Pressan - 14.10.1988, Side 21
Föstudagur 14. október 1988
21
LDR A
Rokkhljómsveitin Gildran sendi frá sér í síðasta mán-
uði aðra breiðskífu sína og ber hún heitið Hugarfóstur.
í nóvember eiga meðlimir Gildrunnar, Birgir Haralds-
son, söngvari og gítarleikari, Karl Tómasson trommu-
leikari og Þórhallur Árnason bassaleikari, 10 ára sam-
starfsafmæli. Því má með nokkrum sanni segja að
hljómsveitin standi á tímamótum. Rokkpressan spjall-
aði við Gildruna um nýju plötuna og fleira sem henni
tengist, beint eða óbeint.
— Gætuð þið sagt mér frá tilurð
Hugarfósturs?
„Hugarfóstur var tekin upp í
mars og apríl á þessu ári í Stúdíó
Stemmu. Upptökum stjórnuðu
Gunnar Smári og Diddi fiðla. Plat-
an átti að koma út í maí og hlutir
voru mjög jákvæðir í sambandi við
útgáfu og slíkt. Steinar bauð okkur
mjög góðan samning, sem við skrif-
uðum undir. En í maí varð Birgir
fyrir því óhappi að fingurbrjóta sig.
Þetta gerðist eftir tónleikana með
Uriah Heep, en þar vorum við ein-
mitt byrjaðir að kynna efnið af
plötunni. Því urðum við að fresta
útgáfu til september, en nú er plat-
an sem sagt komin út.“
— Og er útkoman í samræmi við
hugmyndir ykkar í upphafi?
„Já, og báðar plöturnar, Huldu-
menn og þessi, breyttust því sem
næst ekkert í stúdíói. Við vorum
með báðar plöturnar svo til klárar
þegar við byrjuðum upptökur. Það
er ekkert lag á Hugarfóstri sem ekki
er eins og það átti að vera. Platan er
mjög nálægt því sem við vorum
búnir að hugsa okkur.“
— Nú eigið þið áratugar sam-
starfsafmæli í nóvember?
„Rétt er það og okkur finnst
mjög gaman að því. Sennilega verð-
ur haldin stórveisla af tilefninu. Við
erum ekki að þessu til þess eins að
geta sagt að við höfum starfað sam-
an í 10 ár, málið er að þetta hefur
bara gengið upp. Og á þessu tíma-
bili eru 10—12 menn búnir að starfa
með okkur. En árið 1985 ákváðum
við að við þrír skyldum bara starfa
saman, verða tríó. Fram að þeim
tíma hafði líf okkar sem tónlistar-
manna snúist um æfingar og aftur
æfingar. Einn kannski hætti og þá
þurfti að fá annan í staðinn sem
þurfti að æfa upp. Við ákváðum að
þetta gengi ekki svona lengur og
höfum starfað saman þrír eftir það.
Hlutirnir eru líka byrjaðir að
ganga.“
— Nú eru tvær breiðskífur að
baki. Finnst ykkur mikill munur á
þeim?
„Höfuðmunurinn er sá að á
Fóstrinu eru fjögur róleg lög en
fimm rokkarar. Á Huldumönnum
voru hins vegar eintóm rokklög.
Hugarfóstur er að okkar mati
miklu yfirvegaðri plata.“
— Er það viljandi gert?
„Mikil ósköp! Þetta var allt
skipulagt frá upphafi. Sjáðu til,
það er svo mikið af hljómsveitum
sem taka upp 12—15 lög og svo er
bara valið. í sjálfu sér er ekkert
athugavert við það, en vegna þess
að við erum fátækir og allt það
æfðum við 15 lög en völdum síðan
níu á plötuna."
— Var einhver munur á vinnu-
brögðunum í Stemmu núna miðað
við upptökurnar á Huldumönnum?
„Sáralítill, nema að því undan-
skildu að núna eyddum við meiri
tíma í hljóðblöndun þannig að
„sándið" er betra. Og þegar við lít-
um til baka þá vorum við bara í
mjög góðum „fílíng“ í Stemmu.
