Pressan - 16.09.1988, Side 7
Föstudagur 16. september 1988
fyrir hvern einasta mann og konu
meö fullt vit.Ef þau vilja hegna ein-
hverjum fyrir aö barniö fæðist eiga
þau að hegna sjálfum sér. Og það
gera þau ekki, þegar þau eru búin
að eiga barnið í eina viku.
En að þessi fámenna þjóð skuli
hafa eytt á áttunda þúsund dásam-
legum börnum síðan þetta var sam-
þykkt á þingi fyrir nokkrum ár-
um... það er svoleiðis að ég á engin
orð. Og það var í fyrsta sinn, sem
konur voru margar á þinginu, sem
þetta var samþykkt. Ég hef alltaf
treyst konum betur en karlmönnum
þar til þá. Síðan hef ég ekki getað
það. Þær vita ekki hvað þær eru að
gera.“
— Hvað með glasabörn?
„Fyrir þá, sem alls ekki geta eign-
ast barn, finnst mér ekkert á móti
því. Ekki neitt. Glasabörn hafa ekki
hugmynd frekar en hin hvernig þau
urðu til, þau miða bara við það,
sem er. Og þau geta orðið ennþá
meira virði fyrir foreldrana, eins og
mörg tökubörn í gamla daga. Það
er leiðinlegt að þurfa þess, en það er
betra að eiga glasabarn en ekkert
barn.“
BANNAD AÐ TAKA AD MÉR
PRESTVERK
— Fólk hefur alltaf gelað hringt
í þig hvenær sem er, liefur ekki
preststarfið verið vinna allan sól-
arhringinn?
„Preststarfið hérna í Reykjavík
var vinna allan sólarhringinn. Þeg-
ar ég lít til baka get ég ekki skilið
hvernig hægt var að koma því af. Ég
hef aldrei skipt ntér óbeðinn af
neinu. AIdrei.“
— Hefur ekki fylgt þessu mikið
ónæði?
„Þetta var vissulega ónæði. Það
eimir enn ótrúlega mikið eftir af því
starfi enn í dag. Það er hringt í mig
mörgum sinnum sumar nætur."
— Hefurðu þá ekki þurft að
fórna ýmsu öðru sem þú hefðir vilj-
að gera?
„Ég veit það ekki. Nei, nei. Það
var helst á meðan ég var að skrifa,
en ég hef aldrei þurft mikið að
sofa.“
— Hvað er eftirminnilegast úr
prestskapnum?
„Mér er kærust minningin um
stofnun AA-deildarinnar. Annars
er vandi að svara þessu. Ef ég miða
við hópa eru sumar fermingarund-
irbúningsstundir mér eftirminni-
legar. Það sem er ógleymanlegast er
hins vegar þegar fólk hefur komið
til mín og þakkað mér fyrir jarðar-
för, sem gefið hefur því nýja rósemi
og styrk. Þá hefur verið yfir mér
þessi handleiðsla, sem ég var að tala
um. Ég hef fundið réttu orðin, rétta
framkomu og aðstöðu, eftir því sem
hægt er.
Slíkt hefur afskaplega oft verið
þakkað, upp á síðkastið hefur þetta
þó orðið mér ákaflega sárt, þvi það
hefur bókstaflega verið heimtað af
prestum og á prestastefnum að ég
taki aldrei að mér nein prestverk.
Ef ég tek að mér giftingar en þó
aðallega jarðarfarir er ég að gera
aðför að starfsréttindum annarra!
Ég á meira að segja bréf frá
biskupi, þar sem hann segir að tekið
hat’i verið fram á prestastefnu að ef
prestur tekur að sér jarðaför eigi
hann að bjóða sóknarpresti hins
Iátna að vera viðstöddum. Sá á að
kasta rekunum og taka við greiðslu!
