Pressan - 10.11.1988, Síða 4
4
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
litilræði
Af ho-he
Hafiöi tekiö eftir því — góöir hálsar, aö
þaö ereinsog enginn sé að hugsa um póli-
tík þessa dagana.
Allir að hugsa um eitthvað annað.
Oft hefur fálæti fólksins og fjölmiðla ver-
iö mikið hvaö varöar umsvif Alþingis, en
aldrei einsog núna.
Og samt situr löggjafarsamkundan á rök-
stólum, önnum kafin viö aö leysa aösteöj-
andi vanda, vænka þjóðarhag og fjalla um
þau stórmál sem oröið geta til að skipta
sköpum um örlög fólksins í þessu guös-
blessaða landi.
Forgangsmál einsog þau, hvort þing-
menn eigi, átölulaust, aö fá aö skróþa á
þingfundum þegar þeir nenna ekki að
hangaáþinginu, eöa þegar þeir vilja úthluta
öörum mönnum meö aðrar skoðanir
atkvæöinu sínu.
Hvernig sem á því stendur er einsog fólk-
inu og fjölmiðlunum sé orðið hjartanlega
sama, hvaö veriö er aö sýsla í þinghúsinu.
Og skrópasýki þingfulltrúanna láta allir
sér létt í rúmi liggja.
Tómlætið er ríkjandi.
Afturámóti hafa aðrar fréttir af ööru þing-
haldi veriö á útsíöum dagblaðannadag eftir
dag aö undanförnu.
Þettaeru fréttiraf landsþingi Landssam-
bands hestamannafélaga.
Enginn tekur eftir því aö Jón Baldvin er
um þessar mundir aö lóga Borgaraflokkn-
um meö því aö bjóöa Albert aö vera sendi-
herra í París.
Allir eru hinsvegar, dægrin löng, að hug-
leiða hvaöa graðhestar séu á setjandi til
undaneldis og hverjireigi aö fara í pækilinn.
Og blóöug illindi milli skagfirðingaog ey-
firöinga, útaf þarfasta þjóninum og því hvar
réttast sé að ferfætlingar hittist á næsta
landsmóti, þykja bæöi fréttnæmari,
skemmtilegri, já og spaugilegri en umsvif
tvífætlinga á löggjafarsamkundunni.
Og nú verður mönnum á aö spyrja sem
svo:
Hvernig má það vera aö félagsleg umsvif
hrossaprangara og meramanga vekja meiri
athygli en störf hins háa Alþingis?
Hvernig stendur á því aö handhafar þarf-
asta þjónsins eru vinsælli en handhafar
valdsins?
Svarið eref til vill fólgiö í þeirri staöreynd
aö í hestamönnum og þörfustu þjónum
þeirra endurspeglast allt þaö besta, feg-
ursta og tilkomumesta í fari íslensku þjóö-
arinnar.
Þegarþeireru ekki hlæjandi eru þeirgrát-
andi. Þegar þeir eru ekki í djúpum faðmlög-
um og atlotum, meö tilheyrandi kjassi og
kossum, eru þeir í blóðugum slagsmálum
og þegar söngur þeirra hljóönar tekur viö
annar skarkali af öörum toga.
Þegar þeir eru ekki aö kaupa eru þeir aö
selja.
Og þaö veit guö (og ég af eigin raun), aö
þegar þeir eru ekki fullir eru þeir edrú.
Þegar hestamenn deila eru þaö ekki
skoöanaskipti, heldur heimsstyrjaldir.
Taliö er aö Flugumýrarbrenna hafi veriö
einsog notalegur mömmuleikur undir
sæng í samjöfnuöi viðeldinn sem geisarút-
af því aö ákveðið hefur veriö aö skagfirðing-
ar fái aö halda næsta landsmót hestamanna
en ekki eyfirðingar.
Aöalmáliö sem lá fyrir nýafstöönu lands-
þingi Landssambands hestamanna var aö
kjósa formann, sem líklegur væri til aö bera
klaeði á vopnin og vera friöarboði.
Ágætur maður var í framboöi, Kári Arn-
órsson, en ekki meö öllu víst að hann næöi
kjöri.
Þegar hinsvegar stórfrétt birtist á bak-
síöu DV, aö Kári væri potturinn og pannan í
öllum illindum meöal hestamanna, varhann
umsvifalaust kosinn rússneskri kosningu
og mótatkvæðalaust.
Þaö er nefnilega staöreynd aö hesta-
menn vilja hafa líf í tuskunum.
Aö þessu landsþingi hestamanna af-
stöönu finnst mér rétt aö rifja upp í örfáum
orðum og til gamans hvernig landssam-
bandiö varö til.
Þaö var í upphafi síöari heimsstyrjaldar-
innar aö Jónas heitinn frá Hriflu veitti því
athygli aö bændurvoru sífellt aö farasérað
voöa, veltandi sauödrukknir af sláttuvélum
og öörum manndrápstækjum, sem þeir
höföu spennt kvika, fjörmikla og fælna
gæöinga fyrir.
Jónas kallaði Gunnar Bjarnason, sem þá
var — einsog í dag — uppá sitt besta og
setti honum þaö fyrir aö sporna við fækkun
bænda með því aö rækta upp klunnalegt,
þungt og latt vagnhestakyn. Húðarjálka.