Við vorum að vinna með mönnum
sem við kynntumst í fyrra og þekkj-
um þá þal. vel. Þetta var allt mjög
yfirvegað, small mjög skemmtilega
saman."
— Þácr það hin klassíska spurn-
ing; tónlistaráhrif, hvaðan koma
þau?
„Þau koma náttúrlega úr plötu-
söfnunum okkar sem innihalda vel
að merkja mikið af þungarokki og
öðru rokki. Aðaláhrifin koma úr
þungarokkinu en úr öðru rokki
líka. “
— En nú eru ekki mjög mikil
þungarokksáhrif á plötunni, þetta
er meira í hefðbundnum stíl.
„Það örlar aðeins á þeim í laginu
Heiðinni en fyrir utan þaðeru þessi
Iög bara rokklög og fyrir okkur er
þetta bara rokk og ról. Gildran er
ekki þungarokkshljómsveit eins og
margir halda.“
— Er eitthvað sem ykkur finnst
vera séreinkcnni á Hugarfóstri?
„Ekki nema það að á henni gef-
um við rólegum lögum tækifæri.
Það höfum við aldrei gert áður og
við vildum prófa það núna.“
— Sýnir þetta að þið séuð að
mýkjast?
„Það gerir það og Hugarfóstur er
miklu mýkri plata en Huldumenn
þó svo rokklögin á henni séu í raun
ekkert mýkri en huldumannarokk-
ið. Rólegu lögin mýkja hana upp og
gera aðgengilegri fyrir stærri hóp.
Til dæmis geta foreldrar okkar
hlustað á lag eins og Værð án þess
að segja: „Slökktu á þessu helv...
gargi.“ Samt er þetta ekki nein
sölubrella hjá okkur. Okkur lang-
aði einfaldlega að hafa þetta 10 ára
gamla lag eftir Birgi á plötunni."
— Hugarfóstur, var platan búin
að vera það lcngi?
„Það má segja það, því á henni
eru Iög á öllum aldri; 10 ára gamalt
lag, þriggja ára og lög þaðan af
yngri. Nafnið kom hins vegar til
þegar fornvinur okkar og textahöf-
undur, Þórir Kristinsson, kom með
texta með þessu nafni 4 mánuðum
áður en við fóruni í stúdíó. Textinn
er hans hugarfóstur en lögin okkar
liins vegar. Þannig að okkur fannst
þetta mjög viðeigandi.“
— Vel á minnst, tcxtahöfundur-
inn. Væri hægt að fá að vita einhver
nánari deili á honum?
„Hann byrjaði að starfa með
okkur þegar við vorum að gera
Huldumenn. Þarátti hanrtallatext-
ana og þeir voru jafnframt það
fyrsta sem birtist eftir hann á
prenti. Þórir hefur fengist við
ljóðagerð alveg frá því hann var
smápolli og okkur finnst textarnir
hans alveg meiriháttar, langtum
betri en þegar við vorum að bram-
bolta við að semja við þungarokkið
okkar. Það voru ekki glæsilegar rit-
smíðar. Við erum oft spurðir út í
textana hans Þóris því þeir eru ekki
alveg eins og textar sem maður býst
við í rokktóniist. T.d. er töluverð
rímfræði í þeim. Fólki finnst þetta
mjög skrýtið en við erum hæst-
ánægðir með þá.“
— Á plötuumslagi stendur:
„Það hefst víst allt með seiglunni."
Eru þetta einkunnarorð plötunnar?
„Já, það er rétt hjá þér, þetta eru
einkunnarorð hennar. Þetta á sér
samt sögu. Þannig var að það komu
tvö nöfn til greina á fyrstu plötuna
okkar, Seigla og Huldumenn.
Okkur fannst síðara nafnið meira
viðeigandi því við vorum hálfgerðir
huldumenn í tónlistarheiminum.
En svo kom Þórir með texta sem hét
Seigla og þá ákváðum við að þetta
skyldu verða einkunnarorð Hugar-
fósturs vegna þess að það er hrein
og klár seigla að við skulum ennþá
starfa saman. Það sem hefur
haldið okkur gangandi er jákvæð
„krítík“ sem við höfum fengið í
gegnum árin.“
— Hafa komið slæm tímabil hjá
Gildrunni?