Ég er ákaflega særður, þegar fólk
kemur og biður mig um það sem því
er helgast og ég hef orðið að segja
nei. Sérstaklega vegna þess að ég
hef ekki haft nokkra ástæðu til að
neita, því ég hefði svo gjarnan vilj-
að gera það sem ég hef getað," segir
séra Árelíus Níelsson, fyrrverandi
sóknarprestur, sem þrátt fyrir aldur
sinn er enn boðinn og búinn að
rétta hjálparhönd, þar sem þess er
óskað. ■
7
PRESSU
MCL&R
IMISSAIM
SUNNY
NISSAN SUNNY ER FAANLEGUR:
SUNNY 3JA DYRA - SUNNY 4RA DYRA,
BKÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓLADRIFINÍ
SUlfNIY 5 DYRA - SUNNY COUPÉ, SPORTBÍLL, OG
SUNNY SKlTBÍLL, BÆÐI FRAMHJÓLA- OG FJÓRHJÓÍADRIFINN
VER
FRA KR. 517.
GETUt AFGREITT STRAX - JAFNVEL Á MEÐAN ÞÚ BÍÐUR
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
KOMDU OGlPJALLAÐU VIÐ OKKUR ÞVl KJÖRIN ERU HREINT fENDANLEG
BÍLASÝMNG LAUGARDAG OG SUNNUDAíi KL. 2-5
Ingvar
| Helgason hf.
sýningarsalurinn,
Rauðagerði
Q) 91-3 35 60
I Lögbirtingablaðinu er mikið
greint frá gjaldþrotum um þessar
mundir. Flest gjaldþrotin eru hjá
einstaklingum, en mýmörg hjá
smærri fyrirtækjum. En margt
smátt gerir eitt stórt. í 31. tölublaði
frá 1. jú.lí til 6. september er greint
frá því að alls 68 fyrirtæki hafi verið
úrskurðuð til gjaldþrotaskipta eða
að skiptum sé lokið. Hjá þeim 30
fyrirtækjum þar sem skiptum lauk
var greint frá alls 67 milljóna króna
kröfum, fyrir utan vexti og kostnað.
Viðkvæðið var almennt það sama
— að engar eignir hefðu fundist í
búinu á móti kröfunum. Aðeins 600
þúsund fengust upp í 61 milljónar
króna kröfur gegn 29 fyrirtækjum,
en Hólel Búöardalur skar sig úr og
gat lagt fram yfir 2 milljónir upp í
6 milljóna kröfur...
€1 Palreksfiröi er ástandið
verra en í elstu manna minnum. Að
minnsta kosti 2 fyrirtæki eru i
gjaldþrotamálum, Malvælavinnsl-
an og Iðnver. Sjálfur er Patreks-
hreppur í standandi vandræðum og
hafa nú verið auglýst nauðungar-
uppboð á þremur fasteignum
hreppsins vegna vanskila við meðal
annarra Skeljung, en fyrr á árinu
var gert fjárnám í áhaldahúsi
hreppsins við Mýratorg vegna tæp-
lega 600 þúsund króna skuldar við
olíufélagið...
þ
ær fréttir berast Irá Nes-
kaupstaö að viðskiptavinir Spari-
sjóðsins, sem gerðist sekur um kyn-
ferðislegt misrétti við ráðningu
útibússtjóra fyrir skemmstu, séu
óánægðir mjög. Munu margir
þeirra m.a.s. hafa flutt viðskipti sín
annað, sem er auðvitað versta refs-
ing sem hægt er að veita banka-
stofnun.
|i
ngt og hugmyndaríkt íólk er
um þessar mundir að taka við
stjórn veitingahússins Lækjartungls
og verður lormleg opnun eftir fyrir-
hugaðar breytingar þann 23. sept-
ember. Það eru þau Anna Þorláks-
dóttir Bylgjukona og Þorsteinn
Högni Gunnarsson, plötusnúður á
Casablanca, sem ætla að takast á
við þetta verkefni og eru þau með
margar nýstárlegar hugmyndir. T.d.
ætla þau að fá einn listamann I
mánuði til að hengja verk sín upp i
salarkynnunum og heyrst hefur ac
þarna muni litlu heimilislausu
leikklúbbarnir geta fengið inni meu
sýningar sínar.
íílýr skrifstofustjóri er að tr \
við hjá Landsbankanum á Nes-
kaupstað. Sá er Jóhann Kjæi ;u,
sem hefur unnið hjá bankanum í
Reykjavík um nokkurra ára skeið.