Pressan - 16.09.1988, Qupperneq 17
Föstudagur 16. september 1988
17
PRESSII
s
^^álarástandið á stjórnarheimil-
inu hefur verið mjög trekkt að und-
anförnu. Einna verst mun andleg
heilsa sjálfstæðismanna vera og
ríkjandi ofsóknarbrjálsemi í hverju
horni, ekki aðeins gagnvart sam-
starfsflokkunum í ríkisstjórn, held-
ur einnig inn á við í Sjálfstæðis-
flokknum. Til að mynda eru margir
þingmenn þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins mjög óánægðir með að fá
ekki nákvæmar eða réttar upplýs-
ingar um ástand mála frá formanni
flokksins, Þorsteini Pálssyni, og
öðrum forystumönnum flokksins.
Töluverð upplausn er komin á þing-
flokkinn og einstaka menn sem vel
þekkja til mála telja jafnvel að
ákveðið hættuástand sé farið að
myndast í Sjálfstæðisflokknum.
Þorsteinn Pálsson situr stífa fundi
hjá ráðgjöfum sínum í flokknum
og hefur nærvera Davíðs Oddsson-
ar borgarstjóra að sögn aukist mjög
síðustu daga. Aðrir helstu ráðjyafar
Þorsteins munu vera þingmennirnir
Halldór Blöndal og Guðmundur
Garðarsson...
M
^■ð margra dómi getur verið
stutt í að ríkisstjórnin springi. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, formaður AI-
þýðubandalagsins, mufi vera meira
en reiðubúinn að koma í stjórn með
Alþýðuflokki og Framsóknar-
flokki ef Þorsteinn Pálsson skilar
umboðinu af sér. Með því móti
hyggst Ólafur Ragnar styrkja stöðu
sína innan eigin flokks, en þar eru
enn væringar milli Ólafsarmsins og
Svavarsklíkunnar, þótt þeir félagar
hafi reynt að sættast út á við gegn-
um síður Þjóðviljans. Með aðild að
ríkisstjórn kemst Ólafur Ragnar á
þing og hreppir ráðherrastól í leið-
inni. Ekki slærn skipti. Þá er einnig
talið víst að Ólafur Ragnar hygði á
lengri setu í ríkisstjórn fremur en
styttri...
c
^Vvavar Gestsson, tyrrum for-
maður Alþýðubandalagsins, er
ekki heldur mótfallinn hugmynd-
um um ríkisstjórn Framsóknar, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags.
Svavar mun þó hins vegar líta á
slíka stjórnarþátttöku allaballa sem
lausn í skamman tíma, og að slík
stjórn skilaði af sér þegar verstu
efnahagserfiðleikarnir væru að
baki...
þ
egar hugmyndtr um nyja
ríkisstjórn Alþýðuflokks, Fram-
sóknarflokks og Alþýðubandalags
hafa verið ræddar i hornum AI-
þingis síðustu daga nefur marga
hryllt við þeirri tilhugsun að eiga
allt undir hlutleysi Stefáns Valgeirs-
sonar, uppreisnarmanns i Fram-
sóknarflokknum. Margir úr þing-
liði ofangreindra flokka hafa þess
vegna rætt um aðild Borgaraflokks-
ins til viðbótar, bara til að vera
lausir við Stefán...
9». _................
stjórn með Borgaraflokknum el
stjórnin springur? Þorsteinn Páls-
son mun stundum hafa viðrað
þessa hugmynd, en Davíð Oddsson
borgarstjóri er hugmyndinni gjör-
samlega fráhverfur. Og hingað til
nrun Davíð hafa átt siðasta orðið i
þvi máli...
Alþýöubankinn hf
Reykjavík, Akranesi, Akureyri, Blönduósi og Húsavík.
urþú
' hlutlig
í góðum banka
Nýir hluthafar
Forkaupsréttur núverandi hluthafa til kaupa úr hlutafjárútboði
ársins 1988 rann út í ágúst s.l.
Takmörkuð fjárhæð er enn óseld og nú gefst nýjum aðilum
kostur á að eignast hlutabréf í bankanum.
Ávinningur
Eigendur Alþýðubankans eru launafólk, félög þess og stofnanir,
um 900 talsins. Bankinn hefur vaxið og eflst á síðustu árum og
verður æ betur búinn til að sinna því megin verkefni sínu að
þjóna launafólki í landinu. Auk þess halda hlutabréf í Alþýðu-
bankanum verðgildi sínu vel, þau njóta skattfríðinda og gefa
arð - eru því góð fjárfesting.
Hægt er að skrifa sig fyrir hlut í öllum afgreiðslum bankans.
Nánari upplýsingar veitir aðalbókari í síma 91-621188.