„Það versta sem yfir okkur hefur
dunið er þetta enska ævintýri sem
við lentum í árið 1985. Það gekk
mjög nærri hljómsveitinni og var
virkilega erfitt tímabil.“
BLOMSTRANDI
— Segið þið mér aðeins nánar
frá því.
„Sumarið ’85 fórum við til Eng-
lands til að slappa af og skemmta
okkur. í leiðinni ætluðum við i
stúdíó í Sheffield og taka upp níu
þungarokkslög, bæði vegna þess að
það var ódýrt og eins af því að okk-
ur langaði til þess. Þar kynntumst
við upptökustjóra að nafni Mark
Estdale og hann varð mjög hrifinn
af því sem við vorum að gera. Þess
vegna sagðist hann vilja gera eitt-
hvað meira með okkur. Við trúðum
þessu varla en málin þróuðust
þannig að sumarið ’86 kom hann
hingað til lands og þá tókum við
upp grunna að tveimur lögum sem
við kláruðum síðan úti. Að því
loknu sagöi hann að það væru mjög
miklar líkur á að við fengjum samn-
ing. Sú varð líka raunin og við skrif-
uðum undir hoppandi kátir og
héldurn heimleiðis bókstaflega í
„skýjunum“. Síðan sendi hann
okkur þrjú prufueintök af plötunni
sem átti að heita „Good Balance”.
Þá tóku við endalausar hringingar
og vesen, ekkert gerðist. Eftir rúmt
ár fengum við nóg og hættum þessu
bara. Þá ákváðum við að gera ís-
lenska plötu. Þetta var áfall fyrir
okkur þvi það var allt klárt, meira
að segja umslagið á plötuna."
— En snúum okkur aftur aö
Hugarfóstrinu. Er eitthvert lag á
henni sem ykkur finnst bera af?
„Eiginlega ekki, en við erum
mjög stoltir al' laginu Heiðinni, sem
okkur finnst töluvert mögnuð laga-
smíð. Það tekur um átta mínútur í
flutningi og okkur finnst skemmti-
leg stígandi í því. Almennt erum við
mjög montnir af þessari plötu og
núna eru hlutirnir byrjaðir að
ganga almennilega, eftir mikið basl
og eitt það súrasta epli sem nokkrir
tónlistarmenn hafa bitið í, þ.e.a.s.
enska plötudæmið.“
— A textablaðinu, sem er
óvenjuvandað, stingur tvennt í aug-
un; Buddah og Skeiðhúsfélagið.
Hvað er þetta?
„Buddah er listamannsnafnið á
manninum sem teiknaði umslagið á
„Good Balance". Það umslag var
stórkostlegt listaverk sem enginn á
sennilega nokkurn timann eftir að
sjá. Skeiðhúsafélagið er hins vegar
félagsskapur sem á aðsóknarmet á
tónleika Gildrunnar. Þessir sjö
drengir mættu á tónleika hjá okkur
fjögur kvöld í röð. Þetta er ekki
hestamannafélag heldur hörðustu
stuðningsmenn Gildrunnar.“
— Og núna eruð þið að spila á
fullu og kynna plötuna, ekki satt?
„Jú, jú, við erum búnir að spila
stíft eftir að platan kom út, bæði
hér á höfuðborgarsvæðinu og úti á
Iandi. Spiluðum m.a. mjög góðan
konsert á Akranesi þar sem allt varð
bókstaflega vitlaust. Gaman að því.
Næsta fimmtudagskvöld verðum
við svo með konsert í Duus-húsi,
einnig eru Vestmannaeyjar á dag-
skrá.“
— Þannig að Gildran er
blómstrandi núna?
„Já, Gildran er blómstrandi og er
orðin að því sem við vildum að hún
yrði. Við njótum, að við höldum,
töluverðrar virðingar en erum ekki
endilega efstir á vinsældalista,
okkur er líka alveg sama um það.
Kannski lifir hljómsveitin bara
lengur fyrir vikið. Það viljum við
miklu frekar.“ ■