Pressan - 16.09.1988, Blaðsíða 22
22
Föstudagur 16. september 1988
sjálfur og bera það saman við þessa
kappa sérðu hvað þú stendur þeim
fangt að baki. Þetta varð til þess að
ég hætti að reyna að vera fulíkom-
inn blúsgítarleikari. “
— Réð þetta ákvörðun þinni um
að hætta í hljómsveit Johns
Mayall?
„Það má ekki gleymast að ég var
aðeins 21 árs þarna og var eiginlega
klofinn í tvennt, annarsvegar vildi
ég verða góður blúsgítarleikari og
hinsvegar langaði mig til þess að
sletta svolítið úr klaufunum og
skoða heiminn í kringum mig. Það
var svo ntikið af hlutum að brjótast
um í mér og fyrir mér var þetta
Mayall-dæmi að verða eins og gata
sem endar í botnlanga. Á þessum
tíma varð Cream líka æði freistandi
kostur.“
— Jack Bruce sagði eitt sinn að
þegar þið spiluðuð í fyrsta sinn í
Filmore-klúbbnum í San Francisco
hefði það verið einskonar tónlistar-
leg opinberun, því áhorfendum var
svo til sama hvernig og hvað þið
spiluðuð!
„Við sem vorum í Cream vorum
þeim kostum búnir að geta spilað
óstuddir í góðan tima. Og fyrir
framan áhorfendur sem voru til í
allt vorum við til i allt. Það var
kannski það versta við þetta, því
þetta voru of mikil forréttindi, og
ég held að Cream hafi þegar verið
byrjuð að brenna upp þarna.“
— Þú sagðir eitt sinn að þú hefðir
alltaf litið á þig sem leiðtoga í blús-
tríói. Heldurðu að Cream hefði
„lifað það af“ ef þú hefðir verið
ákveðnari?
„Það var, að ég held, ekki mögu-
leiki á því vegna þess að ég hef ekki
og vil ekki hafa^Vald til að halda
mönnum á sínum ^tað! Cream var
samansett af mar^breytilegum ein-
staklingum og var eiginlega eins og
'sirkus. Og þegar við byrjúðum að
brenna upp þá varð ekki aftur
snúið.“
— Næsta hljómsveit þín, Blind
Faith, hafði mjög viðeigandi nafn.
Voruð þið viðbúnir þeim ofboðs-
legu væntingum sem ykkur mættu?
„Ég hcld að Steve (Winwood)
hafi ekki verið undir þctta búinn.
Hinsvegar var þetta ckki svo mikið
mál lyrir mig, því ég var nýhættur í
Cream. Þegar við vorum að fara í
tónleikaferðir vorum við einfald-
lega ekki undirbúnir og það var
meinið. Þessvegna héldum við þetta
ekki út.“
— Hvernig l’innst þér Blind
Faith-platan?
„Mér l'innst hún alveg yndisleg
og líka hvað hún cr laus i reip-
unum."
— Lagið Presence of the Lord á
plötunni var fyrsta alvörulagasmíð
þín, hversvegna söngst þú það ekki
en Winwood í staðinn?
.„Einfaldlega vegna þess að ég
náði ekki svona hátt. Ég santdi
lagið í c-dúr, sem er mjög hátt fyrir
mig. Mér fannst Winwood líka betri
söngvari en ég.“
— Fyrsta plata þín með Derek
and the Dominos, smáskífan Tell
the Truth, var innkölluð stuttu eftir
að hún kom út. Hversvegna var
það?
„Ég ntan það ekki, en hún seldist
ekki vel.“
— Hún var ekki á boðstólum
nógu lengi!
„Það má vel vera, en ég hef aldrei
haft tök á þessum bransa, ég bara
skil hann alls ekki. Til dæmis
heyrðist lagið Layla ekki mjög
mikið fyrst eftir að það kom út og
það skil ég ekki heldur.“
— Þegar maður heyrir lög eins og
Layla er erfitt að trúa því að á sama
tíma hafir þú verið djúpt sokkinn í
eiturlyf.
„Við vorum ágætlega haldnir,
stunduðum gufuböð, fórunt í sól-
bað og sund á daginn en á kvöldin
fórum við í hljóðver og fengum
okkur í nösina. Það hafði ekki
mjög niikil áhrif á meðan við vor-
um að taka upp, en eftirköstin
komu síðar.“
— Var mikið um eiturlyfjaneyslu
hjá hljómsveitinni á tónleikaferða-
lögum?
„Alveg lifandis hellingur, bæði
kókaín og heróín. Ég veit ekki
hvernig maður gat innbyrt allt þetta
magn, ég myndi deyja núna af
sömu neyslu. Við vorum orðnir svo
flæktir i dóp, peninga og kvenfólk
að við gátum ekki átt eðlileg sam-
skipti lengur. Þetta leystist síðan
allt saman upp.“
— En snúum okkur að sólóplöt-
um þínum. Varstu ekki eins hrifinn
af gítarnum á sjöunda áratugnum
og þú varst á þeim sjötta? Manni
virðist áherslurnar á plötum eins og
461 Ocean Boulevard og Slowhand
liggja meira í nettum Iaglínum en
villtum gítarsólóum?
„Á þessum tíma var ég staðráð-
inn í að slappa af og gera hlutina
mcð eins litilli áreynslu og hægt var.
Ég var líka orðinn svo þreyttur á
þessari endalausu fingraleikfimi á
gítarinn."
— Svo sýndirðu líka að þú hefur
smekk fyrir rómantískum ballöð-
um og á ég þá sérstaklcga við lagið
Wonderful Tonight. Var þetta ein-
hver hulin ástríða hjá þér?
