Pressan - 10.11.1988, Side 6

Pressan - 10.11.1988, Side 6
HHPf 'cifHrncv'So Olr 'ii»n^hii^rnmi^ Fimmtudagur 10. nóvember 1988 55 Ef ég væri ekki á lyfjum væri ég eflaust kominn á Klepp eða búinn að fremja einhvern glæp á sjálfum mér eða öðrum þessu dæmigerða lífi nýríks fólks. Það er engin slík skýring á málinu. Þetta er bara nokkuð, sem gerist, og maður ræður ekki fram úr. Það er sama þó maður berjist með klóm og kjafti og allir séu boðnir og bún- ir að hjálpa. Öll aðstoð er nefnilega vonlaus, þegar staðan er orðin þannig að maður tapar tugum þús- unda á degi hverjum! Þetta er eins og að sökkva hægt og sígandi ofan í einhvern pytt, sem maður kemst ekki upp úr. GLEYMI ÞESSU EKKI EINA MÍNÚTU Það, sem fór verst með mig, voru fordómar þjóðfélagsins gagnvart fólki í okkar stöðu. Ég var t.d. mik- ið á varðbergi, þegar ég mætti þar sem stofnfundur samtaka gjald- þrota einstaklinga var haldinn. Ég fylgdist með fólkinu fara inn og gætti þess að ganga ekki í salinn fyrr en nákvæmlega á þeirri mín- útu, sem fundurinn átti að hefjast. Ég ætlaði sko ekki að vera fyrst á staðinn, enda kveið ég því ógurlega að þurfa að horfast í augu við allt þetta fólk. Það var ekki fyrr en á hólminn var komið að ég fann til samkennd- arinnar með öllu fólkinu, sem hafði liðið alveg sömu sálarkvalir og ég. Þá hugsar maður „guð minn góður hvað þetta fólk á bágt“, því margir eru enn verr staddir en við. Sumir eru með ung börn og hafa ekki fengið vinnu, fyrir utan að hafa orðið þess valdandi að nákomnir ættingjar standa á götunni. Núna reyni ég auðvitað að horfa fram á veginn, en ég get ekki gleymt þessu. Ekki eina minútu. Við erum líka í stöðugri baráttu. Baráttu við að klóra okkur fram úr vandanum. Maður byrjar nefnilega ekki á neinu núlli eftir gjaldþrot, eins og margir virðast halda. Það er svo af og frá. Ég veit ekki um eitt einasta tilfelli í samtökunum, þar sem fólk- ið er ekki með fleiri milljónir á bak- inu. Alltaf er eitthvað, sem situr eft- ir af skuldum. Maður er búinn að semja við einhverja, sem voru manni góðir, og verður að standa við ákveðnar skulbindingar. Yfir- leitt eru upphæðirnar upp á margar milljónir og maður fær engin lán eða fyrirgreiðslu út af þessu. Þetta eru hin erfiðustu mál og lausn þeirra felst bara í vinnu og aftur vinnu. En þá má heldur ekk- ert bregðast. Ég má t.d. ekki til þess hugsa ef ég eða maðurinn minn myndum veikjast og þurfa að vera frá vinnu. Við værum þar með búin að vera! Hver einasti dagur er mikilvægur fyrir fólk í okkar stöðu og við verðum að sjálfsögðu að spara alla hluti. Maður fer ekkert út í búð og kaupir steik í matinn eða neitt slíkt. Það kemur ekki til greina. En við erum geysilega lán- söm, þrátt fyrir allt. Við fengum notalegt húsnæði, þó það sé að vísu afskaplega þröngt vegna þess hve mörg við erum í heimili. Og krakk- arnir okkar hafa látið sér þetta lynda. Þau sætta sig við þrenging- arnar og taka þeim aðdáunarlega. Það er ekkert verið að kvarta og kveina og það hefur létt okkur hjónunum lífsbaráttuna meira en orð fá lýst. VILDI EKKI VAKNA AD MORGNI.. Það grípur mann mikið öryggis- leysi, þegar maður fer frá því að vera í tiltölulega góðum efnum og í það að missa allar eigurnar. Það er öryggisleysið, sem leggur mann í rúmið og veldur því að maður getur ekki samið, sótt um vinnu eða yfir- leitt staðið beinn í baki. Og þessi reynsla er sár. Auðvitað er alltaf aðdragandi að því að fólk verði gjaldþrota, en maður er ávallt að berjast. Þegar allt er komið í þrot gefst maður hins vegar endanlega upp og þá er allt búið. Maður