Pressan


Pressan - 14.10.1988, Qupperneq 5

Pressan - 14.10.1988, Qupperneq 5
8861 ■jocJö1>ío -Lt iugíábui3öH Föstúdágur 14. október 1988* ■.,rXiW *.▼ .* * *.* * *.*.*,▼.* f * 1» * * * f t f # M Krabbameinssjúklingum finnst þeir oft einangraðir, vegna þess að aðrir forðast að minnast á veikindi þeirra. KRABBAMEINSHRÆÐSLA Fyrir nokkrum árum var 75 ára gömul kona flutt á sjúkrahús, þar sem hún hætti skyndilega að geta talað. Það voru auðvitað gerðar á henni margar rannsóknir og á meðan beið fjölskylda konunnar áhyggjufull, eins og við var að búast. Þegar niðurstöðurnar lágu fyrir tjáði læknirinn fólkinu, að það væri ekkert hægt að gera fyrir gömlu konuna. Hún hefði fengið heilablóðfall og við því væri engin lækning — hvorki i formi lyfja né upp- skurðar... Heilinn hefði skaddast varanlega. Þegar læknirinn hafði lokið máli sínu spurði einn ættingi öldruðu konunnar, óttablandinni röddu: „Funduð þið krabbamein?“ „Nei,“ svaraði læknirinn. „Hún er ekki með krabbamein.“ „Guði sé lof og dýrð!“ hrópaði fjölskyldan þá einum rómi. Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari meö meiru: „Ég lifi fyrir hvern dag, sem mér er gefinn.“ Mynd/Magnús Reynir. Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari og útvarps- maður, er ekkert feiminn við að rœða um þá staðreynd að hann er með krabbamein, enda talsmaður opnari umrœðu um sjúkdóminn. SUMIR FORÐAST AÐ TALA VID MIG Umræða um krabbamein hefur aukist mjög á undan- förnum árum, en meira hefur verið talað um líkamlegu hliðarnar en hinar andlegu. Hermann Ragnar Stefáns- son danskennari er með þennan alvarlega sjúkdóm. Hann ræðir hér um breytt verðmætamat, feimni fólks við krabbameinssjúklinga, hræðslu, einangrun og þakklæti fyrir daginn í dag. Þessa sönnu sögu er að finna í athyglisverðri grein eftir sálfræð- inginn Morton Bard, en liann er varaformaður bandaríska krabba- meinsfélagsins, American Cancer Society. Greinin fjallar um hina andlegu hlið þess að vera með eða hafa fengið krabbamein og hefur Pressan fengið góðfúslegt leyfi höf- undar til að styðjast við hana í eftir- farandi umfjöllun: Sífellt fleiri lifa það af að fá krabbamein, vegna hinnar öru þróunar læknavísindanna. Samt álíta mjög margir það hreinan dauðadóm þegar þeir fá þennan úr- skurð og líða mun meiri sálarkvalir en fólk, sem veikist af öðrum og ekki síður hættulegum kvillum. Þetta viðhorf á sér sögulegar orsakir og ræturnar má rekja langt aftur í timann. MÖRGÞÚSUND ÁRA HRÆÐSLA Menn hafa óttast krabbamein allt frá því sögur hófust. Á papýrus- blöðum frá um 1500 fyrir Krist má lesa lýsingar á æxlum og þeirri læknismeðferð, sem sjúklingarnir hlutu á þeim dögum. En það var Hippókrates, sem fyrstur notaði orðið krabbamein (carcinoma), og það var á fjórðu öld fyrir Krist. A sjöttu öld eftir Krist skrifaði róm- verskur læknir hins vegar að krabbamein hefði fengið nafn sitt af því að „það leggst með slíkri þrjósku á ákveðna líkamshluta að ekki er hægt að hagga því nema með mikilli fyrirhöfn — alveg eins og um lifandi krabba væri að ræða“. Fyrsta sjúkrahúsið fyrir krabba- meinssjúklinga var opnað í Frakk- landi á átjándu öld. Það var fyrst i borginni Rheims, en íbúarnir þar voru svo hræddir við að smitast að loka varð spítalanum. Hræðslan við krabbamein minnkaði ekki þó kæmi fram á 20. öld. Á