„Mér fannst það mikil áskorun
að semja lag sem ekki væri gegn-
sósa af væmni. Það er lika svolitil
kaldhæðni i laginu og ég var alls
ekki i góðu skapi þegar ég samdi
það, þvi það fjallar um seinagang-
inn á konunni minni einu sinni
þegar við vorum að fara út. Það
gerði mig geðvondan."
— Hvað finnst þér um plöturnar
sem þú gerðir á þessum tíma?
„Ég get náttúrulega ekki Iitið á
þær frá hlutlausum sjónarhóli, en
ef ég væri að gera þær aftur núna
hreinn og klár í kollinum yrðu þær
sennilega betri. En þegar ég lít á
þær og mig eins og ástandið var á
mér á þessum tíma þá fæ ég ekki séð
að þær hefðu getað or^ð neitt
betri. Ég stóð mig held ég bara
ágætlega.“
— Er eitthvað sem þú átt ólært
sem blúsgítarleikari?
„Einfaldleiki! Það sem mig
langar síst til að vera er „flókinn"
gítarleikari. “
— Hvaða hlutverk leikurgítarinn
hjá þér í dag. Er hann eins mikið
aðalhljóðfæri og hjá Cream og
Derek and the Dominos?
„Hann er ennþá mín rödd sem
tónlistarmanns. Þegar ég heyri lag
hlusta ég fyrst og fremst á gítarinn.
Þegar ég er að semja nota ég gítar-
inn til þess að skreyta röddina með
og ég reyni alltaf að spila á hann
með tilfinningu.“
— Crossroads er mjög ítarlegt
yfirlit yfir feril þinn. Hvað hefurðu
lært um sjálfan þig við að hlusta á
hana?
„Aðallega það að mér hefur
næstum því tekist að gera það sem
mig langaði til að gera og Iíka hvað
ég er fær um að gera en hefur aldrei
tekist almennilega.“ ■
IFOTSPOR NIEISTARANNA
Júnkers í Bíókjallaranum
Það var fámennt en góðmennt í
Bíókjallaranum fimmtudagskvöld-
ið 8. september, en þar stóðu fyrir
dyrum tónleikar með hljómsveit-
inni Nýdönsk. Þegar til kom hét
sveitin hinsvegar Júnkers (væntan- ,
lega í höfuðið á þýskri sprengjuvél-
artegund úr heimsstyrjöld nr. 2).
Málið er nefnilega það að sömu
meðlimirnir eru í báðum hljóm-
sveitunum, en Nýdönsk flytur ein-
göngu frumsamið efni en Júnkers
gamla og þekkta „standarda“
(hvernig á maður að þýða svona orð.
á íslensku!) eftir „gamla“ og þekkta
rokkara.
Liðskipan Júnkers/Nýdönsk er á
þá leið að söngvari er Daníel Har-
aldsson, bassaleikari er Björn Frið-
björnsson, trommurnar lemur
Ólafur Einarsson, um gítarleik sér
Valdimar Bragason og hljómborðs-
leikarar eru tveir; Bergur Bernburg
og Einar Sigurðsson.
Júnkers byrjuðu á laginu I Shot
the Sheriff eftir Marley heitinn og
var flutningur þess alveg ágætur,
töluvert rokkaðri en upprun^jega
útgáfan; samt hugsa ég að Marley
karlinn hafi ekki snúið sér við í
gröfinni.
Það sást og heyrðist strax í fyrsta
lagi að söngvari Júnkers er hinn
frískasti, bæði hvað varðar sviðs-
framkomu og söng. Hafði hann
ágætis vald yfir lögum eins og
Sorrow og Jean Genie eftir David
Bowie. Hann kom hinsvegar ekki
alveg eins vel út í gamla Bachman
Turner Overdrive-laginu You Ain’t
Seen Nothing Yet, þar sem Bergur
hljómborðsleikari var hinsvegar vel
með á nótunum og fór fimum
höndum um þær svörtu og hvítu.
Ekki spillti Hammond-„sándið“ á
hljómborðinu fyrir svo og hippa-
taktarnir hjá honum, með hárið i
nasaholunum eða þannig sko! Aðr-
ir hljómsveitarmeðlimir komu
einnig nokkuð vel út, en bassaleik-
arinn ætti að sleppa því að syngja
bakraddir (rödd!) og gítarleikarinn
mætti vera ögn villtari, spinna
meira, það er alltaf gaman að heyra
í þannig gítarleikurum svo lengi
sem það er innan smekklegra
marka.
Júnkers náðu upp ágætis
stemmningu með flutningi sínum
og fyrir utan lög eftir meistara
Marley, B.T.O. og Bowie tóku þeir
m.a. lög eftir Eric Clapton, J.J.
Cale og Rolling Stones, en í Stones-
lögunum var hinn hljómborðsleik-
arinn (Einar) tekinn við og spilaði í
þeim lögum sem píanó var í.
Um miðbik dagskrárinnar varð
bassistinn fyrir þvi óhappi að slíta
streng i hljóðfærinu og kom það
nokkuð niður á einbeitingu áhorf-
enda, sem margir brugðu á það ráð
að skreppa á barinn, enda lítið um
aðra afþreyingu á stöðum sem þess-
um. Eftir um hálftíma byrjuðu
Júnkers aftur að spila og tóku
nokkur lög í viðbót. Énduðu þeir á
hinu klassíska Sitting on the Dock
of the Bay eftir Otis Redding. Var
þeim klappað lof í lófa að því
loknu, enda áttu þeir það alveg-tídl-
ið. Júnkers er hljómsveit hugsuð
sem hvíld frá Nýdönsk og vilja
drengirnir með flutningi þessara
laga hvíla sig á eigin tónsmíðum um
stund og reyna við gömlu meistar-
ana. Það er hverri hljómsveit hollt
að gera. J ■