Gunnar tók þessu vel og mun þetta vera
taliö upphaf skipulegrar hrossaræktar á ís-
landi.
Nú segirsagan aö ráöherrann hafi komiö
aö málefnum hestamanna og sagt (svo vitn-
aö-sé í ritaöar heimildir):
— Þettaeru siölausirmenn og fyllibyttur
og gersamlega óviöráöanlegir, en það er í
þeim svo mikiö listeðli aö eiginlega þyrfti
aö spyrða þá saman og virkja í þeim náttúru-
kraftinn.
Og þetta varö til þess að Landssamband
hestamanna var stofnaö.
Mér kemur eiginlega helst í hug aö af-
stöönu Landssambandsþingi hestamanna,
aö gaman gæti veriö aö reyna aö virkja nátt-
úrukraftinn í fulltrúum þjóöarinnará Alþingi
íslendinga.
En þá kemur uppí hugann vísuparturinn:
— Það virkjar enginn það sem ekki er til.
PRESSU
MOLAR
I auglýsingu frá Ferdamiðstöð-
inni, sem birtist í Morgunbiaðinu
fyrir skömmu, mátti sjá auglýstar
ævintýralegar helgar- og þriggja-
dagaferðir til Egyptalands og
ísraels á enn ævintýralegra verði,
10—11 þúsund kr. Margir hugsuðu
sér því gott til glóðarinnar aö kom-
ast til að sjá pýramída og pílagríma-
staði fyrir ólíkt lægra verð en hinar
vinsælu verslunarferðir fóru á.
Ferðaskrifstofan hafði varla við að
anna símhringingunum frá ferða-
glöðum íslendingum, sem sáu loks-
ins fram á að langþráður drauntur
rættist um að fara á framandi slóð-
ir. Þeir hinir sörnu urðu því fyrir
æði miklum vonbrigðum þegar
upplýstist að Morgunblaðinu hefðu
orðið á mistök i auglýsingargerð-
inni og sleppt úr mjög veigamiklúm
þætti. Það var yfirskriftin: Ævin-
týralegir ferðamöguleikar frá Kýp-
ur...
c
^^jónvarpsbingó Styrktarfélags
Vogs hefur verið lagt niður, a.m.k.
fram að áramótum. Frá því í haust
hefur bingóið verið spilað í þættin-
um Þurru kvöldi á Stöð 2, en ekki
hefur tekist að laða að þann fjölda
þátttakenda sem til þarf svo tekjur
verði viðunandi. SÁÁ-menn eru
sagðir ætla sér að lagfæra fjáröfl-
unaraðferðina áður en bingóið
byrjar aftur...
fl^al um erfiðleika Sambandsins
er farið að hljóma eins og rispuð
grammófónsplata. Munurinn er
kannski sá, að blæbrigðin eru ei-
litlu meiri. Nú heyrist að skipa-
deildin hafi skipað sér kirfilega á
tossabekkinn, því samdráttur í
flutningum til landsins samfara
harðindununt í efnahagslífinu
hefur gert reksturinn mjög þungan.
Við bætist að dregið hefur úr freð-
fiskframleiðslu á Bandaríkja-
markað, sem þýðir að Jökulfellið,
sem verið hefur í þeim flutningum,
siglir nú hálftómt til landsins og
frá...
L
■ ugmyndir um að brjóta SÍS-
veldið upp í einingar og hlutafélög
nýtur mismikillar hylli meðal ráða-
manna í fyrirtækinu. Hugmyndin
kemur frá nefnd sem Valur Arn-
þórsson stjórnarformaður stýrir og
gengur mun lengra en hugmyndir
Guðjóns Ólafssonar forstjóra. Það
var kannski ekki við því að búast að
þeir yrðu sammála um grundvallar-
breytingar. í vor hafði Guðjón lagt
það til á fundi framkvæmdastjórn-
ar og ýmissa sérfræðinga sem hald-
inn var á Selfossi, að deildir SÍS
yrðu gerðar mun sjálfstæðari. Það
að splundra fyrirtækinu upp í
hlutafélög mun ekki hafa verið inni
í myndinni á þeim fundi, enda ljóst
að forstjórinn missti þar með ítök
sín og völd í samvinnuhreyfing-
unni. Margir lita því á tillögur Vals
og félaga sem aðför að Guðjóni.
Forstjórinn mun hins vegar ekki
hafa alltof sterka varnarstöðu þar
sem Sambandið er talið tapa 65
milljónum á mánuði. Það hlýtur að
vera auðveldara að réttlæta róttæk-
ar breytingar þegar svo er komið...
L
■ Hrafn Gunnlaugsson, dag-
skrárstjóri sjónvarps og kvik-
myndaleikstjóri, hefur verið ötull
við að auglýsa mynd sína „í skugga
Hrafnsins“ á Norðurlöndum ný-
verið. Það er þó greinilegt að dag-
skrárstjórinn hefur einnig hugsað
um hag myndarinnar á íslandi.
A.m.k. mun systir leikstjórans,
Tinna Gunnlaugsdóttir, sem leikur
eitt aðalhlutverka myndarinnar,
vera Maður vikunnar næsta laugar-
dag í sjónvarpinu. Sjónvarpið ntun
hafa haft sérstakan viðbúnað við
gerð þessa þáttar og vandað sér-
staklega allan undirbúning...