fyrri hluta þessarar aldar var ekki rætt opinskátt um sjúkdóm- inn, læknar komu sér undan að nefna hann i dánarvottorðum og aldrei var minnst á hann i minning- argreinum. Almennt var talið að krabbamein væri ekki bara smit- andi, heldur líka jafnvel „óhreinn“ sjúkdómur, sem ætti upptök sín í kynlífi og syndsamlegu líferni. Það þótti raunar skammarlegt að vera nieð þessa veiki. Krabbamein hefur alltaf haft sér- stöðu og niðurstöður kannana sýna að enn þann dag í dag hræðast fleiri Bandaríkjamenn þennan sjúkdóm en nokkurn annan. Hann er álitinn mun hættulegri en hjartveiki, sem þó leiðir oftar til dauða en krabba- meinið. Hjartveiki fylgja bara ekki sömu fordómarnir. Það er einfald- lega talin tæknibilun, þegar eitt- hvað fer úrskeiðis i hjartanu: Biluð dæla, punktur og basta! Ekkert dularfullt. Engir fordómar. VERRA EN ÖNNUR LÍFSHÆTTA Andleg líðan krabbameinssjúkl- inga er oft verri en hún þyrfti að vera, vegna þess hvernig aðrir koma fram við þá. Morton Bard segir nei- kvæð viðbrögð fólks m.a. orsakast af því að ró þess raskast, þegar ein- hver í ættinni eða kunningjahópn- um fær krabbamein. Skyndilega er lífssýnþessógnað. Þaðerekki leng- ur hægt að láta sem heimurinn sé réttlátur staður þar sem hinir sak- lausu þurfa aldrei að þjást. Krabbameinssjúklingar finna af ýmsum sökum til einangrunar. Um leið og þeir hafa verið sjúkdóms- greindir tilheyra þeir ekki lengur hinum „heilbrigðu". Margir lenda í því að verða misrétti beittir í tengsl- um við atvinnu og tryggingar. Flest- ir finna breytingu á viðhorfi þeirra, sem þeir umgangast. Breytingin þarf ekki að vera mikil eða augljós, en sjúklingurinn er mjög næmur á allt slíkt og túlkar hana gjarnan sem afneitun. Líðan þeirra, sem komnir eru yfir fimmtugt, er sér- staklega erfið, því þeir ólust upp á þeim tíma þegar krabbamein var ekki nefnt á nafn. Sjúklingur, sem hefur fengið þann úrskurð að hann sé með krabbamein, stendur í raun og veru einn. Það er hans líf, sem nú er ógnað. Það er hann, sem þarf að taka afleiðingunum. Þetta er allt annað en að lenda í annarri lifs- hættu, eins og t.d. náttúruhamför- um eða stórslysi, því þá fer allt umhverfið á annan endann og fleira fólk er í sömu aðstöðu. Fólk, sem upplifir atburðinn nákvæmlega eins. Fólk, sem hægt er að styðjast við í þessari martröð. Það er af þessum sökum sem stuðningshópar fólks, sem fengið hefur krabbamein, gera svo mikið gagn. Samskipti við aðrá, sem þekkja þessa lífsreynslu af eigin raun og hafa lifað hana af, geta hreinlega gert gæfumuninn fyiir andlega liðan krabbameinssjúkl- inga. Þeir treysta þessu fólki og vita, að það skilur líðan þeirra betur en allir aðrir. (Auðvitað á þetta ekki bara við um krabbameinssjúklinga. Slíkir stuðningshópar hafa einnig gert stórkostlega hluti fyrir alkó- hólista, aðstandendur áfengis- sjúkra, syrgjendur, hermenn sem börðust í Víetnam og marga fleiri.) EKKI SJÚKLINGNUM AÐ KENNA EDA ÞAKKA Eins óg fyrr segir eru þeir sífellt fleiri, sem fengið hafa krabbantein og lifað löngu og góðu lífi á eftir. Þetta fólk losnar þó seint við óttann við að meinsemdin taki sig upp aftur. Það er sérstaklega erfitt, þegar meðferð er nýlokið og sam- skipti við lækna og hjúkrunarfræð- inga minnka skyndilega. Fólkið fyllist þá öryggisleysi og á í erfið- leikum með að aðlagast hinum nýju