Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 5

Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 5
t-ostudagur 16. september 1988 Séra Arelíus Níelsson fyrrverandi sóknarprestur Hann er landsþekktur prestur og sáluhjálpari. Fyrir rúmlega 8 árum lét hann af störfum sóknarprests, þá sjötugur, eftir 40 ára starf. Þar af 28 ár við Lang- holtskirkju, sem hann hefði viljað kalla Hálogalandskirkju. Séra Árelíus Níels- son hefur þótt um margt sérstæður og skoðanir manna á honum skiptar. Fyrir 10 árum missti hann konu sína eftir 38 ára hjónaband og býr Árelíus nú einn í lítilli íbúð á sjöundu hæð í háhýsi rét við hlið gömlu kirkjunnar sinnar. Pressan spurði sóknarprestinn fyrrverandi fyrst að því hvernig hann verði deg- inum núorðið? ,,Það er best að minnast ekki á það. Ég var ekki í neinum vandræðum fyrstu árin. Þá var ég yfirleitt að skrifa, en nú orðið er ég aðallega að lesa og geri mikið af því. Svo hef ég messað í Múlabæ og vestur á Grund, en annað sem heitir starf fær maður ekki. Þegar ég hætti að skrifa tók ég að mér að dreifa Morgunblaðinu og líkar það vel, svo langt sem það nær. Það er ótrúlega einfalt og maður þarf ekki háskóla- nám til þess, en þó getur það nú verið dálítill vandi. Mér hefur aldrei verið sagt að fara til...., nema í sambandi við blaðadreifinguna. “ — Varslu alltaf ákveðinn i að fara í guðfræði? „Nei, ég kalla það handleiðslu, eins og svo margt annað. Þ.e.a.s. maður heldur að maður ráði, en ræður ekki. Mig Iangaði ekki til að verða prestur. Eiginlega hryllti mig að ýmsu leyti við því, vegna þess að strax sem barn komst ég á þá skoð- un að margt, sem sagt var í gamla testamentinu, væri svo fjarri krist- indómnum að það væri bara ómögulegt að samræma það. Ég ætlaði til Kaupmannahafnar í kennaraháskólann. Eftir að ég hafði verið í kennaraskólanum hér í tvö ár og tekið þaðan gott próf langaði mig mest í uppeldisfræði. Freysteinn Gunnarsson skólastjóri sagði við mig að hægt væri að Ijúka guðfræðinni á skömmum tinra og einnig að hægt væri að taka á fræðslunni á margvíslegan hátt. Ha'nn var t.d. sjálfur guðfræðingur. Ég fór því í guðfræði og lauk henni á 3 árum. En þegar ég lauk prófi úr guðfræðideildinni var stríðið byrj- að og ég gat ekki komist neitt. Eg fékk samt loforð um að fá háan styrk hvenær sem ég gæti farið. En vitimenn, þaðvarekki fyrren 1946. Þá var ég giftur, átti fjögur lítil börn og veika konu á Vífilsstaða- spítala. Það var óvíst hvort hún myndi nokkurn tíma koma heim aftur. Því var sannarlega ekki spáð Þegar hún var búin að vera í heilt ár á Vífilsstaðaspítala var hún send norður í svokallaða höggningu og ég var tvisvar kallaður þangað að „leiðinu“ hennar, en hún hafði þetta allt saman af. Þetta varð til þess, að ég fór aldrei í það sem var óskadraumur- inn minn, að verða uppeldisfröm- uður. Það rættist aldrei. Ég fékk nóg af kennslu. Ég kenndi líka eig- inlega öll mín prestskaparár. Ég var alltaf með annan fótinn við það að starfa með börnum. Mér fannst það svo gaman.“ JESÚS LAUSALEIKSBARN En hvað um það. Ég reyndi að sinna preststörfunum eins og ég gat, en ég brást hvað eftir annað þessu fólki sem var — skulum við segja — trúaðast og taldi sjálft sig frelsað. Ég var ekki nógu sannur viðvíkjandi trúarjátningunni og þess háttar. Það fór nú stundum leiðinlega, en aldrei illa. Þetta bjargaðist alltaf. Á Eyrarbakka t.d. var fundið svo mikið að einhverri jólaræðu að meira að segja meðhjálparinn hætti og kom aldrei inn í kirkjuna eftir það. Fólkið skrifaði biskupi bréf og biskup skrifaði mér og bað mig að koma og sjá nöfn þeirra, sem skrif- uðu undir bréfið. Það var, eins og hann orðaði það, eitt af því Ijótasta sem biskupsstofu hafði borist. Ég var sagður hafa talað um Jesúnr sem lausaleiksbarn. Sjálf- sagt hef ég gert það, því mér hefur aldrei dottið annað í hug. Hann var ekki talinn skilgetinn og Jósef, af því hann var vænn maður eins og það er orðað, tók Maríu að sér. Annars hefði hún getað verið grýtt og fordænrd. Ég benti fólkinu á að það skyldi bara lesa fyrstu biaðsíð- una í nýja testamentinu, þá myndi það komast að raun um það, að þó hann hefði verið getinn af heilögum anda, eins og það er orðað, hvernig átti fólkið að hugsa sér það? Svo var annað, sem mér fannst ástæða til að benda á. Jesús sagði sjálfur: „Þið eruð öll börn Guðs.“ Það geta ekki allir verið getnir af Guði, eins og þar stendur, þó auð- vitað sé það svo. Einhver kraftur, sem við köllum Guð, kraftur kær- leikans, snertir barnið, sem á að verða til. Þá kviknar ljós og það er lífið á jörðinni. Hvort lífið er lengra. vitum við ekki. Við vitum ekkert hvaðan við komum eða hvert við förum. Fólkið á Eyrarbakka sætti sig ótrúlega fljótt við þetta svo ég varð aldeilis undrandi. Sumir af þeim sem næstum þvi Tyrirlitu mig kvöddu mig með söknuði eftir tíu ára starf. Ég segi fyrir mig, að ég hefði orð- ið þakklátur ef ég hefði getað orðið

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.