gerir slíkt ekki bros- andi. Eins og ég sagði fór maðurinn minn á sjúkrahús og bæði gengum við til sálfræðings. Við vildum gera allt til að þetta bitnaði ekki á hjóna- bandinu, því við höfðum ekkert 55 nema hvort annað. Við bárum þetta ekki á torg, heldur vorum eiginlega í felum. Okkur Iangaði samt til að taka þátt í lífinu, enda bæði kát og mikið fyrir að blanda geði við annað fólk. Það var þó nokkuð, sem við leyfð- um okkur ekki. Við vorum hrædd um að fólk færi að spyrja um óþægilega hluti og einnig er erfitt að hlusta á umræður um það, sem maður hefur sjálfur fengið að reyna. Hlusta á kunningja sína segja frá „aumingjaskap" einhvers, sem hafi „spilað rassinn úr buxun- um“ og annað i þeim dúr. Við slíkar setningar fáum við sting í magann og verður hreinlega illt. Svo við er- um áfram bara tvö ein með þetta mál. Tölum einvörðungu um þetta hvort við annað, án þess að aðrir komi þar inn í. Þetta breyttist að vísu svolítið, þegar við eignuðumst stuðning í samtökunum. Ég tók að mér að hringja í fólk, sem boða átti á fund, og það var bitur reynsla. Það var bitur reynsla. Alveg hræðileg Iífs- reynsla. Sumir grétu í símanum og kona nokkur sagðist t.d. ekki vilja vakna um morguninn. Það var ólýs- anlegt að hlusta á þetta. En allir, sem lenda í þessu, komast að lokum í þrot. Sálin gefst upp. Og þá fer maður að hugleiða sjálfsvíg. Ég held, að við eigum það flestöll sam- eiginlegt. Eftir að ógæfan dynur yfir erum við líka flest afskaplega auðsæran- leg og viðkvæm. Margar einhleypar konur lenda þess vegna í klónum á alls konar lýð. Þær missa alla sjálfs- virðingu og fyllast sjálfsfyrirlitn- ingu, enda er ekki um að ræða neina félagslega hjálp fyrir fólk í þessari stöðu. Á endanum eru þess- ar konur líka búnar að vera. Þær eiga sér ekki viðreisnar von. Og þá koma sjálfsvígin til sögunnar. Þær sjá ekki fram úr vandanum og eng- inn styður við bakið á þeim. Á þessu stigi gera einstæðu kon- urnar hvað sem er. Allt þeirra líf hefur gjörbreyst, félagsleg staða orðin önnur, heimilislífið stundum orðið óbærilegt og þær stimplaðir aumingjar. Þær eiga kannski ekki einu sinni fyrir mjólkurpotti. Þess vegna leiðast margar þeirra út i allt mögulegt. Ég held, að svona hafi verið ástatt fyrir mörgum konum, sem lagst hafa til sunds niðri í ein- hverri fjörunni og síðan ekki sög- una meir. Og ég skil þær mjög vel! Ég hugsaði þetta oft. Vildi ekki þurfa að vakna að morgni..." HEF VERIÐ KEYRÐUR NIDUR AF LYFJUM Næsti viðmælandi okkar var karlmaður af Suðurnesjum. íbúð- arhús hans var selt á uppboði fyrir tíu dögum og líðan mannsins því að vonum ekki upp á marga fiska. „Síðastliðið hálft ár hefur verið hrein martröð, enda hef ég eiginlega verið uppdópaður allan þann tíma. Ég hef verið keyrður niður af lyfj- um. Ef það hefði ekki verið væri ég • sjálfsagt kominn inn á Klepp eða búinn að fremja einhvern glæp á sjálfum mér eða öðrum. Aðdragandinn hefur verið lang- ur, en húsið var bara selt fyrir rúmri viku, svo það er ekki allt komið í ljós enn varðandi þetta mál. Maður horfði smám saman á þetta hrynja. Ég tala hins vegar ekkert um þetta við fólk, því maður reynir að halda 55 55 svona nokkru leyndu eins og áfeng- issýki og öðru, sem þykir ekki vera fólki til framdráttar. Auðvitað hefur maður snúið sér til ýmissa aðila í von um aðstoð, en það hefur ekki gert mikið gagn. Lögfræðingur hjá einum ríkisbank- anum sagði t.d. við mig: „Ég gef þér engan frest. Okkur munar ekkert um að kaupa fleiri íbúðir!" Það varð nú ekki til þess að lyfta manni upp, enda beinlínis sagt til að brjóta fólk niður.