Notaðu þetta tækifæri. Taktu þátt í eflingu
eigin banka - það er þinn hagur.
L
H Heitasta frétt vikunnar var að
margra rnati listinn yfir auðugustu
menn íslands. Það kom hins vegar
mörgum á óvart að Stöð 2 skyldi
,,stela“ fréttinni frá tímaritinu
Frjálsri vcrslun, sem lét vinna list-
ann yfir tíu auðugustu mennina. En
ísland er lítið Iand og víða liggja
þræðir milli manna og vina. Frjálst
framtak gefur út Frjálsa verslun.
Frjálst framtak gefur einnig út
Sjónvarpsvísinn fyrir Stöð 2. Rit-
stjórar Sjónvarpsvísis eru þeir
Steinar J. Lúðvíksson og Sighvatur
Blöndal, fjármálastjóri Stöðvar 2.
Sighvatur var áður ristjóri Frjálsrar
verslunar. Glöggir sjónvarpsáhorf-
endur hafa reyndar að undanförnu
klórað sér í hausunum yfir sumum
fréttum Stöðvar 2, sem unnar eru
upp úr tímaritsgreinum sem Frjálst
framtak gefur út. Meðal annars
gerði fréttastofa Stöðvarinnar
„barnavernd í kreppu“ itarleg skil
en efnið birtist í Mannlífi, einu
tímarita Frjáls framtaks. Og svo
birtist auðmannalistinn á skjá
Stöðvar 2 áður en hann kom út í
Frjálsri verslun. Suntir spyrja nú
hvort áhrif Magnúsar Hreggviðs-
sonar, blaðakóngs Frjáls framtaks,
séu ekki orðinn fullmikil á Stöð 2
eftir að hann tók að sér að gefa út
Sjónvarpsvísinn fyrir stöðina....
L
HHertar innheimtuaðgerðir
standa fyrir dyrum hjá Pósti og
síma á næstunni. Þær munu þó
ekki beinast gegn borgurum þessa
lands, sem staðið hafa heiðarlega í
skilum við stofnunina, heldur verð-
ur þeim beint gegn nokkrum stór-
um skuldunautum. í þeim hópi er
Ríkissjónvarpið, sent skuldar Pósti
og síma verulegar upphæðir, m.a. í
línuleigu. Þessi skuld sjónvarpsins
hefur verið nánast óbreytt allt þetta
ár. Borgað hefur verið upp í hana,
en hún hefur jafnóðum myndast á
ný. Og nú virðist því sem langlund-
argeð Pósts og sinta sé þrotið og
harðar verði gengið fram í inn-
heimtunni.
b
ókaútgefendur hafa verið
óvenjutregir að láta nokkuð uppi
um trompin sín á jólamarkaðinum
og virðast ætla að bíða fram á síð-
asta dag með ákvarðanir. Ekki mun
þó öllunt bókum sem út koma í
haust endilega ætlað að lenda í
jólapappír. Mál og menning mun
t.d. senda frá sér litla kilju nú í mán-
uðinum sem heitir „Hremming“
með undirtitlinum: „Viðtöl um
nauðgun“. Sigrún Júlíusdóttir fé-
lagsráðgjafi skrifar og byggir á
rannsóknum sínum og viðtölum við
konur sem hefur verið nauðgað.
Sigrún ræddi við 24 konur, sem lýsa
hremmingunum og eftirmálum
nauðgunar. Bókin er talin eiga eftir
að vekja upp umræðu um meðferð
nauðgunarmála hér á landi.
orsvarsmenn verðbréfasjóða
gera að sjálfsögðu sitt besta til að
forðast vafasama pappíra. Það
getur hins vegar reynst ansi erfitt á
stundum, þar sem íslenskir
„krimmar“ þykja allsérstæðir og
hugmyndaríkir. Þannig hefur t.d.
gerst að einstaklingur, sem reyndar
situr nú inni fyrir skjalafals og fjár-
drátt, hafi selt sama samninginn
þrisvar á gráa markaðnum, hjá
sama fyrirtækinu. Ekki fylgdi sög-
unni hvort eigendur innstæðna í
verðbréfasjóði fyrirtækisins hefðu
borið skellinn. Forsvarsmenn sjóðs-
ins hafa varla slíkt í flimtingum...
U
pplagseftirlit Verslunarráðs
hefur ætíð verið umdeilt meðal
blaðaútgefenda, enda eru aðeins
örfá blöð og tímarit með í upplags-
eftirlitinu, þar á meðal Morgun-
blaóið og Dagur á Akureyri. En nú
bætist eitt tímarit við, þar sem
Heimsmynd, sem Herdís Þorgeirs-
dóttir ritstýrir og gefur út, hefur
ákveðið að sækja um aðild að upp-
lagseftirlitinu...