aðstæðum. Sumir finna hjá sér þörf til að halda áfram að vera undir læknishendi og aðrir hafa miklar áhyggjur af því að geisla- meðferð hafi haft aukaverkanir á líkama þeirra, sem komi í Ijós síðar. Fræðsla er besta hjálpin fyrir fólk í framangreindu ástandi. Upp- lýsingar og aftur upplýsingar. í gamla daga, þegar ekki mátti nefna krabbamein á nafn, var litla fræðslu að fá á prenti. Sú er ekki lengur raunin og geta læknar bent fólki á rit og bækur, þar sem finna má svör við mörgum spurningum. Fræðsla er sem sagt lykilorð í sam- bandi við krabbamein — bæði fyrir sjúklingana sjálfa og alla aðra. Með aukinni fræðslu breytist lika vonandi afstaða fólks til krabba- meinssjúklinga. Framkoma ann- arra er oftast í beinum tengslum við það hvort álitið er að sjúklingurinn eigi sjálfur einhverja sök á lasleik- anum eða ekki. Það sjáum við best á viðhorfinu til alnæmissjúklinga. Og það vill enn loða við krabba- mein, að sjúklingurinn hafi eitt- hvert vald yfir sjúkdómnum. Talað er um fólk, sem hafi beitt ótrúleg- um viljastyrk i baráttunni. Hrein- lega rifið sig upp úr veikindunum og neitað að deyja. Slíkar fullyrð- ingar gera mikið ógagn. Þar með er verið að gefa í skyn að sjúklingur- inn stjórni hlutum, sem hann hefur alls ekki á valdi sínu. Það má ekki gleymast að hinar síauknu lífslíkur krabbameinssjúklinga eru lækna- vísindunum að þakka. Fólk stjórn- ar því ekki sjálft hvort það fær krabbamein — eða hvort það fær bót meina sinna. Þegar ýjað er að slíku eru menn að viðhalda for- dómum, sem gera krabbameins- sjúklingum lífið mun erfiðara en það þyrfti ella að vera. Byggt á grein eftir Morton Bard, varafor- mann bandariska krabbameinsfélags- ins. Krabbamein er sá sjúkdómur, sem fólk hræðist líklega mest. Úr- skurður um slíka meinsemd er líka af mörgum talinn hreinn dauða- dómur og dauðinn er fyrirbæri, sem fáir vilja láta minna sig á og enn færri geta rætt um á eðlilegan hátt. Þess vegna eiga menn oft afar erfitt með að umgangast krabba- meinssjúklinga, verða vandræða- legir og reyna jafnvel að forðast þá. Og slík viðbrögð eru síst til þess fallin að bæta andlega líðan sjúkl- inga, sem fengið hafa eða eru með þennan alvarlega sjúkdóm. Hermann Ragnar Stefánsson, danskennari og útvarpsmaður, greindist með krabbamein fyrir hálfu öðru ári. Hann þekkir því af eigin raun það áfall, sem slíkur úr- skurður er, hvernig það er að lifa með þessa vitneskju og hvernig við- brögð okkar hinna eru við fólki í hans aðstöðu. Hermann féllst fús- Iega á að ræða við mig um andlegu hliðina á því að fá krabbamein, enda er hann mikill áhugamaður um opnari umræðu um þennan sjúkdóm, sem mörg okkar — sem nú teljum okkur til hinna „heil- brigðu“ — gætu átt eftir að glíma við, fyrr eða síðar. SLÖKUN 0G HUGLEIÐSLA HJÁLPA MIKID „Ég er varaformaður félags krabbameinssjúklinga og aðstand- enda þeirra, sem nefnist Styrkur. Það er mjög ungt félag, einungis tæplega eins árs, en Óskar heitinn Kjartansson gullsmiður var aðal- hvatamaður að stofnun þess. Starfsémin fer öll fram í hjáverk- um og peningaleysi hrjáir okkur einnig, en það kom fljótt fram hjá okkur hugmynd um stofnun svo- kallaðra stuðningshópa. Við viljum stuðla að því að fólk með samskon- ar sjúkdóm — og jafnvel aðstand- JÓNÍNA LEÓSDÓTTIR

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.