“ ÞAÐ VARD ,,HREINSUN“ í VINAHÓPNUM Jónas Þór Jónsson kjötiðnaðar- maður varð gjaldþrota fyrir nokkr- um vikum. Um það leyti birtust við- töl við hann í fjölmiðlum og var hann því spurður hvort það hefði verið meðvituð ákvörðun að fara ekki í felur með stöðu mála. „Þetta þróaðist nú þannig að ég komst ekkert undan því að vera í fjölmiðlum á þessum tíma. í raun gerði það málið — á því stigi — enn verra að vera þannig fyrir opnum tjöldum. Þegar ég áttaði mig á því að ekki varð aftur snúið tók ég ákveðnastefnu, einsog éghef ávallt gert á breytingatímum í lífi mínu. Ég ákvað sem sagt að reyna að fara, í gegnum þetta eins og maður. Láta það t.d. ekki hafa áhrif á mig, þó ég vissi að Pétur og Páll úti í bæ væru að skemmta sér yfir óförum mín- um. Ég hef ekki þurft verulegan stuðning frá ættingjum og vinum út af þessu máli, enda hef ég ekki verið mikið fyrir að bera mín vandamál á borð annarra. Þetta verður heldur aldrei umræðuefni innan fjölskyldu minnar. Ég legg það ekkert á fólkið. Halla mér frek- ar að þessum nýstofnaða félags- skap. Stærsta verkefni samtakanna snertir líka eflaust þessa hluti. Þau sameina fólkið og eru vettvangur umræðu um þetta, þar sem fæstir geta eflaust rætt málin mikið innan fjölskyldunnar. En það þarf líka mikinn kjark til að koma í þennan félagsskap. Það hafa t.d. nokkrir aðilar, sem ég þekki persónulega, hringt í mig og verið að „hlera“. Þeir þora ekki að koma í samtökin, nema vita eitthvað um þau áður. Sporin eru sem sagt þung, en þau geta orðið léttari, þegar menn sam- einast. En þessi lífsreynsla hefur orðið til þess að hreinsa hressilega til í því, sem maður kallaði „vinahóp" hér áður fyrr. Hann hefur grisjast mjög rækilega. Ég er farinn að vinna aftur af fullum krafti. Það er nefnilega langt síðan ég komst að því að vinn- an heldur manni gangandi — sér- staklega á erfiðleikatímabilum í líf- inu. Það hefur enginn drepist af því að vinna vel og mikið, svo ég ákvað að láta gjaldþrotið hafa sem minnst áhrif á mig hvað það varðar. Það er bara dauðadómur að Ieggjast undir sæng og draga upp fyrir haus. En því er ekki að neita, að þetta tekur á mann. Það er alveg á hreinu.“ ÞRJÁR FJÖLSKYLDUR FARA í SVAÐIÐ MED OKKUR Hjónin Anna Jakobsdóttir og Ingvar Hjartarson urðu gjaldþrota fyrir þremur árum „vegna þess að við fórum eftir því, sem aðrir sögðu okkur“, eins og þau segja. í samtali við PRESSUNÁ sagði Anna m.a. eftirfarandi: „Þetta byrjaði allt árið 1983, þeg- ar fjárhúshlaðan okkar á Stökkum á Rauðasandi brann. Við byggðum nýja hlöðu og komum ágætlega út úr því dæmi, en síðan var okkur sagt að við fengjum ekki lengur að framleiða í gamla fjósinu okkar, því það fullnægði ekki nauðsynleg- um kröfum. Jörðin er mjög góð, svo við spurðum þá aðila, sem áttu að vita þetta, hvort það kæmi til að kvóti yrði settur á Vestfirðina. Þau svör, sem við fengum, voru öll á þann veg að það yrði aldrei gert sökum sérstöðu þessa svæðis. Við hugsuðum málið í marga mánuði og alltaf fengum við sömu svörin. Okkur væri fullkomlega óhætt að fara út í fjósbyggingu. Loks réðumst við því í að byggja stórt fjós, en nokkru eftir að það var risið var okkur tilkynnt að við mættum einungis framleiða 30 þús- und lítra. Það var hins vegar bara fjórðungur af því, sem við þurftum að framleiða. Við urðum að fá 110 þúsund lítra til að fjósið stæði und- ir sér. Við fórum í landbúnaðarráðu- neytið og báðum um leiðréttingu á þessu, vegna þeirra fullyrðinga sem við höfðum áður fengið frá þeim og urðu þess valdandi að við réðumst í bygginguna. Þetta