Pressan - 10.11.1988, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Guðmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins, hélt fertugsaf-
mœli sitt hátíðlegt I fyrri
viku. Nokkrir nánir banda-
(lags)menn og vinir Guð-
mundar, allt karlmenn (til
að storka landsfundi
Kvennalistans), sóttu Guð-
mund heim, afhentu honum
gjafir og fluttu hátíðarrœð-
ur.
Að loknum rœðuhöldum,
hestaskál og veisluföngum
var haldið í sérstaka rútu-
ferð um höfuðborgina og
nágrenni. Þetta var sýnis-
ferð um ævislóðir Guð-
mundar og var afmælis-
barnið bæði fararstjóri,
kynnir og þulur. Milli lýs-
inga á uppvexti, skóla-
göngu, húsnæðismálum,
pólitískum ferli og störfum
voru sungin létt lög í anda
liðinna áratuga. Rútuferðin
bar heitið „Á söguslóðum
sómamanns", en var síðar
um kvöldið skírð upp á
nýtt: „Magical Mystery
Tour“.
Að sjálfsögðu var
PRESSAN til staðar og
smellti nokkrum Ijósmynd-
um af.
Jón Ásbergsson, forstjóri Hagkaups, afhenti afmælis-
barninu, fyrir hönd nokkurra vina, sérstakan spegil-
stand fyrir verölaunabikara fyrir gæðing afmælis-
barnsins. Gæðingurinn heitir„Rifandi gangur". Garðar
Sverrisson, blaðamaður með meiru, horfir á.
Eftir afmælissöng var haldið til rútu. Þórður Ólafsson
og Stefán Benediktsson halda á kælitösku með
kampavíni. Ingólfur Margeirsson ritstjóri á milli þeirra,
gagnrýninn á svip.
„Hann á afmæli i dag!“ sungu veislugestir fuilum
hálsi. Frá vinstri: Guðmundur Einarsson, Þóröur Óiafs-
son, Garðar Sverrisson, Ólafur Jónsson, Jón Ásbergs-
son, Stefán Benediktsson og Jón Bragi Bjarnason.
I sýnisferðinni um slóðir sómamannsins Guðmundar
Einarssonar var lagið tekið með innlifun. Ingólfur
Margeirsson handfjallar gítarinn í undirleik meðan
allir syngja með sínu nefi nema Stefán Friðfinnsson
(standandi), sem söng annan bassa.
velkomin i heiminn
3. Lokaði augunum og hló. Ný-
fæddur íslendingur sem ekki læt-
ur sér allt fyrir brjósti brenna. For-
eldrarnir heita Dagný Þórólfsdótt-
ir og Jóhann Tómasson. Stúlkan
litla fæddist i fyrradag og var 49
sentimetrar að lengd og 12 og Vi
mörk að þyngd.
Pressan minnir alla nýbakaða foreldra á
að þeir geta fengið birta mynd af barn-
inu sínu í blaðinu. ef þeir senda okkur
Ijósmynd.
Heimilisfangið er: PRESSAN. Ármúla36, 108 Reykjavík.
V.'t. •»;
1. Þessi ungi snáði sem pirir
augun og setur totu á munninn
sinn er sonur þeirra Arndísar
Höllu Ásgeirsdóttur og Baldurs
Gunnarssonar. Þeim fæddist
drengurinn 5. nóvember og hann
var stór og pattaralegur, 53 senti-
meírar að lengd og vó 16 merkur.
4. Undrandi barnsaugu. Stór. Til-
heyra syni þeirra Halldóru
Magnúsdóttur og Magnúsar
Gunnarssonar. Fæddur 7da nóv-
ember. Lengd: 53 sentimetrar.
Þyngd: 17 merkur. Stór islenskur
karlmaður.
5. Þessi strákur heitir Axel. Búinn
að fá nafn þó hann sé ekki nema
rétt kominn til að vera. Móðirin ku
vera af frönsku bergi brotin, Ann
Sigurjónsson, faðirinn íslending-
ur, Gunnar Kr. Sigurjónsson. 13
merkur að þyngd. 50 sentimetrar
að lengd.
9. Engin einustu svipbrigði. Þreytt
lítil stúlka sem sefur. Guðbjörg
Halldóra Ólafsdóttirog Þorvarður
Einarsson eiga hana þessa og
hún var 12 og V2 mörk að þyngd,
lengdin hinsvegar 50 sentimetrar.
Skrýtið hvað litlar stúlkur eru oft
12 og V2 mörk. Kannski kjörþyngd
fagurra kvenna við fæðingu?
10. Þessi litla hnáta fæddist þeim
Elinu V. Þorsteinsdóttur og Agli
Egilssyni þann 23. siðasta mánað-
ar. Hún er lítil og nett en um leið
ósköp krúsidúlluleg. Hún vó 10
merkur og var 46 sentimetrar aö
lengd.
2. Ástu Þorleifsdóttur og Jóni
Gunnari Hilmarssyni fæddist
þessi litla dóttir 6. nóvember. Hún
herpti sig svolitið framan i Ijós-
myndarann en hvað um þaö.
Stúlkan vó 12 og V2 mörk og
mældist 50 sentimetrar.
6. Þessi unga stúlka er útlend-
ingsleg. Dökk. Enda foreldrarnir
franskir. Þau Laurence og Jean
Francois Fiévet. Sú stutta, la
petite (eða eitthvað svoleiðis), var
54 sentimetrar og 3.560 grömm.
11. Hér er Eyjapeyi og hallar undir
flatt. Veröur ábyggilega góður
lundaveiðimaður þegar hann
stækkar. Þessj drengur er sonur
þeirra Hrefnu Ó. Erlingsdóttur og
Jónasar Þórs Sigurbjörnssonar
og fæddist á Sjúkrahúsinu i Eyj-
um 27da dag októbermánaðar.
Hann vó 3.920 g og mældist 52
sentimetrar. Hvorki meira né
minna.
12. í siðustu PRESSU gerðum við
þér Ijótan grikk og biðjum þig af-
sökunar. Myndin af þér víxlaðist
við mynd annarrar stúlku. Þú ert
dóttir Karenar Tómasdóttur og
Péturs Guðmundssonar og fædd-
ist 27da október.
* v
8. Opinmynntur bendir maðurin
á það sem honum er ókunnug
Stubburinn sem hér sést er soni
Kolbrúnar ívarsdóttur og Þói
Þórarinssonar. Hann var stór. 1
merkur að þyngd og 54 sentimet
ar að lengd.
13. Og ekki fórum við betur með
þig. Biðjum sömuleiðis afsökun-
ar. Þú ert dóttir Lindu Gunnars-
dótturog Kolbeins Konráðssonar
og fæddist 27da október.
7. Yfirbragð heimspekingsins.
Ró, yf irvegun. Stúlka sem fæddist
þeim Hönnu Guðmundsdóttur og
Ágústi Einarssyni nýverið. Hún
var 14 merkur að þyngd og 52
sentimetrar að lengd.