
hann settist við skriftir ræddi hann
við eittþúsund pör og byggir kenn-
ingar sínar m.a. á því, sem hann
lærði á þessum viðtölum. Segir
læknirinn lausnina að finna í svefn-
herberginu, enda heitir bókin
„Super Marital Sex“ eða „Frábært
kynlíf innan hjónabands“. Þær
ráðleggingar, sem stríðandi hjón-
um eru gefnar í bókinni, eru t.d.
þessar: Breytið svefnherberginu í
nokkurs konar kynlífsstofnun og
setjið skilti á hurðina utanverða.
Þar á að standa: Þögn— foreldrar
að elskast! Ekki slökkva ljósin,
þegar þið farið upp í rúm. Takið
vídeómynd af ástarleikjum ykkar.
Sendið hvort öðru tvíræð skilaboð.
Ráðið manneskju til að elda róm-
antískan mat handa ykkur einu
sinni í mánuði og gæta síðan barn-
anna á eftir. Haldið upp á hjóna-
band ykkar með miklum veislu-
höldum.
Sjálfsmorðsklettur
„Ekki fleygja þér fram af brún-
inni“ átti að standa á skilti, sem
góðgerðarsamtök í Bretlandi ætl-
uðu að koma fyrir á klettabrún þar
í landi. Það var ærið tilefni til, því
mjög mikið er um að fólk stytti sér
aldur barnar. Þegar hafa t.d. átta
manneskjur hent sér fram af klett-
inum á þessu ári, en meðaltalið hef-
ur lengi verið eitt sjálfsmorð á mán-
uði. Yfirvöld á staðnum voru hins
vegar hrædd um að skiltið yrði frek-
ar hvatning en að það drægi úr
sjálfsvígum og þess vegna fékkst
það ekki sett upp. Góðgerðarsam-
tökin, sem heita Miskunnsami
Samverjinn, ætla þá bara að setja
skiltið upp í krá nokkurri þarna ná-
lægt, svo fólk í sjálfsmorðshugleið-
ingum sjái skilaboðin, ef það
ákveður að fá sér í glas áður en það
stekkur út í óvissuna.
Jackson pínir
starfsfólkið
Starfsmenn Michaels Jackson
eru sjóðandi illir út í hann, þar sem
goðið hefur neitað þeirn um frí á
jólunum. Um það leyti mun tón-
leikaferðalag Jacksons hafa staðið í
sextán mánuði og eru aðstoðar-
menn hann víst farnir að sakna fjöl-
skyldna sinna, eins og skiljanlegt
er. Söngvarinn virðist hins vegar
lítinn skilning hafa á þeim málum.