streð stóð árin 1986 og 1987. Við vorum í stöðugu sambandi við Sveinbjörn Dagfinns- son ráðuneytisstjóra og Jón Helga- son ráðherra, sem fundu ágæta lausn á þessu dæmi. Þeir ætluðu að láta Jarðakaupasjóð kaupa jörðina og leigja okkur hana til 99 ára og voru búriir að semja við kröfuhafa um helmingslækkun á skuldinni. Allir gengu að því, nema einn aðili. Það var stofnlánadeildin. Og þess vegna var þetta dregið til baka viku áður en uppboðið fór fram! Við stóðum því ráðalaus uppi og gerum enn. Það síðasta,.sem gerst hefur í málinu, er að við báðum um að þær skuldir, sem ættingjar okk- ar væru ábyrgðarmenn fyrir, yrðu a.m.k. greiddar upp. Það tengjast þessu þrjár aðrar fjölskyldur, vegna ábyrgðar sem aðilar innan þeirra gengust í fyrir okkur. Og þær fara með okkur niður í svaðið, ef gengið verður að okkur, því við eigum nátt- úrulega ekki neitt, eftir að við misstum jörðina. Við höfum sent ráðuneytinu Iista yfir þessar upp- hæðir og um daginn hringdi tengdamóðir mín þangað til að grennslast fyrir um þetta. Þá vorum við nýbúin að vera fyrir sunnan, en þau svör sem hún fékk voru mjög ókurteis. Henni var sagt, að þetta væri tóm vitleysa úr okkur. Þeir hefðu aldrei ætlað sér að gera nokkurn skapaðan hlut í málinu! Við höfum leitað á náðir ýmissa í þessu sambandi. T.d. Matthíasar Bjarnasonar, Þorvaldar Garðars Kristjánssonar, Einars Guðfinns- sonar og margra fleiri. En það hef- ur ekkert komið út úr því, svo útlit- ið er svart. VERST ÞEGAR RÖRNIN VERDA VITNI AD ÖLLU SAMAN í fyrrahaust fórum við af jörð- inni og fluttum á Tálknafjörð. Maðurinn minn vinnur auðvitað eins og þræll og sjálf vinn ég á dag- heimili hálfan daginn og svo í fiski frá klukkan eitt til sjö á kvöldin. Við erum með tvö lítil börn, þriggja og fjögurra ára, sem eru á leikskóla allan daginn. Klukkan fimm sækir barnapía þau og gætir þeirra þang- að til ég kem úr vinnunni um sjö- leytið. Við erum í leiguhúsnæði, sem Húsnæðismálastjórn á, en það var boðið upp skömmu eftir að við fluttum inn. Eftir það höfum við staðið í bréfaskriftum í tilraun til að fá það leigt áfram, en ekkert svar hefur borist. Það ríkir því mikil óvissa á heimilinu... Við hjónin erum náttúrulega orðin slypp og snauð og lítið meira hægt að taka af okkur, en foreldrar mannsins míns og fjölskyldur tveggja systkina hans eiga líka yfir höfði sér að missa allt sitt. Þetta hefur þó ekki sett skugga á sam- skipti okkar, þar sem tengdafólkið hefur staðið eins og klettur með okkur. Það veit jafnvel og við hvað um er að ræða og hvaða þrauta- ganga þetta hefur verið. Annað ótengdara fólk finnst mér hins vegar ekki hafa nokkurn skilning á þessu. Við áttum t.d. töluvert erfitt uppdráttar, þegar við fluttum hing- að til Tálknafjarðar — a.m.k. hvað varðar það, sem að mér snýr. Fólk hérna virðist vera mjög lokað og mér fannst það ekkert vilja tala við svona manneskjur eins og okkur. Þetta er kannski vitleysa, en mér fannst þetta vera þannig... En ég veit að þetta er af mörgum talinn hreinn og beinn aumingjaskapur, sem það er svo sannarlega ekki. Heimsóknir lögfræðinganna hafa samt verið það versta. Þeir taka ekkert tillit til þess þó lítil börn séu á staðnum, sem horfa upp á allt saman. Maður veit ekkert hver rétt- ur manns er gagnvart þessum aðil- um, því hér úti á landi eru engir ráð- gjafar, sem hægt er að leita til. Slíka aðstoð þarf að sækja suður og fólk, sem stendur í svona hlutum, hefur ekki peninga í það.“ ■ Sonur minn missti íbúðina sína vegna gjaldþrotsins hjá mér

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.